Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 36

Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 36
… Hættu að ota þessu framan í mig meðan ég reyni að keyra – þetta er hættulegt! …43 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is ALEX James, bassaleikari bresku hljómsveit- arinnar Blur, sendi nýverið frá sér sjálfsævisögu sem nefnist A Bit Of A Blur, sem á íslensku gæti útlagst Svolítið óskýrt. Ísland kemur töluvert við sögu í bókinni enda féll James fyrir landi og þjóð á sínum tíma, líkt og Damon Albarn, söngvari Blur gerði einnig. Í bókinni er kafli sem heitir einfaldlega Iceland og segir hann frá dvöl þeirra á árunum 1995 til 1997. Í kaflanum segir meðal annars: „Ísland er ólíkt öllu öðru. Landið virðist ekki vera stórt á landakorti en þegar ég kom þangað kom í ljós að það er risastórt.“ Um höfuðborgina segir James: „Reykjavík er á stærð við Bournemouth. Hún er mjög notaleg og hreinleg. Vatnið í ánni sem rennur í gegnum miðborgina er alveg tært og bragðast mjög vel. Það eru sjómenn við höfnina og það eru engir rónar í lystigörðum. Það er ekki hægt að vera heimilislaus svona norðarlega.“ Vinsælir hjá stúlkunum Fimmta breiðskífa Blur, samnefnd sveitinni, var tekin upp hér á landi, en hún kom út í febrúar árið 1997. James segir meðal annars frá því að á meðan á upptökum stóð hafi þeir notið mikillar kvenhylli. „Það var alltaf töluverður fjöldi stúlkna fyrir utan hljóðverið, og þær fylgdu okkur hvert sem við fórum. Það þykir ekki til fyrirmyndar að sofa hjá stúlkum sem bíða eftir manni fyrir utan. Ég prófaði það samt í Barcelona og það var frá- bært. Ég svaf hins vegar ekki hjá öllum stúlkum sem ég kynntist, það var ekki það eina sem ég vildi gera, en stundum var það það eina sem þær vildu gera,“ segir James. Eins og frægt er orðið vörðu meðlimir Blur talsverðum tíma á Kaffibarnum á meðan á dvöl þeirra hér á landi stóð. James lýsir kynni sínum af staðnum svo: „Ég fór með Damon á lítinn bar rétt við aðalgötuna. Hann hét Kaffibarinn. Eigandinn, sem hét Ingvar, bauð Damon strax hlut í staðnum ef hann lofaði að drekka þar á meðan við værum í bænum. Drykkirnir yrðu sem sagt ókeypis. Þetta virtist fullkomið. Okkur vantaði líka höfuðstöðvar. Við vorum kynntir fyrir öllum mikilvægustu drykkjumönnunum um leið og þeir komu á stað- inn. Við kynntumst skáldi, ráðherra einhvers ráðuneytis og söngvaranum í Funkstrasse sem var heitasta nýja sveitin í Reykjavík. Svo kom Einar úr Sykurmolunum. Ég hafði verið að velta því fyrir mér hvenær ég myndi sjá hann aftur. Ég heilsaði honum eins og hann væri bróðir minn sem ég hefði ekki séð lengi. Ingvar sagði öllum að Da- mon ætti Kaffibarinn. Ég veit hins vegar ekki hvort Damon hefur fengið einhverja peninga út úr þessu, en við höfðum allavega stað til að fara á.“ Ástfanginn af íslenskri stúlku Eitt kvöldið kynntist James íslenskri stúlku fyrir utan Kaffibarinn. „Staðurinn var ennþá troðinn þegar sólin kom upp og ég skjögraði út til að kasta upp. Það virtist vera viðtekin venja, eins og að ropa í Japan; fullt af fólki gerði þetta. Þetta var alveg klikkað. En það var gott að komast út og þar var álfastúlka með fallega húð og langa leggi sem flissaði þegar hún sá mig. „Ég er að fara heim, viltu koma með?“ spurði ég. „Já, já,“ svaraði hún.