Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Elsku amma, á stundu sem þessari streyma minningarn- ar fram í hugann. Ég græt því ekki bara af söknuði heldur líka af þakklæti fyrir allar þær ynd- islegu minningar sem ég á um þig og afa sem koma til með að fylgja mér ævilangt. Hamrahlíðin skipar stóran sess í æskuárum okkar systranna. Það var alltaf jafn gott að koma til ykkar afa og við upplifðum okkur svo sannar- lega eins og prinsessur í höllinni. Alltaf tókuð þið jafn hlýlega á móti okkur, sáuð til þess að enginn færi svangur heim og að við fengjum skóna okkar ilvolga af ofninum þegar ✝ Guðrún SalómeGuðmundsdóttir fæddist í Hafnar- firði 18. júlí 1929. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi að morgni 27. júlí síðastliðins og var útför hennar gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 3. ágúst. kalt var úti. Þú hugs- aðir alltaf svo vel um alla. Þú hafðir meira að segja fengið Ragnar frænda til að útbúa syllu fyrir utan eldhús- gluggann svo við gæt- um gefið fuglunum að borða á veturna þar sem þeir væru óáreittir frá köttunum í hverf- inu. Hvort sem það var rifsberjatínsla á haust- in, kaffiboð í garðinum á sumrin, fjölskyldu- boð á jólunum og áramótunum, heimsóknir eftir skóla eða hvað ann- að, það var alltaf jafn notalegt að koma til ykkar afa. Þið gáfuð ykkur alltaf tíma til að hlusta á það sem við systurnar höfðum að segja og höfðuð gaman af því að spjalla við okkur um daginn og veginn. Þið vilduð vita hvernig skólinn gengi, hvernig vinir okkar hefðu það og voruð vel inni í hlutunum. Þið sýnduð ávallt einlægan áhuga á hverju því sem við systurnar tók- um okkur fyrir hendur og voruð allt- af til staðar fyrir okkur hvort sem það var í gleði eða sorg. Ein stund nú í seinni tíð sem mér þykir ofboðslega vænt um var rétt fyrir jólin 2005. Ég heimsótti þig á Grandaveginn til að fægja fyrir þig silfrið því þú varst orðin slæm í höndunum. Það skipti þig miklu máli að halda heimilinu snyrtilegu, enda gerði það enginn betur en þú og sjálf varstu alltaf glæsileg til fara. Við sátum heillengi tvær saman og töl- uðum og töluðum, hengdum upp jólaljósin og rifjuðum upp gamla tíma. Þú sagðir mér sögur frá því að pabbi og systkini hans voru lítil og mér þótti alltaf jafn gaman að hlusta. Mér þykir svo vænt um að þú hafir komið í útskriftina mína í vor, eins veik og þú varst búin að vera. Þú sagðir mér að þig hefði dreymt hann afa nóttina áður og það hlyti að vera góðs viti því ég hafi alltaf verið svo mikil afastelpa. Mér líður vel að hugsa til þess að nú séuð þið saman að nýju. Elsku amma, þín er sárt saknað. Hvíldu í friði. Þín Salóme. Guðrún Salóme Guðmundsdóttir ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, AUÐUR ELIMARSDÓTTIR, Birkiteig 26, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 10. ágúst. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 17. ágúst kl. 14.00. Sigurður Þorkelsson, Bjarki Árnason, Berglind Sigurðardóttir, Hákon Árnason, María Dungal, Freyja Árnadóttir og barnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug í okkar garð vegna fráfalls, HALLDÓRU SVÖVU BENEDIKTSDÓTTUR CLAUSEN, Arahólum 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks kvennadeildar 21A á Landspítalanum og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir hlýja og góða umönnun. Axel Axelsson Clausen, Kristbjörg Magnúsdóttir, Kristrún Þóra Clausen, Svava Viktoría Clausen, Hermann Gunnarsson, Jenni Guðjón Axelsson Clausen, Ólöf Eir Halldórsdóttir, Svanfríður Clausen, Halldóra Jóhannsdóttir, Vilhjálmur Vilhjálmsson, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Elskuleg systir okkar og frænka, ODDNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR, Gröf, Grenivík, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Seli, þriðju- daginn 31. júlí, verður jarðsungin frá Grenivíkur- kirkju, miðvikudaginn 15. ágúst kl. 14.00. Steinunn Guðjónsdóttir, Kristrún Aðalbjörg Guðjónsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, afa og langafa, HLÖÐVERS HELGASONAR, áður til heimilis á Vesturgötu 69, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki sjúkradeildar Hrafnistu í Reykjavik. Sigurður Hlöðversson, Hlöðver Hlöðversson, Sævar Hlöðversson, María Pétursdóttir, Hjálmar K. Hlöðversson, Elínborg Pétursdóttir, Guðjón H. Hlöðversson, Björg L. Ragnarsdóttir, Hafdís Hlöðversdóttir, Sigmar Teitsson, Gunnar Hlöðversson, Sigurlaug M. Ólafsdóttir, Valgerður O. Hlöðversdóttir, Pétur Andrésson. ✝ Ástkær unnusti minn, faðir, sonur, bróðir og tengdasonur, EIRÍKUR ÓLI GYLFASON, Skriðuseli 4, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Seljakirkju, fimmtudaginn 16. ágúst kl. 15.00. Kristjana Ósk Veigarsdóttir, Benedikt Gylfi Eiríksson, Gylfi Eiríksson, Stefanía Kristín Jónsdóttir, Sigríður Gylfadóttir, Hannes Hauksson, Sverrir Jón Gylfason, Sandra Rós Pétursdóttir, Veigar Óskarsson, Hallfríður Kristjánsdóttir og fjölskyldur þeirra Kæri vinur, Addi á Gunnarsstöðum. Ég vil senda þér hinstu kveðju og þakka þér fyrir langa og trygga samfylgd, sem aldr- ei bar skugga á. Við erum alin upp í sama jarðveg- inum, aðeins Hafralónsá skilur á milli bæjanna Gunnarsstaða og Sigfús Aðalbergur Jóhannsson ✝ Sigfús Aðal-bergur Jóhanns- son fæddist í Hvammi í Þistilfirði 5. júní 1926. