Morgunblaðið - 11.12.2007, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
BÓKAÚTGÁFAN Salka býð-
ur til spennandi bókakvölds á
Súfistanum í kvöld. Þar verða
kynntar þrjár bækur; Eldaðu
maður, eftir Thomas Möller,
matreiðslubók sem kemur
karlmönnunum á bak við elda-
vélina, Talað út um lífið og til-
veruna þar sem Jónína Leós-
dóttir fjallar í léttum dúr um
ýmsar hliðar mannlegra sam-
skipta og að lokum verður bók-
in Maður gengur með, eftir Darra Johansen
kynnt, en hún segir frá níu mikilvægum mán-
uðum. Bókakvöldið verður í verslun Máls og
menningar á Laugavegi 18 og hefst kl. 20.
Bókmenntir
Salka býður
til bókakvölds
Jónína
Leósdóttir
HEIMILDARMYND um
norska tónskáldið Edvard
Grieg verður sýnd í kvöld og
annað kvöld kl. 21 í Ríkissjón-
varpinu, en liðin er öld frá láti
hans. Í myndinni er píanósnill-
ingnum Leif Ove Andsnes fylgt
eftir þar sem hann fetar í fót-
spor tónskáldsins, Andsnes
býr sig undir að leika meist-
araverk Griegs. Honum finnst
hann verða að skilja hvernig
maður hann var til að geta leikið verkið; Ballöðu í
g-moll. Það vakti mikla athygli þegar þessi mynd
var gerð að konsertflygill var fluttur með þyrlu
upp á fjallsbrún svo að Andsnes gæti leikið þar.
Kvikmyndir
Meistaraverk
Edvards Griegs
Leikur á
fjallsbrún.
Á MORGUN, miðvikudaginn
12. desember, verða haldnir
tónleikar á vegum jazzklúbbs-
ins Múlans á DOMO bar í
Þingholtsstræti.
Að þessu sinni munu saxó-
fónleikarnir Haukur Gröndal
og Óskar Guðjónsson leiða
hljómsveit í sameiningu. Með-
leikarar þeirra eru bassaleik-
arinn Valdimar Kolbeinn Sig-
urjónsson og trymbillinn Scott
McLemore. Efnisskráin verður samansett af nýj-
um og nýlegum tónsmíðum þeirra félaga.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og kostar 1000 kr.
inn.
Tónlist
Tveir saxófón-
leikarar á DOMO
Óskar Guðjónsson
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
TÓNLISTARHÓPURINN Caput
heldur þrenna tónleika á Meridian-
tónlistarhátíðinni í Búkarest í Rúm-
eníu í næstu viku. Víkingur Heiðar
Ólafsson píanóleikari og Ingibjörg
Guðjónsdóttir söngkona koma fram
með hópnum. Kolbeinn Bjarnason
flautuleikari heldur einleikstónleika
en stjórnandi verður Guðmundur
Óli Gunnarsson.
Fimm íslensk verk verða flutt á
tónleikunum og fimm rúmensk. Eitt
hinna rúmensku verður frumflutt,
„Fjord“, níu mínútna verk eftir
Sorin Lerescu. Tónskáldið Doinu
Rotaru skrifað verk fyrir Kolbein
og Caput sem flutt verður á tón-
leikunum, en sömu verk voru frum-
flutt í Skálholti í fyrra og eru nú
frumflutt í Rúmeníu, þ.e. á hátíð-
inni.
Íslenskt rapp
Guðmundur Óli, stjórnandi Caput
á hátíðinni, segir efnisskrá tón-
leikanna vera nokkuð blandaða. Pí-
anóleikarinn ungi, Víkingur Heiðar,
muni auk þess fljúga frá New York
til að leika í Búkarest.
„Meðlimir úr hópnum hafa farið
áður til Rúmeníu,“ segir Guð-
mundur um hin rúmensku tengsl.
Eitt verk á efnisskránni vekur for-
vitni blaðamanns sökum titils, „Ís-
lenskt rapp“ eftir Atla Heimi
Sveinsson. „Mozart hefði kallað
þetta divertimento, þetta er bara
skemmtimúsík,“ segir Guðmundur.
Atli Heimir blandi saman íslenskum
þjóðlagaeinkennum og láti meðlimi
hópsins og stjórnanda fara með
allskyns vísur, rappa og syngja.
Flutt verður íslensk og rúmensk
tónlist, samin á síðustu árum. „Það
má segja að þetta sé býsna fjöl-
breytilegt, bæði styttri verk og
lengri verk,“ segir Guðmundur.
