Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 13
Í HNOTSKURN
» Bourse Dubai hefurtryggt sér kauprétt á
27,5% hlutafjár í OMX.
» Félagið borgar 230sænskar krónur fyrir
hvern hlut í OMX en tilboð
Nasdaq hljóðar upp á 208
sænskar krónur á hlut.
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
STJÓRNENDUR Nasdaq, sem m.a.
rekur samnefnda kauphöll, eru nú að
selja hluta eignar sinnar í kauphöll-
inni í London. Ástæðan er að sögn
viðskiptavefjarins E24 aukinn áhugi
Bourse Dubai, kauphallarinnar í
Dubai, á að kaupa OMX, sem meðal
annars rekur kauphöllina hér landi.
Nasdaq gerði í maí yfirtökutilboð í
OMX og vilja þeir hækka tilboð sitt í
félagið til þess að mæta samkeppn-
inni frá Dubai. Rekstraraðilar kaup-
hallarinnar þar í landi hafa gefið í
skyn að þeir séu tilbúnir til þess að
borga mun betra verð fyrir OMX. Að
sögn The Times gæti tilboðs jafnvel
verið að vænta í vikunni.
Í gær hittu forstjóri og stjórnar-
formaður OMX fulltrúa félagsins til
þess að ræða þróun mála og enn-
fremur segir E24 fulltrúa Bourse
Dubai hafa fundað með Mats Odell,
ráðherra fjármálamarkaðsmála í
Svíþjóð, um málið og kynnt honum
sín sjónarmið. Þetta bendir til þess
að formlegt tilboð sé væntanlegt, en
eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu eru sænsk stjórnvöld í
lykilstöðu hvað tilboð í OMX varðar.
Þar á bæ hafa menn þó passað sig
á að senda markaðnum engin skila-
boð um hver afstaða þeirra til tilboðs
Nasdaq er. Þó má gera ráð fyrir að
úr þessu bíði ráðherrann og sjái
hvort tilboð berst frá Persaflóa.
Nasdaq íhugar
að hækka tilboðið
Reuters
Einvígi Fjárfestar ræða saman í kauphöllinni í Dubai en rekstrarfélag
hennar hefur skorað Nasdaq á hólm í baráttu um OMX.
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA OMXI15 í Kaup-
höll Íslands hækkaði í dag um 1,3%
eftir lækkanir undanfarna daga. Við
lok dags hafði hún aftur farið yfir
8.000 stigin, og stóð í 8.099 stig-
um. Mest hækkuðu bréf Landsbank-
ans eða um 2,7% og Bakkavarar um
2,6%. Einungis var lækkun á gengi
bréfa Eimskipa, sem nam 1,1%.
Heildarvelta dagsins var rúmir 17
milljarðar, þar af voru rúmir 9 millj-
arðar hennar í viðskiptum með hluta-
bréf.
Krónan styrktist sömuleiðis lítil-
lega eða um rúm 0,5% skv. Glitni.
Úrvalsvísitalan fer
aftur upp á við
● ODDAFLUG,
eignarhaldsfélag í
eigu Hannesar
Smárasonar, hef-
ur bætt tæplega
80 milljón hlutum
við eign sína í FL
Group og jafngildir
það 1% af heildar-
hlutafé félagsins.
Þetta kemur fram
í flöggunartilkynn-
ingu til kauphallar OMX á Íslandi. Þar
með á félag Hannesar, sem er for-
stjóri FL Group, 20,77% í FL Group og
er á ný orðið stærsti hluthafi þess.
Næststærsti hluthafi er Gnúpur fjár-
festingarfélag sem á 20% hlut.
Markaðsvirði hlutar Oddaflugs í FL
Group er 43,2 milljarðar m.v. loka-
gengi félagsins í kauphöllinni í gær.
Oddaflug stærsti
eigandi FL Group á ný
Hannes Smárason
forstjóri FL Group.
● SAMKVÆMT nýrri mánaðarskýrslu
Íbúðalánasjóðs (ÍLS) námu heildar-
útlán sjóðsins 6,3 milljörðum króna í
júlí, sem er minna en í mánuðinum
þar á undan. Áætlun sjóðsins gerir
ráð fyrir að útlán á þriðja ársfjórðungi
verði á bilinu 13-15 milljarðar króna.
Íbúðalánasjóður bauð ekki út
íbúðabréf í júlí en alls er áætlað að
gefa út íbúðabréf að nafnvirði 11-13
milljarða á þriðja ársfjórðungi.
Telur Greining Glitnis að hægja
verði á útlánum enn meir til að sú
áætlun standist innan fjórðungsins.
