Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hermann Stefánsson skrifargrein í Lesbók því Nýhilsvarar allri gagnrýni á
hópinn. Hermann klykkir út með
grínsetningu um það hvort Nýhil-
ingar geti ekki tekið að sér að
gagnrýna símaskrána sem þá var
nýkomin út. Og Nýhil svarar Her-
manni með því að rýna gaumgæfi-
lega í símaskrána í Lesbók viku síð-
ar. Skák og mát.
Þessi stutta ritdeila sem ég rakaugun í um daginn verður ef til
vill klassísk einn góðan veðurdag;
nema þá hún máist gleymd á guln-
uðum pappír í þjóðarbókhlöðu eftir
einhverjar aldir.
Hún var stutt en afskaplega
hressandi engu að síður. Það er
nefnilega fátt jafn andlega seðjandi
og að gæða sér á safaríkri ritdeilu.
Tveir menn, tveir pennar, ólíkarskoðanir; og svo er barist til
síðasta punkts með frösum, rökum
og útúrsnúningum. Andans menn
og aðrir góðir beita ritfærni,
reynslu og stílfangbrögðum til að
koma höggi á náungann. Hugurinn
skerptur til að ná fram hinu æðsta
takmarki: að skrifa lokagreinina
sem splundrar umræðuefninu með
geigvænlegri snilld.
Það er ekki laust við að ritdeilansé þjóðaríþrótt. Mannraunin
æðsta er að hafa rifist á prenti. Að
bera skeinur úr slíkri viðureign er
tákn um djúpvitra sál. Og sigurveg-
arinn? Af þeim sem vinna ritdeilur
verða sagðar miklar sögur. Tví-
mælalaust.
Ég á mína uppáhaldsritdeilueins og margir. Ég kann hana
reyndar ekki nógu vel, man bara
aðalpunktinn og hver vann. Þráinn
Bertelsson skrifaði semsagt grein.
Henni var svarað. Þráinn veitti
andsvar um að andmælandinn hlyti
að vera annaðhvort fáviti eða að
hafa misskilið eitthvað. Þá fékk
hann aftur athugasemd, en svaraði
henni með punktinum undir upp-
hrópunarmerkið. Þráinn klykkti
semsagt út með því að andsvarið
hefði einfaldlega staðfest fyrri
grunsemd hans um andmælandann.
Undarlegustu ritdeilu sem sögurfara af hef ég hins vegar ein-
göngu fengið í munnlegri útgáfu.
Mér skilst semsagt að Helgi Hálf-
danarson og Hrólfur Sveinsson hafi
átt að hafa deilt. Að minnsta kosti
hafi Hrólfur fundið Helga allt til
foráttu í einhverri grein í fyrnd-
inni. Ég hef nú ekki séð þessa deilu
sjálfur og ætla því að selja þessa
sögu eins ódýrt og ég kemst upp
með. En furðulegt er nú ef satt
reynist.
Móðir allra ritdeilna hljóta aðteljast skoðanaskipti Sig-
urðar Nordal og Einars H. Kvaran,
sem síðan voru gefin út í bókinni
Skiptum skoðunum. Þar var deilt
um allt sem skipti máli: lífið, dauð-
ann, lífið eftir dauðann, bókmenntir
og íslensku.
Langdregnasta ritdeilan er hinsvegar á milli Eyjólfs Kjalars
Emilssonar og Sigríðar Þorgeirs-
dóttur heimspekinga. Síðast þegar
ég vissi var deilan farin að snúast
um meintar gæsalappir sem kunna
að hafa verið viðhafðar óritaðar í
fyrirlestri úti í bæ. Hún byrjaði hins
vegar með þjarki um karllæga og
kvenlæga heimspeki.
Ritdeilukóngur Íslands held égsamt hljóti að vera Hannes
Hólmsteinn Gissurarson. Mér finnst
hann alltaf annaðhvort vera að
skjóta á einhvern í einhverri grein
sinni, eða þá að svara einhverjum.
Það er Hannes og Þorvaldur Gylfa-
son. Hannes og Stefán Ólafsson.
Hannes og Stefán Snævarr. Hannes
og Mörður Árnason. Eða var það
Pétur Blöndal og Mörður Árnason?
Og ritdeilan er langt í frá dauð.Hún er bara komin á nýtt
form. Þörfinni fyrir að munnhöggv-
ast með orðahríðum er mætt á Net-
inu.
Bloggið. Hvar væri maður án
þess? Þar sem ritdeilur kvikna við
minnsta tilefni. Þar sem plássið til
að þjarka er endalaust. Þar sem
fólk reynir enn að fá útrás fyrir
þörfina að standa uppi sem sig-
urvegari.
Ritdeilan er þjóðaríþrótt
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Skiptar skoðanir Sigurður Nordal og Einar Kvaran deildu hart í greinum,
m.a. annars um spíritisma eða andatrú þess síðarnefnda.
Morgunblaðið/Ásdís
Refur Annaðhvort misskilur and-
mælandinn eða hann er fáviti.
AF LISTUM
Hjálmar Stefán Brynjólfsson
» Tveir menn, tveirpennar, ólíkar skoð-
anir; og svo er barist til
síðasta punkts með frös-
um, rökum og útúrsnún-
ingum.
hsb@mbl.is
DIG
ITAL
hlj
óð o
g m
ynd
gæð
i
í SA
Mbí
óun
um
Álfa
bak
ka o
g K
ring
lunn
i
ÞEIRRA STRÍÐ. OKKAR HEIMUR
FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG
/ KRINGLUNNI
Evan hjálpi
okkur
NANCY
DREW
YNGSTI OG KLÁRASTI EINKASPÆJARI HEIMS ER NÚ MÆTT Á HVÍTA TJALDIÐ
BYGGT Á HINUM FRÁBÆRU
NANCY DREW BÓKUM
ÓVÆNTASTA
STELPUMYND ÁRSINS!
eee
H.J. - MBL
/ ÁLFABAKKA
THE TRANSFORMERS kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára LÚXUS VIP
NANCY DREW kl. 6 - 8:10 -10:20 B.i.7.ára
GEORGIA RULE kl. 5.30 - 8 -10:30 B.i.7.ára
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára
EVAN ALMIGHTY kl. 2 LEYFÐ
BLIND DATING kl. 4 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
OCEAN´S 13 kl. 10:10 B.i.7.ára
ROBINSON FJÖLSK... m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
THE TRANSFORMERS kl. 4 - 7 - 10 B.i. 10 ára DIGITAL
NANCY DREW kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára
GEORGIA RULE kl. 10:10 B.i. 7 ára
HARRY POTTER 5 kl. 4 - 7 B.i. 10 ára DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
NÝJA
STA T
ÆKN
IBYLT
ING K
VIKM
YNDA
HÚSA
Í DAG
.
SAMB
ÍÓIN
ALLTA
F FYR
STIR
OG FR
EMST
IR eeeF.G.G. - FBL
V.I.J. – Blaðið