Morgunblaðið - 14.08.2007, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 25
í boði er á sviði kennslugagna fyrir
leikskóla og yngsta stig grunn-
skóla með áherslu á sérkennslu og
tækni.
Það er ljóst að sífellt fleiri börn
þurfa að nota tölvur og tækni sér
til stuðnings við nám og því var
leitað til Hartmanns Kr. Guð-
mundssonar hjá Örtækni, Rann-
veigar Traustadóttur hjá Sjónstöð
Íslands, Sigrúnar Jóhannsdóttur
hjá Tölvumiðstöð fatlaðra og
Hrannar Birgisdóttur hjá Grein-
ingar- og ráðgjafastöðvar ríkisins.
Þau munu sjá um vinnustofu og
bjóða þátttakendum námstefn-
unnar að prófa bæði forrit, tæki og
tól sem henta til kennslu nemenda
með sérþarfir. Einnig munu nokk-
ur fyrirtæki kynna fjölbreytt
námsgögn á sérstökum sýning-
arbásum.
Það er von mín að námstefna
sem þessi veiti kennurum og öðru
fagfólki sem starfar innan leik- og
grunnskólans tækifæri til að kynna
sér fjölbreyttar leiðir í kennslu
með getubreiðan barnahóp og efli
um leið samvinnu milli fagstétta og
samfellu náms milli skólastiga.
Faghópur leikskólasérkennara í
samvinnu við Félag leikskólakenn-
ara, Kennaraháskóla Íslands, Fé-
lag íslenskra sérkennara, Háskól-
ann á Akureyri og Tölvumiðstöð
fatlaðra mun halda námstefnuna
Leiðir til árangurs sem haldin
verður í húsi Kennaraháskóla Ís-
lands föstudaginn 17. ágúst kl.
8:30.
Höfundur er sérkennslustjóri í
Garðabæ og formaður undirbúnings-
nefndar námstefnunnar.
ÞAÐ líður vart sú vika að ekki
megi lesa í einhverju blaði lofsöng
um „ósnortna“ eða „óspillta“ nátt-
úru Íslands. Og nú er það Vigdís
Ágústsdóttir sem ríður á vaðið og
skrifar hugleiðingu í blaðið þann
1.8. um náttúruvernd. Hún minnir á
að einn dýrasti auður Íslendinga sé
„ósnortið“ land. Því miður erum við
fyrir löngu búin að spilla landinu
svo kröftuglega að okkur hefur tek-
ist að breyta því í stærstu mann-
gerðu eyðimörk í Evrópu. „Land-
breyting“ hefur átt sér stað og því
ekki til neitt sem heitið getur
„ósnortið“.
Hún mælir og með því að við tök-
um ekki fram fyrir hendur skap-
arans með gróðursetningu erlendra
tegunda og stuðlum þannig að
„landbreytingu“, en gleymir því að
við erum nú þegar búin að grípa
fram fyrir hendur hans með því að
eyða megninu af upprunalegum
gróðri landsins og tapa síðan jarð-
vegi í kjölfarið. „Landbreyting“
kallast það. Hún gleymir því líka að
margar þessar erlendu gróðurteg-
undir hafa lifað lengur í landinu en
flestir núlifandi Íslendingar. Ef
„landbreyting“ er til góðs (t.d.
skógrækt) finnst mér hún í lagi en
ef hún felst í því að eyða gróðri og
jarðvegi er hún ekki líðandi.
Þann 3.8. fylgir, í kjölfar Vigdís-
ar, Auður Haraldsdóttir með hug-
leiðingar um olíuhreinsistöð. Þar
segir hún m. a. „ósnortna“ náttúru
sjaldgæfa víða um heim. Satt segir
hún og eitt er víst að ekki er hana
að finna hér í eyðimörkinni Íslandi.
Við þurfum að fara lengra út í heim
til að finna slík fyrirbæri og nefni
ég hér aðeins Tíbet, þó ekki á slóð-
um fjallaklifrara. Hún heldur því
líka fram að íslenska þjóðin vilji
halda náttúrunni hér „ómengaðri“
og „ósnortinni“ í sínu „upp-
runalega“ formi. Ég spyr: gerir AH
sér ekki grein fyrir landsins upp-
runalegu mynd? Gerir hún sér ekki
grein fyrir því að hér þakti gróður
landið við landnám, allt að 75% af
yfirborði þess, en nú aðeins um
25%? Og aftur hnýt ég um þetta
orð, „ósnortin“. Ég endurtek að hér
á landi er stærsta manngerða eyði-
mörk í Evrópu og þótt víðar væri
leitað. Ekkert er
ósnortið. Og talandi um
„ómengaða“ náttúru
minni ég á að hér á
landi hefur viðgengist
hin mesta mengun sem
hugsast getur, bæði
lyktar- og sjónmengun.
Tek ég sem dæmi
þessa makalausu lykt-
armengun (fýlu, ódaun)
sem allir íbúar í sjáv-
arbyggðum landsins
hafa þurft að þola frá
því að fyrsta fiskimjöls-
verksmiðjan var tekin í
gagnið, til dagsins í dag. Þessi
mengun gegnsýrir allt lífið á þess-
um stöðum. Hús, innbú og föt eru
gegnsósa og margir fá höfðuverk,
ógleði og uppköst af þessum fnyk.
Og þrátt fyrir kröftug mótmæli íbú-
anna eru svörin alltaf þau að (lykt-
ar-)mengunin sé innan „leyfilegra
marka“! Hver er mælikvarðinn?
Ekki megum við svo gleyma mestu
sjónmengun allra tíma, plasthaug-
unum um land allt. Þar fá bændur
að byggja úr plasti án umhverf-
ismats og leyfis. Er hægt að kalla
svona land ómengað?
Og enn heldur lofsöngurinn
áfram og nú er það „óspillt“ land.
Þann 4.8. skrifar Snorri Sig-
urjónsson í blaðið og segir í hug-
leiðingum sínum að
óspillt náttúra Íslands
sé vanmetin auðlind!
Bíðum nú við, hvaða
óspillta náttúra? Ég
veit ekki betur en að
hér sé allt yfirborð
landsins gjörspillt.
Þessi 25% sem eftir
eru af gróðurþekjunni
eru, meira að segja,
meira og minna rifin
og götótt. Aðeins um
4% teljast heil gróð-
urþekja.
Mér finnst að fólk
ætti nú að fara að koma sér niður á
jörðina og horfa í kringum sig. Alls
staðar er gjörspillt náttúra. Og það
sem við þurfum að gera, og það í
hvelli, er að friða afrétti, brattar
hlíðar og allt kjarr og reyna að
endurheimta einhvern gróður og
jarðveg og það með öllum tiltækum
ráðum.
Það getur vel verið að útlend-
ingar séu hrifnir af að koma hingað
í víðernin og gróðurleysið. Hvíld frá
þeirra gróðurríku löndum. En þeir
eru ekki að dást að „óspilltri“ og
„ósnortinni“ náttúru. Nei, nei, þeir
eru að dást að eyðimörk, auðninni í
víðáttunni og óbyggðum landsins.
Og það er allt annar handleggur.
Hvorki „ósnortin“ né „óspillt“
náttúra er til hér á landi. Öll nátt-
úran er „snert“ (nema kannski fá-
einir fossar) og mismunandi mikið
„spillt“ og hellingur hreinlega horf-
inn. En auðnirnar í hinni miklu víð-
áttu á hálendinu eru óbyggð-
ar … en gjörspilltar.
Hvað er ósnert, óspillt og ómengað?
Margrét Jónsdóttir skrifar
um náttúruvernd
og orðanotkun þar um
Margrét Jónsdóttir
» Athugasemdir við rangri notkun
orðanna „ósnert,
óspillt og ómenguð
íslensk náttúra“.
Höfundur er aðstoðarmaður
húsamálara.
Fréttir á SMS
FASTEIGN OG REKSTUR. Hótelið er um 650 fm að stærð og steypt á 3 hæðum og þar
eru átta herbergi. Einnig er stór matsalur sem nýtist undir skemmtanir, tveir barir, heit-
ur pottur og margt fleira. Fallegt útsýni, góð staðsetning, ástand eignar gott og óend-
anlegir möguleikar. Hentar sérlega vel fyrir menntaðan matreiðslumann eða vinnusama
fjölskyldu. Verð 65,0 millj.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Hótel Bjarg - Fáskrúðsfirði
Kvöldskóli Iðnskólans í Reykjavík
Innritun í kvöldskóla Iðnskólans í Reykjavík stendur yfir á netinu,
www.ir.is/kvoldnam
Aðstoð við innritun verður í matsal skólans,
miðvikudaginn 15. og fimmtudaginn 16. ágúst frá kl. 17:00–18:30.
Allar nánari upplýsingar á www.ir.is
Kennsla hefst miðvikudaginn 22. ágúst.
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 • Fax 533 4041
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali
Glæsilegt, nýtt steinsteypt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bíl-
skúr, alls 248 fm. Húsið er frábærlega vel staðsett í lokaðri götu með fall-
egu útsýni. Húsið er fullfrágengið og til afhendingar strax. Sjón er sögu
ríkari. Verð 87,0 millj.
Dan V.S. Wiium verður á staðnum frá kl. 17-18:30 í dag.
jöreign ehf
OPIÐ HÚS Í DAG, ÞRIÐJUDAG, KL. 17-18:30
DESJAKÓR 8 - KÓPAVOGI