Morgunblaðið - 28.08.2007, Qupperneq 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007 19
Spútnikk fer hring
í kringum jörðina.
Kalli byrjar í barnaskóla.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/N
A
T
3
87
98
0
8/
07
Elvis Presly og Priscilla
setja upp hringana.
Kalli byrjar í menntaskóla.
Hreinn Halldórsson verður
Evrópumeistari í kúluvarpi
innanhúss.
Dóra litla kemur í heiminn.
Kýrin Harpa syndir
rúmlega 2 kílómetra
þvert yfir Önundarfjörð.
Kalli fær deildarstjórastöðu.
Bandaríska geimfarið Könnuður
lendir á Mars.
Kalli stofnar sitt eigið fyrirtæki.
Dóra verður stúdent.
Síðasta bókin um Harry Potter
kemur út.
Kalli fréttir að morgni 2. júlí
að hann sé orðinn afi.
5 ár
Fyrst
á hverjum
morgni í
1957
1967
1977
1987
1997
2007
Mikið hefur verið um að vera í Húna-
þingi vestra á líðandi sumri og
margvísleg afþreying í boði.
Má fyrst nefna Fjöruhlaðborð
húsfreyjanna, sem er árlegur at-
burður í Hamarsbúð á Vatnsnesi um
sólstöður. Í ár kom mikill fjöldi
gesta og gæddi sér á framandi og
forvitnilegum réttum, yfir 50 teg-
undum, úr hráefni sjávarins og
sveitarinnar. Þetta var í ellefta sinn
sem boðið var til þessa atburðar og
mega húsfreyjurnar eiga heiður skil-
inn.
Hvammstangakirkja varð fimmtíu
ára í júlílok, þá var einnig tíu ára
vígsluafmæli kapellunnar á Sjúkra-
húsinu og tíu ára endurvígsluafmæli
Kirkjuhvammskirkju. Sóknarnefnd
hélt myndarlega afmælishátíð hinn
22. júlí og voru kirkjuathafnir í öll-
um þremur guðshúsum sóknarinnar.
Þrír fyrrverandi sóknarpresta, sr.
Gísli H. Kolbeins, sr. Pálmi Matt-
híasson og sr. Kristján Björnsson
komu og þjónuðu við athafnirnar. Þá
var einnig menningardagskrá í
Hvammstangakirkju þar sem prest-
arnir rifjuðu upp atburði frá þjón-
ustutímum sínum í Hvammstanga-
sókn. Sr. Gísli blessaði samband
hjónanna Gunnars Jónssonar og
Jónu Jónsdóttur, en hann gifti þau
við kirkjuvígsluna fyrir 50 árum.
Unglist, „Eldur í Húnaþingi“ ,sum-
arhátíð ungs fólks í héraðinu var síð-
ustu helgi í júlí, þá var boðið upp á
ýmsa atburði, m.a. tónleika KK,
Kristjáns Kristjánssonar, í Borg-
arvirki, stórdansleik, útsendingar
svæðisútvarps og margt fleira. Unga
fólkið stendur vel að hátíðinni og fær
dyggan stuðning einstaklinga og
fyrirtækja á svæðinu.
Um verslunarmannahelgi var loks
Grettishátíð á Laugarbakka og á
Bjargi í Miðfirði.
Víkingar heimsóttu héraðið og
slógu upp tjöldum í Grettisgarði og
héldu sýningar. Fjölskyldudagur
var síðan á Bjargi, sögustund, og
kraftakeppni í flokki karla og
kvenna.
Sumarsins 2007 verður minnst
fyrir mikla þurrkatíð, varla hefur
rignt í héraðinu frá því í maí, þar til
nú síðustu daga. Smærri ár og lækir
voru nánast vatnslaus og dauft yfir
veiði í vötnum og laxveiðiám. Gróður
hefur látið á sjá, og víða brunnið á
melatúnum. Nú síðustu viku hefur
nokkur úrkoma fallið og breytist
ástandið þá hratt. Spretta í tjágróðri
virðist hinsvegar góð og lofar góðu
fyrir næsta ár.
Nú skipuleggja bændur haust-
störfin, fjallskil og réttir eru fram
undan. Talsvert er rekið af stóði á
heiðar Miðfirðinga og Víðdælinga og
eru hrossaréttir sérstakir atburðir.
Stóðrétt er í Miðfirði aðra helgi í
september og í Víðidal fyrstu helgi í
október. Stóðréttir eru vel sóttar,
einkum í Víðidal, þar er oft uppboð á
hrossum, boðið upp á þátttöku gesta
í stóðrekstri, mannfagnaður, glens
og gaman.
Nú um helgina fór fram talning á sel
við Vatnsnes að frumkvæði Selaset-
urs Íslands. Mun þetta vera fyrsta
talning á svæðinu. Um þrjátíu
manns tóku þátt í talningunni, bæði
landeigendur og aðrir, gengnar voru
fjörur frá Miðfjarðarárósi og allt að
Sigríðarstaðaósi austan Vatnsness.
Niðurstaðan er að allt að 500 selir
hafi verið við ströndina á þessum
degi.
Morgunblaðið/ Karl Á Sigurgeirsson
Sumarhátíð Tónlistarmaðurinn KK hélt tónleika í Borgarvirki.
HVAMMSTANGI
Karl Á. Sigurgeirsson fréttaritari
Kristján fjallaskáld orti um ást-ina:
Ást er dropi lífs af lind,
leikur, þrá og styrkur.
Ástleysi er sorg og synd,
svívirðing og myrkur.
Ingólfur Ómar Ármannsson var
hugfanginn þegar hann orti til
stúlku um síðustu Verslunarmanna-
helgi:
Ærið fögur ertu snót
aðeins þig ég dái;
armlög þín og yndishót
alltaf heitt ég þrái.
Vekur hjá mér villta þrá
með vonargneista sínum:
Kæra vina vil þig fá
og vefja í örmum mínum.
Linda hún er ljúf og góð
lífsglöð framar vonum,
yndisfögur, ung og rjóð
með álitlegri konum.
Sveinbjörn Benteinsson orti:
Augun blá og ljósir lokkar
ljómuðu hjá mér eina stund.
Söm var þrá og ætlan okkar
Edens þá við gistum lund.
Og Magnús Kr. Gíslason:
Ástir þráði ég oftast hjá
ungum þráða tróðum.
Breiddargráðum ýmsum á
eg hef ráð á fljóðum.
VÍSNAHORNIÐ
Af ástarþrá
og fljóðum
pebl@mbl.is