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 2. ágúst síðastliðinn og var jarðsunginn frá Svalbarðskirkju í Þistilfirði 11. ágúst. Syðri-Brekkna, þar sem spor okkar hafa legið, flesta okkar ævi- daga. Ég minnist þess er þú komst nóvember- dag árið 1957 og bauðst fram aðstoð þína við okkur á Syðri- Brekkum, þá var faðir minn nýlátinn og ósköp þótti mér 14 ára telpukorni, sem sakn- aði pabba síns mikið, vænt um þá heimsókn. En svona varst þú, alltaf tilbúinn að aðstoða og leggja fram liðsinni þitt ef eitthvað bjátaði á. Ég átti oft eftir að sjá það og reyna er árin liðu. Þegar við Úlfar systursonur þinn tókum saman og stofnuðum heimili fyrst á Þórshöfn, komstu oft í heim- sókn og enginn varð glaðari en þú er við tókum þá ákvörðun að stofna okkar framtíðarheimili á Syðri- Brekkum og fara að búa með sauðfé, þá fylgdist þú með af áhuga og gafst okkur góð ráð eins og sannir vinir gera. Þú unnir heimahéraði þínu af al- hug og vildir veg þess sem mestan, öllu sýndir þú áhuga og studdir þau fyrirtæki og stofnanir sem hér störf- uðu má þar nefna Sparisjóð Þórs- hafnar og nágrennis, Fjallalamb, Hraðfrystistöð Þórshafnar og Dval- ar og hjúkrunarheimilið Naust, þar sem þú dvaldir ásamt eiginkonu þinni síðustu mánuðina. Ég minnist margra samverustunda þar sem þú ræddir um liðna tíð og miðlaðir fróð- leik til okkar hjóna og barna okkar, þar var aldrei hallað á neinn, heldur dregið fram það besta í fari hvers og eins, oft á glettinn og skemmtilegan hátt. Kæri vinur, hafðu þökk fyrir allt og allt. Innilegar samúðarkveðjur til Sillu og barna ykkar. Kristín á Syðri-Brekkum. Lífið verður oft öðruvísi en við eigum von á. Ekkert okkar býst við að kveðja snemma. En stundum er reyndin önnur og mjög sár. Kynni okkar Gretu hófust árið 2003 þegar hún kom til starfa við Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Hún tók að sér heimilisfræðikennsl- una og færði okkur nýja sýn á starf- ið. Menntun hennar var önnur en menntun kennara almennt, hún var Greta Svanlaug Svavarsdóttir ✝ Greta SvanlaugSvavarsdóttir fæddist á Selfossi 19. september 1963. Hún lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 12. júlí síðastliðinn. Útför Gretu var gerð frá Digra- neskirkju 19. júlí sl. meistari á sínu sviði, matreiðslumeistari. Greta var hávaxin og glæsileg ung kona og klæddist ávallt sínum hvíta einkennisbún- ingi við kennsluna. Ekki var annað hægt en að taka eftir henni. Hún fann fljótt að betra er að hafa kennslufræðina á hreinu og dreif sig í réttindanám við Kennaraháskóla Ís- lands meðfram kennslunni. Námið sóttist vel, hún var samviskusöm og ef eitthvað blés á móti gantaðist hún með það við okkur og var staðráðin í að ljúka náminu. Því spilltu veikindin, sem buguðu hana. Glaðlegt fas og viðmót gerði það að verkum að auðvelt var að tala við Gretu og bar margt á góma. Uppeld- ismálin voru brotin til mergjar sem og kokkanámið hennar hjá mat- reiðslumeisturunum Úlfari Ey- steinssyni og Sigurði Sumarliðasyni. En augljóst var að fjölskylda hennar var henni alltaf efst í huga. Henni var annt um að synirnir fengju sem besta kennslu og sýndi það sjálf í sínu kennslustarfi að börnin eru í fyrsta sæti. Það eru þau sem við eig- um að koma til manns og hún lagði sig fram um að hafa kennsluna sem áhugaverðasta. Kynnin stóðu stutt en voru góð og við teljum okkur ríkari eftir þau en áður. Í hinum erfiðu veikindum Gretu í vetur og vor sýndi hún mikið æðruleysi. Hún tók okkur brosandi þegar við litum til hennar og okkur þykir vænt um að hafa fundið hlýju hennar, jákvæðni og kjark við þess- ar dapurlegu aðstæður. Geymum allar góðu minningarnar um Gretu. Guðmundi, sonunum ungu og fjöl- skyldunni allri vottum við innilega samúð okkar. Sigrún L. Baldvinsdóttir, Rúna Gísladóttir. Elsku Gréta. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Guðmundur, Óskar, Ingvar og Oliver. Við sendum innilegustu samúðarkveðjur og óskir um að góð- ur Guð styrki ykkur og alla ástvini Grétu á þessum erfiða tíma. Eftir lif- ir minning um yndislega konu og ástkæra móður. Hvíl í friði. Helga og Ágúst. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.