Morgunblaðið - 05.11.2007, Blaðsíða 32
…ofbeldisfullar bækur
sleppa furðu vel við
umræðina - ef utan er
kannski talin bókin um Tíu
litlu negrastrákana … 36
»
reykjavíkreykjavík
Skálað var ótt og títt fyrir Minnisbókskáldsins Sigurðar Pálssonar í versl-uninni Liborius á laugardagseftir-miðdaginn en kaupmaðurinn á þeim
bæ hyggst fylgja fordæmi kunnra úrvals-
verslana í París sem kynna reglulega sér-
valin bókmenntaverk. Það var því elegant og
sérlega vel til fundið að aðalsmaðurinn Sig-
urður Páls hleypti þeirri nýjung af stokk-
unum enda leitun að öðrum eins heimsborg-
ara og honum. Bókin hans mun eingöngu
fást í Liborius fyrstu vikuna eftir útgáfu en
að því búnu verður henni dreift í bókabúðir
með venjulegum hætti. Sniðugt uppátæki.
Liborius er ein eftirlætisverslana flugu sem
strauk vængjum sínum dreymandi yfir dýr
fötin og svarti liturinn var allsráðandi; dram-
tík og dulúð í aðalhlutverki. Ótalmargar per-
sónur voru mættar í útgáfuveisluna og fittaði
þar best inn Stephan Stephensen úr GusGus,
einnig kallaður President Bongo, með sitt
síða hár og gotneska yfirbragð. Hélt í ör-
stutta stund af hann væri sérhönnuð karl-
mannsgína í búðinni dulmögnuðu en fattaði
svo að hann væri frekar riddari úr hirð Sig-
urðar. Rithöfundurinn Einar Kárasson mætti
kátur með sinni fögru frú og sagði gestum og
gangandi sögur. Skáldið Þórarinn Eldjárn
kom líka og upptekni útgefandinn Jóhann
Páll Valdimarsson stakk inn nefinu til að
taka púlsinn á málum. Fluga tók flugið niður
Laugaveginn þótt hún væri nett hífuð eftir
kampavínið og rak þá öll forvitnu augun sín í
Svavar tískulöggu hárgreiðslumann og Eddu
Hauksdóttur vinkonu hans sem sátu að
snæðingi á veitingahúsinu Tívolí.
... Sexí systur og tvöföld opnun ...
Undirfatabúðin Systur - Lingerie Boutique
opnaði nýja verslun að Laugavegi 70 á föstu-
daginn og mætti rennblaut fluga inn úr hell-
iregninu í opnunarkokkteilinn og fjárfesti í
seiðandi samfellu fyrir kvöldið en þá var tvö-
föld opnun í Listasafni Reykjavíkur –
Hafnarhúsi. Það voru listamennirnir Hreinn
Friðfinnsson og Karlotta Blöndal sem sýndu
verk sín og enn og aftur létu borgarbúar
ekki rigninguna miklu stöðva sig í að mæta á
spennandi viðburði, eins og Haraldur Jóns-
son, myndlistarmaður, leikarinn Eggert Þor-
leifsson og Eggert Pétursson listmálari. Varð
hálf smeyk að skoða verk Karlottu um
miðilsstarf og róaðist ekki við túlkun náttúr-
unnar sem er í veigamiklu hlutverki í verk-
um Hreins sem einkennast annars af draum-
um, þjóðsögum, sjónblekkingum og hinu
yfirnáttúrulega.
Það var hressandi að fljúga aftur út í belj-
andi rigninguna og rokið.
Edda Jónsdóttir og Eggert Pétursson.
Ragnheiður og Silvía Eðvardsdætur,
eigendur verslunarinnar Systur.
Guðný Grendal og Agla Rún Jóhannsdóttir.
Katrín Atladóttir og Sveinn Friðri Sveinsson.
Vinkonurnar Kristín og Sigríður Eyrún.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ægir Jónsson, Jónas Ingi Haraldsson og
Eggert Böðvarsson fóru á tónleika.
Helgi Kristinn Björnsson og Hugi Leifsson.
Malena Þórisdóttir og Sigrún Sif Þorbergs-
dóttir í góðu tónleikastuði.
Mikkel Schmidt og Jeppe Skow.
Kári Árnason og Hjalti Óskarsson.
Flugan
... Aðalsmenn og dökk
dramatík í Liborius ...
... með sitt síða hár og gotneska
yfirbragð ...
Valdís Bjarnadóttir, Þorvaldur S. Þorvalds-
son og Gunnar Ingi Ragnarsson.
Á opnun sýningar Hreins voru þeir Birgir
Snæbjörn Birgisson og Gústaf Óskarsson.
Þorsteinn frá Hamri og Laufey Sigurðar-
dóttir í góðu skapi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gísli Reginn Pétursson og Kolbeinn Hugi
Höskuldsson virtu fyrir sér myndlist.
»Hljómsveitir á borð viðKlístur og Shogun hristu
vel upp í gestum í Austurbæ, á
tónleikum Unglistar 2007.
»Ný undirfataverslun, Syst-ur, var opnuð við Laugaveg.
Nærhöld í öllum regnbogans
litum og af ýmsum gerðum.
» Verk Hreins Friðfinnssonar glöddu listunnendur á opnun íListasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, á föstudagskvöldi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti