Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 4

Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÁGÚSTMÁNUÐUR er sá árs- tími er allt fer af stað hvað vinnu- markaðinn varðar. Reynslan sýn- ir okkur að háannatími hjá ráðningarstofum er frá miðjum ágúst og fram í október og nóvem- ber,“ segir Guðný Harðardóttir, framkvæmdastjóri STRÁ MRÍ. Undir þetta tekur Kolbeinn Páls- son, framkvæmdastjóri Job.is. Að hans mati verður mikil eftirspurn eftir starfskröftum í tiltekin störf á næstu vikum. Segir hann þannig sárlega vanta starfsfólk í hin ýmsu þjónustu- og umönnunar- störf, hvort heldur er á spítölum eða skólum. Einnig vanti talsvert af starfsfólki í verslanir, veitinga- staði og hótel. Að mati Kolbeins er hins vegar aðeins að slakna á þenslunni í byggingargeiranum þó enn sé skortur á fagmenntuð- um iðnaðarmönnum. Bankarnir stýra launaþróun Að sögn Guðnýjar má ljóst vera að vaxandi þensla hafi verið á vinnumarkaði að undanförnu og tekur fram að staðan nú minni hana á stöðuna sem uppi var á árabilinu 2000-2001, áður en dreg- ið hafi saman haustið 2001. Að- spurður tekur Kolbeinn undir það að þenslan nú minni á ástandið um aldamótin. „Raunar væri stað- an enn verri í dag en þá ef ekki væri fyrir allt það erlenda vinnu- fólk sem ráðið hefur verið til starfa hérlendis á umliðnum ár- um,“ segir Kolbeinn og tekur fram að hann sjái ekki merki um þann samdrátt á vinnumarkaði sem boðaður hefur verið. Þess má geta að samkvæmt nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar hefur skráð atvinnuleyfi minnkað á umliðnum mánuðum og mældist í júlí sl. 0,9%. Er þetta minnsta atvinnu- leysi í einstökum mánuði síðan í október árið 2000. Aðspurð í hvaða greinum mest- ur skortur sé á starfsfólki segir Guðný hörgul á iðnmenntuðu fólki auk þess sem vinnuafl vanti í al- mennari störf, m.a. verslunum. Að sögn Guðnýjar hafa hugbúnaðar- fyrirtæki, verkfræðistofur og bankarnir verið að bæta við sig starfsfólki að undanförnu og segir hún það að nokkru skýra þann aukna skort á starfsmönnum með verkfræði-, tölvunarfræði-, við- skiptafræði- og lögfræðimenntun. „Bankarnir eru t.a.m. að bjóða betri laun en lögfræðiskrifstofur og endurskoðunarfyrirtæki. Bankarnir eru þannig stýrandi hvað varðar laun á íslenskum vinnumarkaði. Launin eru um- talsvert hærri innan bankageir- ans heldur en í nokkru einka- fyrirtæki eða innan stjórnsýsl- unnar.“ Mikil hreyfing á starfsfólki Að sögn Guðnýjar ýtir þenslan og blómlegur vinnumarkaður undir óskir manna um að skipta um starfsvettvang, þannig reyni margir að finna sér störf á nýjum vettvangi, oft með vonir um hærri laun. „Þegar eftirspurn eftir vinnuafli eykst vilja launavænt- ingar umsækjenda aukast. Hreyf- ingin á vinnumarkaðnum fer af stað af því að menn halda að gras- ið sé grænna hinum megin,“ segir Guðný, en tekur fram að auðvitað sé alltaf eitthvað um það að fólk skipti um störf af því það langar einfaldlega til að breyta til. Háannatími ráðningar- skrifstofa á haustin Morgunblaðið/Kristinn Mikil hreyfing „Stjórnsýslan, hugbúnaðarfyrirtækin, lögfræði- og endurskoðunarskrifstofur hafa verið að missa sína sérfræðinga yfir í fjármálageirann,“ segir Guðný Harðardóttir, framkvæmdastjóri STRÁ MRÍ.  