Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 11

Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 11 FRÉTTIR Það er Síðsumarveisla Heimsferða frá kr. 14.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Heimsferðir bjóða síðustu sætin í síðsumarsólina austan hafs og vestan á frábærum kjörum. Tryggðu þér síðbúið sumarfrí á ótrú- legu verði! Nánar á www.heimsferdir.is. Síðustu sætin Fuerteventura - síðustu sætin 21. ágúst örfá sæti - 2 vikur frá kr. 34.990 4. sept. örfá sæti - 2 vikur frá kr. 34.990 Montreal - Kanada - síðustu sætin 16. ágúst 7 sæti frá kr. 29.990 23. ágúst 19 sæti frá kr. 29.990 30. ágúst örfá sæti frá kr. 29.990 6. sept. örfá sæti frá kr. 29.990 13. sept. örfá sæti frá kr. 29.990 20. sept. örfá sæti - 8 nætur frá kr. 29.990 Mallorca - síðustu sætin 17. ágúst örfá sæti - 2 vikur frá kr. 44.990 24. ágúst nokkur sæti frá kr. 29.990 31. ágúst nokkur sæti frá kr. 29.990 Costa del Sol - síðustu sætin 22. ágúst örfá sæti frá kr. 39.990 29. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990 5. sept. nokkur sæti frá kr. 39.990 12. sept. nokkur sæti frá kr. 39.990 19. sept. örfá sæti - 10 nætur frá kr. 44.990 Króatía & Trieste - síðustu sætin 19. ágúst 10 sæti frá kr. 24.990 26. ágúst örfá sæti frá kr. 24.990 2. sept. örfá sæti frá kr. 39.990 9. sept. 9 sæti frá kr. 44.990 16. sept. örfá sæti frá kr. 39.990 Alicante - Benidorm - síðustu sætin 16. ágúst 11 sæti frá kr. 14.990 23. ágúst 16 sæti frá kr. 34.990 30. ágúst nokkur sæti frá kr. 29.990 6. sept. nokkur sæti frá kr. 34.990 13. sept. nokkur sæti frá kr. 34.990 20. sept. örfá sæti - 6 nætur frá kr. 34.990 Barcelona/Lloret de Mar - síðustu sætin 17. ágúst 14 sæti - vikuferð frá kr. 49.990 24. ágúst 16 sæti - vikuferð frá kr. 49.990 7. sept. 6 sæti frá kr. 39.090 14. sept. vikuferð - fullt fæði frá kr. 49.990 21. sept. 11 sæti frá kr. 39.090 Frábær sértilboð - í ágúst og sept. Birt með fyrirvara um prentvillur, uppseldar brottfarir og verðbreytingar. TENGSL eru milli heilsu foreldra, sem missa börn sín úr krabba- meini, eftir andlát barnsins og þess undirbúnings – vitsmunalegs og til- finningalegs – sem þeir fá fyrir andlát barnsins. Þetta er meðal niðurstaðna í rannsókn dr. Unnar Valdimarsdóttur vísindamanns við Háskóla Íslands og samstarfs- manna hennar við Karolinska In- stitutet og Harvard-háskóla og birtist nýverið í sérútgáfu The Lancet Oncology um krabbameins- lækningar barna. Niðurstaða höfunda er sú að rannsóknin sýni tengsl milli að- gerða heilbrigðisstarfsfólks sem annast krabbameinsveik börn og lengd þess tímabils sem foreldrar hafa til að undirbúa sig vits- munalega og tilfinningalega fyrir yfirvofandi andlát barnsins. Rann- sóknin sýnir jafnframt að mjög stutt tímabil eykur hættu á sál- rænum kvillum til lengri tíma litið, sérstaklega hjá feðrum barnanna. Rætt við 449 sænska foreldra í rannsókninni Takmörkuð vitneskja hefur verið um það hvenær foreldrar verða vitsmunalega og tilfinningalega meðvitaðir um óhjákvæmilegt og yfirvofandi andlát barnsins síns úr krabbameini og hve mikil áhrif lengd tímabilsins hefur á heilsu foreldranna þegar til lengri tíma er litið. Í tilkynningu kemur fram að Unnur Valdimarsdóttir, for- stöðumaður Miðstöðvar Háskóla Íslands í lýðheilsuvísindum og samstarfsfólk hennar við Karol- inska Institutet og Harvard- háskóla spurðu 449 sænska for- eldra, sem misst höfðu barn á ár- unum 1992 til 1997, um það hvenær – áður en barnið lést – for- eldrarnir urðu að fullu meðvitaðir um að barnið væri með banvænt krabbamein og myndi, fyrr eða síð- ar, deyja vegna meinsins. Gagna- söfnun fór fram meðal foreldranna 4-9 árum eftir missi barnsins. Upplýsingar og gæði þeirra skipta máli Um fjórðungur foreldranna sagðist hafa upplifað mjög stutt tímabil – minna en einn sólarhring – þar sem þeir voru meðvitaðir um missinn framundan og 45% greindu frá mjög stuttu tímabili þar sem þau undirbjuggu sig til- finningalega fyrir andlát barnsins. Helsti þátturinn sem spáir fyrir um lengd þess tímabils sem for- eldrar eru meðvitaðir um yfirvof- andi andlát barnsins tengist magni og gæðum upplýsinga sem læknir barnsins gaf um að sjúkdómurinn væri ólæknandi. Skortur á slíkum upplýsingum hafði í för með sér þrefalt meiri hættu á stuttu tíma- bili vitsmunalegs undirbúnings for- eldra. Ef læknandi meðferð var hætt fyrir andlát barnsins varð undirbúningstímabil foreldra lengra. Takmarkaðar upplýsingar frá ummönnunaraðilum, eða skort- ur á opinskárri samræðu milli for- eldranna sjálfra um yfirvofandi andlát barnsins, leiddu til skemmra tímabils í tilfinningalegum und- irbúningi hjá báðum foreldrum. Ólík áhrif á feður og mæður Sumir þeirra áhrifaþátta sem rannsakaðir voru höfðu ólík áhrif á feður og mæður. Til að mynda reyndist skemmri tími við sjúkra- og dánarbeð barns, engar samræð- ur við barnið um dauðann og ófull- nægjandi upplýsingar stytta tíma- bil vitsmuna- og tilfinningalegrar meðvitundar frekar hjá feðrum en mæðrum. Rannsóknin benti til þess að stutt tímabil tilfinninga- legrar meðvitundar yki hættu á langtímþunglyndi, veikindaleyfum frá vinnu og neyslu geðlyfja hjá þessum feðrum. Unnur veitir forstöðu Miðstöð um lýðheilsuvísindi við Háskóla Ís- lands en fyrstu meistara- og dokt- orsnemarnir munu hefja þar nám í haust. Meðal samstarfsaðila Há- skólans um námið eru Karolinska Institutet, Harvard School of Pu- blic Health, Landlæknisembættið, Hjartavernd, Landspítali – há- skólasjúkrahús og Krabbameins- félag Íslands, samkvæmt tilkynn- ingu. Morgunblaðið/Ómar Foreldrar Lítið hefur verið vitað um það hvenær foreldrar verða meðvitaðir um óhjákvæmilegt andlát barns síns. Tengsl eru á milli heilsu foreldra og undirbúnings Niðurstaða rannsóknar íslensks vísindamanns og samstarfsmanna á andláti barna með krabbamein

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.