Morgunblaðið - 14.08.2007, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 226. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Atvinnuleysi í lágmarki
Skráð atvinnuleysi hér á landi í
júlí var 0,9% og hefur ekki verið
lægra í 7 ár. Þetta skýrist einkum af
fækkun atvinnulausra kvenna á
landsbyggðinni. Atvinnurekendur
eru þó bjartsýnir á að allar stöður
verði mannaðar í haust. » Forsíða
Höfuðstóll hækkar
Vegna veikingar íslensku krón-
unnar hefur höfuðstóll lána í er-
lendri mynt hækkað. Fólki er ráð-
lagt að forðast gengistryggð lán á
meðan krónan er sterk. » 2
Norðurvíkingur hefst
Fjölþjóðleg heræfing hefst hér á
landi í dag. Æfingin er tvískipt og
verða bæði æfð viðbrögð við ólög-
legri flugumferð og einnig við
hryðjuverkum. Auk Bandaríkja-
manna og Íslendinga taka þrjár aðr-
ar þjóðir þátt. » Miðopna
Lækkanir ganga til baka
Lækkanirnar sem urðu á hluta-
bréfavísitölum um allan heim í síð-
ustu viku virðast vera að ganga til-
baka. » Viðskipti
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Skemmtil. auglýsingar
Staksteinar: Um hlutverk Íslands
Forystugreinar: Menntun ein-
hverfra | Leyfi til að drepa
UMRÆÐAN»
Með þarfir hvers barns að leiðarljósi
Evrópusambandið, Ísland og Tyrkl.
Af mjóum þvengjum læra hundarnir
að stela
, !
9
+ %'
%
: %&
%%&0&
8
.
. . .
. . .8
.8
. . .8
. .8
.8
) ; #6
. . . . . .
<=33>?@
AB?3@1:CD1<
;>1><><=33>?@
<E1;;?F1>
1=?;;?F1>
G1;;?F1>
7@10H?>1;@
I>C>1;AIB1
<?
B7?>
:B1:@7'@A>3>
Heitast 16 °C | Kaldast 6 °C
Norðlæg átt, víða
10–15 m/s er líður á
daginn. Bjart sunnan
og vestan en dálítil
rigning norðaustanl. » 10
Hjálmar Stefán
Brynjólfsson skrifar
um ritdeilur og rit-
dellur, hina lífseigu
og skemmtilegu
mannorðsíþrótt. » 40
AF LISTUM»
Með orðum
skal rifist
TÓNLIST»
Eivör og VilHelm gefa út
nýjar plötur. » 43
Málþing um Guð á
hvíta tjaldinu verður
haldið í Hallgríms-
kirkju í kvöld; bíó-
saga Guðs meðal
annars rakin. »41
KVIKMYNDIR»
Spjallað um
bíó-Guð
FÓLK»
David Arquette missti
stjórn á skapinu. » 43
KVIKMYNDIR»
Transformers vinsælasta
bíómyndin. » 39
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Simon Cowell sveik sex ára stúlku
2. Fargaði sér er leikföng voru innk.
3. Segir launakröfur Eiðs S. háar
4. Húsleit á Stokkseyri og Eyrarb.
BRESKI rokk-
arinn og gítar-
leikarinn Ken
Hensley er
sennilega hvað
þekktastur fyrir
leik sinn í hinni
fornfrægu sveit
Uriah Heep.
Lög á borð við
„July Morning“
og „Gypsy“ báru hróður hans víða,
og plötur með lögum eftir hann
seldust í bílförmum. Þá er Ken iðu-
lega nefndur í sömu andrá og aðrir
tveir risar í rokksögunni – nefni-
lega meistararnir Jimmy Page úr
Led Zeppelin og Jon Lord sem var
í Deep Purple. Og Hensley er
raunar enn í fullu fjöri, þó hættur
sé í Uriah Heep; hann leikur um
þessar mundir í kraftgrúppunni
Live Fire, meðal annars með ofur-
stjörnunni okkar íslensku, Eiríki
Haukssyni.
Guðni Ölversson hitti Hensley í
Frederiksstad í Noregi á dög-
unum, og spurði hann spjörunum
úr.
Guðni ræddi einnig við Eirík
Hauksson, og forvitnaðist um það
hvernig væri að vinna með gamla
meistaranum. | 37-38
Rokktröllin
yfirheyrð
Ken Hensley
UNGAR mæður og þær sem hafa
áhyggjur af búsetu- og fjármálum
eru líklegri til að fá fæðingarþung-
lyndi en aðrar.
Meira en tíunda hver kona þjáist
af þunglyndi eftir fæðingu auk þess
sem fjölmargir nýbakaðir foreldrar
finna fyrir ýmsum kvillum sem skil-
greina má sem foreldrastreitu.
Þetta er m.a. niðurstaða rannsóknar
sem Mæðravernd Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri hefur gert.
Eins sýndu þær konur sem ekki
hafa lokið grunnskólaprófi, konur
sem reykja á meðgöngu og þær sem
telja sig hafa ónógan stuðning frá
umhverfi á meðgöngu auknar líkur á
foreldrastreitu. | 6
Aldur mæðra
hefur áhrif
♦♦♦
BANASLYS varð í gærkvöldi þeg-
ar fólksbifreið var ekið út af veg-
inum milli Hveragerðis og Þor-
lákshafnar. Ökumaður bílsins, sem
var karlmaður, var einn í honum
og er talið að hann hafi látist sam-
stundis þegar bíll hans fór út af
veginum.
Talið er að slysið hafi átt sér
stað um klukkan sex í gærkvöldi
en tilkynning barst lögreglu
skömmu eftir kl. sex og voru lög-
regla og slökkvilið fljót á staðinn.
Ökumaðurinn var úrskurðaður lát-
inn á slysstað og er talið að hann
muni hafa látist samstundis.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
GNÁ, var send á vettvang og lenti
við slysstað.
Bifreiðin fór út af í beygju
Samkvæmt tilkynningu frá lög-
reglunni á Selfossi er bifreiðin af
gerðinni Toyota Avensis en hún
fór út af í beygju og valt nokkrar
veltur. Kastaðist ökumaðurinn út
úr bílnum. Eftir því sem næst
verður komist skoðar lögregla nú
hvort maðurinn hafi verið í bílbelti.
Lögreglan á Selfossi fer með
rannsókn málsins en í gærkvöldi
vildi hún lítið gefa upp um mögu-
legan aðdraganda slyssins enda
rannsókn á frumstigi. Ekki fékkst
gefið upp á hvaða aldri maðurinn
var né í hvora áttina bílnum var
ekið. Vitað er að bíllinn fór út af í
beygju á veginum en lögreglan
segir þó að aðstæður séu ekki sér-
lega varasamar á þessum slóðum.
Vegurinn er lagður svokallaðri ol-
íumöl.
Sjö látnir í umferðinni á árinu
Það sem af er árinu hafa sjö
manns látist í banaslysum í um-
ferðinni. Maðurinn sem lést í gær
er sjötti karlmaðurinn sem deyr í
umferðinni en ein kona hefur látist
það sem af er ári.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Banaslys Talið er að ökumaður bílsins hafi látist samstundis þegar bíll hans fór útaf veginum og valt nokkrar
veltur. Rannsóknin er á frumstigi og gefur lögreglan á Selfossi því litlar upplýsingar um aðdraganda slyssins.
Karlmaður látinn eftir
bílveltu á Suðurlandi
)$
*+%(
,-
:4 61
;
66
+" 8
#