Skráð atvinnuleysi í júlí 0,9%  Minnsta atvinnuleysi síðan október 2000 „OKKUR tekst ávallt að ráða í þau störf sem við þurfum, en við myndum gjarnan vilja fá fólk með meiri reynslu,“ segir Sigrún Ólafsdóttir, ráðning- arstjóri Glitnis. Segir hún áberandi að færri um- sóknir berist fyrir hvert auglýst starf núna sam- anborið við árin 2002-2003 og tekur fram að það haldist í hendur við lágar atvinnuleysistölur nú um stundir. „Þannig að ef starfsmannastjórar sjá starfskraft sem þeim líst vel á þá þurfa menn að hafa hraðar hendur.“ Hjá Atla Atlasyni, framkvæmdastjóra Starfs- mannasviðs Landsbankans, fengust þær upplýs- ingar að vel gangi hjá bankanum að ráða starfs- fólk. Bendir hann á að vöxtur hafi verið hjá bankanum á sl. fjórum árum og því viðvarandi aukning starfsmanna á þeim tíma. „Atvinnu- ástandið er gott, næga vinnu að fá og mikil sam- keppni um fólk. Bankarnir eru hins vegar eftir- sóttir vinnustaðir og þar af leiðandi standa þeir sig betur en mörg önnur fyrirtæki þegar kemur að ráðningum,“ segir Atli. Spurður hvernig hann skýri vinsældir banka sem vinnustaðar segir Atli það samspil af spennandi störfum og góðum laun- um. „Ég er tiltölulega bjartsýnn fyrir haustið og í raun lítur þetta miklu betur út hjá okkur núna en fyrir ári,“ segir Svanur Valgeirsson, starfs- mannastjóri Bónus, þegar hann er spurður um mönnun hjá fyrirtækinu. Segir hann laus störf hjá fyrirtækinu nú vera teljandi á fingrum annarrar handar, en alls eru 400 stöðugildi hjá Bónus og 850 starfsmenn sem starfa hjá fyrirtækinu. Að sögn Svans skýrist þessi bætta staða milli ára fyrst og fremst af því að fyrir ári hafi verið tekin sú stefnubreyting að ráða fleiri erlenda starfs- menn í laus störf hjá fyrirtækinu. „Hefði þessi stefnubreyting ekki verið tekið þá væri töluverður skortur á starfsfólki. Þannig að það eru útlending- arnir sem eru fyrst og fremst að bjarga okkur.“ Í samtali við Morgunblaðið segist Lovísa Agnes Jónsdóttir, fræðslustjóri á Hrafnistu, vera bjart- sýn á ráðningar þetta haustið. Segir hún að samanborið við síðasta haust þá vanti mun færra fólk til starfa nú. Atvinnurekendur bjartsýnir fyrir haustið STEFNT er að því að ekki verði gert vist- unarmat hjá öldruðum, sem er forsenda fyrir umsókn á hjúkrunarheimili, nema ljóst sé að einstaklingurinn þurfi á vistun að halda innan 90 daga og sé í mjög brýnni þörf fyrir vist- unina. Þetta kemur fram á vef Landlæknis- embættisins. Með þessu ættu biðlistar eftir hjúkrunarrými fyrir aldraða að endurspegla betur hver hin raunverulega þörf er. Þessi stefna er liður í ákvörðun heilbrigð- isyfirvalda í málefnum aldraðra að fækka dval- arrýmum en auka þess í stað heimaþjónustu og fjölda hjúkrunarrýma. Meðalbiðtími í Reykjavík eykst Hingað til hefur sá háttur verið hafður á að þeir sem óska eftir vistun á dvalar- og hjúkr- unarheimilum þurfa að fara í vistunarmat. Að því loknu er þörf hvers einstaklings raðað í þörf, brýna þörf eða mjög brýna þörf. Stefnt er að því að bið eftir vistun á hjúkr- unarheimili fyrir fólk í mjög brýnni þörf verði ekki lengri en 90 dagar en á síðasta ári var meðalbiðtíminn 138 dagar og hafði farið minnkandi frá árunum á undan. Sömu sögu er ekki að segja um Reykjavík en þar var með- albiðtíminn 275 dagar og hafði farið lítið eitt vaxandi. 