Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 37

Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 37 MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is Miðapantanir í síma: 437-1600 B reski gítarleikarinn Ken Hensley er eins og skógarbjörn. Hann leggst af og til í dvala en rís svo alltaf upp aftur þegar honum finnst hann hafa eitthvað að færa þyrstum rokkunnendum. Hensley hóf feril sinn sem soul-gítarleikari en árið 1965 fékk hann leiða á þeirri tón- list. Það sama ár stofnaði hann hljómsveitina The Gods með Mick Taylor, fyrrum gítarleikara Roll- ing Stones og bassaleikaranum Greg Lake en þremur árum síðar dró hann Uriah Heep upp úr hatti sínum og starfrækti hana allt til ársins 1980. Með Uriah Heep samdi hann flest af sínum þekkt- ustu lögum, svo sem „Gypsy“, „July Morning“, „Lady In Black“ og „Wizard“ svo nokkur séu nefnd. Nú hefur þú sett saman hljóm- sveit sem skipuð er þremur norsk- um ísbjörnum og íslenskum rost- ungi. Hvers vegna? „Vegna þess að þeir voru þeir ódýrustu á markaðnum,“ svarar Hensley um hæl og glottir. „Ég hef starfað með mörgum tónlistarmönnum, enskum, spænskum og amerískum. En þeg- ar ég hitti þessa stráka tók ég eft- ir því að þeir voru öðruvísi. Í fyrsta lagi eru 50% af rokki og róli sviðsframkoma og þessir drengir vita hvernig á að rokka. Það finnst mér mjög mikilvægt. Þeir eru ein- faldlega í mestri nálægð við mig og mína tónlist frá því á sjöunda áratugnum.“ Ég las umsögn um tónleika ykk- ar þar sem sagt var að þetta væri ein besta hljómsveit sem þú hefðir verið með. Hvað finnst þér sjálf- um? „Mér finnst það. Allavega held ég að hún eigi eftir að verða það þegar við höfum slípað okkur meira saman.“ Góðir tónlistarmenn Þú hefur unnið með fjöldanum öllum af frábærum tónlistar- mönnum. Mig langar til að spyrja lítillega út í tvo þeirra og það ligg- ur beint við að byrja á fyrsta söngvara Uriah Heep, David Byron. „David var mjög góður og sérstakur söngvari. Hann passaði mjög vel fyrir þá tónlist sem ég samdi á þeim tíma sem við unnum saman. Voruð þið David góðir vinir? „Nei. Alls ekki. Ég átti engan góðan vin í Uriah Heep. Það var örugglega vegna þess að þegar við vorum ekki að spila þá var ég að keyra kappakstursbíl eða eitthvað ámóta heimskulegt. Við áttum ná- kvæmlega engin sameiginleg áhugamál fyrir utan hljómsveitina. En David var einstakur söngvari. Það sem mér fannst mikilvægast við söng hans var hvernig hann túlkaði textana. Það skipti miklu máli fyrir mig þar sem ég samdi flest lögin fyrir hljómsveitina.“ Var hann kannski hinn full- komni rokksöngvari? „Nei, það var hann ekki. En hann hentaði fullkomlega fyrir lög- in mín.“ John Wetton er annar afar sér- stakur tónlistarmaður sem var í hljómsveitinni á árunum 1975- 1976. Hvernig fannst þér að vinna með honum? „Það var mér mikil reynsla að vinna með honum en það var líka svolítið undarlegt því á sama tíma var hann að vinna með Brian Ferry. Hann einbeitti sér því aldr- ei algerlega að því sem við vorum að gera. Það var því erfitt að ná athygli hans. En þegar það tókst fannst mér hann vera frábær bassaleikari. Hann var líka virki- lega fær útsetjari. Það kemur líka berlega í ljós í starfi hans með hljómsveitinni Asíu hvers hann er megnugur sem útsetjari. Það er því synd að hann hefur aldrei orð- ið neitt sérlega þekktur fyrir þau störf sín.