Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 18
|þriðjudagur|14. 8. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Þegar hausta tekur skiptir
gróðurinn um lit og lífleg sum-
arblóm fölna. Það má þó lengja
sumarið með gerviblómum. »21
daglegt
Lacrosse-íþróttin hefur sótt
verulega í sig veðrið að und-
anförnu í Evrópu – og Ísland er
næst á dagskrá. »20
tómstundir
Þ
að ríkir eftirvænting á fjölmörgum
heimilum í Árbænum í dag. Fríð-
ur flokkur ungra garðyrkju-
manna ætlar nefnilega að taka
sér skóflur, rekur og gaffla í
hönd og taka upp afrakstur sumarsins í
skólagörðunum sem staðsettir eru skammt
frá Árbæjarsafni.
Meðal þeirra 60 krakka sem hafa ræktað
garðinn sinn í ár er Katrín Garðarsdóttir, 11
ára nemandi í Árbæjarskóla. Í allt sumar
hefur hún heimsótt reitinn sinn og hlúð að
væntanlegri uppskeru. „Mér finnst allt gam-
an,“ segir hún með áherslu, „hvort sem það
er að setja niður, vökva eða reyta. En upp-
skeran er samt skemmtilegust.“
Hlé vegna fótbolta
Uppskera Katrínar er enda með besta
móti í ár. „Ég setti niður rauðrófur og venju-
legar rófur og rauðkál og brokkólí og blóm-
kál og hnúðkál og kartöflur. Svo setti ég nið-
ur næpur og radísur og eins eitthvert
krydd,“ segir hin unga garðyrkjukona sem
hefur verið einstaklega iðin við umönnun
plantnanna sinna. Árangurinn hefur heldur
ekki látið á sér standa því garðurinn hennar
var valinn sá glæsilegasti í Árbænum á dög-
unum. Slíkt kemur þó ekki af sjálfu sér.
„Fyrst kom ég mjög oft eða á hverjum degi
með vinkonum mínum. Svo fór ég í sum-
arhúsið okkar á Eyrarbakka og lét grænmet-
ið bara vaxa á meðan en þegar ég kom aftur
þurfti ég að reyta arfann sem var þá kom-
inn.“
Hún viðurkennir að það hafi verið ansi
mikið átak því illgresið kunni vel að meta
blíðuna sem ríkt hefur í borginni í sumar og
spratt því sem aldrei fyrr. „Svo kom ég aftur
núna um helgina að reyta og taka upp því ég
var ekkert búin að koma í dálítinn tíma. Ég
var nefnilega að keppa í fótbolta á Pæju-
mótinu á Siglufirði,“ útskýrir Katrín sem
auðvitað æfir með hverfisliðinu Fylki. Þar
fyrir utan stundar hún ballett á veturna svo
það er nóg að gera hjá henni allan ársins
hring.
Salat og grænmetissúpa
Grænu fingurnir virðast vera í ættinni því
mamma Katrínar kom í sömu skólagarða
þegar hún var krakki. Hún hefur líka verið
viljug að fara með dóttur sinni í garðana á
sumrin. „Sérstaklega þegar ég var aðeins
minni. Núna fer ég mest sjálf, oftast á hjól-
inu.“ Mamma hennar á heldur ekki í vand-
ræðum með að finna uppskeru dóttur sinnar
farveg. „Hún býr til salat og grænmetissúpu
og fleira úr þessu og svo gef ég ömmu líka
svolítið,“ útskýrir Katrín.
En getur hún hugsað sér að verða garð-
yrkjukona þegar hún verður stór? „Æi, ég
veit það ekki,“ svarar hún svolítið efins á
svip. „En ég ætla ábyggilega að fara næsta
sumar aftur í skólagarðana,“ flýtir hún sér að
bæta við og játar að nýfengin viðurkenning
garðsins hennar hafi þar sennilega áhrif á.
ben@mbl.is
Blómleg Hnúðkálið og rauðkálið hennar Katrínar á eflaust eftir að bráðna í munnum fjölskyldu hennar. Glænýjar Það verður ekki fúlsað við kartöflunum úr Árbænum.
Uppskeru fagnað í Árbænum
Arfinn hefur ekki fengið nein
grið hjá Katrínu Garðarsdóttur í
sumar. Bergþóra Njála Guð-
mundsdóttir sá fagmannleg
handtökin þegar hún tók upp
kartöflur, hnúðkál og rauðkál í
skólagörðunum í Árbænum í
gær.
Morgunblaðið/Júlíus
MIKIÐ HEFUR verið talað um
launamismun kynjanna en sam-
kvæmt nýrri bandarískri könnun
sem fjallað er um á vefmiðli danska
dagblaðsins Jyllandsposten kemur
fram að einnig sé munur á milli
kynjanna, sér í lagi í launum, þegar
kemur að því hve ágengir ein-
staklingar eru.
Í könnuninni kemur fram að
ágengni geti virkað vel fyrir starfs-
framann og þar með launin, en þó að-
eins fyrir karla þar sem konur sem
eru ágengar eru hinsvegar álitnar
vanhæfar.
Það er Victoria Brescoll hjá Yale-
háskólanum bandaríska sem hefur
komist að þessu með því að rannsaka
þau viðbrögð sem ágengir karlar fá
annarsvegar og ágengar konur hins-
vegar.
Virðing borin
fyrir körlum
Könnunin var þannig að þátttak-
endum voru sýnd myndskeið þar sem
fólk í atvinnuviðtölum sýndi ágenga
hegðun. Eftir að hafa skoðaðþau áttu
þátttakendur að meta frammistöðu
hvers og eins og ákvarða sanngjörn
laun þeim til handa.
Niðurstaðan kom svo sannarlega á
óvart, því ágengir karlar hlutu al-
mennt meiri aðdáun, virðingu og síð-
ast en ekki síst hærri laun. Konur
sem sýndu sömu hegðun fengu hins-
vegar að launum það viðhorf að þær
væru óhæfar til starfans og stjórn-
lausar, nokkuð sem ekki þótti væn-
legt til að skila hærri launum.
Eins kemur fram á vef Jótlands-
póstsins að í atvinnulífinu endur-
speglist þessi viðhorf í því að konur
megi aldrei sýna ágenga hegðun því
slíkt sé til þess fallið að rýra trúverð-
ugleika en hinsvegar sé sama hegðun
samþykkt þegar karlar eiga í hlut,
því þá sé verið að sýna styrk.
Ágengir karlmenn fá hærri laun
Hæfari? Ágengir karlmenn njóta meiri virðingar í starfi en ágengar konur.