Morgunblaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT AUNG San Suu Kyi, leiðtogi lýð- ræðisaflanna í Búrma, er reiðubúin til að eiga viðræður við fulltrúa herforingjastjórnarinnar í landinu. Þessu lýsti hún yfir í gær en skömmu áður en ákvörðun hennar var gerð lýðum ljós höfðu herfor- ingjarnir tilkynnt að Suu Kyi myndi fá að hitta pólitíska banda- menn sína í Lýðræðisbandalaginu í dag, föstudag, í fyrsta sinn í þrjú ár. Suu Kyi, sem er handhafi frið- arverðlauna Nóbels, hefur sem kunnugt er verið haldið í stofufang- elsi í tólf af sl. átján árum. Stjórn- málaafl hennar bar sigur úr býtum í síðustu frjálsu kosningunum í Búrma árið 1990 en herforingj- arnir komu í veg fyrir að hún gæti tekið við valda- taumunum þá. Það var Ibra- him Gambari, er- indreki Samein- uðu þjóðanna, sem las upp yf- irlýsingu Suu Kyi fyrir fréttamenn við komuna til Singapúr en Gamb- ari var þá nýkominn af fundi með Suu Kyi. Þetta var önnur heimsókn Gambaris til Búrma eftir að herfor- ingjastjórnin barði niður öldu óeirða í landinu í september. Suu Kyi tilbúin til viðræðna við herforingjastjórnina Aung San Suu Kyi ÞEGAR kona sveiflar mjöðmunum á kynþokkafullan hátt og hefur gott bil milli hnjánna er ekki um að ræða ómeðvituð skilaboð til karla um að hún sé á frjósemistímabili og því til í tuskið, að sögn vefsíðu BBC. Þetta er niðurstaða vísindamanna í Ontario í Kanada sem sér til furðu komust að því að konur sem þannig gengu voru fjær egglosi en konur sem sýna meiri hlédrægni. Líklegt sé að hinar síðarnefndu séu að reyna að leyna því fyrir öðrum körlum en makanum að þær séu frjósamar, þannig komist þær frek- ar hjá kynferðislegri áreitni. Alls engin viðreynsla Mjaðmasveiflur Misskilin skilaboð kvenna til karlanna. Reuters Í HNOTSKURN »Musharraf er hershöfðingiog lét þingið nýlega kjósa sig forseta gegn því að lofa að hætta sem yfirmaður hersins. Hann segir neyðarlögin hafa verið óhjákvæmileg vegna hættu á upplausn. »Um 160 milljónir mannabúa í Pakistan, langflestir eru múslímar. Herinn hefur oftast ráðið ríkjum í landinu frá því að það hlaut sjálfstæði frá Bretum 1947. Islamabad. AFP. | Forseti Pakist- ans, Pervez Mus- harraf, hét því í gær að þingkosn- ingar yrðu haldn- ar fyrir 15. febr- úar en forsetinn setti fyrir skömmu neyðar- lög. Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráð- herra, sagði loforð forsetans „óljóst“ og ófullnægjandi. Bandaríkjastjórn lýsti hins vegar ánægju með að hann skyldi hafa ákveðið dagsetningu kosninganna og hvatti hann til að taka frekari skref í átt til lýðræðis. Musharraf rændi völdum árið 1999. Sjálfsmorðssprengjumenn hafa komið sér fyrir í borginni Rawalp- indi, að sögn lögreglunnar í Pakistan í gær. Bhutto, sem nýlega sneri heim úr útlegð, hyggst í dag efna til fjölda- mótmæla í Rawalpindi gegn neyðar- lögunum. Lögreglan segist hafa var- að hana við því að „mjög alvarleg hætta“ stafi af umræddum sprengju- mönnum. Alls létu 139 lífið í sjálfs- morðstilræði þegar Bhutto sneri heim í október. Heitir þingkosningum fyrir miðjan febrúar Pervez Musharraf STÚLKA í Tbilisi strunsar framhjá hópi hermanna í miðborginni í gær en Mikhail Saakashvili forseti setti neyðarlög á miðvikudag vegna fjölmennra mótmæla stjórnarandstæðinga síðustu daga en þeir saka hann um spillingu og mannréttindabrot. Forsetinn skýrði frá því í gær að forsetakosningum, sem áttu að verða næsta haust, yrði flýtt, þær yrðu 5. janúar. Ein af kröf- um