Útlánsvextir sjóðsins eru óbreyttir,
þ.e. 4,80% fyrir lán án uppgreiðslu-
ákvæðis og 5,05% fyrir lán með upp-
greiðsluákvæði.
Hægir á útlánum ÍLS
MAREL kynnti uppgjör sitt í gær.
Hagnaður annars ársfjórðungs nam
7,4 milljónum evra eftir skatta, eða
um 670 milljónum króna, samanborið
við 797 þúsund evrur á sama tímabili
í fyrra. Samanlagður hagnaður
beggja ársfjórðunga nam 8,5 milljón-
um evra, en var 1,4 milljónir í fyrra.
Um 78% af heildarhagnaði þessa árs
voru vegna eignarhaldsfélagsins
LME, sem er stærsti einstaki hlut-
hafi hollenska félagsins Stork, Marel
á 20% í LME.
Ljóst er að Marel er í miklum
vexti, en velta fyrri árshelmings jókst
um 83% milli ára.
Eigið fé nam í júnílok 158 þúsund-
um evra og var eiginfjárhlutfall
40,8%, sem er svipað hlutfall og í árs-
byrjun. Þá var EBITDA á fyrri árs-
helmingi 11,5 milljónir evra.
Einskiptiskostnaður á fyrra helm-
ing ársins nam 4,9 milljónum evra og
er gjaldfærslu hans lokið.
Marel stefnir að 15-20% markaðs-
hlutdeild á 3-5 árum og 400-500 millj-
óna evra veltu. Vöxtur síðustu
tveggja ára er í samræmi við mark-
mið. Samlegðaráhrif með kaupum á
Scanvægt og AEW Delford hafa þó
flýtt fyrir rekstrarmarkmiðum.
Horfur eru almennt taldar góðar,
sterk staða fyrirtækisins þykir styðja
við frekari yfirtökur. Þá kemur fram í
kynningu Marel að órói á fjármála-
mörkuðum geti falið í sér tækifæri
fyrir vel fjármögnuð skráð félög.
halldorath@mbl.is
Tífaldur hagnaður
Uppgjör
Marel Food Systems hf.
CDE )
CDE *
,
,
CDE +
, 6E
,
,
F%G (%
HI
! ,
,
0J:
FKE
,
,
CDE - CDE .
,
,
!" #$$%
/0 1 (" " 1 !
K% 1 %3! "'
6 &$ 1 %3! "'
:; "'
0> 1 %3! "'
1 9 "'
/' :
!'L# ?
MN 1 %3! "'
23! # 9 "'
>9 ? "'
D% N 0" % "'
3
3 B63 0 '9 "'
J
"'
O3 "'
2
!03#
"'
KN& 1 %3! "'
K'N "'
K N ) %3
)P0
: 6
0# 1 %3! "'
0Q % 6
MN N 1 %3! "'
D "'
HR" "'
J ## #
$ "'
A 3$ "'
/.45
.3 K3
3
.%
/6 1 "'
/
! "'
#678
" #
A !
#
J 9% % #=
23!
4 5
555 5 B
B
4 B
5 45 B
B
B
44 B
B
5
4
5
5
5
4
4
5
5
5
4
5
4
4
5
5
4
5
4
5
54
5
4
5
0$
& !
4
4
B
B
B
B
B
B
B
B
F# #
& &
4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 54 4 4 4 54 54 4 4 ALAN Greenspan, fv. seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna, hefur verið
ráðinn sem ráðgjafi til þýska bank-
ans Deutsche Bank.
Greenspan er orðinn 81 árs en
enn í fullu fjöri. Hann hætti sem
seðlabankastjóri í byrjun síðasta
árs, eftir að hafa setið í þeim stóli
frá árinu 1987. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Deutsche Bank mun
Greenspan bæði veita viðskipta-
vinum á viðskiptabankasviði sem
og fjárfestingabankasviði ráðgjöf
sem og starfsmönnum bankans.
Hann mun einnig starfrækja sitt
eigið ráðgjafarfyrirtæki áfram.
Greenspan til Deutsche Bank
● TVÖ félög hafa síðustu daga verið
endanlega afskráð úr kauphöll OMX
á Íslandi. Actavis Group var afskráð
eftir lokun viðskipta í gær og Mosaic
Fashions sl. föstudag. Novator hefur
sem kunnugt tekið yfir Actavis og fyr-
ir helgina lauk yfirtöku Tessera Hold-
ing á Mosaic. Þegar endanlega verð-
ur gengið frá afskráningu félaganna
verða 12 á Aðallista OMX á Íslandi.
