Morgunblaðið - 28.08.2007, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
LÍKT og kom fram í Morgunblaðinu
sl. fimmtudag hefur SS Byggir kynnt
íbúum Holta- og Hlíðahverfis hug-
myndir um byggingu nýrra 7 hæða
blokka. Hugmyndirnar eru fyrir
væntanlegt deiliskipulag hverfisins
en ná eingöngu til bygginga á reit
austan við Bónusverslunina. Óhætt er
að segja að þetta hafi vakið sterk við-
brögð meðal sumra íbúa svæðisins, en
þó ekki allra.
Jón Heiðar Daðason, formaður
hverfisnefndarinnar, sagði „skiptar
skoðanir“ hafa komið fram um hug-
myndirnar. Hann sagði að fundar-
menn hefðu að mestu leyti greinst í þá
sem ekki vildu byggja neitt á þessu
svæði og hina sem vildu byggja, en
bara ekki svona há hús. Jón Heiðar
sagði það jafnframt hafa verið rætt að
gera lægri hús, en það hafi komið
fram á fundinum að sú ráðstöfun væri
ekki jafn arðbær fyrir SS Byggi. Ann-
að áhyggjumál fyrir íbúana er um-
ferðarþunginn sem hljótist af fjölgun
íbúða enda er Holtahverfið nú þegar
umlukið miklum umferðargötum.
Jón Heiðar segir marga fundar-
menn hafa mótmælt harðlega, en tel-
ur málið hins vegar ekki vera hitamál
í hverfinu. Að minnsta kosti ekki
gagnvart hverfisnefndinni.
Valdemar Valdemarsson er íbúi í
Stórholti, en blokkirnar myndu valda
íbúum götunnar verulegu ónæði og
hrifsa til sín útsýnið út fjörðinn. „Við
teljum að illa hafi verið staðið að fund-
inum,“ segir Valdimar, „að því leyti að
einungis var boðað til hans með sólar-
hrings fyrirvara. Það er forkastan-
legt. Við teljum umhverfið ekki þola
þá miklu aukningu á umferðinni sem
fylgir blokkunum. Og að lokum er
furðulegt að hrúga niður sjö hæða
húsum í svona lágreistu hverfi. Það er
að mínu viti ekki merkilegur arkitekt-
úr. Okkur þætti eðlilegra að bærinn
gerði þennan reit að útivistarsvæði.“
Jóhannes Árnason situr í skipu-
lagsnefnd Akureyrarbæjar fyrir
Vinstri græna: „Ég er fylgjandi því að
breyta umræddum reit í íbúðasvæði.
Ég vil hins vegar benda á að þegar
ákveðið var af skipulagsnefnd að
þessi reitur yrði gerður að íbúða-
svæði, voru þrír aðrir reitir innan
hverfisins gerðir að íbúðasvæði á
sama tíma.“ Hann segir að ákveða
þurfi hvað gert skuli við umrædda
fjóra reiti í heild sinni, en ekki ákveða
hvað skuli byggt á þeim hverjum í
sínu lagi. Þannig fáist heildarsýn á
skipulag hverfisins.
Hann telur blokkirnar hafa bæði
kosti og galla en telur of snemmt að
ákveða hvers konar byggð er heppi-
leg fyrir svæðið. Hann bendir á að
ósáttir íbúar hverfisins geti auðveld-
lega haft bæði samband við hönnuð-
inn og byggingafyrirtækið til hafa
áhrif á málið þar sem það er enn á
hugmyndastigi.
Oddur Helgi Halldórsson, bæjar-
fulltrúi segir undarlega staðið að mál-
inu: „Hvað ef skipulagsnefnd segir
svo nei við þeim hugmyndum sem
voru kynntar? Þá er búið að draga SS
Byggi og íbúana á asnaeyrunum. Mér
finnst þetta enn ein furðuleg ákvörð-
un sem því miður einkenna störf
meirihlutans um þessar mundir.“
Skiptar skoðanir um
hugmyndir SS Byggis
Fyrirhugaðar Blokkirnar tvær, syðst á reitnum austan við Bónus.
Í HNOTSKURN
» SS Byggir hefur kynnthugmyndir um að byggja 7
hæða blokkir í hverfi þar sem
mikið er um lágreist hús.
» Þær mælast misjafnlegafyrir hjá íbúum hverfisins
sem hafa skiptar skoðanir um
málið.
