Morgunblaðið - 05.11.2007, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„Stílsnilld sem á sér vart
hliðstæðu hjá öðrum
samtímahöfundum.“
BRANDARINN, sem er
fyrsta skáldsaga Milan
Kundera, kom út í Prag
á sjöunda áratugnum og
náði strax gríðarlegum
vinsældum. Sagan hefur
verið þýdd á fjölmörg
tungumál og er nú
talin meðal merkustu
skáldsagna sem út komu
í Evrópu á síðari hluta
tuttugustu aldar.
Irving Howe
Friðrik Rafnsson þýddi.
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
TVÆR fiskverkanir, GPG á Húsa-
vík og Stapar á Bíldudal, hafa nú
sagt upp samtals um 20 manns.
Uppsagnarfrestur fólksins er einn
mánuður. Á Raufarhöfn er verið að
draga úr vinnslu vegna kvóta-
samdráttar, en á Bíldudal er verið
að hætta vinnslu, sem hófst í maí, en
hefur verið afar stopul síðan þá. Áð-
ur hafði fiskvinnsla þar legið niðri í
tvö ár.
Átta manns var sagt upp hjá GPB
á Raufarhöfn, en þar höfðu tveir eða
þrír hætt áður, að sögn Ólafs Ólafs-
sonar, sölu- og markaðsstjóra hjá
GPG. GPG rekur fiskverkun á Rauf-
arhöfn, Húsavík og í Stykkishólmi
og segir Ólafur að ekki séu fyr-
irhugaðar frekari uppsagnir. Hins
vegar sé ljóst að sumarlokanir verði
á öllum stöðunum og líklega lengri
en á þessu ári.
1.200 tonna samdráttur
Hann segir að kvóti fyrirtækisins
dragist saman um 1.200 tonn vegna
niðurskurðarins. Auk þess sé minna
framboð á fiskmörkuðum og við því
verði að bregðast. Alls starfaði 31
við vinnsluna á Raufarhöfn, en fjöld-
inn er nú kominn niður í 20, eða
sama fjölda og var þegar GPG tók
við vinnslunni þar á sínum tíma.
Ólafur segir að nú sé ekki vinn-
andi vegur að bæta upp samdráttinn
með vinnslu á Rússafiski og komi
þar margt til, einkum hærri flutn-
ingskostnaður en áður.
Tvö fyrirtæki, Oddi á Patreksfirði
og Þórsberg á Tálknafirði, stóðu að
vinnslu Stapa á Bíldudal. Vinnslan
hófst í maí og voru starfsmenn 12.
Vinnslan hefur svo legið niðri frá því
í júlí, en fólkið var enn á launum,
þar til tekin var ákvörðun nú í vik-
unni um að segja því upp.
„Upphafið var þannig fyrir um
það bil tveimur árum, þegar fisk-
vinnsla hafði lagzt af á Bíldudal, þá
komu stjórnmálamenn og fóru á
fjörurnar við menn um hvort ekki
væri eitthvað hægt að gera í mál-
inu,“ segir Guðjón Indriðason, fram-
kvæmdastjóri Þórsbergs. „Upp-
haflega þegar talað var um að skoða
þetta voru það Kambur á Flateyri,
Oddi á Patreksfirði og Þórsberg á
Tálknafirði sem áttu að koma að
rekstrinum. Síðan ákvað Kambur að
vera ekki með. Hin tvö fyrirtækin
voru eftir og var umfangið minnkað
töluvert frá því sem um var talað í
upphafi. Áfram var þrýstingur frá
stjórnvöldum og við settum skilyrði
á móti um byggðakvóta og fjár-
magn, sett var upp svipað dæmi og
var gert á Þingeyri þegar Vísir kom
þangað inn. Það átti að vera 400
tonna byggðakvóti árlega í sex ár.
Svo var komið niður á það að fallizt
var á að þetta yrðu ekki nema 300
tonn fyrsta árið. Þetta endaði svo í
240 tonnum sem var úthlutað seint
og síðar meir. Sá kvóti er til staðar,
en fyrirgreiðsla eins og frá Byggða-
stofnun, sem átti að koma að þessu
með þolinmótt fé, hefur ekki skilað
sér.
Slæmt ástand á húsinu
Eitt af skilyrðunum var að fisk-
verkunarhúsið fengist á viðunandi
verði. Það gekk eftir en þá kom í
ljós að ástandið á húsinu var mjög
slæmt og það kostaði mikið af pen-
ingum að koma því í stand. Síðan
kemur svo rúsínan í pylsuendanum,
33% niðurskurður á þorskkvótanum
ofan á allt saman. Þegar menn
standa frammi fyrir öllu þessu; að
ekki er staðið við það sem var lofað í
byrjun og svo er kvótinn skertur, þá
er í rauninni ekkert annað að gera
en hætta,“ segir Guðjón Indriðason.
Ekkert að gera
annað en hætta
Atvinna Um 20 manns hefur verið sagt upp á Raufarhöfn og Bíldudal
vegna kvótaniðurskurðar. Er uppsagnarfresturinn aðeins mánuður.
Í HNOTSKURN
»Þegar fiskvinnsla hafði lagztaf á Bíldudal komu stjórn-
málamenn og fóru á fjörurnar
við menn um hvort ekki væri
eitthvað hægt að gera í málinu.
»Það átti að vera 400 tonnabyggðakvóti árlega í sex ár.
Svo var komið niður á það að
fallizt var á að þetta yrðu ekki
nema 300 tonn fyrsta árið. Þetta
endaði svo í 240 tonnum.
»Ekki er vinnandi vegur aðbæta upp samdráttinn með
vinnslu á Rússafiski og kemur
þar margt til, einkum hærri
flutningskostnaður en áður.
