Morgunblaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 16
$ % &
!
()& ()%&
()% ()$&
()$ ()&
() ()&
() ()&
() *
)
MIKLAR sveiflur einkenndu við-
skipti í Kauphöll OMX á Íslandi í
gær. Hófst dagurinn með mikilli
lækkun á gengi hlutabréfa en
skömmu eftir lækkunarhrinuna í
upphafi dags sneri þróunin þó svo að
segja við á punktinum og var útlitið
allt annað aðeins klukkutíma eftir að
markaður var opnaður. Lokastaðan
varð sú að úrvalsvísitalan hafði
hækkað lítillega við lok viðskipta frá
lokagildi hennar í gær eða um 0,15%.
Í Hálffimmfréttum greiningar-
deildar Kaupþings segir að ástæðu
sveiflnanna í gær megi rekja til nei-
kvæðra frétta frá helstu fjármálafyr-
irtækjum heims vegna lausafjár-
þurrðar þeirrar sem fylgir
undirmálslánakrísunni. Ástæðu
hinnar tímabundnu hækkunar stuttu
eftir opnun markaða hérlendis megi
þó helst rekja til innkomu fjöl-
margra fjárfesta sem töldu sig eygja
kauptækifæri á markaði í kjölfar
lækkananna sem áður höfðu gengið
yfir, sérstaklega síðastliðna daga.
Miklar sveiflur í viðskiptum
með hlutabréf í Kauphöll
Lausafjárþurrð erlendis heldur áfram
að hafa áhrif á hlutabréfamarkaði
16 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● HLUTABRÉF hækkuðu lítillega í
verði í Kauphöll Íslands í gær. Úr-
valsvísitalan hækkaði um 0,15% og
var 7301 stig við lokun markaða.
Bréf Century Aluminium hækkuðu
um 4,09%, bréf Icelandair um
3,59% og bréf Exista um 3,12%. Bréf
365 lækkuðu um 2,52% og bréf
Föroya Banka um 1,4%.
Krónan veiktist um 1,27% í gær
samkvæmt upplýsingum frá Glitni,
en velta á millibankamarkaði nam
um 44,9 milljörðum. Gengi Banda-
ríkjadals er nú 59,54 kr., gengi evru
er 87,49 kr. og pundið kostar nú
125,55 kr.
Krónan veikist
● STJÓRN Seðla-
banka Evrópu
ákvað á fundi sín-
um í gær að halda
stýrivöxtum bank-
ans óbreyttum í
4%. Var það í takt
við væntingar
markaðarins.
Þá ákvað stjórn
Englandsbanka
að halda stýri-
vöxtum bankans óbreyttum í 5,75%
þrátt fyrir þrýsting um að lækka
vexti. Flestir greiningaraðilar höfðu
spáð því að Englandsbanki myndi
halda vöxtum óbreyttum þrátt fyrir
vísbendingar um lækkun á fast-
eignamarkaði og minni neyslu al-
mennings.
Stýrivextir Englandsbanka hafa
verið óbreyttir frá því í júlí en þá
hækkaði bankinn vexti um 0,25%.
Var það fimmta stýrivaxtahækkun
bankans á einu ári. Margir gera ráð
fyrir því að bankinn muni lækka stýri-
vexti um mitt næsta ár um 0,50%.
Óbreyttir vextir í
Evrópu og Bretlandi
● RIO Tinto hefur hafnað tilboði frá
keppinauti sínum á ál- og námumark-
aði, BHP Billiton. Er tilboðið sagt
hafa verið þriðjungi yfir markaðsvirði
en Rio Tinto talið það vera of lágt.
Við fregnina ruku bréf Rio Tinto upp í
verði um 20% en bréf BHP lækkuðu
lítillega. Rio Tinto er sem kunnugt er
langt komið með yfirtöku á Alcan,
móðurfélagi álversins í Straumsvík,
og hefur eignast um 95% hlutafjár.
Í frétt á vef Financial Times í gær
kemur fram að þrátt fyrir höfnun Rio
Tinto muni BHP Billiton sýna fyr-
irtækinu áhuga áfram. Ef samruni
gengi eftir yrði það stærsta yfirtaka
sögunnar en samanlögð velta þeirra
er um 380 milljarðar dollara, eða
22.800 milljarðar króna. Fyrir fjórum
árum voru þreifingar um samruna fyr-
irtækjanna en því var hafnað af BHP
Billiton. Nú hafa nýir stjórnendur tek-
ið við í fyrirtækjunum, sem bæði eru
að hluta áströlsk.
Rio Tinto hafnar til-
boði frá BHP Billiton
félagið Kaupþing banki sé með end-
urfjármögnunarþörf á næsta ári upp
á 1,7 milljarða evra. Það segir hann
að geti ekki talist mikið og verði ekki
allt í einu.
