Morgunblaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007 29 LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, Hjallasel 55, Seljahlíð, verður jarðsungin í Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. september kl. 13.00. Ragnhildur Nordgulen, Árni Einarsson, Áslaug Kristjánsdóttir, Árni Geir Snæþórsson, Fanney Kristjánsdóttir, barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, HULDU SIGMUNDSDÓTTUR frá Þingeyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir alúð og góða umönnun. Erla Árnadóttir, Gústaf Jónsson, Guðmundur Árnason Kolbrún Sigfúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR HELGI TRYGGVASON vélstjóri, Kleppsveg 4, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi þriðjudaginn 4. september, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 13. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi eða Krabbameinsfélagið. Ágústa Erla Andrésdóttir, Tryggvi Sigurðsson, Erla Halldórsdóttir, Ágúst Ingi Sigurðsson, Eva Leplat Sigurðsson, Andrés Þorsteinn Sigurðsson, Ása Svanhvít Jóhannesdóttir, Ólafía Ósk Sigurðardóttir ( Lóa), Kári Hrafn Hrafnkelsson, Sigurður Sigurðsson, Hildur Guðmundsdóttir og barnabörn. Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði ✝ Okkar ástkæra HILDUR ÞÓRÐARDÓTTIR BÄCK, Trosa, Svíþjóð, sem lést á sjúkrahúsi í Nyköping í Svíþjóð fimmtu- daginn 23. ágúst, verður jarðsett í Svíþjóð föstudaginn 14. september. Minningarathöfn verður fimmtudaginn 20. septem- ber, klukkan 17.00, í Neskirkju í Reykjavík. Þeir sem vilja minnast hennar er bent á Krabba- meinsfélag Íslands. Erik Örn Bäck, Malin Eir Bäck, Ingemar Bäck, Karen Lövdahl, Jóhanna H. Þórðardóttir, Rúnar Björgvinsson, Snorri Þórðarson, Sigrún Óladóttir. ✝ Ástkær systir mín, mágkona og frænka, GUÐLAUG TORFADÓTTIR líffræðingur, Hofakri 3, Garðabæ, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. september kl. 15.00. Kristín S. Gilson, Henry L. Gilson, Valgerður Jónsdóttir, Guðni Hannesson, Kristbjörn Jónsson. ✝ Okkar ástkæra KRISTÍN EGGERTSDÓTTIR, Hjarðarhaga 56, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. september kl. 15.00. Guðmundur Eggertsson, Jóna Eggertsdóttir, Guðrún Eggertsdóttir, Ragnheiður Jóhannsdóttir, Aðalheiður L Guðmundsdóttir, Einar Garibaldi Eiríksson, Guðrún Ara Arason, Heiður Hörn Hjartardóttir, Þorsteinn Arilíusson, Anna Margrét Þorsteinsdóttir, Inga Lilja Þorsteinsdóttir, Jón Ingi Þorsteinsson, Eggert Sólberg Jónsson, Magnús Elvar Jónsson. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur, bróðir, mágur, svili og barnabarn, SIGMAR ÞÓR EÐVARÐSON verslunarstjóri, Sílakvísl 13, Reykjavík, lést sunnudaginn 9. september. Jarðaförin auglýst síðar. Margrét Friðriksdóttir, Aðalheiður María Sigmarsdóttir, Emelía Rán Sigmarsdóttir, Svanhildur María Ólafsdóttir, Eðvarð Ingólfsson, Aðalheiður Gréta Guðmundsdóttir, Friðrik Jónsson, Ólafur Páll Eðvarðsson, Ásta Friðriksdóttir, Bjarki Traustason, Auður Gunnarssdóttir, Sigríður U. Ottósdóttir, Vigdís Ámundadóttir. haggað, enda hjó hún aldrei en hlífði ævinlega. Við dánarbeð hennar stóðu börn- in hennar sem eitt og véku ekki frá, mér mun seint líða úr minni þrek Þóru minnar sem bjó um sig á hjúkrunarheimilinu og vakti yfir henni allt þar til yfir lauk. Það segir meira en mörg orð um úr hverju manneskjan Erla var. Ömmubörnin fengu að koma í hlýjan faðm hennar og með hrífandi frásögnum hennar af galgopum og tröllum opnuðust nýjar víddir hjá ungviðinu. Sem bergnumin sögðu þau okkur síðan sögurnar með til- heyrandi ærslagangi, grettum og svipbrigðum úr leikhúsi ömmu Erlu. Hún var styrkasta stoðin í okkar veraldarprjáli og gaf sig alla óskipta þegar við vorum hjálpar þurfi, nær- gætin og hlý, ávallt með mannbæt- andi orð á vörum. Mér er efst í huga þakklæti fyrir tímann sem við áttum með henni og við erum mörg sem kveðjum hana með söknuði. Magnús. Elsku amma mín. Það er ótrúlega erfitt að missa einhvern sem er búinn að hugsa um mann alla sína ævi og einhvern sem hefur alltaf getað glatt mann þegar manni líður illa. Það er ekki hægt að lýsa því með orðum hvað það er erf- itt að missa uppáhaldsömmu sína þó að ég trúi því varla að þú sért farin frá mér. Þegar ég var lítil leið mér alltaf best hjá ömmu & afa á Grandó og flestar minningar sem ég á frá því ég var lítil voru með ykkur og þær voru líka þær bestu. Þið fór- uð alltaf út að leika með mér og í stóru rennibrautina út í Granda- skóla og þegar ég var orðin þreytt var farið heim á Grandó og stjanað við mig allan