Morgunblaðið - 05.11.2007, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
/ ÁLFABAKKA
MICHAEL CLAYTON kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára
MICHAEL CLAYTON kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP
THE GOLDEN AGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára
THE INVASION kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára
THE INVASION kl. 5:30 B.i.16.ára LÚXUS VIP
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
HEARTBREAK KID kl. 8 B.i.12.ára
THE BRAVE ONE kl. 10:30 B.i.16.ára
STARDUST kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10.ára
ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ
SAMbíóin álfAbAkkA og kringlunni
ERU EINU BÍÓIN Á ÍSLANDI SEM BJÓÐA UPP Á
digitAl og 3-d reAl tækni
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
GEORGE CLOONEY LEIKUR LÖGFRÆÐING Í EINUM AF BETRI
„ÞRILLERUM“ SEM SÉST HAFA Á ÞESSU ÁRI.
FLESTIR þekkja persónuna Conan
og flestir tengja hana við ríkisstjór-
ann Arnold Schwarzenegger sem lék
í tveimur myndum um kappann á ní-
unda áratugnum. Örfáir leikir hafa
verið gefnir út um barbarann mikla
en nú þegar leikir á borð við God of
War og Heavenly Sword eru komnir
út er greinilegt að það er markaður
fyrir svona leiki. Ég er nokkuð viss
um að þessi nýi leikur hefði ekki ver-
ið gerður ef ekki væri fyrir God of
War sem á svo aftur uppruna sinn í
hugarheimi Roberts E. Howards,
höfundar Conans. Hins vegar hefur
maður á tilfinningunni að þessum
leik hafi verið flýtt í gegnum fram-
leiðsluferlið og útkoman er sæmileg-
ur hasarleikur sem býður ekki upp á
neitt nýtt, hvorki í spilun né útliti.
Sagan fjallar um Conan að sjálf-
sögðu og leit hans að brynjunni sinni
sem hann týndi þegar hann leysti
forynju úr prísund. Á leið sinni
kynnist hann stríðskvendi nokkru
sem er einnig á höttunum eftir
brynjunni góðu til þess að nota hana
gegn óvinum sem herja á land henn-
ar. Saman höggva þau sér leið í
gegnum herdeildir af sjóræningjum,
stríðsmönnum og villidýrum og
safna um leið bútum úr brynjunni
margumtöluðu. Þetta er allt frekar
einfalt og skýrt og þess vegna verð-
ur leikurinn frekar þreyttur þegar á
líður. Maður gerir lítið annað en að
berja takkana á stýripinnanum og
skilur eftir sig sundurhöggna líkama
á milli þess sem fyrir mann eru lagð-
ar gátur sem reynast svo furðu ein-
faldar og auðleystar. Stjórnun er
auðveld en stundum frekar klaufa-
leg, sérstaklega þegar maður þarf að
stökkva á milli hluta eða í bardag-
anum. Þá kemur á óvart hversu slök
grafíkin er í leiknum. Það er ekkert í
henni sem bendir til þess að þessi
leikur eigi heima á næstu kynslóðar
vél. Hún er klunnaleg á köflum og
það vantar alveg áferð og smáatriði
sem margir PS2-leikir, eins og God
of War 2 t.d., standa sig mun betur í.
Hljóðmyndin er ekkert til þess að
hrópa húrra fyrir, tónlistin er fín en
hljóðbrellur eru máttlausar og sí-
endurteknar. Íslandsvinurinn Ron
Perlman ljær Conan rödd sína en
hún passar eiginlega ekki við útlit og
líkama barbarans.
Conan Sæmilegur hasarleikur sem býður ekki upp á neitt nýtt, hvorki í spilun né útliti.
Ómar Örn Hauksson
TÖLVULEIKIR
PS3
Nihilistic
Conan ÉG HEF verið aðdáandi Crash
Bandicoot-seríunnar frá því
hún byrjaði á fyrstu Playstation-
tölvunni. Fyrstu leikirnir voru allir
mjög góðir en þegar höfundur
seríunnar, Naughty Dog, sneri
sér að öðrum hlutum og aðrir
leikjasmiðir tóku við féll
serían þó nokkuð í gæðum.
Nú hefur Radical Entertain-
ment tekið við stjórninni
og borið á borð besta
Bandicoot-leik sem hef-
ur komið í langan tíma.
Umgjörðinni hefur
samt ekki verið breytt
mikið og í raun er þetta
ósköp venjulegur ævintýraleikur
með nokkrum tilbreytingum til að
hrista upp í forminu.
