Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 43

Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 43 Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Kvöldskóli FB Bóknám - Verknám 130 áfangar í boði; dæmi: Stafræn myndvinnsla - Stafræn myndvinnsla fyrir byrjendur og lengra komna Raungreinar - Náttúrufræði, efnafræði, eðlisfræði, landfræði og stærðfræði Fjölmiðlafræði - Greinaskrif, myndvinnsla, ljósmyndun o.fl. Rafmagnsfræði - Heiti og hugtök, útreikningar og raflagnir Hjúkrun - Almenn aðhlynning, skyndihjálp og næringarfræði Viðskiptagreinar - Bókfærsla, lögfræði og markaðsfræði Myndlist - Teikning, skúlptúr og menningarsaga Tungumál - Danska, enska, spænska og þýska Tölvugreinar - Upplýsingatækni og ritvinnsla Húsasmíði - Uppbygging, smíði og burðarvirki Lögfræði - Réttarfar, viðskiptalögfræði Íþrótt ir - Fjallganga Innritun í FB Miðvikudagur 15. ágúst frá kl. 17:00 til 19:00 Fimmtudagur 16. ágúst frá kl. 17:00 til 19:00 Netinnritun á www.fb.is (kvöldskóli) TVÆR áhugaverðar hljómplötur koma út um þessar mundir. Annars vegar hljómplata Eivarar Pálsdóttur, Human Child, hins vegar skífa VilHelms eða Villa nagl- bíts, The Midnight Circus. Plata söngkonunnar ætti einmitt að berast í búðir í dag. Lögin voru tekin upp á Írlandi, og kemur platan út í tveimur útgáfum; önnur útgáfa er einungis sungin á ensku, hin er tvöföld, sungin á ensku og færeysku og gefin út í takmörkuðu upplagi. Þess má geta að Eivör kemur fram á tónleikum á Klam- bratúni næsta laugardag, hinn 18. ágúst, og er aldrei að vita nema söngkonan flytji þar efni af hinu nýja verki. Frumraun VilHelms í einyrkjabransanum kallast svo sem fyrr segir The Midnight Circus, og er dimm og róm- antísk þjóðlagaplata. Lögin voru samin og hljóðrituð í svefnherbergjum og baðherbergjum ýmissa íbúða í Lund- únum, en þar hefur drengur búið að undanförnu. Að sögn er platan öll hin heimilislegasta; oft má heyra borgarhljóð eða brölt í íbúðinni í lögunum. VilHelm hefur helgað sig umræddri sólóskífu sinni síð- astliðin tvö ár, og verður fróðlegt að sjá hvernig afrakstr- inum verður tekið. Eivör og VilHelm gefa út plötur Morgunblaðið/Eggert Eivör Gefur út plötuna Human Child. Morgunblaðið/Eggert Miðnætursirkús VilHelm gerist einyrki. SALA á afsláttarpössum á Bíódaga Græna ljóssins hefst í dag klukkan 17, á miði.is og í Regnboganum. Á sama tíma og á sömu stöðum hefst miðasala á allar sýningar Bíódaga. Mastercard-korthafar hafa þó ákveðið forskot, því frá og með klukkan 10 geta þeir fjárfest í af- sláttarpössum á miði.is. Athuga skal að um takmarkað miðamagn er að ræða, en afhending afslátt- arpassa fer fram í Regnboganum. Á morgun, miðvikudag, er svo opnunardagur Bíódaga Græna ljóssins, svokallaður „sýn- ishornadagur“. Sýnd verða valin brot úr þeim 18 myndum sem sýnd- ar verða á hátíðinni næstu tvær vik- ur. Víkurfréttir/Atli Már Gylfason Jamie Bell Leikur í myndinna Hal- lam Foe sem sýnd er á Bíódögum. Bíódagar Græna ljóssins að hefjast LEIKARINN David Arquette yggldi sig framan í papparazzi- ljósmyndara nú á dögunum og hrein í kjölfarið illilega. Æpti hann ýmis ókvæðisorð þegar hann hugðist aka bifreið sinni brott frá veitingahúsi nokkru. „Félagi, ég er að reyna að aka, fjandakornið! Veistu hversu erfitt það er þegar þú beinir að mér þessu ljósi?“ orgaði kappinn. „Hættu að ota þessu framan í mig meðan ég reyni að keyra – þetta er hættulegt!“ Davíð stökk loks út úr bifreið sinni, horfðist í augu við njósnarann og ýtti burt myndavélinni. Annar ljósmyndari reyndi á meðan að skakka leikinn. Þegar Davíð loks yfirgaf svæðið, hrópaði hann: „Færðu mér stund milli stríða, lagsmaður!“ Courteney Cox, eiginkona Davíðs, huldi andlit sitt meðan þau óku í burtu. Ekki tekið út með sældinni að vera stjarna … Pirraður Leikarinn er þreyttur á ágangi blaðasnápa. David Ar- quette veitt- ist að ljós- myndara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.