Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 9-16.30 smíði/ útskurður, kl. 9 leikfimi, kl. 9.45 boccia, kl. 9-16 púttvöllurinn. Dalbraut 18-20 | Í félagsmiðstöðinni á Dalbraut 18-20 er spiluð félagsvist alla þriðjudaga kl. 14. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin, leiðbeinandi verður við milli kl. 10-17. Hádegisverð- ur kl. 11.40. Ganga kl. 14. Heitt á könnunni til kl. 16. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9 myndlist og ganga. Kl. 11.40 hádegisverður. Ávallt heitt á könn- unni og heimabakað meðlæti. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 11-12 leikfimi Janick (júní-ágúst). Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, handavinnustofan opin fyrir alla sem hafa áhuga fyrir handavinnu og góðum félagsskap. Félagsvist kl. 14. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17- 22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í kirkjunni og eftir samkomulagi í s. 858 7282. Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir. Fríkirkjan Kefas | Almenn bænastund í kvöld kl. 20.30. Beðið fyrir innsendum bænarefnum sem og öðrum. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Tónlistar- andakt kl. 12. Sr. Bernharður Guðmundsson. Þátt- takendur í meistaranámskeiði Christopher Her- rick leika á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju. www.kirkjulistahatid.is. KFUM og KFUK | Í sumar verða samfélags- og bænastundir á þriðjudögum kl. 20 á Holtavegi 20. Beðið verður sérstaklega fyrir sumarstarfi félags- ins vítt og breitt um landið, ásamt öðrum bæna- efnum sem berast. Vídalínskirkja Garðasókn | Opið hús í sumar í Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju á þriðjudögum kl. 13-16. Við spilum vist og brids, röbbum saman og njót- um samverunnar. Kaffi á könnunni. Vettvangs- ferðir mánaðarlega, auglýstar hverju sinni. Akst- ur fyrir þá sem vilja. Upplýsingasími 895 0169. 70ára afmæli. Í dag, 14.ágúst, verður sjötugur Lárus Arnar Kristinsson, fyrrverandi sjúkraflutninga- maður í Keflavík. Í tilefni dagsins hefur Lárus ákveðið að bjóða til veislu dagana 17. og 18. ágúst. Lárus verður á Hofsósi þar sem hann mun vera við stjórn útgerðarfélags- ins Syðri-Óss fram að veisl- unni sjálfri. Þeir sem vilja samfagna honum á þessum tímamótum eru velkomnir á Kárastíg 14 á Hofsósi þar sem tjaldstæði verða í boði fyrir þá sem það vilja. Hlutavelta | Tveir strákar, þeir Friðrik Jóhann Róberts- son og Jakob Breki Ingason héldu tombólu fyrir utan Melabúðina, vestur í bæ. Þeir söfnuðu 6.396 kr. til styrktar Rauða krossinum sem þakkar kærlega fyrir stuðninginn. 60ára afmæli. Í dag, 14.ágúst, er Örn Odd- geirsson sextugur. Af því til- efni langar hann og Svanhildi að sjá sem flesta af vinum og ættingjum í Húnvetningabúð, Skeifunni 11, laugardaginn 18. ágúst milli kl. 17 og 21. dagbók Í dag er þriðjudagur 14. ágúst, 226. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. (I.Kor. 12, 4.) Ívetur verður ný námsbrautkennd við Endurmenntunar-stofnun. Námsbrautin nefnistGæðastjórnun og er undir fag- legri forsjá verkfræðideildar Háskóla Íslands. Helgi Þór Ingason dósent er einn af skipuleggjendum námsins: „Gæða- stjórnun er aðferðafræði í stjórnun sem miðar að því að haga öllu starfi fyrir- tækisins, auðlindum, áætlanagerð og aðgerðum með það að leiðarljósi að veita á sem skilvirkastan og hagkvæm- astan hátt viðskiptavininum nákvæm- lega þá þjónustu eða vöru sem hann óskar helst eftir,“ útskýrir Helgi Þór. Námið er til 12 eininga en kennd eru tvö þriggja eininga námskeið á hvoru misseri og náminu hagað svo hægt er að stunda það með starfi: „Fyrst læra nemendur almennt um gæðastjórnun, í hverju hún felst og fræðast um helstu kenningar. Því næst verða teknir fyrir hinir ýmsu stjórnunarstaðlar sem not- aðir eru og öðlast nemendur góða yfir- sýn yfir helstu staðla og notkunarleiðir þeirra við rekstur,“ segir Helgi Þór. „Á vormisseri byrjum við á námskeiði þar sem nemendur öðlast hagnýta þjálfun í að útbúa stjórnkerfi eða rekstrarhand- bækur á grundvelli helstu staðla undir leiðsögn ráðgjafa og sérfræðinga. Loks er námskeið framvindu gæðastjórnunar innan fyrirtækis eftir að gæðakerfið hefur verið byggt upp. Þar verður með- al annars fjallað um innri og ytri úttekt- ir og hvernig fyrirtækið getur tekið frekari skref í gæðastjórnun, til dæmis með hliðsjón af EFQM líkaninu.“ Helgi Þór segir námið gagnast ein- staklingum, fagaðilum og fyrirtækjum: „Fyrirtæki sem eru að stíga skref í átt til uppbyggingar og endurskipulagn- ingar innri gæðastjórnunar sjá sér mörg hag í að senda lykilstarfsmenn í námið en til okkar koma líka einstakl- ingar sem vilja styrkja sig og auka möguleika sína á atvinnumarkaði,“ seg- ir Helgi Þór. „Með gæðastjórnun gefst ekki aðeins færi á að bæta starf fyrir- tækisins og framleiðslu, heldur skapar gæðavottun aukinn trúverðugleika á innlendum og alþjóðlegum markaði og getur aukið sóknarmöguleika og sveigj- anleika í rekstri.“ Menntun | Endurmenntunarstofnun með 12 eininga nám í gæðastjórnun Lykilatriði gæðastjórnunar  Helgi Þór Inga- son fæddist í Reykjavík 1965. Hann lauk C.S. gráðu í vélaverk- fræði 1989 og meist.gráðu í véla- og iðnaðarverk- fræði 1991 frá HÍ og doktorsprófi í vélaverkfræði frá Tækniháskólanum í Þrándheimi. Helgi Þór starfaði við rannsóknir og verkefnastjórnun hjá Íslenska járnblendifélaginu og hefur frá árinu 2000 starfað við ráðgjöf og kennslu. Hann hefur verið dósent við HÍ frá 2002. Sambýliskona Helga Þórs er Bylgja Scheving félagsráðgjafi og eiga þau soninn, Andra Snæ. Tónlist Hallgrímskirkja | Meistaranámskeið II kl. 9-11 og kl. 14-17. Christopher Herrick kennir á Klais-orgelið í Hallgríms- kirkju. www.kirkjulistahatid.is. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Kl. 20.30. Gunnar Kvar- an, selló og Elísabet Waage, harpa, flytja verk eftir Antonio Vivaldi, Franz Schubert og Sergej Racmaninoff. Þá frum- flytja þau „Visions Fugitives“ eftir John Speight. Kaffistofa safnsins opin eftir tónleika. Leiklist Iðnó | Kl. 20.30-22.45. Leikþættir fluttir á ensku, atburðir úr sögu þjóðarinnar, tónlist, söngur, dans, glíma og margt fleira. Kvikmyndir Hallgrímskirkja | Kl. 20. Málþing með myndbrotum í sam- vinnu við rannsóknarhópinn Deus ex cinema. Listfræð- ingar, guðfræðingar og