AKUREYRARVAKA, sem haldin
var hátíðleg síðastliðinn laugardag,
hefur þótt takast vel. Mikið fjöl-
menni kom saman í bænum um
kvöldið og fylgdist með gjörningi
Frúarinnar í Hamborg í göngugöt-
unni, útitónleikum Stórsveitar Sam-
úels Jóns Samúelssonar í Gilinu og
lokaatriðinu: Byltingu fíflanna, þeg-
ar dáraskip Dons Kíkóta var dregið
af mótorhjóli gegnum miðbæinn. Að
sögn lögreglunar fór hátíðin frið-
samlega fram að langmestu leyti.
Enginn var tekinn fyrir ölvunar-
akstur, en hátíðargestum var laus
höndin fyrir utan einn skemmtistaða
bæjarins um nóttina og er það mál til
athugunar hjá lögreglu.
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Lúxus Það var veldi á Frúnni þegar hún flutti í Hafnarstrætið.
Vel heppnuð vaka
ÍÞRÓTTARÁÐ Akureyrar hefur
tekið fyrir deiliskipulag aksturs-
íþrótta- og skotfélags í Glerárdal.
Lögð var fram umsögn Ólafs Hjálm-
arssonar verkfræðings um hljóð-
mælingarskýrslu Línuhönnunar sem
unnin var fyrir Akureyrarbæ. Í
fundargerð ráðsins segir að það telji
áætlaðar hljóðvarnir samkvæmt
deiliskipulagstillögunni fullnægjandi
að „teknu tilliti til hljóðmengunar og
öryggis hestamanna.“
Ráðið beinir því til skipulags-
nefndar að bregðast við athuga-
semdum Léttis við skýrslu Línu-
hönnunar og leggst gegn lagningu
kvartmílubrautar í fullri lengd að svo
stöddu. Það leggur til að lögð verði
braut sem fullnægi kröfum um öku-
gerði og hafi þannig þau áhrif að
draga úr mögulegri hávaðamengun.
Ráðið samþykkir deiliskipulagstil-
löguna fyrir sitt leyti samkvæmt
ofangreindri breytingartillögu.
Íþróttaráð gegn lagn-
ingu kvartmílubrautar
Reykjanesbær | Reykjanesmaraþon
er nýtt heiti á hlaupi sem haldið hef-
ur verið í mörg ár undir heitinu
Suðurnesjamaraþon. Ástæðan fyrir
nafnbreytingunni er sú að nú fer
hlaupið að öllu leyti fram innan bæj-
armarka Reykjanesbæjar.
Reykjanesmaraþon fer fram á
Ljósanótt í Reykjanesbæ, laug-
ardaginn 1. september. Líkams-
ræktarstöðin Lífsstíll hefur umsjón
með hlaupinu, eins og undanfarin
ár. Þar er rásmark og búnings-
aðstaða keppenda. Tekið er við
skráningum fram á föstudag, segir í
fréttatilkynningu.
Hlaupnar eru þrjár vegalengdir.
Ræst er í hálfmaraþon klukkan
10.30, í 10 km hlaup kl. 11.15 og í
3,5 km skemmtiskokk kl. 11.20.
Verðlaunaafhending er áætluð um
kl. 12.30.
Heppnir þátttakendur í hlaupinu
geta átt von á verðlaunum og allir
fá frítt í Vatnaveröld í Reykja-
nesbæ.
Lífsstíll og Sparisjóðurinn í
Keflavík hafa gert samstarfssamn-
ing vegna Reykjanesmaraþonsins.
Felur hann í sér að Sparisjóðurinn
verður aðalstyrktaraðili hlaupsins.
Reykjanesmara-
þon hlaupið innan
bæjarmarkanna
Stuðningur Baldur Guðmundsson
hjá SpKef og Vikar R. Sigurjónsson.
SUÐURNES
Eftir Reyni Sveinsson
Sandgerði | Samstaða íbúa í hverf-
unum var eftirtektarverð og gleði
meðal íbúanna, að sögn Bergnýjar
Jónu Sævarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Sandgerðisdaga sem
haldnir voru um helgina. Sandgerð-
isdagar eru árleg bæjarhátíð Sand-
gerðinga.
Dagskráin hófst á föstudags-
kvöldið á hátíðasvæði við Vitatorg.
