Morgunblaðið - 11.12.2007, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 25
Hörður Björgvinsson sendirkveðju til góðs vinar á
Ísafirði, „sem er einmitt núna á
sviðinu í Edinborgarhúsinu að leika
Skugga-Svein.“
Gömul saga um mannleg mein,
– Matthíasar er snilldin hrein,
nú eru forn og fúin bein
fram á sviðið dregin.
Heyrist við Djúpið draugakvein,
dimmur rómur á bak við stein,
sé ég þar skjótast Skugga Svein;
Skutulsfjarðarmegin.
Hann ætlaði raunar að nota
vísuna í jólakortið áður en falast
var eftir henni í Vísnahornið, „en
ég sest bara við aftur.“
Byron lávarður skrifaði til vinar
síns á saurblað í Don Juan:
I would to heaven that I were so much
clay
As I am blood, bone, marrow, passion
feeling –
Because at least the past were pass’d
away
And for the future – (but I write this
reeling,
Having got drunk exceedingly today,
So that I seem to stand upon the
ceiling)
I say – the future is a serious matter –
and so – for God’s sake – hock and
sodawater.
Sigurður Ingólfsson þýðir orð
Byrons í „Broti“:
Ég bið til himna að breyttist allt í leir
mitt blóð og mergur, öll mín
þrautaganga,
svo fortíð altént fyki og yrði ei meir
og framtíð (hæ, en skriftin virðist
slanga,
í dag ég saup of margt og er svo meyr
að mér finnst ég ei standa, frekar
hanga).
Já framtíð er ei fíflska, heldur natni
svo fá mér – Guð – minn drykk með
sódavatni.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Beinin og
Don Juan
fegra heimilið,“ segir
Helga María, sem
vinnur með sömu
hugmynd og finnska
fyrirtækið Marimekko – að þrykkja
stækkuð blóm á lín. „Þannig leggj-
um við áherslu á að íslensk náttúra
fái að njóta sín í sinni fegurstu
mynd og í framtíðinni er markmið
okkar að stækka vörulínu LínDe-
sign enn frekar.“
Hver veit líka nema íslenska blóð-
bergið verði ein-
hvern tímann í
framtíðinni jafn-
þekkt mynstur og
Unikka-munstur
Marimekko?
Dýrin í vísunni
Innblásturinn hyggjast þær
sækja áfram í íslenska náttúru og
menningu. „Við fengum Freydísi
Kristjánsdóttur textílhönnuð til að
þróa með okkur barnalínu,“ segir
Helga María, en myndir Freydísar
af íslenskum dýrum prýða nú sæng-
ur- og koddaver, barnateppi, rúm-
teppi, veggpoka og púða. „Myndir
Freydísar eru líflegar og einfaldar
myndir af íslenskum dýrum. Hún
teiknar upp dýrin í vísunni sem oft-
ast er kennd við Pál Vídalín; „Hani,
krummi, hundur, svín, hestur mús,
tittlingur, galar, krunkar, geltir,
hrín, gneggjar, tístir, syngur …“,“
segir Helga María og kveður við-
tökur við nýju línunni hafa verið
góðar. Að mati blaðamanns er
barnalínan vel heppnuð, litirnir fal-
legir og rúmteppin ekki síður fær
um að njóta sín sem veggteppi. Ís-
lensku dýrunum og burstabænum
bregður þar líka víða fyrir.
Hugað að umhverfinu
LínDesign sérvelur allt lín í fram-
leiðsluna og leggur t.d. áherslu á að
línið sem valið er í sængurverin sé
með að minnsta kosti 300 þráðum á
hverja únsu. Línið er allt sérvalið í
Kína þar sem það er ofið, en Kín-
verjar eiga yfir 1.000 ára hefð í
bómullarvinnslu og eru, að sögn
Helgu Maríu, mjög færir í vinnsl-
unni.
Einnig er hugað að umhverfinu
og unnið sérstaklega með framleið-
endum að því að draga úr umbúð-
um. „Þess vegna notum við bómull-
arpoka í stað plastpoka utan um
sængurverin,“ segir Helga María og
bætir við að pokana utan af sæng-
urfatnaðinum megi síðan nota undir
ýmislegt smálegt, t.d. smádót
barnanna, skartgripi eða ilmjurtir.
Reisulegur
Burstabænum
bregður víða fyrir í
nýju línunni.
Hani, krummi, hundur, svín Dýra-
myndirnar eru líflegar ásýndar.
Beosound 3
Með BeoSound 3 getur þú spilað tónlist frá innbyggðu
útvarpinu eða hlaðið hana inn stafrænt, hvar sem er í
Bang & Olufsen hljómgæðum. Hlaðanleg rafhlaðan sem
endist í allt að tíu tíma spilun gerir svo allar snúrur óþarfar.
BeoSound 3 kostar 59.500 kr.
Beovision 8
Við hönnun BeoVision 8 var tekið sérstakt tillit til
hljómgæða enda var tækið hannað utan um öflugt
hljómkerfið. Háskerpuskjár með speglunarvörn
tryggir síðan bestu mögulegu gæði myndarinnar.
BeoVision 8 fæst í 26” og 32”.
Verð frá 279.000 kr.
BeoCom 6000
BeoCom 6000 er þráðlaust símtæki sem einfaldar
samskiptin á heimilinu. Síminn er einfaldur í notkun og
hægt er að tengja allt að átta símtæki einni stjórnstöð.
Stjórnstöðin sem hleður símann er glæsilega hönnuð
úr burstuðu áli og fáanleg í tveimur útfærslum, til að
hafa á borði eða festa á vegg.
BeoCom 6000 kostar 37.500 kr.
Síðumúla 21, Reykjavík.
Sími 581 1100. reykjavik@beostores.com
www.bang-olufsen.com
Gefðu nútímaklassík
frá Bang & Olufsen
í jólagjöf