Morgunblaðið - 27.09.2007, Síða 52
Aleksandra „Sársauki stríðsins umvefur allt.“
NÝJASTA mynd Rússans Alex-
anders Sokurovs tekst á við átökin
í Tsjetsjeníu frá sérstöku sjón-
arhorni. Gömul kona, Alexandra
(Galina Vishnevskaya), heimsækir
barnabarn sitt sem er kafteinn á
rússneskri herstöð þar í landi. Þótt
heilsan sé farin að gefa sig hjá
gömlu konunni er hún eitilhörð.
Alexandra leggur á sig erfiða og
óþægilega ferð til að komast út í
óvistlegar búðirnar.
Galina Vishnevskaya var virt
óperusöngkona og hún hefur yfir
sér reisn sviðsleikkonunnar. Hún
er áhrifamikil í hlutverkinu og
túlkar melankólíu ömmunnar vel.
Dauðinn vofir yfir öllu. Sársauki
stríðsins umvefur allt. Samt eru
engin bein átök sýnd. Þetta er her-
setið land. Sokurov segir mannlega
sögu í litlausum heimi, sem virðist
samsettur úr ryki, striga og stáli.
Myndin fer hægt yfir eins og
gamla konan. Hún er orðin fótfúin
en lætur engu að síður ekki hindr-
anir hermannanna halda aftur af
sér, og skoðar allt hátt og lágt. Fer
síðan á markaðinn í næsta bæ og
fær sér te með ,,óvininum“. Lýs-
ingarnar virka ef til vill eins og
erkitýpur úr ævintýri en eru sér-
lega persónulegar í þessari ljúf-
sáru og tregablöndnu mynd sem
Sokurov gefur hljóðrás með klass-
ísku yfirbragði.
Sorglegar stríðshörmungar
Alexandra
Leikstjóri: Alexander Sokurov. Aðalleik-
arar: Galina Vishnevskya, Vasily Shevt-
sov, Raisa Gichaeva. 92 mín. Rússland.
2007.
RIFF:2007: Tjarnarbíó Regnboginn Há-
skólabíóRIFF:2007: Tjarnarbíó Regnbog-
inn Háskólabíó
Sýnd í Regnboganum 27.9, 1.10 og
5.10.
Anna Sveinbjarnardóttir
52 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDIVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
BRATZ kl. 5:30 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ
LICENSE TO WED kl. 8 B.i. 7 ára
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 10 B.i. 14 ára
THE TRANSFORMERS kl. 10:30 B.i. 10 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
CHUCK AND LARRY kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára
CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP
MR. BROOKS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára
BRATZ kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
DISTURBIA kl. 8 - 10:30 B.i.14.ára
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
ASTRÓPÍA LÚXUS VIP kl. 6 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í KRINGLUNNI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
HVERSU LANGT
MYNDIRU GANGA
FYRIR BESTA
VIN ÞINN?
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
ALLIR EIGA SÍN LEYNDARMÁL
ÓVÆNTASTI SÁLFRÆÐITRYLLIR ÁRSINS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
eeee
– KVIKMYNDIR.IS
eee
– L.I.B TOPP5.IS
Kvikmyndahátíð í Reykjavík
HALTU kjafti og vertu sæt ætti
eiginlega að vera íslenski titillinn
á þessari heimildarmynd um
reynslu bandarísku kántrísveit-
arinnar Dixie Chicks. Þegar stríð-
ið í Írak var að hefjast lét Natalie
Maines, aðalsöngkona hljómsveit-
arinnar, þau orð falla í hálfkæringi
á tónleikum í London að hljóm-
sveitin skammaðist sín fyrir að
forseti Bandaríkjanna væri frá
Texas. Breskir áheyrendur klöpp-
uðu fyrir orðum hennar enda var
stemning þar á bæ á móti stríðinu
og fólk studdi almennt ekki stefnu
Bush. Þessi örfáu orð áttu eftir að
hafa ótrúlegar afleiðingar fyrir
hljómsveitina sem var gríðarlega
vinsæl á sveitasenunni í Banda-
ríkjunum.
