Morgunblaðið - 05.11.2007, Page 40
MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 309. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Neyðarlög í Pakistan
Fyrirhugaðar kosningar í Pak-
istan eru nú í uppnámi eftir að Per-
vez Musharraf forseti landsins kom
á neyðarlögum um helgina. Hundruð
stjórnarandstæðinga hafa verið tek-
in höndum og æðsta dómara lands-
ins vikið úr sæti. » 14
Tillaga Íra óásættanleg
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra segir tillögu Íra um
skiptingu yfirráða á Hatton Rockall-
svæðinu óásættanlega. Henni þykir
einnig sérkennilegt að írsk stjórn-
völd hafi ákveðið að greina frá tillög-
unni, þar sem litið sé á fundi
ríkjanna sem trúnaðarmál. » 2
Flúði af flóðasvæðinu
Þórhildur Rán Torfadóttir,
sautján ára gamall skiptinemi í
Mexíkó, slapp ómeidd þegar henni
tókst að flýja frá flóðasvæðunum í
Tabasco-ríki um helgina. » 2 og 14
Engin vernd í lögunum
Enga vernd er að finna í lögum
gegn því að sveitarfélag geti selt
hlut sinn í viðkomandi orkufyrirtæki
til einkafyrirtækis. Þetta sagði Ein-
ar Karl Haraldsson, aðstoðarmaður
Össurar Skarphéðinssonar iðn-
aðarráðherra, á flokksstjórnarfundi
Samfylkingarinnar í gærdag. » 6
SKOÐANIR»
Ljósv.: Af kappklæddum körlum
Staksteinar: Þúsundir milljarða
Forystugreinar: Borgaryfirvöld og
samkeppni | Tímasprengja
UMRÆÐAN»
Um ráðningu erlendra hjúkr-
unarfræðinga á Landspítala
Góð dýna er gulli betri
Handrið til fyrirmyndar
Kaupir Austurstræti 22
Borgartúnið gagnrýnt
FASTEIGNIR»
Heitast 5 °C | Kaldast 0 °C
Norðvestan og vest-
an 5–10 m/s og skýjað
með köflum. Þykknar
upp suðvestantil. Vægt
frost norðaustan. » 10
Hulunni hefur ef til
vill verið svipt af
Banksy. Deilt um
hvort ljósmynd sé af
huldumanninum
fræga. » 35
MYNDLIST»
Ljósmynd af
Banksy?
TÓNLEIKAR»
Jagúar er vel smurð vél
sem hitnar vel. » 33
Þó Radiohead hafi
leyft mönnum að
hala In Rainbows
niður stóð alltaf til
að gefa hana líka út
á geisladiski. »34
TÓNLIST»
Radiohead í
föstu formi
TÖLVULEIKIR»
Klunnalegur Conan
lætur vel að stjórn. »36
FLUGAN»
Ljóðræn list og
aðalsmenn. » 32
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Líkamsárás í sumarbústað
2. Leitað að manni í nótt
3. Vildi fá far með lögreglu til Rvk
4. Hulunni svipt af gullna faraónum
TVEIR félagar úr
Björgunar-
hundasveit Íslands
sem voru að selja
Neyðarkallið til
styrktar Slysa-
varnafélaginu
Landsbjörgu við
Húsasmiðjuna um
helgina voru á rétt-
um stað þegar við-
skiptavinur versl-
unarinnar hneig
niður í anddyrinu. Með hjartahnoði
tókst þeim tvisvar að koma öndun
af stað meðan beðið var eftir
sjúkrabíl.
Vel hefur gengið að selja
Neyðarkallið og hefur sölufólki ver-
ið vel tekið að sögn Ólafar Snæ-
hólm Baldursdóttur, upplýsingafull-
trúa Landsbjargar. Eftir er þó að
taka saman hvað mikið seldist og
skýrist það á næstunni.
Neyðarkall-
ið tryggði
nærveru
KNATTSPYRNUMAÐURINN
Indriði Sigurðsson segist afar
ánægður hjá norska liðinu Lyn og er
það á dagskrá hjá
honum að setjast
niður með for-
ráðamönnum fé-
lagsins og gera
nýjan samning.
Indriði hefur
staðið sig vel hjá
liði Lyn á leiktíð-
inni þrátt fyrir að
glíma við meiðsli,
en hann hefur
fimm sinnum farið úr axlarlið. Hann
segir meiðslin þó ekki há sér.|
Íþróttir
Fimm sinnum
úr axlarlið
Indriði
Sigurðsson
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MEÐAL þess sem framundan er hjá
CCP hf. og tölvuleiknum Eve Online,
sem framleiddur er af fyrirtækinu,
er að tekin verður í notkun ofurtölva
sem keyra mun leikinn í stað hins
mikla fjölda af netþjónum sem nú
hýsa leikinn. Þá munu þeir sem eiga
Apple- eða Linux tölvur geta spilað
leikinn, sem hingað til hefur aðeins
verið hægt að nota á PC tölvum.
