Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 21
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 21 Nú húmar að kveldi og kólnar í lofti. Náttúran breytir um lit og blómin litríku sem glatt hafa augað í sumar hverfa á braut. Það er þó engin ástæða til þess að ör- vænta því silkiblóm geta lengt sumarið. Þau lykta reynd- ar ekki jafnvel, reyndar ekki neitt, en þau geta verið jafneðlileg og falleg í útliti og lifandi blóm. Þau henta líka vel á stöðum þar sem umhverfisaðstæður eru ekki kjörn- ar fyrir ræktun lifandi blóma, t.d. þar sem birta er ekki næg. Það eru heldur ekki allir með „grænar hendur“ og umhirða silkiblóma er einföld en best er að strjúka af blöðunum á nokkurra mánaða fresti til þess að viðhalda gljáanum. Möguleikarnir til skreytinga eru endalausir, hvort sem er utanhúss eða innan. Silkifjólur í fallegum trépotti eða gerbera í litlum mjólkurbrúsa lífgar upp á garð- borðið, hvítir silkitúlípanar í glærum vasa eru sígildir á borðstofuborðið og lítil rósaskreyting er rómantísk á náttborðið. uhj@mbl.is Litríki Hressilega bleik Gerbera lífgar upp á umhverfið. Morgunblaðið/Frikki Sumarið lengt með silkiblómum Fínlegar stjúpur Kuldaboli bítur ekki á þessar. geisladiska fyrir þá sem eru annaðhvort lesblindir, sjónskertir eða blindir. Sætir það mikilli furðu því að aldraðir eru mikill hluti viðskiptamanna stofnunarinnar og sjónskerðing verður því algengari sem ald- urinn vex. Víkverji minnist einnar vinkonu sinnar sem hefur háð baráttu við Tryggingastofnun ríkisins í nokkur ár. Hefur konan beðið stofnunina að senda sér öll gögn á því sniði sem hún getur nýtt sér. Eitthvað hefur orðið fátt um svör þar á bæ og hafa menn m.a. borið því við að ekki sé vitað hverjir geti ekki lesið venjulegt letur. Í nútíma upplýsingasamfélaginu eru ástæður þess skráðar að fólk fái bætur frá TR og því ætti að vera hægt að flokka þá úr sem geta ekki lesið bréf stofnunarinnar. Réttur þeirra, sem eru ólæsir á venjulegt letur, er sá sami og hinna sem eru fluglæsir. Hér á landi eru sennilega um 30.000 manns sem eiga erfitt með lestur. Opinberar stofnanir ættu að leggja metnað sinn í að þjóna þeim betur. Víkverji hefurfylgst náið með mótun upplýsinga- samfélagsins á Íslandi. Þróun þess hefur orð- ið ótrúlega ör. Stöðugt fleiri hafa nú aðgang að hvers kyns upplýs- ingum sem snerta einkahagi fólks. Op- inberar stofnanir og fyrirtæki nýta sér upplýsingatæknina til þess að ná til svokall- aðra markhópa undir því yfirskyni að verið sé að bæta þjón- ustuna. Þó að upplýs- ingatæknin sé góð og gild er þó nokkur hópur fólks sem ekki getur nýtt sér hana. Víkverji hélt í ein- feldni sinni að nútímatæknin gerði fyrirtækjum og stofnunum kleift að ná til þeirra sem ekki geta fært sér í nyt venjulegt lesmál. Fyrir skömmu var viðtal í Rík- isútvarpinu við kynningarfulltrúa Tryggingastofnunar ríkisins en stofnunin þjónar sennilega flestum þeirra sem geta ekki lesið venju- legt letur. Svo var að heyra að kynningarbæklingur væri nýkom- inn úr prentun. Ekki var minnst á það einu orði að hann hefði verið lesinn inn með táknmáli eða á             víkverji skrifar | vikverji@mbl.is RITHÖFUNDURINN Mark Twain sagði að fötin sköpuðu manninn og það kann að vera meira vit í því en margur hyggur ef marka má stríðs- hetju nokkra sem kennir við Johns Hopkins- háskólann í Bandaríkjunum. Stríðshetja þessi, Matt Eversmann, kennir leiðtoga- færni en hann var einn þeirra sem barðist í Mogadishu í Sómalíu1993. Eversmann er vissulega hermaður en kannski er sannleikskorn í orðum hans, því hann vill meina að þeir sem séu raunverulegir leiðtogar séu alltaf aðeins betur klæddir, aðeins snyrti- legri og fágaðri en undirmenn þeirra. Þetta kemur fram á vef business- week.com en þar eru að finna mörg heilræði til þeirra sem lifa og hrær- ast í viðskiptaheiminum. Og svo virð- ist vera sem að óaðfinnanlega klædd- ur leiðtogi njóti meiri virðingar og tekið sé meira mark á orðum hans. Ráðgjafi einn sem rekur sam- skiptafyrirtæki í Bandaríkjunum gengur svo langt að segja að 60% yf- irmanna á Fortune 500 listanum séu leiðtogar vegna þessarar miklu natni við smáatriðin og auðvitað fötin sem þeir klæðast. Er leiðtogi er ráðinn í starf þá spyrja þeir sem ráða hvort hann valdi starfinu, hvort hann sé stjórnunarlegur eða álíka – það sem þeir hins meini sé hvort viðkomandi sé klæddur til starfans, hvort hann sé vel snyrtur því það séu hlutirnir sem fólk tekur ómeðvitað eftir. Leiðtogi með sósublett á jakkaboðungnum væri því líklegri til að vera jafn subbulegur í rekstri fyrirtækisins. Nú er spurning hvort Evrópubúar séu jafn grunnhyggnir og fólkið vest- an hafs. En flest virðist benda til þess að í stærstu Evrópulöndunum gildi sömu leikreglur. Leiðtogi fyr- irtækis á að endurspegla gæðaímynd fyrirtækisins og verður þar af leið- andi að vera alltaf aðeins fínni og flottari en keppinauturinn. Það er meginreglan. Að vera leiðtogi            Ljósmyndari: Gunnar Þór Gunnarsson (Gunnsi) Nafn myndar: Eldur í Heimaey Verðlaun fyrir mynd vikunnar eru: 50 fríar 10 x 15 myndir << 1.verðlaun Kodak EasyShare Z712 IS 2.verðlaun Kodak EasyShare V610 3.verðlaun Samsung Digimax i6 PMP , Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Sími 533 4800 180 fm einbýli á einni hæð, þar af 42,3 fm bílskúr. Húsið sem er mjög vel staðsett í botnlangagötu skiptist í forstofu, eldhús með borðkrók, stofu, borðstofu, hol, sjónvarpshol, þvottahús, þrjú svefnherbergi og baðher- bergi. Stór verönd með skjólvegg í suður. Gróinn og skjólgóður garður. V. 55 millj. Opið hús í dag milli kl. 17:00 og 19:00. – Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! – Krosshamrar 8 – opið hús

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.