Engin jólalög
„Þetta er náttúrlega svona „hard-
core“ nútímatónlist, þetta eru ekki
jólalögin leikin og sungin.“ Tónlist
af öllum toga úr geira nútíma-
tónlistar, sem sagt. „Misjafnlega
auðgrípanleg tónlist. Stærstu ís-
lensku verkin sem við flytjum eru
þættir úr óperu eftir Hauk Tóm-
asson, Fjórða söng Guðrúnar, þar
sem Ingibjörg Guðjónsdóttir syng-
ur einsöng með okkur. Þessi ópera
er það verk sem Haukur hlaut Tón-
skáldaverðlaun Norðurlandaráðs
fyrir, fyrir tveimur árum síðan. Hitt
aðalverkið er píanókonsert eftir
Snorra Sigfús Birgisson sem hann
samdi fyrir Caput og Víking Heiðar
Ólafsson píanósnilling, sem er nú að
klára sitt píanónám í New York.“
Caput hefur leikinn á hátíðinni í
dag með einleikstónleikum Kolbeins
Bjarnasonar. Á morgun,12. desem-
ber, flytur hópurinn m.a. verk Ás-
kels Mássonar, Elju. Eftir hlé verð-
ur verkið Fjord eftir Sorin Lerescu
flutt og svo þættir úr óperu Hauks,
sem fyrr var getið. 14. desember, á
lokadegi hátíðarinnar, verður meðal
verka íslenskt rapp Atla Heimis og
Víkingur Heiðar leikur píanókons-
ert nr. 2 eftir Snorra S. Birgisson.
Caput-hópurinn heldur þrenna tónleika á Meridian-tónlistarhátíðinni í Rúmeníu
Rappað fyrir Atla Heimi
Snorri Sigfús Birgisson með Víkingi Heiðari Ólafssyni í Salnum í Kópavogi
í október í fyrra, við æfingar á Píanókonserti nr. 2 eftir Snorra með Caput-
hópnum. Víkingur flytur verkið með Caput í Búkarest á föstudaginn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá Kópavogi til Búkarest
EINAR Kárason
rithöfundur fær
heldur betur
mikla og já-
kvæða umfjöllun
í nýjasta tölu-
blaði þýska bók-
mennta-
tímaritsins
Literaturen, sem
ku vera það
þekktasta þar í
landi. Í tímaritinu er átta síðna um-
fjöllun um Einar með fjölda ljós-
mynda frá Íslandi.
Rithöfundaferill Einars er rakinn
í þaula, fjallað um öll hans verk og
lof borið á hann af blaðamanninum
Renate Klett. Fyrirsögn grein-
arinnar er Auf der Insel der Ge-
schictenerzähler, eða Frá eyju
sögumannsins, og er Einar kallaður
„höfundur hins nýja Íslands“ á for-
síðu tímaritsins. Klett virðist sér-
staklega hrifin af bókunum Stormi
og Óvinafagnaði og segir Einar
standa föstum fótum í íslenskri
sagnahefð þótt nútímalegur sagna-
þulur sé. Reyndar hefst grein Klett
á þeim orðum að Íslendingar eigi
þrjú met sem þeir séu stoltir af, þ.e.
þeir drekki mest allra þjóða af
kóki, eigi fleiri bíla og tölvur að
meðaltali á hvert heimili en aðrar
þjóðir og lesi einnig mest allra.
Ýtarlega
fjallað um
verk Einars
Sagður „höfundur
hins nýja Íslands“
Einar Nútímalegur
sögumaður.
DORIS Lessing, Nóbelsverðlauna-
hafi í bókmenntum, varaði fólk við
grunnhyggni netheima í ræðu sem
sýnd var á myndbandi við afhend-
ingu verðlaunanna í gær. Netið
hefði táldregið heila kynslóð, stað-
an væri orðin sú að fólk læsi ekkert
og vissi ekkert um heiminn.
Lessing gat ekki flogið til Stokk-
hólms í gær til að taka við Nób-
elsverðlaunum og voru þau því af-
hent henni í London. Lessing sagði
heiminn alltaf myndu þurfa á sög-
um og sögumönnum að halda.
Menningin væri sundurlaus (þá lík-
lega vestræn menning) og skyn-
samasta fólk væri jafnvel farið að
blogga heilu dagana, fast á netinu.
Þá vorkennir Lessing ungum rit-
höfundum, þeir séu dæmdir af útlit-
inu frekar en hæfileikum sínum.