Actavis og Mosaic
komin úr kauphöllinni
● HLUTABRÉFAVÍSITÖLUR hófu að
jafna sig um allan heim í gær. Óveru-
legar breytingar urðu á bandarísku
vísitölunum. Breska FTSE-vísitalan
stökk um 3,2% sem er mesta hækk-
un hennar í 4 ár. Franska CAC 40
hækkaði um 2,2% og þýska DAX um
1,8% sem er mesta hækkun hennar
í ár. Rekur fréttaveitan Bloomberg
hækkanirnar m.a. til þess að vísi-
tala smásölu fyrir júlímánuð í Banda-
ríkjunum hefði hækkað, þvert á spár
vegna húsnæðiskreppunnar þar. Auk
þess sem metinnspýting seðla-
banka heimsins hafi náð að róa
markaði. Er haft eftir sérfræðingi hjá
Morgan Stanley að nú sé rétti tíminn
til að kaupa og hefur bankinn breytt
ráðgjöf sinni úr hlutleysi í yfirvogun á
evrópsk hlutabréf.
Markaðir að jafna sig
BANDARÍSKI fjárfestingarbank-
inn Goldman Sachs hefur safnað
liði til þess að „bjarga“ hlutabréfa-
sjóði sínum, Goldman Global Equity
Opportunities. Til stendur að bæta
3 milljörðum Bandaríkjadala í sjóð-
inn sem er mjög illa staddur eftir
fall á hlutabréfamörkuðum heims-
ins. Bloomberg segist hafa heim-
ildir fyrir því að verðmæti sjóðsins
hafi minnkað um 28% á síðasta
mánuði.
Umræddur sjóður er tölvustýrð-
ur, þ.e. allar fjárfestingarákvarð-
anir byggjast á háþróuðum
stærðfræðilíkönum og tölva sér um
allar fjárfestingar. Líkönin virðast
ekki hafa gert ráð fyrir þróuninni á
fjármálamörkuðum undanfarnar
vikur. Þar af leiðandi hefur eitt-
hvað farið framhjá tölvunum sem
hafa ekki brugðist við til þess að
verja sjóðina og tapið er staðreynd.
Fulltrúar Goldman Sachs segja
fjárinnspýtinguna til marks um trú
bankans á sjóðnum og að aukið ráð-
stöfunarfé veiti honum möguleika á
að hagnast á þeirri aðstöðu sem
upp er komin á mörkuðum. Þó er
fullvíst að með þessu vilji þeir einn-
ig koma í veg fyrir að fjárfestar
dragi fé sitt úr sjóðnum.
Sjóði
bjargað
www.utflutningsrad.is
P
IP
A
R
S
ÍA
71494
Viðtalstímar
sendiherra í ágúst
Sendiherrar Íslands í Kaupmannahöfn, Moskvu, Stokkhólmi
og Peking eru til viðtals í ágústmánuði sem hér segir:
Svavar Gestsson, sendiherra í Kaupmannahöfn,
þriðjudaginn 14. ágúst
Umdæmislönd sendiráðsins eru auk Danmerkur:
Ísrael, Rúmenía, Slóvenía og Tyrkland
Benedikt Ásgeirsson, sendiherra í Moskvu,
þriðjudaginn 21. ágúst
Auk Rússlands er umdæmi sendiráðsins: Armenía,
Aserbaídsjan, Georgía, Hvíta-Rússland, Kasakstan, Kirgisía,
Moldóva, Tadsjikistan, Túrkmenistan og Úsbekistan
Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra
í Stokkhólmi, miðvikudaginn 22. ágúst
Umdæmislönd sendiráðsins eru auk Svíþjóðar: Albanía,
Írak, Kúveit, Kýpur, Sádi-Arabía, Serbía og Sýrland
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra í Peking,
mánudaginn 27. ágúst
Auk Kína eru átta önnur ríki í umdæmdi sendiráðsins:
Ástralía, Kambódía, Laos, Mongólía, Norður-Kórea,
Nýja-Sjáland, Suður-Kórea og Víetnam
Fundirnir eru ætlaðir fyrirtækjum sem vilja ræða viðskiptamöguleika,
menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmum sendi-
skrifstofanna, þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.
Þau fyrirtæki sem hafa hug á að bóka viðtöl eru hvött til að gera það
sem fyrst. Gert er ráð fyrir að fundur sendiherra með hverju fyrirtæki
standi í hálfa klukkustund, nema annars sé óskað.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Útflutningsráðs Íslands,
Borgartúni 35, og má bóka þá í síma 511 4000 eða með tölvupósti,
utflutningsrad@utflutningsrad.is
Nánari upplýsingar veitir Svanhvít Aðalsteinsdóttir:
svanhvit@utflutningsrad.is
www.utn.stjr.is