Morgunblaðið - 14.08.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 41
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
RANNSÓKNAHÓPURINN Deus
ex cinema stendur í kvöld fyrir mál-
þingi sem ber yfirskriftina Guð á
hvíta tjaldinu. Málþingið er hluti af
kirkjulistahátíð og hefst í Hall-
grímskirkju
klukkan 20. Á
meðal þátttak-
enda í málþinginu
er Oddný Sen
kvikmyndafræð-
ingur. „Við ætlum
að fjalla um nær-
veru Guðs í kvik-
myndum. Við
byrjum í nútíman-
um og vinnum okkur svo alveg aft-
ur til danska leikstjórans Carls
Theodors Dreyer sem er hvað
þekktastur fyrir Jóhönnu af Örk
sem hann gerði árið 1928,“ segir
Oddný, en Jóhanna af Örk verður
einmitt sýnd þögul við undirleik
orgels og barítónsöngvara á
fimmtudagskvöldið klukkan 23.30.
„Svo mun ég fjalla um Dryer og
áhrif hans á aðra kvikmyndagerð-
armenn eins og Krzysztof Kies-
lowski og Ingmar Bergman sem við
munum taka sérstaklega fyrir þar
sem hann andaðist fyrir stuttu. Síð-
an mun ég tala um Lars Von Trier,
og þá sérstaklega Breaking The
Waves. Þá mun ég skoða hvað er
líkt með Bergman og Dryer, og
hvort Bergman hafi verið undir
áhrifum hans,“ segir Oddný og út-
skýrir að Dryer hafi verið frum-
kvöðull í danskri kvikmyndagerð.
„Hann hefur haft áhrif allt fram til
okkar daga, eins og til dæmis á Von
Trier, Kieslowski, Yasujirô Ozu og
Akira Kurosawa. Hann var hvað
þekktastur fyrir svokallaðan hand-
an-veruleika, þar sem hið jarðneska
og hið heilaga kallast á,“ segir
Oddný.
Bruce Almighty og Móses
Á málþinginu verða sýnd nokkur
myndbrot úr kvikmyndum sem
sýna Guð og guðlega nærveru, og
skoðað hvernig Guð hefur verið
sýndur á hvíta tjaldinu sem persóna
eða á annan hátt. Dagskráin verður
helguð minningu Ingmars Berg-
man, og mun Pétur Pétursson fjalla
um Guð, trú og kirkju í nokkrum
mynda hans. Þá mun Árni Svanur
Daníelsson fjalla um kvikmynda-
gerð nútímans og nærveru Guðs í
henni, til dæmis í kvikmyndum á
borð við Bruce Almighty.
„Ég verð einnig með dæmi úr
Boðorðunum tíu frá 1956 eftir Cecil
B. DeMille, myndinni frægu um
Móses,“ segir Oddný, og bætir við
að annað kvöld klukkan 20 verði
sérstök sýning á Vier Minuten eftir
Chris Kraus í Tjarnarbíói, en
Oddný og Gunnlaugur A. Jónsson
munu segja nokkur orð um mynd-
ina áður en sýning hefst.
„Toppurinn er svo að sýna Jó-
hönnu af Örk inni í kirkjuskipinu í
Hallgrímskirkju um miðnætti á
fimmtudaginn,“ segir Oddný að lok-
um.
Guð í aðalhlutverki
Málþing um Guð á hvíta tjaldinu í Hallgrímskirkju í kvöld
Trúarlegt Morgan Freeman sem Guð almáttugur og Jim Carrey sem Brúsi
almáttugur í gamanmyndinni Bruce Almighty frá árinu 2003.
Oddný Sen
www.kirkjulistahatid.is
SÖNGSTIRNIÐ
Avril Lavigne
hleypur kvik-
nakið um þegar
það neytir
áfengis.
Já, söngkonan
kanadíska við-
urkennir nefni-
lega fúslega að
strípiþörf grípi
hana þegar hún
fær sér nokkra
sterka.
„Einu sinni þegar ég drakk
viskí,“ segir stúlkan með visk-
íröddu, „varð ég svo hávær, að ein-
hver hringdi í lögregluna.“’
„Ég á mér skuggahlið og get
komið mér í vandræði. Mér finnst
gaman að drekka og sletta úr
klaufunum og segja það sem mér
finnst. En þegar öllu er á botninn
hvolft þá er ég gæðablóð, og myndi
aldrei skaða neinn af ásettu ráði.“
Gaman er að geta þess, að þó svo
að stúlkunni finnist gaman að tína
af sér spjarirnar í góðra drykkju-
vina hópi, þá beitir hún kynþokk-
anum ekki til þess að selja plötur.
Í hið minnsta ekki enn.
Eða hvað?
Hleypur um berössuð
Jibbí! Avril virðist
kunna að njóta at-
hyglinnar. Það er
STÆRSTA MYND SUMARSINS
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
48.000
GESTIR
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
eeee
FGG - Fréttablaðið
eeee
ÓHT - Rás2
eeee
Morgunblaðið
47.000
GESTIR
HLJÓÐ OG MYND
THE TRANSFORMERS kl. 6:45 - 9:20 B.i. 10 ára
THE SIMPSONS kl. 7 - 9 LEYFÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
HLJÓÐ OG MYND
WWW.SAMBIO.IS
THE TRANSFORMERS kl. 6 - 9 B.i. 10 ára
NANCY DREW kl. 9 B.i. 7 ára
HARRY POTTER 5 kl. 6 B.i. 10 ára
THE TRANSFORMERS kl. 6 - 9 B.i. 10 ára
NANCY DREW kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
THE SIMPSONS kl. 6 LEYFÐ
/ SELFOSSI SÍMI: 482 3007