Enn og aftur er Dr. Cortex með
vesen og rænir ástinni hans Crash.
Hann hefur einnig leyst úr læðingi
skrímsli sem eiga að hjálpa honum
að ná yfirráðum á jörðinni en Crash
reynir hvað hann getur að koma í
veg fyrir það.
Það sem leikurinn breytir í form-
úlunni er hæfileikinn til þess að
fanga þessi skrímsli, klifra á bak
þeim og nota þau til þess að berjast
við stærri og erfiðari andstæðinga
sem maður hefði annars engan
möguleika á að sigra. Það er úr nógu
mörgum skrímslum að velja og öll
hafa þau eitthvað sérstakt upp á að
bjóða þannig að maður þarf að velja
rétt í ákveðnum aðstæðum.
Leikurinn er hraður og skemmti-
legur, stundum erfiður og tilvalinn
fyrir yngri kynslóðina og fullur af
skemmtilegum húmor sem hefur
einkennt þessa seríu.
Stjórnunin er einföld og Wii-
útgáfan notfærir sér ekkert sér-
staklega mikið þráðlausu tæknina
nema í sérstökum hreyfingum hjá
skrímslunum sem maður notar.
Grafíkin er björt og skemmtileg,
með góðri lýsingu og hönnun og
hljóðið er gott og leikarar standa sig
með sóma.
Hressandi innslag í seríu sem hef-
ur vantað smávítamínsprautu í þó
nokkurn tíma.
Ómar Örn Hauksson
Eftir Ómar Örn Hauksson
mori@itn.is
FYRSTI Manhunt-leikurinn
vakti verulega athygli þegar
hann kom fyrst út fyrir
nokkrum árum. Foreldra-
samtök risu upp og for-
dæmdu leikinn vegna ofbeld-
isins sem í honum er að
finna og útgáfa hans hóf
mikla umræðu um áhrif of-
beldisleikja á uppeldi barna.
Framleiðendur leiksins voru
hins vegar hvergi bangnir og
lofuðu meira að segja hrotta-
legri framhaldsleik í kjölfar-
ið. En þá var yfirvöldum í
Bandaríkjunum og Bretlandi
nóg boðið. Manhunt 2 hefur
verið algjörlega bannaður í Bretlandi, þrátt
fyrir þær breytingar sem Rockstar Games
gerði til þess að fá hann í gegn, en hann
hlaut að lokum M-stimpilinn (Mature) í
Bandaríkjunum þar sem hann er nýkominn
út. Sama dag og hann kom út höfðu tölvu-
hakkarar fundið leið til þess að spila leikinn
eins og hann var hannaður í fyrstu og settu
leiðbeiningar á netið. Þó er aðeins um að
ræða útgáfuna á PSP og verður maður einn-
ig að hafa breytta PSP-tölvu til þess að geta
spilað leikinn í sinni upp-
runalegu mynd.
Þetta getur haft
veruleg áhrif á
Rockstar og Take
Two, sem dreifir leiknum,
því ekki aðeins þurfa þeir
að greiða háar sektir held-
ur gæti leikurinn fengið
stimpilinn „aðeins fyrir full-
orðna“ sem þýðir að Sony og
Nintendo munu ekki selja
hann. Umræðan um ofbeldi í
tölvuleikjum kemur
reglulega upp og
sitt sýnist hverj-
um. Tölvuleikja-
framleiðendur
benda hins vegar
á þann tvískinnung að
ofbeldisfullar bækur sleppa furðu vel við um-
ræðuna – ef undan er kannski skilin bókin
um Tíu litlu negrastrákana. Tölvuleikir eða
bíómyndir eru að mati undirritaðs ekki rót
vandans, heldur uppeldið sjálft sem felst í
samskiptum á milli foreldra og barns. Í
það minnsta hefði móðirin í raftækja-
versluninni sem spurði son sinn, að mér
viðstöddum, hvort hann vildi ekki þennan
leik og hélt þá á Grand Theft Auto: San
Andreas, átt að vita betur.
TÖLVULEIKIR»
Hakkaður Manhunt 2
óklipptur á PSP
Óhugnaður Mannaveiðar 2.
Á skrímslum skemmti
ég mér tralalala
TÖLVULEIKIR
Nintendo Wii
Hressandi
Crash
Bandicoot
Crash of the Titans Radical Entertainment
Arnold hvergi
sjáanlegur