Íslenski tölvuleikurinn Eve Online
heldur áfram að stækka nú rúmum
fjórum árum eftir að hann kom fyrst
út og eru notendur hans nú um
200.000, en yfirlýst markmið stjórn-
enda CCP er að íbúar Eve verði fjöl-
mennari en íslenska þjóðin.
Nú um helgina var haldin í fjórða
skipti árleg ráðstefna leikmanna og
aðstandenda leiksins og hafa gestir
aldrei verið fleiri. Alls sótti á annað
þúsund manns ráðstefnuna, sem
haldin var í Laugardalshöll. Nathan
Richardsson, einn hönnuða leiksins,
ræddi um endurbætur á útliti hans
sem ætlunin er að líti dagsins ljós
innan skamms. Mörgum þykir Eve
Online einhver fallegast hannaði
leikur af þessu tagi í heiminum og
hefur hann hlotið fjölda verðlauna
fyrir grafíska hönnun og útlit frá því
að hann kom út um mitt ár 2003.
Sagði Nathan að CCP vildi viðhalda
því orði sem af leiknum færi og passa
upp á að hann héldi áfram stöðu sinni
í fararbroddi þróunar í grafískri
hönnun fjölnotendaleikja.
Þá greindi Hilmar Veigar Péturs-
son, forstjóri CCP, frá áformum fyr-
irtækisins um að koma upp ofur-
tölvu, sem keyra myndi leikinn, og
hefur fyrirtækið unnið náið með
IBM um hönnun tölvunnar. Ekki er
ljóst hvenær tölvan mun líta dagsins
ljós, enda eru kröfur leiks af þessu
tagi aðrar en þær sem venjulega eru
gerðar til ofurtölva. Kom fram í máli
Hilmars að tölvan yrði ein af stærstu
ofurtölvum í Evrópu þegar hún yrði
tekin í gagnið.
Eve Online á ofurtölvu
Að minnsta kosti 700 erlendir gestir sóttu ráðstefnu Eve
Online um helgina, en gestir voru alls á annað þúsund
Í HNOTSKURN
» Þegar Eve Online komfyrst út árið 2003 námu
notendur hans nokkrum tug-
um þúsunda.
» Ólíkt því sem gerist meðflesta leiki af þessari gerð
hefur notendum fjölgað stöð-
ugt og eru þeir nú um 200.000.
» Meðalaldur leikmanna ereinnig hár miðað við aðra
leiki, eða 27 ár.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Ný vél Nathan Richardsson kynnti á ráðstefnunni nýja grafíkvél leiksins Eve Online, sem þegar hefur hlotið fjölda
verðlauna fyrir grafíska hönnun. Eins og ætla mátti voru viðbrögð áhorfenda mjög góð þegar vélin var kynnt.
♦♦♦
ÞEGAR litið var yfir hóp þeirra sem sátu ráðstefnu Eve
Online þá var það einkum tvennt sem vakti athygli
blaðamanns. Annað var það hve fjölbreyttur hópurinn
er. Þrátt fyrir að meirihluti gesta væri karlmenn var
einnig nokkuð um kvenfólk á ráðstefnunni. Þá var
einnig athyglisvert að sjá fólk á fimmtugs- og sextugs-
aldri skemmta sér með félögum sínum úr leiknum þótt
yngri væru. Þá var áhugavert að sjá að leikurinn er
greinilega þannig hannaður að jafnvel þeir sem þurfa
að kljást við alvarlega líkamlega fötlun geta notið þess
að spila hann í góðra vina hópi. Það hlýtur að vera
þeim einkar dýrmætt.
Fjölbreyttur hópur leikmanna í EveMARÍA Kristjánsdóttir segir í
dómi sínum um leikritið Ökutíma
að þar hafi íslenskt leikhús stigið
feti framar en aðrir í umfjöllun
sinni um eitt viðkvæmasta sam-
félagsvandamál nútímans, sifja-
spell. Fyrir það eitt megi stjörn-
um rigna yfir sýninguna.
Tónlistarkonan Lay Low sé eins
og seiðkona í sýningunni og
skyggi á aðalleikarana með und-
urfögrum söng sínum. Allt
blómstri í höndum Leikfélags Ak-
ureyrar. 39
Stigið feti
framar
♦♦♦