liðlangan daginn og sofnaði ég svo sæl og kát eftir dag- inn á milli ömmu og afa eða í prins- essurúminu sem þú bjóst alltaf til fyrir mig við hliðina á rúminu ykk- ar. Það er ekkert smáerfitt að missa það sem er og verður manni alltaf kærast. En núna eruð þið afi hamingju- söm saman uppi á himnum og pass- ið mig alltaf hvert sem ég fer og þegar mér líður illa hugsa ég að þú sért hjá mér og huggir mig. Ég elska þig alltaf, amma mín. Þín Hrafnhildur Ylfa. Elsku fallega, ljúfa amma. Óskap- lega söknum við þíns glaða anda. Þú varst alltaf svo gamansöm og lokk- aðir bros okkar allra fram. Sterkt í minningu okkar er þín fræga og góða kjötsúpa sem engum hefur tekist að gera betur. Þú hugsaðir alltaf svo vel um okkur barnabörnin þín sem og aðra ástvini þína. Þú hafðir svo gaman af því að gleðja okkur börnin, sem var þér svo auð- velt, því þú varst svo mikill prakkari í þér. Þú laumaðir oft pening í vasa okkar, fyrir matartíma, svo við gæt- um keypt okkur ís í gömlu góðu sjoppunni á neðstu hæðinni. Jólin voru best og eftirminnilegust hjá ykkur afa á Grandavegi. Við komum til með að sakna þín og afa mjög mikið elsku amma. Knútur Steinn og Katarína. Elsku amma mín. Þú sem söngst alltaf fyrir mig og við dönsuðum oft í eldhúsinu hjá þér, þú varst oft að passa mig og við gerðum oft leikrit. Amma það varst þú sem komst mér af stað í leiklist- inni og nú er ég með mikinn áhuga á söng og leiklist. Þú hefur alltaf verið uppáhalds- amma mín, ég mun sakna þín amma. Allt sem þú gerðir með mér var svo skemmtilegt og gaman, all- ar ferðirnar í Húsdýragarðinn með afa Óla. Ég kom oft með mömmu, frá því að afi dó, til þín á Skógarbæ og gott var að vera hjá þér núna síðustu vikur. Þú komst oft til okkar heim og sofnaðir í sófanum, það var svo gott að hafa þig heima hjá okkur. Þar leið þér svo vel og mér líka, að hafa þig og fá að knúsa þig í hálsa- kotið. Nú fórstu á sama tíma og Pavarotti, uppáhaldssöngvari ykkar afa Óla, þið voruð samferða. Erla, góða Erla! eg á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. (Stefán frá Hvítadal) Ég elska þig, Máni (Monsinn þinn). Er ég bjó í Þýskalandi, þar sem súkkulaði fæst í öllum tegundum, átti ég erfitt með annað en að hugsa til þín þegar ég horfði á dökka Rit- tersport-súkkulaðið í búðarhillun- um. Súkkulaðifíkn þín var augljós, enda fannst mér alltaf svo fyndið að sjá þig laumast í súkkulaðið í skápn- um þar sem þú faldir það. Ávallt fannst mér gaman að koma í heimsókn eftir skóla og spila við þig. Þú hlóst með mér og talaðir við mig eins og þú værir jafnaldri minn. Þú sýndir mér hversu mikilvægt það væri að taka lífinu ekki of alvar- lega og vera ungur í anda. Að lífið væri allt of stutt til að vera einhver annar en maður er eða taka hlutina of alvarlega. Þú varst sterkur karakter og það gleður mitt hjarta að hugsa til þín, en mikil sorg fylgir því að þú sért nú farin frá okkur. Ég veit þó innst inni að þér líður núna mun betur í faðmi afa. Elsku amma mín, ég mun sakna þín mikið en fyrst og fremst vil ég þakka þér fyrir að hafa alltaf verið svo hress og góð við mig í gegnum tíðina. Björgvin Þór Björgvinsson. Á þessum tímamótum þökkum við Erlu innilega vináttu, sem aldrei bar skugga á frá því við vorum ung- lingar. Þau Óli urðu bestu vinir okk- ar eftir að við Svava kynntumst og leið varla sú vika að við kæmum ekki til þeirra í fallega heimilið í Sörlaskjóli fyrstu árin. Þau voru al- veg einstök heim að sækja og áhugi þeirra fyrir velferð okkar, og okkar fyrir þeirra, einlægur. Á þessum árum var Erla falleg, gamansöm og lífleg ung stúlka með þrjár dætur og átti síðar eftir að bætast við drengur og stúlka. Heimilið var því stórt og í mörg horn að líta. Það hefur verið gaman að eldast með þessum hópi. Sjá börnin þeirra og okkar vaxa og dafna, eignast maka og stofna sín heimili, þar sem ömmu- og afabörn bættust smám saman í hópinn. Alltaf var Erla jafn falleg, létt og gamansöm og var það ekki fyrr en á allra síðustu árum, þegar hún veiktist og Óli hennar lést eftir langvinnan sjúkóm að létt- leikinn minnkaði. Það er með sárum söknuði sem við kveðjum Erlu og er eins og stórt skarð sé höggvið í okkar eigið líf við brotthvarf hennar. Við samhryggj- umst innilega börnum hennar Addý, Unni, Erlu, Eggerti og Þóru Hrönn og fjölskyldum þeirra. Einnig Her- manni, bróður hennar, sem nú einn lifir af stórum systkinahópi. Blessuð sé minning Erlu Þor- steinsdóttur og Guð blessi hana alla tíð. Svava og Guðmundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.