422 í mjög brýnni þörf bíða Fjöldi einstaklinga á landinu sem flokkaðist undir mjög brýna þörf var 422 um mánaðamót- in, þar af 227 í Reykjavík þar sem heildarfjöldi hjúkrunarrýma er tæplega 1.100 pláss. Í lok síðasta árs var umsjón með vistunar- mati aldraðra og vistunarmatsskrá flutt til Landlæknisembættisins frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Á vef Landlæknisembættisins segir að sam- kvæmt könnun sem Landlæknisembættið gerði haustið 2006 á viðhorfum og aðstæðum aldraðra á biðlistum eftir hjúkrunarrými í Reykjavík, hafi komið í ljós að af þeim öldruðu sem könnunin tók til sögðust 42,2% aðspurðra hafa minni þörf fyrir stofnanavist þá en þegar þeir sóttu um vist á hjúkrunarheimili, 16,9% töldu þörfina jafn mikla og áður en 37,3% töldu sig vera í meiri þörf en áður fyrir hjúkrunar- heimili og 3,6% svöruðu ekki. Stefnt að fækkun dvalarrýma Aðeins þeir í mjög brýnni þörf fái vistunarmat Morgunblaðið/Arnaldur Bið 422 eru í brýnni þörf fyrir rými. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Costa del Sol 22. eða 29. ágúst frá kr. 39.990 Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síð- ustu sætunum til Costa del Sol 22. eða 29. ágúst í eina eða tvær vikur. Þú bók- ar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjörum á vinsæl- asta sumarleyfisstað Íslendinga. Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2-4 í íbúð í viku. Aukavika kr. 10.000. FISKISTOFA hefur lagt fram kæru á hendur hafnarvigtarmanni og út- gerðarfyrirtæki á Austurlandi fyrir meint brot á reglum um vigtun sjáv- arafla í seinni hluta júlímánaðar. Að sögn Þórðar Ásgeirssonar fiskistofustjóra leikur sterkur grun- ur á að afli skips í eigu útgerðar- fyrirtækisins hafi verið ranglega skráður á vigtarnótu af hafnar- vigtarmanni, að 600 kg af þorski hafi verið skráð sem hlýri, sem er ekki kvótaskyldur. Enginn hlýri í sölutölunum „Þetta var fiskur sem fór í útflutn- ing. Við berum alltaf saman sölutöl- ur erlendis frá og þegar tölurnar komu var enginn hlýri skráður í þeim, enda ekki hægt að plata svona á mörkuðunum því við erum með eft- irlitsmenn þar sem telja upp úr gám- unum,“ segir Þórður. „Brotið fólst sem sagt í þessu og það vill þannig til að hafnarvigtarmaðurinn þarna er líka starfsmaður kaupanda fisksins þannig að við kærðum vinnsluleyf- ishafann og vigtarmanninn sem ekki fór eftir tilskildum reglum.“ Lögreglan á Eskifirði hefur stað- fest að kæra frá Fiskistofu hafi bor- ist þeim á föstudaginn. Skýrsla hefur verið tekin af öðrum aðilanum sem kærður var en eftir er að yfirheyra hinn. Viðurlög við broti á vigtun sjáv- arafla getur numið allt að sex ára fangelsi. Skráðu þorsk sem hlýra  Fiskistofa kærir kvótasvindl á Austurlandi  600 kg af þorski voru skráð sem hlýri sem er ekki kvótaskyldur Tegundirnar Brotið fólst í því að skrá 600 kg af þorski sem hlýra en hlýri er ekki kvótaskyldur. Vinstra megin er hlýri en þorskur hægra megin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.