Morgunblaðið - 11.12.2007, Side 23
gangur í unglingunum í Bústöðum
þennan föstudag en Andri og Þröstur
segja það sennilega fyrst og fremst af-
leiðingu viðveru blaðamanns og ljós-
myndara. „Yfirleitt erum við bara með
tvo krakka í einu og lokum að okkur
svo þetta verður rólyndisstund,“ segir
Andri og Þröstur kinkar kolli. „Oft er
þetta gott tækifæri til að spjalla við
krakkana og ná að kynnast þeim. Þau
eru líka róleg því þau vita að þetta get-
ur verið varasamt og fá eiginlega sjokk
þegar þau finna hvað hitinn frá sykr-
inum er mikill.“
Þeir viðurkenna að þrátt fyrir róleg-
heitin færist stundum fjör í leikinn eft-
ir að sykurinn er kominn ofan í fram-
leiðendurna. „Auðvitað er þetta ekkert
hollt en sykurinn er ekki aðalmálið
heldur ferlið að búa hann til. Svo held
ég reyndar að þau séu frekar fljót að
klára pokann – það eru ekki margir
sem geyma hann til jóla.“
Stöðugt með orkudrykki
Kormákur Andri Pétursson og Ólaf-
ur Þórðarson eru meðal þeirra sem
munda sykurskærin þennan dag en
báðir eru þeir í níunda bekk í Rétt-
arholtsskóla. Þeir hafa gert brjóstsyk-
ur áður, í skólaferð sem farin var að
Laugum í haust auk þess sem Kor-
mákur hefur búið í Danmörku þar sem
hann kynntist brjóstsykursgerð. „Öll-
um þykir gaman að elda og þetta er
kannski svipað – að búa eitthvað til,“
segir hann og Ólafur vinur hans sam-
sinnir. „Þetta snýst um að virkja sköp-
unargáfuna,“ segir hann spekingslega.
„Svo er hægt að plata og hafa sítrónu-
bragð á svörtum brjóstsykri. Þá halda
allir að hann sé með lakkrísbragði.“
Kormákur kannast við slíkar æfing-
ar. „Ég gerði einu sinni brjóstsykur
sem var svo súr að það var ekki hægt
að borða hann en hafði hann rauðan
svo hann var góður á litinn. Það er allt-
af gaman að stríða.“
Þeir segja markmiðið þó fyrst og
fremst að gera góðgæti, þrátt fyrir
stöku prakkarastrik. „Bragðið er
kannski svipað og út úr búð en þegar
maður gerir brjóstsykurinn sjálfur er
hann miklu betri. Svo gefur maður vin-
um og vandamönnum kannski svolít-
ið …,“ segir Ólafur og Kormákur gríp-
ur glottandi orðið: „… eða bara borðar
hann sjálfur.“
En skyldi sykur vera það sem ung-
linga í dag skortir helst?
„Neeeei,“ svarar Kormákur með
semingi og Ólafur slær sér á lær. „Nei,
veistu, ég verð að segja að við höfum
allt of mikinn aðgang að sykri. Það eru
mjög margir í skólanum sem eru stöð-
ugt með orkudrykki og sérstaklega
eru sumir tíundubekkingar alveg
„húkkt“ á þeim,“ segir hann hneyksl-
aður og sveiflar sykurpokanum áður
en hann skundar út úr félagsmiðstöð-
inni með vini sínum.
ben@mbl.is
Þriðja útskriftin verður svo
næsta laugardag þegar Fram-
haldsskólinn útskrifar stúdenta
og nemendur af fleiri brautum.
Mikið er um að vera í Landa-
kirkju á jólaföstu eins og öðrum
kirkjum landsins. Fyrsta sunnu-
dag í aðventu var boðið upp á
kaffihúsamessu þar sem Kaffi-
húsakór kirkjunnar lék stórt hlut-
verk og síðasta sunnudag var
poppmessa í kirkjunni þar sem
boðunin fór fram í bland við létta
tónlist. Þessi tilbreytni mæltist
vel fyrir og lokahnykkurinn á
fjölbreyttri aðventudagskrá eru
svo árlegir jólatónleikar Kórs
Landakirkju og að þessu sinni er
það Diddú sem syngur með kórn-
um.
