Morgunblaðið - 12.09.2007, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 12.09.2007, Qupperneq 20
|miðvikudagur|12. 9. 2007| mbl.is Samtal – Listmeðferð – Líkamsvitund Þriggja mánaða hópmeðferð fyrir fullorðna einstaklinga sem vilja efla samskiptahæfni, starfsgetu og sköpunargleði til að bæta andlega og líkamlega líðan. Að meðferðinni stendur þverfaglegt teymi. Í teyminu eru Anna K. Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari, Halldóra Halldórsdóttir listmeðferðarfræðingur, Hanna Unnsteinsdóttir félagsráð- gjafi og Ragnheiður Indriðadóttir sálfræðingur. Umsóknir óskast sendar á „Hópmeðferð/Kjörgarði, Laugavegi 59, 101 Reykjavík“, eða á netföng: halldorah@heima.is, ragnhind@simnet.is. Hópmeðferð Innsæismeðferð daglegtlíf Haustið er sá tími þegar bíla- umferð eykst verulega og þá þarf að huga sérstaklega að ör- yggi barna í umferðinni. » 25 hollráðin Fjórði hver einstaklingur yfir fimmtugu getur átt von á því að verða fórnarlamb heilabilunar síðar á lífsleiðinni. » 24 heilsa ÞAÐ má vissulega segja að fimi sumra leikmanna sé slík að þeir hreinlega dansi með knöttinn um völlinn. Það er hins vegar öllu óalgengara að knettirnir dansi alfarið um völlinn af sjálfsdáðum. Börnin sem hér koma fram uppábúinn sem fótboltar komu fram á upphafsathöfn heimsmeist- arakeppninnar í fótbolta kvenna sem hófst í Sjanghæ í Kína á mánudag. AP Fimir fótbolta- fætur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Undir vökulu auga Múhameðs Alí og dóttur hans Nauðsynlegt er að teygja alla vöðva vel eftir átökin. Þ etta er svakalegt púl, en alveg þess virði. Ég fæ mikla orku við að ham- ast svona á morgnana og ég fer þá fersk og fín út í daginn,“ segir Eyrún Ósk Egils- dóttir sem rífur sig upp á rófunni þrjá daga vikunnar á þeim tíma sem flestir aðrir sofa, til þess að keyra í annað bæjarfélag í boxtíma hjá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar þar sem tekið er duglega á því með svarta hanska og púða. „Fólk er frekar hissa á að ég skuli nenna að fara í tíma sem stendur frá klukkan sex til sjö á morgnana en það hentar mér mjög vel af því ég er í skóla og líka að vinna og ég þarf að læra á kvöldin. Ef maður er bara nógu þrjóskur við sjálfan sig þá kemst maður upp á lag með þetta. Ég þarf bara að passa að fara mjög snemma í háttinn þau kvöld sem það er boxtími daginn eftir.“ Svitnaði ekki nóg í dansinum Eyrún tekur fram að hún sé ekki að boxa niður annað fólk í hringnum, heldur er það dauður púði sem fær að finna fyrir höggum hennar. „Þetta heitir fitness box og við lær- um undirstöðuatriðin í ólympískum hnefaleikum. Þjálfarinn okkar hann Oscar Luis Justo er gömul kempa úr bransanum og er frá Kúbu. Hann hefur keppt um víða veröld og hampaði þrisvar Kúbumeistaratitli auk þess sem hann var eitt sinn Suð- ur-Ameríkumeistari. Hann er svaka- lega harður þjálfari en líka mjög hvetjandi, enda hefur hann meðal annars þjálfað tvöfalda Evrópu- meistarann Pedro Miranda. Við komumst ekki upp með neina leti hjá honum Oscari, hann byrjar oft á því að láta okkur hlaupa úti og síðan för- um við inn í gallharðar upphitunar- æfingar og þá lekur sko af manni svitinn! Síðan boxum við í púðann, ýmist hratt eða hægt en alltaf fast. Ef maður er alveg að gefast upp þá hvetur Oscar okkur áfram og segir okkur að gera hægar frekar en að hætta. Þetta tekur vel á og byggir upp allan líkamann, mikil brennsla og eykur þol og úthald. Ég er oft með rosalegar harðsperrur í mag- anum. Það er mjög áríðandi að fá sér eitthvað að borða fyrir æfingu því annars getur maður lent í því að verða flökurt.“ Eyrún hefur einu sinni farið á laugardagsæfingu sem er ennþá meira púl og stendur yfir í tvo tíma. „En ég kláraði mig gjörsamlega og held ég sleppi því framvegis og láti þrjá daga í viku duga. En box er lík- amsrækt að mínu skapi. Ég æfði dans en mér fannst ég ekki svitna nóg í þeim tímum og sama er að segja um kvennaleikfimi sem ég prófaði, hún átti ekki við mig.“ Eyrún tekur fram að box sé fyrir alla aldurshópa og hóparnir séu mis- jafnir, eftir því hvort um er að ræða byrjendur eða lengra komna. „Ég hvet fólk til að skella sér í prufutíma, þetta er rosalega gaman og það eru líka tímar á kvöldin.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Tekið áðí Eyrún gefur ekkert eftir þegar hún lemur púðann sundur og saman með vel bólstruðum boxhönskunum. Brjáluð útrás í boxinu Hún telur það ekki eftir sér að vakna klukkan fimm á morgnana þrjá daga í viku til að boxa undir harðri stjórn Kúbumeistara í barningnum. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti nautsterka hamhleypu. www.hfhboxing.com khk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.