kvikmyndafræðingar flytja stutt er- indi og leiða umræður. www.kirkjulistahatid.is. Fyrirlestrar og fundir Hugleiðslu og friðarmiðstöðin | Fyrirlestur um „fókusing“ verður haldinn á Grensásvegi 8, 4. hæð (Zen húsn.) í kvöld kl. 20. Fyrirlesari er Mr Madudeva frá USA. Frjáls framlög. Opin hugleiðsla alla miðvikudaga kl. 20. BÖRN fögnuðu ákaft eftir að hafa kyrjað afmælissönginn til heiðurs leiðtoga Kúbu, Fídel Castro, í gær. Stóð unga fólkið í kringum þessa girnilegu afmælisköku í Pioneer- höllinni í Havana. Á kræsingunum stendur „Til hamingju, foringi.“ Fídel verður 81 árs á mánudag. Haldið upp á afmæli Fídels Castro á Kúbu Heill sé þér, foringi! Reuters hlutavelta ritstjorn@mbl.is FRÉTTIR NÚ ER komið aftur að Reykja- víkurmaraþoni Glitnis. Laugar- daginn 18. ágúst næstkomandi geta einstaklingar hlaupið til góðs með því að safna áheitum sem munu renna til ýmissa góðgerðafélaga og eru SOS- barnaþorpin eitt af þeim. Í ár hafa stjórnendur hjá SOS- barnaþorpunum ákveðið að senda þá fjármuni sem safnast vegna hlaupsins til Sómalíu. „SOS-barnaþorpin eru með ým- is verkefni í þessu stríðshrjáða landi. Þar starfrækjum við eitt barnaþorp, einn leikskóla, eitt ungmennaheimili, tvo grunnskóla, eina verknámsstöð ásamt einum spítala og neyðarverkefnum þeg- ar við á. Stríð braust út milli pólitískra fylkinga snemma árs 2006 og það var einungis í upphafi þessa árs sem her bráðabirgðastjórnar Sómalíu náði landinu á sitt vald. Þrátt fyrir það eru ennþá átök í gangi, sérstaklega í höfuðborg- inni Mogadishu. Hinn 8. ágúst síðastliðinn settu sómalskir her- menn upp tjaldbúðir 300 metra frá SOS-barnaþorpinu í Mogad- ishu og lokuðu öllum vegum að- þorpinu og SOS-spítalanum sem sérhæfir sig í mæðravernd. Þessi spítali er ókeypis öllum mæðrum og börnum frá nærliggjandi svæðum. Spítalinn heldur áfram starfi sínu með því að hugsa um þá sjúklinga sem eru þegar þar, en hermennirnir leyfa ekki öðrum sjúklingum að koma inn á spít- alann. Starfsfólk SOS-barnaþorp- anna mun ekki yfirgefa svæðið og sómölsk yfirvöld hafa lofað að leyfa starfsfólki að halda áfram vinnu sinni óhindrað þegar ástandið skánar. Eins og sést á þessum nýlegu fréttum er mikil þörf fyrir aðstoð í Sómalíu. Mikil- vægt er að SOS-barnaþorpin geti haldið áfram vinnu sinni óhindrað af stríðandi aðilum og með þá fjárhagslegu aðstoð sem þau þurfa á að halda,“ segir í frétta- tilkynningu. Hvetja fólk til að skrá sig „Við hvetjum áfram þá 26 ein- staklinga sem hafa skráð sig í Reykjavíkurmaraþon Glitnis með það að markmiði að safna fé handa SOS-barnaþorpunum. Við hvetjum líka allt SOS-fólk og alla þá sem áhuga hafa á málefnum þessa lands til þess að hlaupa eða heita á þá einstaklinga sem hafa skráð sig til leiks. SOS-barnaþorpin þakka öllum hjá Glitni fyrir þetta frábæra átak í þágu góðgerðarfélaga og vilja hvetja alla Íslendinga til að taka þátt og velja sér góðgerða- félag til þess að styðja. Látum öll gott af okkur leiða og hlaupum til góðs“, segir einnig í frétta- tilkynningunni. Hlaupið til styrktar starfi SOS-barna- þorpanna Fáðu sms-fréttir í símann þinn af mbl.is Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.