Morgunblaðið - 05.11.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2007 15
MENNING
INNKÖLLUN VEGNA RAFRÆNNAR SKRÁNINGAR HLUTABRÉFA
Í PROMENS HF.
Þann 12. nóvember 2007 kl. 9:00, verða hluta-
bréf í Promens hf. tekin til rafrænnar skráningar
hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í samræmi við
ákvörðun stjórnar Promens hf. þar að lútandi. Þar
af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf
félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin
áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við
ákvæði laga og reglugerðar um rafræna eignar-
skráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Promens hf.
tekin til rafrænnar skráningar en þau eru öll í
einum flokki og gefin út á nafn hluthafa.
Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofan-
greindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa
leika á að eignarhald þeirra sé réttilega fært í
hlutaskrá Promens hf. að staðreyna skráning-
una með fyrirspurn til hlutaskrár Promens hf.,
Hlíðasmára 1, 200 Kópavogi eða í netfangið
johannae@promens.is. Komi í ljós við slíka
könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð,
ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart
félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga
takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa,
s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við
fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verð-
bréfafyrirtæki eða sparisjóð sem gert hefur
aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Íslands
hf, fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu
hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er
ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er
vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefur
engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga
viðskipti með hluti sína í félaginu að
undanskildum sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að
fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut
sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo
sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun mun
í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi
hluthafa. Hluthöfum félagsins verður kynnt þetta
bréfleiðis.
Stjórn Promens hf.
SÍÐASTA fimmtudag gafst áheyr-
endum tækifæri á að fá forsmekkinn
af prógrammi sem Sinfóníuhljóm-
sveitin hefur æft fyrir tónleika-
ferðalag í Þýskalandi sem hún heldur
í á næstunni. Hið saklausa prakk-
arastrik, Ísrapp, eftir Atla Heimi
Sveinsson var fyrst á dagskránni.
Þetta vandaða skemmtistykki var
sannfærandi í flutningi hljómsveit-
arinnar, sem klappaði og kallaði á
milli þess sem hún spilaði af krafti og
einbeitingu. Stuttur einleikskafli á
fiðlu var einnig mjög vel heppnaður
hjá Sigrúnu Eðvaldsdóttur. Næst var
Sellókonsert eftir Jón Nordal, þar
sem Bryndís Halla Gylfadóttir lék
einleik. Hreinn og áferðarfagur tónn
Bryndísar Höllu naut sín sérstaklega
vel í þessu tilfinningaþrungna verki
og varð karakterinn í spilamennsku
hennar nærri því áþreifanlegur, líkt
og tónsmíðin væri persónulegt drama
hljóðfærisins sjálfs andspænis hljóm-
sveitinni. Eftir hlé lék hljómsveitin
hina litríku leikhústónlist Carls Niel-
sen, Alladín-svítu, af miklu fjöri undir
líflegri stjórn Rumons Gamba sem
fór hamförum af innlifun. Næst tók
við hin rammíslenska náttúrumynd
Geysir eftir Jón Leifs sem leiddi
áheyrendur aftur á innhverfari braut-
ir, þar sem kraftur náttúrunnar af-
hjúpast í myndrænu tónmálinu. Var
þar með dagskráin komin sem hljóm-
sveitin mun róa með á erlend mið og
er óhætt að segja að við getum verið
stolt af henni sem fulltrúa okkar með
þetta prógramm sem bæði er ágæt-
lega saman sett og frábærlega flutt.
Eftir stutta ræðu frá stjórnandanum
enduðu tónleikarnir á hinu seiðandi
verki Ravels, Bolero, þar sem litróf
hljómsveitarinnar birtist í síend-
urteknu stefinu undir taktfastri sner-
iltrommunni, en slagverksleikarinn
sem lék á hana fékk sérstakt klapp
áhorfenda, sem hann átti fyllilega
skilið fyrir þolinmæði sína og rytm-
ískan stöðugleika.
Landkynn-
ing kynnt
Ólöf Helga Einarsdóttir
TÓNLEIKAR
Sinfóníuhljómsveit Íslands –
Europa Musicale
Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba.
Einleikari: Bryndís Halla Gylfadóttir,
selló. Flutt voru verk eftir Atla Heimi
Sveinsson, Jón Nordal, Carl Nielsen,
Jón Leifs og Maurice Ravel.
Háskólabíó, fimmtudaginn 1. nóvember.
KÓPAVOGSBÆR og Leikfélag
Kópavogs undirrituðu í fyrradag
rekstrar- og samstarfssamning og
tók félagið formlega við nýju hús-
næði undir starfsemina, að Funalind
2. Þetta er fyrsta eiginlega leikhúsið
í Kópavogi sem ætlað er fyrst og
fremst til leiksýninga.
