Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Guðna Ölversson
imemine18@hotmail.com
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem ís-
lenskur rokksöngvari stendur á
sviði með Ken Hensley og Glen
Huges. Það gerði Eiríkur Hauksson
á tónleikunum í Grasvík á laugar-
daginn var. Glen Huges var gestur
Ken Hensleys en Eiríkur Hauksson
er söngvari hljómsveitarinnar Live
Fire sem er sveit Hensleys um þess-
ar mundir. Ken Hensley er einn af
þeim þremur stóru frá upphafi
þunga rokksins, ásamt Jimmy Page
í Led Zeppelin og Jon Lord orgel-
leikara Deep Purple. En hvernig
kom það til að Eiríkur fór að vinna
með þessum fyrrum orgelleikara
og lagahöfundi Uriah Heep.
„Það kemur til í gegnum þetta
sumarpartí sem við höldum hérna í
Gressvik og er rokktónleikar sem
standa yfir eina helgi. Þetta er í
fjórða skiptið sem við höldum það
og Ken Hensley hefur verið með frá
upphafi. Fyrsta árið var hann með
spánska hljómsveit með sér. En þar
sem ég þekkti strákana sem fengu
hann til að vera með á tónleikunum
komst ég í tæri við hann. Ég söng
með honum „Easy Livin“ á einum
tónleikum og spilaði reyndar á
bassa í „Lady In Black“ því bassa-
leikarinn ákvað að spila á fiðlu í
laginu. Þannig kynntumst við fyrst.
Svo þegar hann frétti að ég gæti
spilað bæði á gítar og hljómborð
spurði hann mig að því hvort ég
gæti sett saman band sem hann
gæti notað í Skandínavíu í stað þess
að flytja alltaf Spánverjana með
sér. Ég gerði það og þetta er annað
árið sem Live Fire er með Hensley.
Og eins og hann sagði við þig áðan
þá er karlinn svo ánægður að hon-
um finnst hann vera kominn í
hljómsveit aftur.
Eru þetta þá strákar sem þú
þekktir áður en þið byrjuðuð að
spila saman í Live Fire?
„Já, ég hef unnið með þessum
strákum áður. Þeir eru allir mjög
reyndir og góðir tónlistarmenn.
Willy Bediksen á trommunum er
búinn að leika með öllum þeim
bestu í Noregi. Gítarleikarinn, Ken
Ingversen og bassaleikarinn, Sid
Ringsby eru líka klassa hljóðfæra-
leikarar og bandið „sándar“ bara
alveg ótrúlega vel.
Hensley sá stærsti
En hvernig er að starfa með
svona rokkgoði eins og Ken Hens-
ley ef þú miðar við þá sem þú hefur
starfað með áður? Hann hlýtur að
vera einn af þeim stærstu í brans-
anum?
„Já, það má segja það. Ég spilaði
reyndar í bandi með Brian Robin-
son, gítarleikara Thin Lizzy. En
fyrir mér er Ken Hensley stærstur.
Hann var eitt af mínum átrúnaðar-
goðum í gamla daga og Uriah Heep
var alltaf mín uppáhaldshljómsveit.
Það er svolítið skemmtilegt að það
er til mynd af mér með fyrstu plöt-
una sem ég keypti fyrir mína eigin
peninga. Það var Heep platan Very
‘Eavy Very ‘Umble og myndin er af
mér þar sem ég opna albúmið og
bretti út myndina af David Byron
öllum útötuðum í köngulóarvef. Og
ég get alveg sagt þér það að ef ein-
hver hefði sagt við mig þá; „Heyrðu
kúturinn minn. Eftir nokkur ár átt
þú eftir að syngja fyrir þessa
karla,“ hefði ég ekki trúað því. En
svona er þetta og þetta er mjög sér-
takt fyrir mig. Ég er að syngja lög
eins og „Easy Livin’“ og „Stealin’“,
“July Morning“ o.fl. sem ég er bú-
inn að kunna í 30 ár.“
Það hlýtur þá að vera mikill heið-
ur fyrir þig að fá tækifæri til að
syngja þessi frábæru lög með höf-
undi þeirra?