„NIBC er með laust fé og verðbréf
í efnahagsreikningi, sem hægt er að
veðsetja hjá evrópska seðlabankan-
um, sem dugar NIBC í yfir 500
daga,“ segir Sigurður.
„Stefnt er að því að ganga frá
samningi um kaupin á NIBC í kring-
um áramót og að í kjölfarið verði far-
ið í hlutafjárútboð.“
Eftir yfirtökuna á NIBC verður
Kaupþing banki með 100 milljarða
evra í efnahag.
Lausafjárstaða Kaup-
þings sögð prýðileg
„Skuldatryggingarálagið mun lækka þegar menn átta sig“
NIBC Sigurður Einarsson, lengst til hægri, ásamt Hreiðari Má Sigurðssyni
þegar kaupin á hollenska bankanum NIBC voru kynnt fyrr á árinu.
Eftir Soffíu Haraldsdóttur
soffia@mbl.is
LAUSAFJÁRSTAÐA Kaupþings er
prýðileg, að sögn Sigurðar Einars-
sonar, stjórnarformanns bankans.
„Við áttum okkur ekki alveg á því
hvers vegna skuldatryggingarálag á
Kaupþing er svo hátt sem raun ber
vitni,“ segir hann og sér fyrir sér
lækkun álagsins þegar menn fari að
átta sig á hver raunveruleikinn er.
Hann segir vangaveltur grein-
ingadeilda bankanna síðustu daga
um óvissu tengda fjármögnun Kaup-
þings einfaldlega vera rangar.
„Þetta mun jafna sig þegar kemur
í ljós að staða bankans varðandi laust
fé er mjög góð. Það er engin ástæða
fyrir okkur til að fara út á þennan
markað eins og sakir standa,“ segir
Sigurður. Hann minnir á að fram
hafi komið að fyrir hollenska bank-
ann NIBC verði greiddir tæpir 3
milljarðar evra. Þar af muni seljand-
inn J.C. Flowers fá um helming
kaupverðsins greiddan með hluta-
bréfum í Kaupþingi.
„Síðan mun bankinn fara í hluta-
fjárútgáfu með forkaupsrétti til nú-
verandi hluthafa. Það er ekki end-
anlega ákveðið hversu mikið það
verður en væntanlega verður það á
bilinu 50 til 100 milljónir hluta, sem
svarar þá til 800-1.600 milljóna evra.
Ef þetta verður raunin þá er nær öll
fjármögnun NIBC gerð með eigin
fé.“ Sigurður bætir við að móður-
Í HNOTSKURN
» Greiningardeild Lands-bankans segir fáar aðrar
skýringar á hækkandi skulda-
tryggingaálagi Kaupþings en
kaup hans á NIBC.
» Fylgni hafi verið á milliálags íslensku bankanna,
en það hafi nú hækkað hjá
Kaupþingi umfram hina tvo.
» Erfitt sé hins vegar aðfullyrða hvort hækkun hjá
Kaupþingi hafi dregið álag
hinna bankanna uppi.
FYRSTU viðbrögð breska bankans
Close Brothers Group við yfirtöku-
tilboði Landsbankans og samstarfs-
aðila hans, Cenkos Securities, frá því
í gær upp á 1,4 milljarða punda í
reiðufé, andvirði um 173 milljarða
króna voru að hafna því. Var tilboðið
um 25% yfir markaðsvirði bankans
þegar það var gert, en í gær hækkaði
gengi bréfa Close Brothers um 21%.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er líklegt að framvinda
málsins muni skýrast fyrir lok næstu
viku, en ekki sé víst að Landsbank-
inn muni hækka tilboð sitt, enda telji
bankinn að tilboðið sé sanngjarnt og
að hluthafar Close Brothers séu al-
mennt hlynntir því.
Á fréttavef Bloomberg kemur
fram að tilboð Landsbankans og
Cenkos hljóði upp á 950 pens á hlut
en stjórnendur Close Brothers hafi í
fyrstu atrennu hafnað tilboðinu á
þeirri forsendu að það sé of lágt og
því muni bankinn, sem er 129 ára
gamall, ekki fara í viðræður við til-
boðsgjafana á þessum grundvelli.
Möguleg samlegðaráhrif
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ætlun Landsbankans og
Cenkos að skipta bankanum upp og
muni viðskiptabankahlutinn renna
til Landsbankans. Viðskiptabanka-
hluti Close Brothers sé traustur og
með jákvætt hlutfall innlána á móti
útlánum, með um 2,3 milljarða
punda í innlán á móti tveimur millj-
örðum í útlán. Viðbót hans við
Landsbankasamstæðuna myndi því
bæta lausafjárstöðu Landsbankans.