Undir samninginn rituðu Gunnar
Birgisson bæjarstjóri og Gísli Björn
Heimisson, formaður LK, sem sjást
á myndinni takast í hendur að lok-
inni undirritun.
L.K. fagnar 50 ára afmæli í ár. Fé-
lagar í leikfélaginu sýndu atriði við
undirritunina og unglingadeildin
framdi táknrænan gjörning þegar
tekið var við húsinu. Hönnunarvinnu
er að mestu lokið og er stefnt að því
að ljúka breytingum á húsinu þannig
að það henti leikhúsi fyrir áramót.
Stefnt er að því að setja upp fyrstu
leiksýninguna í nýju húsi fljótlega
upp úr því.
L.K. í nýju
húsnæði
www.kopleik.is.
NEMENDUR á þriðja ári í
vöruhönnun við Listaháskóla
Íslands hafa undanfarnar vikur
verið að grandskoða og gera út-
tekt á starfssemi framleiðslu-
fyrirtækja í hverfinu 105 í
Reykjavík.
Hver nemandi valdi sér fyr-
irtæki til að vinna nánar með og
hanna hlut sem er innblásinn
af hverfisstemmningunni í
hverfinu sem tilheyrir 105
póstnúmerinu.
Afrakstur þessarar vinnu má sjá í Málmsteypu
Ámunda Sigurðsson í Skipholti 23 í dag, milli kl.
17 og 20. Aðgangur er ókeypis.
Hönnun
Hönnunarnemar
sýna í málmsteypu
Dagur Óskarsson
hannaði jakkaföt
BYLGJA Dís Gunnarsdóttir
sópransöngkona heldur tón-
leika í Salnum í Kópavogi kl. 20
annað kvöld.
Með henni við píanóið verð-
ur Julia Lynch, en þær hafa
unnið saman við Royal Scottish
Academy of Music and Drama,
þaðan sem Bylgja lauk nýverið
meistaranámi.
Þetta eru fyrstu tónleikar
Bylgju eftir útskrift. Vel
þekktar aríur eftir Puccini, Mascagni og Verdi
verða á dagskrá, m.a, og sönglög eftir Jean Sibe-
lius og Richard Strauss. Tónleikarnir hefjast með
konsertaríu eftir Mozarts. Miðaverð er 2.000 kr.
Söngtónleikar
Bylgja Dís syngur
í Salnum
Bylgja Dís
Gunnarsdóttir
ÚT ER komin hjá Máli og
menningu ljóðabókin Högg-
staður eftir Gerði Kristnýju,
þriðja ljóðabók höfundar. Eins
og í fyrri bókum Gerðar eru
yrkisefnin af ýmsum toga,
rödd ljóðmælanda oft og tíðum
beitt og myndmálið beinskeytt.
Gerður hefur auk bókanna
þriggja birt fjölmörg ljóð í
blöðum og tímaritum, íslensk-
um sem erlendum.
Gerður hefur hlotið margvísleg verðlaun og við-
urkenningar fyrir skrif sín. Kápuhönnun var í
höndum Ingibjargar Magnadóttur og Bjarneyjar
Hinriksdóttur.
Bókmenntir
Þriðja ljóðabók
Gerðar Kristnýjar
Kápumynd
Höggstaðar.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
MÍR, félag um menningartengsl Ís-
lands og Rússlands, afhenti Kvik-
myndasafni Íslands filmusafn sitt
formlega til varðveislu og eignar ný-
lega. Það samanstendur af 1.836
kvikmyndatitlum á 7.461 spólu.
Gunnþóra Halldórsdóttir, safn-
vörður hjá Kvikmyndasafni Íslands,
segir þetta stærstu aðföng sem Kvik-
myndasafninu hafi borist að gjöf.
„Þetta er örugglega með stærri söfn-
um rússneskra mynda í Evrópu og
það geymir mikla menningu,“ segir
Gunnþóra og bætir við að í safninu
liggi mikil verðmæti.
Stór hluti filmusafnsins er kominn
frá sovéska sendiráðinu í Reykjavík á
sínum tíma þar sem til stóð að farga
safninu en MÍR-menn björguðu því
frá glötun.
Árið 2006 þurfti MÍR að rýma hús-
næði sitt við Vatnsstíg. Þeir höfðu því
ekki lengur pláss fyrir filmusafnið og
komu því í vörslu Kvikmyndasafns
Íslands. Áður hafði nokkurt magn
kvikmynda úr safni MÍR verið afhent
Kvikmyndasafninu á árinu 2001.
