Morgunblaðið - 14.08.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 9
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Nýjar vörur - Mikið úrval
Póstsendum
Allar gerðir
Stórar stærðir
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Verðhrun
Allar útsöluvörur
á 50-90% afslætti
Tilboðsslárnar:
500 – 1.000 – 1.500
Nýjar vörur frá
og
25-50%
afsláttur
7
Gallabuxur - Þrjár síddir
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
laugard. opið í Bæjarlind kl. 10-15 en lokað í Eddufelli.
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
FORSETI Íslands veitti í gær And-
ers Grubb riddarakross Hinnar ís-
lensku fálkaorðu fyrir meira en
tveggja áratuga starf að rannsóknum
á arfgengri heilablæðingu. Sjúkdóm-
urinn liggur í þrettán íslenskum ætt-
um, en er óþekktur utan landstein-
anna. Fólk sem erfir genin sem valda
sjúkdómnum, deyr af hans völdum í
nánast öllum tilvikum og yfirleitt í
kringum þrítugt.
Anders Grubb er prófessor í mein-
efnafræði við Háskólann í Lundi í
Svíþjóð. Hann hefur unnið að rann-
sóknum á arfgengri heilablæðingu
síðan snemma á níunda áratugnum.
Hann segir þennan virðingarvott
mjög óvæntan. „Ég fékk upphring-
ingu þar sem ég var spurður hvort ég
vildi orðu. Ég hélt að þetta væri eitt-
hvert grín og sagði bara já takk, að
ég vildi það endilega. Maðurinn
kynnti sig síðan sem starfsmann for-
seta Íslands og ég trúði honum á end-
anum.“
Engin einkenni fram að
fyrstu heilablæðingunni
Arfgeng heilablæðing er venjulega
einkennalaus þar til fyrsta blæðingin
verður. Sumir lifa hana af en hljóta
heilskaða. Heilablæðingarnar endur-
taka sig síðan þar til að sjúklingurinn
deyr. Hann segir að þegar sjúkdóm-
urinn uppgötvaðist hafi tvö markmið
verið sett, annarsvegar að finna leið
til þess að greina hann í lifandi fólki
og hinsvegar að lækna hann. Fyrra
markmiðinu hefur verið náð.
„Einstaklingar úr þessum fjöl-
skyldum vilja margir vita hvort þeir
beri genið til þess að geta hagað lífi
sínu til samræmis við þá vitneskju.
Aðrir vilja alls ekki vita það. Ég hitti
fólk á ráðstefnunni sem hefur misst
ættingja úr arfgengri heilablæðingu
og er skiljanlega hrætt. Erfðalíkurn-
ar eru um 50 prósent, svo helmingur
þessa fólks lifir í ástæðulausum ótta.
Það er því mikilvægt að þau sem vilja
geti fengið að vita hvort þau beri gen-
ið,“ sagði Grubb.
Prótínuppsöfnun orsökin
Orsök sjúkdómsins er genagalli
sem veldur uppsöfnun prótíns í
smáum slagæðum heilans sem aftur
leiðir til æðarofs og endurtekinna
heilablæðinga. Rannsóknir Grubb
hafa beinst að því að finna leið til þess
að koma í veg fyrir að prótínið bindist
saman og hafa þegar skilað árangri á
tilraunastofu. Næsta skref er að nýta
þann árangur til góðs fyrir arfbera
sjúkdómsins.
Grubb segir að það geti verið erfitt
að fá fjármagn í rannsóknir á sjúk-
dómum sem leggjast á mjög lítinn
hóp fólks. „Lyfjafyrirtækin vilja
helst styrkja rannsóknir á sjúkdóm-
um sem þarfnast ævilangrar með-
ferðar eins og til dæmis hárri blóð-
fitu.“ Minni áhugi er á því að þróa lyf
sem sjúklingar þurfa bara að kaupa
einu sinni. Hann segir að rannsóknir
hans gætu þó hugsanlega nýst í þró-
un á lækningu við Alzheimer og
vegna þessara tengsla hafi honum
reynst auðveldara en ella að fjár-
magna rannsóknina.