Af veraldlegri hlutum er það að
frétta að síldveiði hefur gengið
vel þrátt fyrir einstaklega erfitt
tíðarfar þar sem hvert stórviðrið
rekur annað. Síldina sækja bát-
arnir í Breiðafjörðinn sem ekki
hefur gerst áður en síldin hefur
alltaf verið ólíkindatól.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 23
skagfirsku pilta, Álfta-
gerðisbræður. Þeir
voru mættir í fullum
skrúða að norðan ásamt
stjórnanda sínum, Stef-
áni R. Gíslasyni, og
hljómsveit Gunnars
Þórðarsonar, sem var
með þá Gulla Briem og
Jóa Ásmunds úr
Mezzoforte sér til full-
tingis. Í stuttu máli sagt
var þetta hin besta
skemmtun og Víkverji
hafði ásamt öðrum við-
stöddum mikla ánægju
af. Álftagerðisbræður
klikka aldrei, syngja
eins og englar og eru líka bráð-
fyndnir. Ekki var undirspilið af verri
endanum. Bræðurnir fagna því um
þessar mundir að 20 ár eru liðin frá
þeirra fyrsta samsöng á opinberum
vettvangi, er þeir sungu við útför föð-
ur þeirra, Péturs Sigfússonar í Álfta-
gerði. Af því tilefni gáfu þeir út nýjan
hljómdisk og með fylgir myndband
sem Gísli Sigurgeirsson fréttamaður
hefur skeytt saman um farsælan feril
þeirra.
Bræðurnir eru söngvarar af Guðs
náð og við hæfi að þeir haldi útgáfu-
tónleika í kirkju. Aðdáendur þeirra
biðu í röðum í hléi og að tónleikum
loknum til að kaupa og fá áritaða
diska og héldu út í kvöldhúmið með
bros á vör. Fyrir utan sönglögin sem
þeir fluttu svo vel sá yngsti bróðirinn,
Óskar Pétursson, um lagakynningar
og gamanmál. Honum varð tíðrætt
um hve meðalaldur aðdáenda þeirra
væri hár, og að þeir væru því aufúsu-
gestir á elliheimilum. Eitt sinn sungu
þeir Óskar, Gísli, Pétur og Sigfús á
Hlíð á Akureyri og urðu að loknu síð-
asta laginu að flýta sér út til að kom-
ast á næsta tónleikastað í tæka tíð.
Sá þá starfsstúlka, sem var nýliði á
Hlíð og hafði ekki verið viðstödd
sönginn, til þeirra hraða sér út um
aðaldyrnar og síðastur í röðinni var
elsti bróðirinn, Sigfús. Greip hún létt
í öxlina á honum og spurði: „Hvert
ert þú nú að fara, góurinn?“
Þúsundir Íslendingavoru á tónleikum
um helgina og að sjálf-
sögðu var Víkverji þar
á meðal. En hvert fór
hann? Fór hann á Kiri
Te Kanawa og Garðar
Thór? Ónei. Fór hann
að sjá Bo Halldórs og
jólagestina hans? Ónei.
Hvað gerði hann þá?
Var eitthvað annað um
að vera? Ójá.
Víkverji var meðal
hundraða gesta sem
fylltu Langholtskirkju
til að sjá og hlýða á
hina bráðskemmtilegu
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Uppskriftir, leiðbeiningar og vörur
til brjóstsykursgerðar er að finna á
www.slikkeri.is.
Espressó-kaffivélar,
bjóðum upp á mikið úrval.
Tilvalin jólagjöf handa
heimilisfólkinu.
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Í
Fyrir jólin
Stór og lítil heimilistæki, símtæki og ljós í miklu úrvali.
Gæðaryksugur frá Siemens.
Virkilega þrífandi hrífandi.
Þessi er nauðsynleg við jólabaksturinn.
Er ekki upplagt
að fá sér ný ljós
fyrir jólin?
A
T
A
R
N
A
/
K
M
I
/
F
ÍT
Jólaþrifin verða leikur einn.