Morgunblaðið - 14.08.2007, Qupperneq 19
úr byggðarlaginu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 19
Útlit er fyrir að þetta ár verði met-
ár er varðar komu ferðamanna og
höfum við uppsveitafólk hér í Ár-
nessýslu ekki farið varhluta af því.
Þeir ferðaþjónustuaðilar sem teknir
hafa verið tali og reka gistiheimili,
golfvelli, hestaleigur og sundlaugar
eru sammála um þetta. Veðráttan
hefur enda verið einstök og lofthiti
mikill, var iðulega yfir 20 gráður á
daginn og komst hæst í 28 gráður á
opinberan mæli. Öllum á að vera
ljóst að ferðaþjónustan er alvöru
atvinnugrein sem vonandi eflist enn
og blómgast á komandi árum.
Skrifari heyrði ferðamálafulltrúa
segja í ávarpi að hingað í uppsveit-
irnar kæmu um 500 þúsund ferða-
menn á þessu ári. Vitaskuld eru
það perlurnar Gullfoss og Geysir
sem draga hvað mest. Það gefur
augaleið að til að mæta því þarf
m.a. öflugt vegakerfi. Því miður
vantar mikið á að vegir séu við-
unandi hér í uppsveitum sýslunnar.
Enn eru hér fjölfarnir vegir í bágu
ástandi og beinlínis varasamir, m.a.
um 5 km kafli í efsta hluta Hruna-
mannahrepps sem vonandi verður
byggður upp á næstunni. All-
nokkrar einbreiðar brýr eru og
slysagildrur. Það hefur lengi verið
draumur fólks í okkar byggðarlagi
að brú verði byggð yfir Hvítá hjá
Bræðratungu, hún er mikilvægt
mannvirki, nú verða ráðamenn
vegamála í landinu að standa við
þessa ákvörðun.
Greiðar samgöngur eru lykill að
bættri velmegun og blómlegra sam-
félagi, vegirnir eru lífæðar byggð-
anna. Það er fagnaðarefni ef stjórn-
völd ætla nú að stíga rækilega í
ístaðið í þessum efnum. Margir hér
í okkar byggðum eru afar hlynntir
því að gerður verði fullkominn
heilsársvegur yfir Kjöl sem tengi
saman Norður- og Suðurland. Slík-
ur vegur myndi skipta okkur upp-
sveitafólk mjög miklu máli. Eftir
þeim hugmyndum sem settar hafa
verið fram myndi vegalengd frá
efstu bæjum til Akureyrar styttast
um hátt á þriðja hundruð kíló-
metra. Slíkur vegur yrði afar mik-
ilvægur fyrir ferðaþjónustuna í
landinu sem og aðra landsmenn.
Aðgangur að náttúruperlum svo
sem Kerlingarfjöllum og Hveravöll-
um sem og tign og fegurð hálend-
isins yrði öllum auðveldari. Hálend-
ið þarf alltaf að ganga um með
virðingu og varúð. Varanlegur
heilsársvegur myndi bæta um-
gengni um hálendið og draga úr
utanvegarakstri eða hann jafnvel
leggjast af líkt og gerðist með veg-
inum um Vatnsfell. Í þeirri umræðu
mætti spyrja hve margir kæmu á
Þingvelli ef enginn væri vegurinn,
þótt óneitanlega væri þar fegurra
án nokkurra mannvirkja.
Senn fer litadýrð haustsins að fær-
ast yfir okkar fagra land eftir gott
og gjöfult sumar. Akrar bændanna
bylgjast bleikir í blænum, uppskera
á öllum jarðargróða lítur úr fyrir
að verða góð. Það kemur sér vel
fyrir bændurna sem eiga svo mikið
undir sól og regni.
Þótt margir hafi notið sumarsins
vel er sjálfsagt að njóta síðsumars-
ins og haustsins með allri sinni feg-
urð. Hér í uppsveitum Árnesþings
er margt á að líta og veitinga- og
gististaðir eru margir sem taka vel
á móti fólki sem hingað kemur er
haustlitirnir skarta sínu fegursta.
ÁRNESSÝSLA
Sigurður Sigmundsson fréttaritari
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundson
Blómlegt ferðamannasumar Margir hafa sótt heim uppsveitir Árnessýslu
í sumar. Myndin er frá tjaldstæðinu á Flúðum.
Í Fréttabréfi Iðunnar er vísa semSigurður Sigurðarson orti á
Láganúpi við Kollsvík:
Héðan sóttu úr sjávardjúpi
sjómenn hraustir föng ósmá.
Enn er líf á Láganúpi
og lífsgleðin er rík sem þá.
Landsmót hagyrðinga verður
haldið á Blönduósi laugardaginn 1.
september. Kvæðamannafélagið
Iðunn verður með rútuferð frá
Reykjavík og getur fólk bókað sig
hjá Pétri Eggerz á netfanginu:
eggerz@simnet.is. Ólafur Runólfs-
son hugsar norður yfir heiðar:
Norður heiðar nú er greiður vegur.
Vagninn skeiða víst þar má
veröld breiða til að sjá.
Sumarveður víst nú gleður andann.
Væna kveða vísu þarf,
sem verður með, – í þjóðar arf.
Eins og fluga, ef ei bugast minni.
um það hugur enn þá snýst,
áfram duga skal ég víst.
Þó að gráni þá mun skána síðar.
Allt ég fránum augum lít,
aftur hlánar fönnin hvít.
Helgi Zimsen orti afhendingu á
göngu niður að Grunnuvötnum í
Heiðmörk á sumarfundi Iðunnar en
þar var ekki dropa að sjá frekar en
endranær á sumrin:
Grunnuvötnin grynnri naumast geta
orðið,
undir moldu yfirborðið.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Líður að landsmóti
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
-hágæðaheimilistæki
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
GJAFABRÉF
Njótið þess að fá rjúkandi
kaffi, cappuccino eða caffe
latte á innan við mínútu
heima í eldhúsi.
Verð frá kr.: 23.500
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík
Baldursnes 6, Akureyri
Sími 588 0200 -www.eirvik.is
Aðrir söluaðilar: Kokka, Laugavegi, Egg, Smáratorgi
Villeroy & Boch, Kringlunni, Líf og list, Smáralind
Njótið
lífsins
Kaffivél
Ferðaskrifstofa