MIKILL erill var hjá lögreglu höf-
uðborgarsvæðisins í fyrrinótt og
fylltust fangageymslur eftir nóttina.
Þannig voru 17 manns látnir gista á
bak við lás og slá bæði í Reykjavík og
Hafnarfirði. Mikið var um ölvun og
þá bar nokkuð á hópslagsmálum og
var lögreglumaður sleginn í andlitið
þegar hann reyndi að skakka leikinn
í Hafnarfirði
Að sögn varðstjóra voru fjórir
handteknir eftir hópslagsmál sem
brutust út á Hlemmi um miðnætti.
Enginn var sagður alvarlega slasað-
ur eftir átökin. Þá brutust hópslags-
mál einnig út á skemmtistað í Hafn-
arfirði í fyrrinótt og þar var
lögreglumaðurinn sleginn og hlaut
minniháttar áverka á kjálka. Tveir
voru handteknir í kjölfar slagsmál-
anna.
Þá voru 12 háttsemisbrot gegn
lögreglusamþykkt Reykjavíkur-
borgar framin um nóttina. Lögregla
segir að í flestum tilvikum hafi verið
um að ræða fólk sem hafi misst
stjórn á skapi sínu og látið öllum ill-
um látum
Mikið um fyll-
irí og ólæti
BÆJARSTJÓRN sveitarfélagsins
Voga hefur samþykkt tillögu um-
hverfisnefndar sveitarfélagsins
varðandi háspennulínur í landi
þess. Nefndin lagði til, að öllum
fyrirliggjandi valkostum Lands-
nets um loftlínur yrði hafnað.
„Nefndin álítur að svo miklar raf-
línur muni spilla ásýnd landsins og
hefta möguleika til atvinnusköp-
unar, útivistar og annarrar land-
nýtingar til frambúðar. Ekki verð-
ur heldur séð að þörf sé fyrir svo
stór og afkastamikil mannvirki,
jafnvel þótt virkjanir stækki og
þótt 250.000 tonna álver yrði
byggt í Helguvík,“ segir í umsögn
umhverfisnefndar.
Í stað loftlína mælir nefndin
með jarðstreng sem lagður yrði
þétt meðfram Reykjanesbraut og
að núverandi lína fái að halda sér.
Ef af framkvæmdum verður í
Helguvík vill nefndin að skoðaður
verði sá kostur að leggja sæstreng
milli Flekkuvíkur og Helguvíkur.
Ekki vilji fyr-
ir raflínum
♦♦♦
SKÁTAR á Íslandi héldu í fjöl-
menna afmælisgöngu á laugardag í
tilefni af því að á þessu ári eru liðin
100 ár frá upphafi skátastarfs í
heiminum.
Tímamótunum hefur verið fagn-
að á margan hátt víða um heim á
árinu. Íslenska skátahreyfingin
minntist tímamótanna með afmæl-
ishófi í knattspyrnuhúsinu Fífunni
á laugardag og var sú tímasetning
valin með það í huga að skátar á Ís-
landi miða upphaf íslensks skáta-
starfs við 2. nóvember. Liðin eru 95
ár frá upphafi skátastarfs á Íslandi.
Afmælishátíðinni lauk með flug-
eldasýningu í boði Slysavarna-
félagsins Landsbjargar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Skátakynslóðir Íslendingar hafa iðkað skátastarf í 95 ár og stofnuðu
skátahreyfingu aðeins fimm árum eftir að skátastarf hófst erlendis.
Skátaganga á aldarafmæli
BJÖRGUNARSVEITIR frá
Landsbjörgu stóðu í ströngu um
helgina og fóru í sex útköll vegna
rjúpnaveiðimanna í uppsveitum Ár-
nessýslu. Oftast var um að ræða
bíla sem festust í aurbleytu. Búist
er við mikilli umferð á svæðinu í
dag, mánudag.
Af því tilefni vilja björgunarsveit-
ir koma þeim tilmælum til allra
þeirra sem eiga erindi á heiðar og
hálendi að aka aðeins á öruggum
vegum. Mikið hefur rignt í Árnes-
sýslu undanfarið og þótt jörð sýnist
frosin er aðeins um þunna skel yfir
aurbleytu að ræða.
Skyttur
festu sig
TVEIR landeigendur í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi hafa slitið við-
ræðum við Landsvirkjun vegna
áforma um Hvammsvirkjun og lón
í mynni Þjórsárdals, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
landeigendum.
Þeir eiga samtals um þrettán
hektara úr jörðinni Haga á Þjórs-
árbökkum austan við Þverá og
hafa reist sér þar frístundahús.
Annar umræddra landeigenda á
einnig veiðirétt í Þjórsá ásamt fjöl-
skyldu sinni í Haga.
Slíta við-
ræðum
♦♦♦
RÁÐIST var á ungan mann í sum-
arbústað í landi Úthlíðar í fyrrinótt
með þeim afleiðingum að hann fékk
höfuðhögg og var fluttur á Land-
spítalann. Hann hélt meðvitund að
sögn lögreglunnar á Selfossi en var
ringlaður. Árásarmaðurinn er rúm-
lega tvítugur og var settur í fanga-
geymslu. Lögregla segir að fjöldi
vitna hafi verið að árásinni en kæra
af hálfu þolandans var ekki komin
fram í gær. Ef meiðsli í líkams-
árásum reynast alvarleg getur lög-
reglan sjálf lagt fram kæru geri
brotaþolar það ekki. Í gær átti að
taka skýrslu af árásarmanninum og
vitnum.
Varð fyrir
líkamsárás
♦♦♦