mótmælenda var að kosningunum yrði flýtt. Reuters Saakashvili flýtir kosningum Palatka. AP. | Reshane Lewis var ekki ánægð og svitinn spratt fram á andliti hennar þegar hún gekk í hringi fyrir utan dómhús í Palatka í Flórída og hélt á skilti með áletruninni: „Ég stal úr verslun í bænum“. Lewis gekk þarna í tvær klukkustundir í brennandi sól- skini. Skilorðseftirlitsmaður fylgdist með henni og flestir vegfarendanna létu sem þeir sæju hana ekki. „Þetta er betra en að fara í fangelsi, en þetta er ekki sann- gjarnt,“ sagði Lewis, sem kvaðst hafa verið handtekin í verslun Wal-Mart í desember fyrir að aðstoða vinkonu sína að stela barnafötum. Dómarinn Peter Miller í Put- nam-sýslu hefur dæmt Lewis og yfir 600 aðra til að bera skilti fyrir utan dómhúsið eða versl- anir á síðustu tólf árum. Er þetta liður í refsingum sem hann hefur lagt við búðarhnupli. Miller er á meðal nokkurra dómara í Bandaríkjunum sem telja að óvenjulegar refsingar, yfirleitt einhvers konar iðrun eða auðmýking á almannafæri, hafi tilætluð áhrif. Fyrirtæki sem annast framkvæmd skilorðsdóma í Putnam- sýslu segir að aðeins þrír af þeim rúmlega 600, sem Miller hefur dæmt til að bera skilti á almannafæri, hafi verið dæmdir fyrir þjófnað aft- ur. „Ef menn sjá einhvern ganga fram og til baka fyrir utan versl- un þá hugsa þeir sig ef til vill tvisvar um áður en þeir stela. Ég ætla ekki að halda því fram að þetta komi í veg fyrir þjófn- aði en þetta verður til þess að sá sem gerir þetta endurtekur það ekki,“ sagði dómarinn. Þjófarnir geta valið á milli eins til tveggja mánaða fangelsisvistar og tveggja klukkustunda auðmýk- ingar. Þeir sem velja síðari kost- inn þurfa einnig að greiða 294 dollara, sem svarar tæpum 18.000 krónum, í sekt og inna af hendi 25 klukkustunda sam- félagsþjónustu á hálfs árs skil- orðstíma. Miller er ekki eini dómarinn sem hefur getið sér orð fyrir hugvitssamlegar refsingar. Nokkrir unglingar, sem köll- uðu lögregluþjóna í Ohio „svín“, voru dæmdir til að standa á götuhorni með svíni og halda á skilti með áletruninni: „Þetta er ekki lögreglumaður“. Dómari í Harris-sýslu í Texas dæmdi mann, sem hafði slegið konu sína, til að fara á jóga-námskeið til að læra að hafa stjórn á skapi sínu. Óvenjulegir refsidómar sagðir gefa góða raun AP Refsing Reshane Lewis afplánar dóm fyrir búðarhnupl í Putnam-sýslu í Flórída. Dalvegi 10-14 • Sími 577 1170 Innrettingar Þi´n vero¨ld X E IN N IX 0 7 10 0 25 Hver á Norðurpólinn? Málstofa um réttarstöðu Norður-Íshafsins Þjóðmenningarhúsinu föstudaginn 9. nóvember kl. 11-14. Dagskrá: 11.00 Ávarp Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. 11.15 Ron Macnab, meðlimur Norðurskautsnefndar Kanada: The Central Arctic Ocean - Shrinking Ice and Expanding Jurisdiction. 11.45 Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar: Fiskveiðar á norðurslóð við breyttar aðstæður. 12.15 Veitingar í boði Hafréttarstofnunar Íslands. 13.00 Douglas Brubaker, Fridtjof Nansen-stofnuninni: The Northern Sea Routes - Legal Considerations. 13.30 Pallborðsumræður og fyrirspurnir. Þátttakandi ásamt frummælendum: Trausti Valsson, prófessor í skipulagsfræði við Háskóla Íslands. 14.00 Slit. Málstofustjóri: Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur í utanríkisráðuneytinu, forstöðumaður Hafréttarstofnunar Íslands. Málstofan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir. m b l 9 30 68 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.