“ „Við John erum ennþá góðir vin- ir. Hann hefur gengið í gegnum mikla erfiðleika á undanförnum árum en er nú allur að koma til á ný. Ég spilaði fyrir stuttu með Asíu í Rússlandi og mér þótti vænt um að sjá að John Wetton er að ná sér eftir erfiða reynslu sína. Hann var frábær þar eins alltaf þegar heilsan er góð.“ Come Away Melinda Snúum okkur að fyrstu Uriah Heep plötunni, Very ‘Eavy Very ‘Umble. Þetta er hörku þunga- rokksplata með þungum og takt- föstum lögum nema einu. „Come Away Melinda“. Hvernig rataði þetta ljúfa lag inn á plötuna? „Eins og þú segir var þetta fyrsta platan okkar. Við vorum einfaldlega ekki búnir að finna þá tónlistarlínu sem við vildum fylgja. Ég held að við höfum ekki fundið okkur fyrr en á þriðju plötunni, Look At Yourself. En á þessum tíma gat maður sett saman svona plötur þar sem eitt lagið var þungt rokk og það næsta undurfalleg ballaða eins og „Come Away Mel- inda“ sem mér finnst eitt af fal- legri lögum sem samin hafa verið. Er Look At Yourself þín eftir- lætisplata frá Heep-tímanum? „Nei. Þótt ótrúlegt sé er það platan High And Mighty, þar sem John Wetton var með, sem mér líkar best. Það seldist raunar eng- in af plötunum okkar eins lítið og hún. Framkvæmdastjórinn okkar hataði þessa plötu af einhverjum ástæðum og gróf hana þess vegna í fæðingu. En á þessari plötu er að finna einhver bestu lög sem ég hef samið. Demons And Wizards er sú plata sem seldist mest af plötum Uriah Heep. Mér finnst hún alltaf mjög góð líka.“ Baráttutexti Eftir því sem ég kemst næst hafa plötur þínar selst í fimmtíu milljónum eintaka og hvar sem þú kemur og heldur tónleika kunna flestir lögin þín og textana utan að. Hvernig tilfinning er það að standa á sviði fyrir framan þetta fólk og færa því tónlistina í eigin persónu? „Já. Þú segir það. Síðast þegar ég vissi var salan einhvers staðar á milli 40 og 50 milljónir. Það er erfitt að lýsa þeirri tilfinningu sem þú spyrð um. Ætli ég komist ekki næst því með að segja frá hvernig það er þegar við flytjum „July Morning“ þar sem við Eiríkur syngjum saman. Um leið og Eirík- ur bendir til fólksins byrjar það að syngja. Því líkar lagið og nýtur þess að syngja það með okkur. Það er bara einstök tilfinning sem fylgir því og henni get ég ekki lýst. En það skiptir mig mestu og mér finnst vænt um er þegar ég finn að þetta er fólkinu mikils virði. Ég skil ekki alltaf sam- bandið á milli manneskjunnar og lagana. Allir hafa sínar sérstöku tilfinningar og meðtaka lögin sam- kvæmt þeirri tilfinningu. Ég skal nefna tvö dæmi. Þegar fólk skrifar mér og segist hafa notað „July Morning“ þegar það gifti sig. Þá hugsa ég með mér að það sé bara fínt. Svo er það saga af amerískum strák, fíkli og dópsala sem var tek- inn og dæmdur í tveggja ára fang- elsi. Eftirlætis plata hans var „De- mons And Wizards“ og hana hafði hann með sér í fangelsið. Hann tók síðan lagið „Paradise“ og sneri textanum upp í baráttutexta sem gerði honum auðveldara að berjast gegn fíkninni. Þetta tókst það vel að nú hafa þúsundir Ameríkana ættleitt hugmyndina og nota lagið sem sitt mikilvægasta hjálpartæki í baráttunni við eiturlyfin.