Heimildarmynd Barböru Kopple
og Ceciliu Peck fylgir Dixie
Chicks í gegnum mikið fjölmiðla-
fár í Bandaríkjunum. Umræðan
sem skapast í kringum Natalie og
systurnar Emily Robison og Mar-
tie Maguire tekur á mörgu spenn-
andi umræðuefni – stöðu mál-
frelsis í Bandaríkjunum, stöðu
kvenna, stríðinu í Írak. Því miður
er skautað frekar mikið á yf-
irborði hlutanna. Myndin er samt
góður útgangspunktur fyrir frek-
ari umræðu. Hún sýnir meðal ann-
ars að það skaðar greinilega ekki
að vera umdeildur. Það er spenn-
andi að fylgjast með þeim stöllum
vinna í því að staðsetja sig aftur á
markaðinum eftir að hafa dottið af
stallinum sem ljúfar söngdúfur.
Eftir því sem ég veit best þá sló
nýjasta platan þeirra í gegn!
Haltu kjaftu og syngdu –
Shut Up and Sing
Leikstjóri: Barbara Kopple & Cecilia
Peck. 92 mín. Bandaríkin. 2006.
Sýnd í Regnboganum 27.9, 30.9
og 2.10.
Anna Sveinbjarnardóttir
MALY (Romanowski), er strákpolli
sem býr í niðurníddu, fyrrum iðn-
aðarhéraði í Póllandi. Lítill stuðn-
ingur í móðurinni og eftir að faðir
hans ferst í kolanámunni verður
hann að bjarga sér sjálfur. Takast
á við óttann sem liggur í loftinu
vegna tíðra dauðsfalla sem eiga sér
stað í nágrenninu, en Maly og
skólabræður hans telja að þau séu
af völdum „Hýenunnar“, dýrs sem
slapp úr dýragarði og um hafa
skapast varúlfssögur. Hann vingast
við dularfullan náunga sem á
skuggalega fortíð en býðst til að
vernda drenginn.
Maly á erfitt með að greina á
milli ímyndunar, sögusagna og
raunveruleika og líkt er farið með
áhorfandann. Hvað vofir yfir þessu
volaða umhverfi? Morðingi, hug-
arburður eða er Hiena tákn komm-
únismans og eftirhreytna hans.
Hvað sem því viðvíkur er myndin
talsvert mögnuð upplifun, sögusvið-
ið, „Dauðsmannslandið“, sem Maly
litli þarf að fara í gegnum á leið í
og úr skóla, er hráslagalegt tákn
um mistök og eyðileggingu misvit-
urra stjórnenda. Vettvangur hálf-
hruninna verksmiðja og þungaiðn-
aðar þar sem ömurleg fortíð
landsins ríkir í hverjum krók og
kima. Hiena er frumraun Lew-
andowskis sem virðist eiga framtíð
á hrollvekjusviðinu.
Hýena – Hiena
Leikstjóri: Grzegorz Lewandowski. Aðal-
leikarar: Jakub Romanowski, Borys
Szyc, Magdalena Kumorek. 90 mín. Pól-
land. 2006.
Sýnd í Regnboganum 27.9, 29.9
og 1.10.
Sæbjörn Valdimarsson
GUY Maddin hefur sérhæft sig í
að gera kvikmyndir sem endur-
lífga tækni þöglu kvikmyndanna
undanfarin ár. Hann gerir það þó
á sinn sérstaka hátt og hrærir
saman við hraða klippingu 21. ald-
arinnar. Nýjasta verk hans er
upprunalega filmuð á Super 8 mm
og virkar mjög hrá. Þessi stílfærði
draumur er faglega unninn en
hann er einfaldlega of einhæfur og
of langdreginn, sérstaklega undir
lokin þrátt fyrir Frankensteinlega
tilburði og hvað eina. Greypt í
minni! hefur einnig verið sýnd
með lifandi undirleik og sögu-
mönnum og á það kannski betur
við efnið. Söguþráðurinn er því-
líkur hrærigrautur af absúrd
hryllingsmótífum og sálfræðikl-
isjum að það hálfa væri nóg. Það
verður þó að segjast að leik-
urunum tekst merkilega að halda
haus í gegnum þetta allt saman.
Efast um að gamli góði Feuillade
hefði enst til að sitja undir öllum
tólf köflunum nema kannski einum
í einu eins og boðið var upp á í
slíkum framhaldsseríum á sínum
tíma!
Greypt í minni! – Brand
Upon the Brain!
Leikstjóri: Guy Maddin. Aðalleikarar: Er-
ik Steffen Maahs, Sullivan Brown, Maya
Lawson, Gretchen Kritch, Susan Cor-
zatte, Todd Moore, Katharine E. Schar-
hon. Sögumaður: Isabella Rossellini. 95
mín. Kanada. 2006.
Sýnd í Regnboganum 27.9, 1.10 og
4.10.
Anna Sveinbjarnardóttir