Kvikmyndirnar er flestar á 35 mm
filmu en einnig er nokkurt magn
þeirra útgefið á 16 mm filmum. Auk
kvikmyndanna afhenti MÍR Kvik-
myndasafninu ýmis tæki, svo sem
sýningarvélar, spóluborð og bækur
um rússneska kvikmyndasögu.
„Filmurnar eru í misjöfnu ástandi,
allt frá því að vera sérlega fínar og yf-
ir í það að hafa ekki varðveist í heild
sinni,“ segir Gunnþóra.
Myndirnar ná yfir langt tímabil,
þær elstu eru frá um 1925 en þær
yngstu frá níunda áratug síðustu ald-
ar. Í safninu er bæði að finna kvik- og
heimildarmyndir. „Flestar eru kvik-
myndirnar sovéskar/rússneskar en
innan um eru áhugaverðar myndir
sem tengjast Íslandi, ýmist af Íslend-
ingum á ferð í Rússlandi eða heimild-
armyndir sem Rússar hafa gert á Ís-
landi. Sumar eru með enskum texta
og aðrar talsettar á íslensku.“
Endurpakkað og skráð
Filmusafn MÍR kom í sautján
áföngum til Kvikmyndasafnsins.
„Fyrsta sendingin kom hingað árið
2004 og sú seinasta 2006 og þá fórum
við að ganga frá þessu, endurpakka
og skrá í gagnagrunn okkar. Við er-
um með landsins stærsta kæliskáp og
þar er búið að koma því fyrir í hillum.
Formleg afhending safnsins var síð-
an í lok október þegar öllum frágangi
var lokið,“ segir Gunnþóra og tekur
fram að það sé ekki algengt að þeim
berist slíkar gjafir í jafnmiklu magni.
„Við höfum fengið nokkuð hundruð
myndir frá sænska filmusafninu og
þegar við fölumst eftir myndum til
sýningar fáum við stundum gefins
eintök og þá helst frá Danmörku.“
Kvikmyndasafnið er með sýningar
í Bæjarbíói tvisvar í viku og má fólk
eiga von á að sjá eitthvað úr rúss-
neska safninu þar. „Við erum einmitt
þessa dagana að skoða ákveðnar
myndir í safninu með það í huga að
setja þær á dagskrá á næsta ári en þá
verður einmitt þrjátíu ára starfs-
afmæli Kvikmyndasafnins.“
Kvikmyndasýningar í MÍR
„Þegar MÍR var stofnað árið 1950
var strax byrjað með útlán kvik-
mynda og kvikmyndasýningar en
það voru samstarfsaðilar félagsins í
Sovétríkjunum sem sáu félaginu fyr-
ir sýningarefni. Þannig áskotnaðist
MÍR tölvert safn af sovéskum kvik-
myndum af margvíslegum toga með
árunum. Um aldamótin 2000 tók fé-
lagið svo við feiknamiklu magni af
filmum frá rússneska sendiráðinu á
Íslandi af sovéskum kvikmyndum.
Við reiknuðum það út þegar við vor-
um að flytja þessar 7.461 spólur á
Kvikmyndasafnið að þær væru sam-
anlagt í vigt um 32 tonn,“ segir Ívar
Jónsson, forstöðumaður MÍR, en
hann beitti sér fyrir því að Kvik-
myndasafnið fengi filmurnar til varð-
veislu.
„Þegar það þótti sýnt að við þyrft-
um að flytja af Vatnsstígnum í hitt-
eðfyrra ákvað félagsstjórnin að
semja við Kvikmyndasafn Íslands
um að það tæki við filmusafninu til
varðveislu en þar eru kjöraðstæður
til geymslu.
Við sýnum samt áfram kvikmynd-
ir á hverjum sunnudegi kl. 15 hér í
húsnæði MÍR, á Hverfisgötu 105.“
Ívar segir að mikil menning-
arverðmæti liggi í filmusafni MÍR og
því líði sér miklu betur að vita af því í
öruggri varðveislu Kvikmyndasafns-
ins.
„Meðal þess sem finna má í safn-
inu eru heimildarmyndir sem eru tal-
settar á íslensku af rússneskum
manni. Hann talaði reiprennandi ís-
lensku en kom aldrei til Íslands.
Framburður hans er samt mjög góð-
ur.“
Gáfu safninu7.461 spólu
Félag um menningartengsl Íslands og Rússlands gefur Kvikmyndasafni Íslands
hátt í tvö þúsund kvikmyndir Stærstu aðföng sem safninu hafa borist að gjöf
Stór gjöf Ívar Jónsson, forstöðumaður MÍR, með spólurnar í bakgrunni.
♦♦♦