“ James fer fögrum orðum um hina íslensku stúlku sem hann átti í sambandi við um nokkurt skeið. „Hún bjó fyrir ofan gæludýrabúð við aðal- götuna, hafði próf í heimspeki frá París og mjög langa leggi. Hún er eina stúlkan sem ég hef kynnst sem getur drukkið meira en ég,“ segir James sem af lýsingunum að dæma var mjög hrif- inn af stúlkunni. Reyktu gras í Kjósinni Þá lýsir James kynnum sínum af Bubba Mort- hens sem hann hreifst mjög af. „Hann bjó í kofa við vatn í botni dals. Hann var eins og álfur með brjálað augnaráð, sköllóttur sem barn og fullur af lífsorku. Hann var skemmti- legur náungi og ég heillaðist af viðhorfum hans, sem voru nokkuð margslungin,“ segir James með- al annars um Bubba. Aðspurður segist Bubbi muna vel eftir James enda hafi þeim verið vel til vina. „Við vorum að reykja gras saman og ég fór með hann í Kjósina og við fórum í fjallgöngur,“ segir Bubbi. „Við vor- um ágætir vinir um tíma, þótt það hafi ekki farið mjög hátt. Við eyddum svolitlum tíma saman og ég man sérstaklega eftir því þegar ég var að draga hann út úr Reykjavík og sýna honum nátt- úruna og allt það. Við áttum frábæra tíma saman, þetta er eitthvað með bassaleikara sem verða oft mjög góðir vinir mínir. En hann var skarpur þessi strákur, hann var reyndar svolítið upptekinn af því að vera poppstjarna og var því dálítið ráð- villtur,“ segir Bubbi og bætir því við að hann fái árlegar kveðjur frá James enn þann dag í dag. Bubbi, Blur og barinn Íslenskt Bæði Kaffibarinn og Bubbi Morthens koma fyrir í bókinni. Blur frá vinstri: Graham Coxon, Dave Rowntree, Alex James og Damon Albarn. Vinsæl Bit Of A Blur hefur selst mjög vel í Bret- landi og er áberandi í bókabúðum þar í landi. Ísland kemur töluvert fyrir í nýrri sjálfsævisögu Alex James, bassaleikara Blur Samkvæmt upplýsingum frá Máli og menningu og Eymundsson er A Bit Of Blur ekki fáanleg eins og er, en hún verður það þó á næstu dögum.  Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðs- ins mun leik- arinn Paul Dano fylla skarð Ryans Gosling í næstu mynd Dags Kára The Good Heart. Ryan Gosling og Tom Waits höfðu áður samþykkt að leika í kvikmyndinni en ekki náðust samn- ingar um tímasetningar á tökum á myndinni. Paul Dano er upprenn- andi stjarna í Hollywood en hans er helst minnst fyrir leik sinn í kvik- myndinni Little Miss Sunshine þar sem hann fer á kostum í hlutverki þunglynda bróðurins sem hefur svarið þagnareið. Ekki er enn ljóst hvenær tökur á myndinni hefjast en reikna má með að ráðning Dano flýti þeim ákvörðunum töluvert. Paul Dano í stað Gosl- ing í The Good Heart  Einkar áhugavert viðtal við drengina í Jakobínurínu má finna í nýjasta tölublaði Reykjavík Grape- vine. Stutt mun vera í fyrstu plötu sveitarinnar sem hefur víst verið í framleiðslu frá því þeir luku sam- ræmdu prófunum og er það meðal annars tilefni viðtalsins sem er skrifað af Valgerði Þóroddsdóttur. Valgerður spyr þá félaga meðal annars hvort þeir haldi upp á ein- hverja íslenska hljómsveit en þeir svara því til að engin íslensk hljóm- sveit hreyfi við þeim nema þá ef til vill Singapore Sling. Þá halda þeir áfram og benda á að í raun sé lítið sem ekkert að gerast í íslenskri rokktónlist og það sjáist best á Inni- púkanum sem fram fór á dögunum – allar sveitirnar þar hafi verið meira eða minna „drasl“! Spurning um að bjóða þeim á Innipúkann að ári? Jakobínarína sendir kollegum sínum tóninn  Kerrang!- kvöld Iceland Airwaves hef- ur ávallt verið mjög vinsælt og öruggt má telja að engin breyting verði þar á nú í ár. Auk íslenskra rokksveita á borð við Gavin Port- land, Changer, Momentum og Bra- in Police munu rokk-hetjurnar The Bronx frá New York troða upp á kvöldinu og sýna Íslendingum af hverju þeir eru jafnan taldir í hópi mest spennandi rokksveita þessa áratugar. The Bronx á Kerrang!- kvöldinu í ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.