„Það er náttúruleg alveg stór-
kostlegt. Ég þurfti oft að klípa mig í
handlegginn til að finna út hvort
þetta væri satt. Og það er það og
þetta er bara mjög skemmtilegt.
Ken er líka allur að lifna við og vill
óður koma sér út um allt til að spila
á tónleikum. Við vorum að koma
frá Serbíu í gær þar sem við spil-
uðum á útitónleikum og eins og
hann sagði hérna áðan þá er fullt af
verkefnum í gangi. Þetta lítur út
fyrir að verða gott ár hjá þeim
gamla. Það er líka mjög þægilegt
að vinna með honum. Þótt hann
hafi þessa stöðu innan þunga rokks-
ins er hann aldrei með neina
stjörnustæla. Hann er alltaf með
báðar fæturna á jörðinni.
Hvernig væri þá að mjaka honum
til Íslands í næstu reisu?
„Við vorum nú næstum því búnir
að bóka okkur á Íslandi í sumar. En
daginn áður en við ætluðum að
ganga frá málinu birtist auglýsing í
Mogganum þar sem Uriah Heep og
Deep Purple boðuðu komu sína á
sama degi og við höfðum hugsað
okkur að vera með tónleika heima.
Þá ákváðum við bara að láta það
ganga yfir og svo kannski taka upp
þráðinn aftur í haust. En ég er viss
um að ég á eftir að koma með þetta
band heim til Íslands og það jafnvel
á þessu ári. Ef ekki nú þá bara á því
næsta.“
Með átrúnaðargoðinu á sviði
Ljósmynd/Guðni Ölversson
Eeeeeeasy livin! Eiki Hauks þenur sig og sviðsframkoman er pottþétt!Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
11.08.2007
19 20 21 30 35
4 6 3 5 0
7 5 2 6 1
29
08.08.2007
14 15 20 29 36 41
3112 13
- Kauptu bíómiðann á netinu
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*The Simpsons m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10
The Simpsons m/ísl. tali kl. 6
The Invisible kl. 8
Planet Terror kl. 10 B.i. 16 ára
Becoming Jane kl. 5:30 - 8 - 10:30
Planet Terror kl. 5:20 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
The Simpsons m/ensku tali kl. 6:30 - 8:30 - 10:30
Death Proof kl. 5:20 - 10 B.i. 16 ára
1408 kl. 8 B.i. 16 ára
The Transformers kl. 5 - 8 - 11 B.i. 10 ára
The Transformers kl. 5 - 8 - 11 LÚXUS
Evan Almighty kl. 4 - 6
The Simpsons m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10
The Simpsons m/ísl. tali kl. 4 - 6 - 8 - 10
Die Hard 4.0 kl. 8 - 10.45 B.i. 14 ára
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Sýnd í
ÞEIRRA STRÍÐ. OKKAR HEIMUR
FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG
STÆRSTA MYND SUMARSINS
BAKVIÐ ALLAR
GÓÐAR ÁSTAR-
MYNDIR ER
FRÁBÆR SAGA
EIN BESTA ÁSTARSAGA ALLRA TÍMA BYGGÐ
Á ÆVI RITHÖFUNDARINS JANE AUSTEN
eeee
S.V. - MBL
T.S.K. – Blaðið
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eeee
V.J.V. – Topp5.is
eee
F.G.G. – FBL
33
.00
0 G
ES
TIR
eee
- V.J.V., TOPP5.IS
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRT
eeee
- H.J., MBL
eee
- ROGER EBERT
eee
- R.V.E., FBL
43.000 GESTIR
Sýnd með
íslensku og
ensku tali
Frá leikstjóra Sin City
BRUCE WILLIS ROSE MCGOWAN FERGIE
„Gerir þig æstan fyrir kvikmyndum á nýjan leik.“
- Peter Travers, Rolling Stone
eee
F.G.G. - FBL V.I.J. – Blaðið
eeee
- T.S.K., Blaðið
eee
- Þ.Þ., Mannlíf
eee
- S.V., MBL
eee
E.E. – DV