Morgunblaðið - 19.10.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2007 17
SMÁRATORG 3, 200 KÓPAVOGUR TLF.: 55 00 800
Á LAUGADAGINN
Mættu snemma.
Allar LEGO vörur á hálfvirði.
Opið frá kl: 11-18.
Á FÖSTUDAGINN
Mun Teenage Muta
nt
Ninja Turtles koma
til okka og heilsa
upp á þig.
Á FÖSTUDAGINN
KL. 16.30
Íþróttaálfurinn kemu
r í heimsókn
í TOYS”R” US og sp
jallar við
krakkana og syngu
r jafnvel nokkur
lög. Það má enginn
missa af þessu!
Til
bo
ði
ð
gi
ld
ir
til
og
m
eð
2
0.
10
.2
00
7
og
a
ðe
in
s í
S
m
ar
at
or
g.
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r o
g
vö
ru
fra
m
bo
ð.
ÞAÐ ER ALLTAFOPIÐ LENGIVirkadaga
10-20Nema fimmtudaga 10-21laugadaga
11-18Sunnudaga
13-18
BJÖRGVIN Sigurðsson við-
skiptaráðherra var gestur á morg-
unfundi Samtaka verslunar og
þjónustu, SVÞ, í gær þar sem hann
um leið opnaði endurbættan vef
samtakanna, www.svth.is
Fundurinn var haldinn í sam-
vinnu við Rannsóknasetur versl-
unarinnar og Háskólann í Bifröst.
Auk þess að fara yfir helstu þing-
mál á vegum viðskiptaráðuneyt-
isins í vetur lýsti hann yfir vilja til
efla nýsköpun og þróun í verslun og
þjónustu. Taka þyrfti utan um
þessa atvinnugrein í góðu samstarfi
við hagsmunaaðila. Ljóst væri t.d.
að verslun og þjónusta væri orðinn
grundvöllur nýrrar sóknar bæði
kjarna- og jaðarsvæða á lands-
byggðinni. Umræða um atvinnulífið
hefði til þessa einskorðast um of við
stóriðjuframkvæmdir, landbúnað
og sjávarútveg og verslun og þjón-
ustugreinar orðið út undan.
Yfirlýsingu Björgvins var fagnað
á fundinum, en þar fór Sigurður
Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ,
einnig yfir helstu baráttumál og
verkefni samtakanna, s.s. útvistun
opinberrar þjónustu, afnám vöru-
og stimpilgjalda og niðurfellingu
tolla af landbúnaðarafurðum.
Hyggst efla nýsköpun og
þróun í þjónustugreinum
Morgunblaðið/Frikki
Þjónusta Björgvin Sigurðsson ávarpar morgunfund SVÞ, í forgrunni eru
Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri og Hrund Runólfsdóttir formaður.
KNÚTUR Þórhallsson hefur ver-
ið kjörinn stjórnarformaður hjá
Deloitte. Hjá fyrirtækinu starfar
Knútur sem end-
urskoðandi auk
þess sem hann er
einn af eigendum
fyrirtækisins.
Knútur er löggilt-
ur endurskoðandi
og viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla
Íslands. Hjá
Deloitte hefur
hann haft umsjón
og verkefnastjórnun í tengslum við
endurskoðun og reikningsskil,
skatta- og félagarétt auk ýmissa sér-
verkefna. Knútur hefur haldið ýmsa
fyrirlestra og kynningar á ráð-
stefnum og fundum sem Deloitte
hefur staðið fyrir, jafnt fyrir við-
skiptavini og starfsmenn.
Knútur er kvæntur Berglindi Víð-
isdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga
þau fjögur börn.
Stjórnarfor-
maður Deloitte
Knútur
Þórhallsson
SAP, einn stærsti hugbúnaðar-
framleiðandi heims, hagnaðist um
408 milljónir evra á þriðja ársfjórð-
ungi, jafnvirði um 35 milljarða
króna, borið saman við 370 milljónir
evra á sama tímabili í fyrra. Þetta er
því aukning um 10% og er mun betri
afkoma en greiningaraðilar höfðu
reiknað með.
Tekjur SAP jukust um 9% í fjórð-
ungnum og námu 2,42 milljörðum
evra samanborið við 2,21 milljarð
evra í fyrra, eða um 190 milljarðar
króna. Þrátt fyrir þessa bættu af-
komu lækkuðu hlutabréf SAP í
kauphöllinni Frankfurt í upphafi við-
skipta í gær.
Nýverið greindi SAP frá því að
það ætlaði að kaupa franska hugbún-
aðarfyrirtækið Business Objects á
6,8 milljarða evra. Þá var tilkynnt í
gær um samning við Wal-Mart,
stærstu verslanakeðju heims, sem
ætlaði að kaupa hugbúnað frá SAP í
verslanir sínar.
Gróði SAP
jókst um 10%
SENDIRÁÐ Íslands í Japan efndi
nýlega til viðskiptaþings þar í landi í
samvinnu við japansk-íslenska versl-
unarráðið í Japan, Glitni og Fjárfest-
ingastofu Japans. Frá þessu greinir í
Stiklum utanríkisráðuneytisins.
Meðal fyrirlesara var Isao Na-
kasu, forseti Samtaka japanskra fyr-
irtækja í sjávarútvegi. Sagði hann
japönsk fyrirtæki í auknum mæli
ætla að fara með vörur framleiddar í
Asíu á erlenda markaði, ekki síst til
Evrópu og N-Ameríku. Auka þyrfti
samstarf við erlend fyrirtæki og þar
gætu Íslendingar komið sterklega til
greina.
Tilgangur viðskiptaþingsins var
að kynna japönskum viðskiptaaðil-
um tækifæri til aukinna samskipta
við íslensk fyrirtæki, einkum hvað
varðar sölu og markaðssetningu
sjávarafurða á alþjóðavettvangi.
Ennfremur var fjallað um viðskipta-
umhverfið á Íslandi og beina erlenda
fjárfestingu hér á landi og í Japan,
en til þessa hefur ekki verið mikið
um beinar fjárfestingar að ræða á
milli landanna, að því er fram kemur
í Stiklum.
Aukin tæki-
færi í Japan
Morgunblaðið/Einar Falur
♦♦♦
♦♦♦