“ Ég get bætt einni sögu í safnið þitt. Ég spilaði „July Morning“ fyrir bekkinn minn fyrir tveimur árum. Nemendurnir voru 12 ára krakkar alls staðar að úr heim- inum. Ein stelpan, frá Pakistan, byrjaði að gráta þegar hún heyrði lagið og ég talaði um það sem dæmi um þá tónlist sem ég hlust- aði á. Hún hreifst algerlega af þessu lagi. „Það er nú þannig að tónlist get- ur verið mjög tilfinningarík. Ég hlusta ekki mikið sjálfur á mína eigin tónlist. En það kemur fyrir að mér vöknar um augun þegar ég heyri fallega tónlist. Mér finnst þessi saga þín merkileg fyrir það að þú ert að segja frá pakistanskri stelpu með allt annan menningar- grunn. Þetta er ný reynsla fyrir mig og mér finnst hún góð.“ Hver er munurinn á því að vera í hljómsveit eða að vera sólóisti eins og þú ert í dag? „Ég er ekki sóló í dag. Ég er í hljómsveit og það er það sem mér líkar best. Ég hef verið einn á ferð og fengið með mér tónlistarmenn sem hafa lært lögin mín og verið eins kona undirleikarar hjá mér. En mér líkar alltaf best að vera í hljómsveit. Live Fire eru ekki neinir undirleikarar. Þeir eru hljómsveitin mín. Ef ég væri ekki að spila með þessari hljómsveit í dag væri ég að öllum líkindum að vinna á búgarðinum mínum eða að bíða eftir því að konan mín færi út í bæ að kaupa handa mér nýjan traktor.“ Samkeppnin er hjá útgefendunum Ken Hensley býr nú í Alicante á Spáni. Af hverju valdi hann Spán sem sitt heimaland? „Ég bjó í Bandaríkjunum í 19 ár. Mig langaði til að komast nær fjölskyldunni svo ég og Monica, konan mín, fluttum til Englands. Þar kom bara í ljós að það var hundleiðinlegt að búa þar. Veðrið var ömurlegt og allt var svo dýrt að okkur fannst ekki búandi á fósturjörðinni. Og þar sem Monica er spænsk lá það beint við að við settumst að í nágrenni fjölskyldu hennar. Við völdum okkur stað fjarri öllum skarkala og njótum nú kyrrðarinnar og náttúrunnar sem aldrei fyrr. Það eina sem ég heyri þar er fuglasöngur og það er ekk- ert að því. Það er ekki hægt að skilja við rokkgoðið Ken Henlsey án þess að spyrja hann úti í samkeppnina við Deep Purple og Led Zeppelin. „Ég leit aldrei svo á að við vær- um í samkeppni. Það var áhuga- vert að fylgjast með þróun ann- arra hljómsveita og velgengni þeirra. Það voru hljómsveitir sem höfðu meiri velgengni að fagna í hljómplötu- og miðasölu á tónleika en við. En það var samt aldrei nein samkeppni. Þvert á móti. Á þessum tíma voru það kannski hundrað hljómsveitir sem fóru í tónleikaferðir um veröldina. Nú eru það tugir þúsunda hljómsveita sem standa í sömu sporum og við gerðum þá. Allar eru þær að berj- ast um sama dollarann. Sam- keppnin verður til hjá hljómplötu- útgefendunum en ekki tónlistar- mönnunum.“ Ken Hensley gengur úr híðinu Breski gítarleikarinn Ken Hensley er líklega þekktastur fyrir að hafa verið aðalsprauta hljómsveitarinnar Uriah Heep. Hensley er nú staddur á Evrópu-tónleikaferðalagi þar sem enginn annar en Eiríkur Hauksson er með í för. Guðni Ölversson hitti Hensley í Frederiksstad í Noregi á dögunum þar sem rokkarinn fór yfir ferilinn og sveitina sem hann starfar með nú. Ljósmynd/Guðni Ölversson Ánægður með lífið Ken Hensley segist þessa dagana vera með eina bestu hljómsveit ferils síns og svo kann að fara að sveitin leiki hér á landi. Hér sést í góðri hljómborðssveiflu í Frederiksstad í Noregi imemine18@hotmail.com Rokk og ról Eiríkur Hauksson í ótrúlegri rokk-múnderingu ásamt ónefnd- um norskum bassaleikara og Ken Hensley í Frederiksstad.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.