Þá sé möguleiki á samlegðaráhrifum
við Heritable-bankann, sem er í eigu
Landsbankans, en Heritable og
Close Brothers eru í mjög svipuðum
rekstri.
Að sögn Halldórs J. Kristjánsson-
ar, bankastjóra Landsbankans, get-
ur hann ekki tjáð sig frekar um málið
en fram kemur í opinberum upplýs-
ingum bankans. Ekki fékkst uppgef-
ið hjá Halldóri hvort Landsbankinn
og Cenko muni hækka tilboðið í
Close Brothers.
Yfirtökutilboðinu hafnað í bili
Framvinda yfirtöku Landsbankans á Close Brothers skýrist fyrir lok næstu viku
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eign Landsbankinn vill eignast við-
skiptabankahluta Close Brothers.
EKKI er hægt að segja að hækk-
unin á skuldatryggingarálagi
Kaupþings banka sé einstök eða
sérstök, enda tímarnir sérstakir að
því leyti hvernig markaðurinn hef-
ur litið á bankageirann í heild um
alla Evrópu og í Bandaríkjunum á
undanförnum dögum.
Þetta segir Nigel Myer, sérfræð-
ingur á greiningardeild þýska
bankans Dresdner Kleinwort.
„Kaupþing fær ekki öðruvísi
meðferð en aðrir bankar. Þannig að
þetta snýst um heila atvinnugrein
en ekki einstök fyrirtæki. Skulda-
tryggingarálag hefur hækkað og er
víða mjög hátt á banka,“ segir
Myer.
Aðspurður segir Myer að skulda-
tryggingarálag á bilinu 1% til 2% sé
kannnski ekki beinlínis algengt.
„En það verður að horfa til þess að
álagið á íslensku bankana hefur
verið hærra - og ef til vill hærra en
það ætti að vera - í langan tíma eða
hartnær tvö ár. Þegar horft er á
málin í því ljósi er ekki hægt að
segja að hlutfallslega staða þeirra
hafi breyst mjög mikið. Og auðvitað
verða menn að hafa í huga að
Kaupþing hefur keypt NIBC þann-
ig að skuldatryggingarálagstöl-
urnar á Kaupþing koma mér á eng-
an hátt á óvart miðað við stöðuna
almennt á mörkuðum.“
Trygginga-
álagið kemur
ekki á óvart
& ' $($$')*+,
-# #.//0
"#$
&'()'
)'(*'
+,(*'
++(-'
+-(+'
.,(-'
+.(&'
,)/(''
/'()'
&*(''
)(-/
&'+(''
+(.+
)(+,
++),(''
)/'(''
&(&)
+&/(''
-(*&
,*(+'
+.(*'
&.()'
/*(''
0(-'
./.-(''
&&(+'
)(-'
+
,
- .
"
/
" 0
*1.2
%')3$)%3
)4')'%)$ )4&)$&)'%
)$)%')4((
$)$')33)('
$)4$)4&4
3')$)$ %))3)'%
)'%')44$)$ )3)()$&
$4)'3)'&
3)4($)$ )$&) ')&%3)$$&
()3)4&'
')4()(33
()% )()& )3&&)&%
$)'')43
3)& 4)'')($
,
,
$)3&) ,
,
&4
'$
4&
$
& $4&
3
4' %%
'4&
'%4
&
$
' '$3 4 &'&
4( $ $&&
,
,
$% ,
,
'
' 4(
&
& $4(
$ 4'% % ( '&(
$ $$
'$
'4 '% % &(
43 $(
$'
%( ,
$% '&
!
- .
&'
&'
&
$
$ 43
%(
(
$%
4
&
$
(
4%
,
,
,
,
5" "
- )-
3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) 3) ') )3) 3) 3) ) %&' & 6
7
1.8)
9-7
1.8)
: 8)
;7
1.8)
7
8)
+) .<
"=
>?
7
1.8)
*1." 8)
; =
8)
211,91 !) )8)
/ 8)
@ 18)
()%*+,
$'&8)
6
?8)
6
?A
1AB
9
"7
1.8)
C
9
>?
?7
1.8)
D
8)
E8!8)
2AFG
/ """ 8)
H
1 8)
-.+/0
I1 6
11I
)
+978)
+. !8)
GDJ GDJ /,0
&1&/-
2'(0
2'(/
K
K
GDJ 49J
.1+,+
//'
2&(.
2'(&
K
K
5
LM
N
&.1+)-
+1),)
2'(.
2&(,
K
K
/2
56J
)1.0+
*10&,
2'(&
3'(.
K
K
GDJ GDJ-%
*1.'&
&1./'
3'(+
2&()
K
K