Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 23

Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 23 anstendur af Ratsjárstofnun, íslenskum liðsauka eins og lögreglu og Landhelgisgæslu og aðstoð herafla annarra NATO-ríkja. Ég er ánægður með þetta tækifæri til þess að sýna að okkar fólk getur unnið saman sem víxlháður liðsafli.“ Stefnt að óaðfinnanlegri afhendingu á verkefnum stofnunarinnar Aðspurður um hvort ekki sé óheppilegt að málefni Ratsjárstofnunar séu ekki að fullu frá- gengin segir Hobbins að verið sé að afhenda Ís- lendingum rekstur radarstöðvanna og unnið sé náið að því með íslenskum stjórnvöldum að um- skiptin verði óaðfinnanleg. Ákveðin atriði séu ekki komin á hreint en þau muni leysast. Rík- isstjórn Íslands þurfi einfaldlega að gera upp við sig hvort hún vill nota þetta ratsjárkerfi. „Ég get bara verið til umsagnar um það en þeir ákvarða það. Þetta er kjörið tækifæri til þess að yfirfara kerfið og íhuga möguleikana. Búnaðurinn var af- ar fullkominn árið 1990 og ég tel hann einnig mjög fullkominn í dag,“ segir Hobbins. Ekki sammála Birni að öllu leyti Um þetta segir Geir að starfsemi ratsjárstofn- unar muni halda áfram með sama hætti og hún hefur verið þar til að ákvörðun um annað hefur verið tekin. „Gallalaus umskipti eru það sem við vonumst eftir og ég tel að þau takist. Eina breyt- ingin á þessum tímapunkti verður á kostnaðar- hliðinni, við tökum að okkur fjárhagslegu ábyrgðina en svo er eftir að ganga frá ákveðnum tæknilegum atriðum,“ segir hann og bætir því við að hin óleystu mál séu tæknilegs eðlis og snú- ist ekki um hver eigi að bera straum af rekstr- arkostnaði. Starfsemi stofnunarinnar segir hann mögu- lega geta átt heima undir Flugstoðum eða vakt- stöðinni í Skógarhlíð að einhverju leyti, eins og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur sagt heppilegra. Sjálfsagt sé að fara yfir það hvort hægt sé að koma hluta rekstrarins í hendur borgaralegra aðila. Hann tekur þó skýrt fram að ekki sé heppilegt að sá hluti sem snúi að land- vörnum og samstarfi við Atlantshafsbandalagið heyri undir þær stofnanir. skyldi halda áfram innan NATO. Sýn þeirra hafi verið æfingar, svipaðar þeirri sem nú er haldin, en von hans sé sú að þær verði árlegar í framtíð- inni. Þegar hafa viðræður átt sér stað um það hvenær næsta æfing fer fram, en líklega verður það í júní á næsta ári en gæti dregist fram í ágúst. Bandaríkjamenn rækja enn skyldur sínar samkvæmt varnarsamningnum William T. Hobbins, hershöfðingi og yfirmað- ur flughers Bandaríkjanna í Evrópu, sem gegndi stöðu yfirmanns flughersins á Keflavíkurflug- velli frá 1988 til 1990, segir grundvöllinn fyrir æfingum sem þessari ekki hafa breyst. Eðli ógn- arinnar hafi færst frá þessum heimshluta svo nauðsynlegt sé fyrir Bandaríkjamenn að færa liðsafla sinn til annarra svæða, en æfinguna segir hann til merkis um áframhaldandi hollustu Bandaríkjamanna við varnarsamninginn frá 1951 og sýna að hér séu raunverulegar og virkar loftvarnir. Stærðargráðu æfingarinnar segir hann hæfilega en þegar fram í sæki geti eðli æf- ingarinnar hins vegar breyst, ýmsir möguleikar séu í þeirri stöðu. Sérstakar leitar- og björgunar- æfingar, sjóheræfingar og stærri eða breyttar loftvarnaræfingar séu allar inni í myndinni. Ratsjáreftirlit Íslendinga er mikilvægt fyrir Atlantshafsbandalagið Stóran hluta kostnaðarins segir Hobbins greiddan úr sjóðum herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem vilji leggja í kostnað til að þjálfa mannafla sinn við íslenskar aðstæður með Ís- lendingum. Hið íslenska ratsjáreftirlit segir hann leika mjög mikilvægt hlutverk fyrir Atl- antshafsbandalagið. „Þegar ég var hér við stjórnvölinn skipti það máli fyrir fjölmargar að- gerðir. Æfingin snýst um liðsheild, sem sam- morgun, á og við Ísland  Herlið frá Bandaríkjunum, Danmörku, Noregi, Lettlandi og NATO tekur þátt g andsins Morgunblaðið/ÞÖK Samvinna Fulltrúi bandaríska hersins sér um samræmingu loftvarna en fulltrúi ríkislögreglustjóra um samræmingu æfingar gegn hryðjuverkum. ir æfinguna ásamt forsætisráðherra. Gjöf Geir H. Haarde færir hershöfðingjanum William T. Hobbins forláta klukku við tilefnið í gær. Í HNOTSKURN »Æfingin skiptist í tvo hluta: Annartekur til loftvarna fyrir Ísland, við- bragða við ólöglegri eða óþekktri flug- umferð og æfingu loftbardaga. »Hinn hlutinn snýst um varnir gegnhermdar- og hryðjuverkum. 65 sér- sveitarmenn taka þátt í þeim hluta. »Æfingar af þessu tagi hafa hingað tilverið haldnar annað hvert ár en stefnt er að því að þær verði árlegar héðan í frá. »Yfirmaður flughers Bandaríkjanna íEvrópu segir þetta sýna og viðhalda raunverulegum landvörnum á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.