Lessing gagn-
rýnin á netið
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÓPERUHÚSIÐ í Tulsa í Oklahoma
í Bandaríkjunum er eitt af stærri óp-
eruhúsum þar vestra, þykir mjög
gott, og tekur um 2.500 manns í sæti,
eða næstum þrefaldan stóra salinn í
Háskólabíói. Nú í október var 60 ára
afmæli Tulsaóperunnar fagnað með
mikilli viðhöfn og öllu til tjaldað til
að gera afmælishátíðina sem best úr
garði. Hæst bar sýningu á óperunni
Toscu eftir Puccini en þar var Jó-
hann Friðgeir Valdimarsson í aðal-
hlutverki, söng hlutverk listmál-
arans Cavaradossis. Einvalalið
yngri úrvalssöngvara á alþjóðlegan
mælikvarða söng í uppfærslunni,
Isabella Mederi frá Serbíu var í
hlutverki Toscu og Peter Lindskoog
frá Orange í Kaliforníu var í hlut-
verki illmennisins Scarpia. Hljóm-
sveitarstjóri var Carol J. Crawford
og leikstjóri Robert Swedberg, bæði
þekktir stjórnendur í Bandaríkj-
unum.
Þrjár sýningar voru á óperunni,
og þótti uppsetningin sérlega glæsi-
leg. Áhorfendur fögnuðu mikið og
innilega í frumsýningarlok, og þegar
Jóhann Friðgeir kom fram á sviðið í
uppklappi, stóðu áheyrendur upp
honum til heiðurs og fagnaðarlát-
unum ætlaði aldrei að linna.
Sýningin fékk mjög góða dóma og
James D. Watts sem skrifar í Tulsa
World sagði meðal annars:
„Jóhann Valdimarsson, sem einn-
ig kemur nú í fyrsta sinn fram á sviði
í Bandaríkjunum, er þróttmikill
Cavaradossi. Í fyrstu resitatívunum
með Sacristan var áberandi víbrató
á röddinni […] en þegar hann byrj-
aði á aríunni Recondita armonia
hvarf skjálftinn og það sem eftir var
söng hann jafnt af ítölskum léttleika
og mýkt og wagnerískum krafti.
Hjartnæmastur var hann í aríunni í
þriðja þætti, E lucevan le stelle, þar
sem Cavaradossi hugleiðir ósann-
gjörn örlög sín, en túlkun hans var
bæði grunduð og blæbrigðarík og
laðaði fallega fram tilfinninguna í
textanum, í stað þess að flagga henni
með látum.“ Eftir frammistöðuna í
Tulsa hefur Jóhann Friðgeir fengið
fleiri tilboð um að syngja í Banda-
ríkjunum á næstu árum, og hyggst
hann þiggja einhver þeirra.
Um þessar mundir syngur Jóhann
Friðgeir hér heima á tónleikum með
Frostrósum. Hann stendur þó einn-
ig í útgáfu, og er meðal annars að
senda frá sér poppaða óperuplötu
þar sem hann syngur dúetta með
mörgum ástsælustu poppurum þjóð-
arinnar, Stefáni Hilmarssyni, Björg-
vini Halldórssyni, Margréti Eir og
fleirum. Eftir áramót syngur Jó-
hann Friðgeir í uppfærslu Íslensku
óperunnar á La traviata eftir Verdi.
Jóhann Friðgeir Valdimarsson óperusöngvari nemur land á bandarískum óperusviðum
Grunduð og blæ-
brigðarík túlkun
Drama Jóhann Friðgeir og Isabella Mederi sem Cavaradossi og Tosca.
Í HNOTSKURN
» Caput-hópurinn var stofn-aður 1987 af ungum íslensk-
um tónlistarmönnum í þeim til-
gangi að flytja nýja tónlist.
Hópurinn hefur frumflutt fjölda
íslenskra og evrópskra tónverka
og haldið tónleika í Norður-
Ameríku og 15 löndum Evrópu.
» Caput hefur gefið út níuhljómdiska í Danmörku, Sví-
þjóð, Ítalíu, Bandaríkjunum og á
Íslandi. Auk þess hafa hljóðrit-
anir hópsins komið út á sjö safn-
diskum.
» Caput hlaut Menning-arverðlaun Dagblaðsins árið
1995 og hafa tónverk flutt af
hópnum margoft verið valin til
kynningar á Alþjóðlega tón-
skáldaþinginu í París. Meridien-
hátíðin byrjaði í gær og henni
lýkur á föstudag.
♦♦♦