Þar voru meðal annars veittar við-
urkenningar fyrir fegursta garðinn
og endurbætur á gömlu húsi og
verðlaun fyrir listaverk sem sett
verður upp á hafnarsvæðinu í til-
efni af 100 ára sögu vélbátaútgerð-
ar. KK og Maggi Eiríks skemmtu
með söng og menn létu það ekki of
mikið á sig fá þótt regnskúr hafi
gengið yfir.
Á laugadeginum var vígður
hreystivöllur á skólalóðinni. Andr-
és Guðmundsson kraftlyft-
ingamaður hafði veg og vanda af
uppsetningu vallarins. Fjölbreytt
dagskrá var allan laugardaginn á
Vitatorgi í ágætisveðri. Að þessu
sinni var bæjarfélaginu skipt upp í
fjögur hverfi sem hvert fékk sinn lit
til að vinna með og setti það mikinn
svip á hátíðina. Hvert hverfi hélt
sína grillveislu og síðan hittust hóp-
arnir við Vörðuna og gengu saman
að hátíðarsvæðinu við höfnina þar
sem kvölddagskráin fór fram. Há-
tíðinni lauk með glæsilegri flug-
eldasýningu sem Björgunarsveitin
Sigurvon stóð fyrir.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Rauðar Hinir rauðu íbúar Miðtúns voru í stuði á bæjarhátíð Sandgerðinga.
Samstaða íbúanna
eftirtektarverð
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | Um 45 sýn-
ingar af ýmsu tagi eru á
Ljósanótt 2007 í Reykja-
nesbæ sem hefst næstkom-
andi fimmtudag og stendur
fram á sunnudag. Að þess-
um sýningum standa yfir
163 listamenn, flestir
heimamenn.
Ljósanótt er ein af
stærstu fjölskyldu- og
menningarhátíðum landsins. Á síð-
asta ári var áætlað að 35 þúsund
manns hafi verið saman komin á
hápunkti hátíðarinnar, þegar
kveikt var á lýsingu Bergsins og
flugeldum skotið á loft. Hátíð sem
efnt var til þegar kveikt var á lýs-
ingu Bergsins í fyrsta skipti er ein-
mitt ástæðan fyrir heiti hátíðarinn-
ar.
Alþjóðleg myndlistarsýning
Fjöldi menningaratburða er á
dagskrá hátíðarinnar. Valgerður
Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi
Reykjanesbæjar, segir að alls séu
45 sýningar skráðar; myndlist, ljós-
myndir, handverk og hönnun. Þær
eru um allan bæ, meðal annars í
sýningarsölum á Duustorfunni,
Listatorgi við Hafnargötu 2 og víð-
ar og í húsnæði fyrirtækja. Henni
telst til að 163 listamenn sýni verk
sín á Ljósanótt, flestir heimamenn.
Meðal atburða myndlistarsviðinu
má nefna að Einar Falur Ingólfs-
son opnar ljósmyndasýninguna
„Aftur“ í Listasafni Reykjanesbæj-
ar í Duushúsum. Þá verður alþjóð-
leg myndlistarsýning, Zig Zag, á
lofti Svarta pakkhússins. Þar sýnir
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
verk yfir 30 myndlistarmanna sem
flestir eru frá Bandaríkjunum og
Kanada.
Óvenju viðamikil tónlistardag-
skrá er í Duushúsum á laugardag-
inn. Þar kemur fram rjóminn af
tónlistarfólki bæjarins, að sögn
Valgerðar. Þekktir skemmtikraftar
og tónlistarmenn koma fram á úti-
sviði fimmtudags- og föstudags-
kvöld og á laugardag.
Boðið upp í færeyskan dans
Þessa dagana er verið að leggja
lokahönd á undirbúning Ljósanæt-
ur. Hátíðin verður sett við Myllu-
bakkaskóla nú á fimmtudaginn.
Þar koma saman börn úr öllum
skólum bæjarins og áhersla verður
á fjölmenningarsamfélagið. Síðan
rekur hver atburðurinn annan þar
til hátíðin nær hámarki á laug-
ardagskvöldið með kvölddagskrá
sem lýkur með því að kveikt verð-
ur á lýsingu Bergsins og flugeldum
skotið á loft.
Færeyingar koma víða við sögu
Ljósanætur að þessu sinni. Þar
verða listsýningar sem tengjast
Færeyjum og Dansifélagið í Havn
býður í dans við fleiri en eitt tæki-
færi.
163 listamenn standa
að 45 sýningum
Bíósalurinn Fjöldi sýninga verður í Duus-
húsum og víðar um bæinn á Ljósanótt.