Morgunblaðið - 28.08.2007, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það er ansi oft þannig á öldhraðans, þar sem yf-irborðsmennska í fjöl-
miðlun og heimsfrægð í korter
ríkir og hismið er kjarnanum yf-
irsterkara, að þeir er marka tíma-
mót gleymast hratt. Þó náði frétt-
in um dauða trommarans Max
Roach inn á síður Morgunblaðs-
ins, en hann var síðastur hinna
miklu byltingarmanna bíbopp-
djassins til að kveðja þennan
heim. Það hefur ekki verið mikið
um það að þeir sem hafa sett
mark sitt á djasssöguna hafi kom-
ið hingað hin síðustu ár; ætli sá
síðasti hafi ekki verið bassaleik-
arinn Ray Brown, sem lék með
tríói sínu í Íslensku óperunni á
Jazzhátíð Reykjavíkur 1998. Auð-
vitað hafa ýmsir djasssnillingar
komið síðan sem frægir hafa orð-
ið: Abercrombie, Niels-Henning,
Kenny Garrett svo nokkrir séu
nefndir og á Jazzhátíð Reykjavík-
ur í ár er von á píanistanum Uri
Caine, sem er jafnvígur á að leika
eigin verk sem og verk Mozarts
og Mahlers í djassbúningi.
Annar af gestum djasshátíð-arinnar verður gítarleik-
arinn Larry Coryell, sem litlum
sögum hefur farið af undanfarin
ár, en var á sínum tíma kallaður
guðfaðir djassrokksins af gagn-
rýnendum. Coryell markaði djúp
spor í þá sögu er djassinn og
rokkið féllust í faðma og Miles
Davis varð hálfgert poppgoð. Ár-
ið 1966 stofnaði hann fyrstu nafn-
toguðu djassrokksveit sögunnar,
The Free Spirits, og 1969 léku
Mike Mantler og Jack Bruce í
tríói hans. Hann lék þó hefð-
bundnari djass á árunum 1967-68
er hann var í kvartetti víbrafón-
leikarans Gary Burton og hljóð-
ritaði eina af klassískustu djass-
plötum þeirra ára með Burton og
Cörlu Bley: A genuine tong furne-
ral. Síðustu þrjátíu árin hefur Co-
ryell fyrst og fremst komið fram
sem einleikari og leikið dúetta
með mörgum stórgítarleikurum
ss. Eric Clapton, Paco De Lucia
og Pat Metheny. Hann vann um
tíma mikið með Philip Catherine.
Saman léku þeir á einni síðustu
plötu Mingusar, Three or foure
shades of blues og ásamt Steph-
ane Grappelli og Niels-Henning
hljóðrituðu þeir plötuna Young
Django, sem einsog nafnið bendir
til geymir lög sígunagítaristans
eina og sanna: Django Reinhards.
Af þessu má ráða að Coryell erekki einhamur þótt upphaf
djassrokksins muni lengst halda
nafni hans á lofti. Margbreytileik-
ann á hann sameiginlegt með
gestgjafa sínum á Jazzhátíð
Reykjavíkur, Birni Thoroddsen,
en Björn leikur í Djangostíl með
Guitar Islancio og Coryellstíl með
Gömmum og allt þar á milli.
Djassblús gítarveisla Björns verð-
ur á Gauknum að kvöldi hins 31.
ágúst og gítaristar auk Björns og
Larry Coryells verða Ólafur
Gaukur, fyrsti einleiksdjassgít-
aristi okkar; Ómar Guðjónsson;
efnilegasti djassgítaristi okkar;
blúsararnir Björgvin Gíslason og
Dóri Braga og Guðmundur Pét-
ursson, sá Íslendingur sem best
hefur sameinað djass- og blúsleik.
Sögulegir tónleikar!
Hver man Larry Coryell?
AF LISTUM
Vernharður Linnet
» Af þessu má ráða aðCoryell er ekki ein-
hamur þótt upphaf
djassrokksins muni
lengst halda nafni hans
á lofti.
Coryell „Gítarleikarinn sem var á sínum tíma kallaður guðfaðir djass-
rokksins af gagnrýnendum.“
linnet@simnet.is
/ ÁLFABAKKA
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ DIGITAL
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 10:20 B.i. 10 ára
/ KRINGLUNNI
ASTRÓPÍA kl. 6:15 - 8 - 10:10 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 8 - 10:10 LEYFÐ LÚXUS VIP
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 4 - 5:30 (Digital kl.5:30) LEYFÐ DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 10:40 B.i.10.ára
THE TRANSFORMERS kl. 5 B.i.10.ára LÚXUS VIP
NANCY DREW kl. 6 B.i.7.ára
GEORGIA RULE kl. 8 B.i.7.ára
HARRY POTTER 5 kl. 8:15 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
OCEAN´S 13 kl. 10:10 B.i.7.ára
MATT DAMON
ER JASON BOURNE
MAGNAÐASTA
SPENNUMYND
SUMARSINS
eee
H.J. - MBL
eeee
- JIS, FILM.IS
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeeee
- SV, MBL
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI
NANCY
DREW
YNGSTI OG KLÁRASTI EINKASPÆJARI HEIMS ER NÚ MÆTT Á HVÍTA TJALDIÐ
ÓVÆNTASTA
STELPUMYND ÁRSINS!
eee
H.J. - MBL
eeee
- JIS, FILM.IS
AÐ MÍNU MATI ÆTTU
ALLIR AÐ DRÍFA SIG
MEÐ FJÖLSKYLDUNA
- A.S, MBL
LANDSLIÐ GRÍNISTA
Í STÆRSTU ÍSLENSKU
BÍÓMYND ÁRINS.
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
FRÁBÆR ÍSLENSK
AFÞREYING
- SVALI, FM 957
PÉTUR OG SVEPPI HAFA
ALDREI VERIÐ FYNDNARI
- H.A, FM 957
EIN SÚ SKEMMTILE-
GASTA SÍÐAN SÓDÓMA
- Í.G, BYLGJAN
MATT DAMON SNÝR AFTUR SEM LAUNMORÐINGINN ÓDREPANDI JASON BOURNE
FÉLAGSRÁÐGJAFI frá Malaví
hefur fengið leyfi til þess að fara til
London í þeim tilgangi að meta það
hvort poppsöngkonan Madonna sé
hæf til þess að ættleiða barn frá Afr-
íkuríkinu.
Penstone Kilembe segir að rík-
isstjórn landsins hafi breytt fyrri
ákvörðun og leyft honum að heim-
sækja poppstjörnuna.
Kilembe sagði í samtali við Reu-
ters-fréttastofuna að hann hlakkaði
til ferðarinnar. Þetta væri nauðsyn-
legt svo tafir yrðu ekki á ættleiðing-
arferlinu. Hann hafði áður varað við
því að ef hann gæti ekki heimsótt
Madonnu gæti það skaðað tilraun
hennar til þess að ættleiða David
Banda.
Ráðherra kvennamála og þroska
barna neitaði í upphafi að leyfa Ki-
lembe að fara til London. Kilembe
sagði að ef það hefði verið raunin
hefði allt ættleiðingarferlið „hrunið“.
Fyrr í ágúst gaf hann í skyn að
svo gæti farið að drengurinn yrði
aftur sendur í þorpið sitt fengi hann
ekki tækifæri til þess að meta það
hvort Madonna og eiginmaður henn-
ar, Guy Richie, væru hæf til þess að
ættleiða barnið.
Reuters
Malaví Madonna með David Banda.
Fær fé-
lagsráðgjafa
í heimsókn