Hann segir að lífshættir fólks hafi
líklega áhrif á framgang arfgengrar
heilablæðingar. „Rannsóknir hafa
sýnt að á nítjándu öld lifði fólk með
sjúkdóminn að jafnaði til sextugs.
Nú, hundrað árum síðar, deyja flestir
um þrítugt. Genagallinn sjálfur hefur
ekki breyst, svo sennilega hafa þætt-
ir á borð við breytt mataræði áhrif.
Nú borða menn mun meira af kol-
vetnum og minna af til dæmis fiski en
þeir gerðu áður. Það gæti haft sitt að
segja.“
Morgunblaðið/Eggert
Heiðraður Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti Anders Grubb riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu.
Fálkaorða fyrir rannsóknir
á arfgengri heilablæðingu
ELDUR kom upp í bílskúr við fast-
eignasöluna Bakka við Sigtún á Sel-
fossi um tvöleytið í fyrrinótt. Bíl-
skúrinn er nýbyggður og ekki full-
kláraður. Grunur er um íkveikju af
mannavöldum að sögn lögreglu.
Eldsupptökin voru við vesturgafl
bílskúrsins og hafði eldurinn teygt
sig í þaksperrur þar sem þær stóðu
út fyrir vegg.
Tveir bílar og bifhjól voru í
skúrnum og tókst að ná ökutækj-
unum út áður en slökkvilið kom á
vettvang. Eldurinn náði ekki inn í
skúrinn.
Málið er í rannsókn og biður lög-
regla alla þá sem veitt geta upplýs-
ingar um mannaferðir í og við Sig-
tún á sunnudagskvöldið að láta vita.
Sími lögreglu er 480 1010.
Þá var tilkynnt um reyk, sem
legði upp frá sumarbústaðabyggð í
Klausturhólum í Grímsnesi um
klukkan 11 í fyrradag. Slökkvi-,
sjúkra- og lögreglulið fór á vettvang
þar sem búist var við að eldur væri
laus í sumarbústað. Í ljós kom að
verið var að brenna rusli.
Samkvæmt reglugerð um sinu-
brennur og meðferð elds á víða-
vangi segir að óheimilt sé að kveikja
eld á víðavangi þar sem almanna-
hætta getur stafað af eða hætt er
gróðri, dýralífi eða mannvirkjum.
Grunur um
íkveikju EINS og Morgunblaðið greindi frá á
laugardaginn hefur byggingarfélagið
Eykt falast eftir 50 hektara landi við
Miðvog, skammt frá Akranesi, undir
nýbyggingar. Liggur landið sunnan
og austan við Miðvog.
Hugmyndir fyrirtækisins eru að
kaupa landið af Akraneskaupstað og
byggja við bæinn á næstu 10-12 árum
í samráði við bæjaryfirvöld. Myndi
þar rísa íbúðabyggð, verslun og þjón-
usta en Eykt myndi jafnframt annast
gatnagerð og mögulega koma að
rekstri og byggingu skóla og leik-
skóla í samræmi við forsögn bæjaryf-
irvalda. Gísli S. Einarsson, bæjar-
stjóri Akraneskaupstaðar, hefur sagt
að hugmyndir fyrirtækisins verði
skoðaðar vandlega, enda sé bygging-
arland í nágrenni bæjarins af skorn-
um skammti en vöxtur hans sé mikill.
Fjölgun íbúa um 50% gæti rúmast á
svæðinu yrðu hugmyndir fyrirtækis-
ins að veruleika. Munu forsvarsmenn
Eyktar kynna hugmyndirnar fyrir
bæjarstjórn og skipulags- og bygg-
ingarnefnd á næstunni.
Eykt vill byggja á Akranesi
>
: & #
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111