Morgunblaðið - 11.12.2007, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 11.12.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 35 Sár söknuður og eftirsjá ríkir því hjá vinum hennar og vandamönnum. Hún andaðist á erlendri grund, þar sem hún ætlaði að njóta nokkurra góðra hvíldar- og sólskinsstunda meðan skammdegið grúfir yfir hér heima. Við höfðum hist nokkrum dögum áður en hún fór utan, skóla- systur hennar úr HKÍ, átt saman ánægjulega stund og rifjað upp gamlar minningar frá árunum 1948- 50. Allar voru hressar og glaðar í bragði. Við geymum allar skýrar myndir frá þeirri stund er við hitt- umst fyrst til að hefja nám haustið 1948, fjórtán ungar stúlkur frá ýms- um stöðum á landinu, fullar eftir- væntingar og góðra áforma um að afla okkur menntunar til kennslu- starfa hér og þar um landið. Einhver kvíði bjó þó í okkur, því orð fór af því að þetta væri erfitt nám og skóla- reglur margar og strangar hjá skóla- stjóranum, Helgu Sigurðardóttur. En við vorum hressar og bjartsýnar. Fljótlega tengdumst við vináttu- böndum, og náin samvinna og sam- gangur varð með okkur öllum í skól- anum. Steinunn varð fjótlega fremst í flokki. Hún kom að vestan og hafði unnið margvísleg störf. Einnig hafði hún aflað sér menntunar á Laugar- vatni og verið þar nemandi bæði í Héraðsskólanum og í Húsmæðra- skóla Suðurlands, þar sem Halldóra Eggertsdóttir var skólastjóri. Stein- unn var glaðlynd, opinská í skoðun- um, rösk í öllum athöfnum og aðlað- andi í framgöngu. Góðir námshæfileikar hennar, greind og dugnaður aflaði henni virðingar og vináttu okkar skólasystranna. Fljót- lega komu þessir hæfileikar hennar sér vel fyrir okkur allar, því hún var jafnan kölluð til þegar einhver vandamál bar að höndum eða vanda- verk þurfti að leysa, hvort sem var fyrir skólann eða meðal okkar skóla- systranna. Eftir námið í HKÍ fór hún í fram- haldsnám til Árósa í Danmörku, og síðan ferðaðist hún á milli ýmissa skóla á Norðurlöndum til kynningar og frekara náms. Þegar heim kom gifti hún sig Kristbirni H. Eydal, og þau eignuðust saman þrjá syni. En hún fór fljótlega að kenna á nám- skeiðum hjá Kvenfélagasambandi Ís- lands. Svo fluttu þau vestur til Ísa- fjarðar, og hún kenndi við Gagnfræðaskólann á Ísafirði í mörg ár. Og eftir að hún flutti suður aftur fór hún í Kennaraháskólann og lærði til sérkennslu og kenndi í mörg ár við ýmsa framhaldsskóla hér í Reykja- vík. Margar góðar minningar eigum við skólasysturnar allar frá árunum í HKÍ af ýmsum spaugilegum atvikum og daglegu amstri okkar á þeim bæ. Við höfum glaðst við að rifja þetta upp er við höfum hist nú á síðari ár- um. Og þar hefur Steinunn jafnan verið hrókur alls fagnaðar, svo minn- ug og skýr í sínum frásögnum. Nú þegar hún er svo skyndilega brottkvödd er okkur efst í huga minning um góða og glaðværa skóla- systur og trygga vinkonu – og þakk- læti til hennar fyrir ótaldar ánægju- stundir á liðnum árum. Við sendum eiginmanni hennar, sonum og öðrum aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur og biðjum henni allrar blessunar. Sigríður Kristjánsdóttir. Ég hringdi í Þórunni systur fimmtudaginn fyrir mánaðamót og frétti að Steina hans Kristbjörns frænda hefði dáið af slysförum á Kanaríeyjum. Þessi sorgarfrétt vakti mig til umhugsunar um hversu skjótt tilveran breytist úr gleði í sorg í lífi okkar. Skemmtiferð til heilsubótar breytist á augnabliki í þrautagöngu. Ég samhryggist fjölskyldunni í þess- um erfiðleikum. Steinunn María Guðmundsdóttir eða Steina eins og hún er oftast köll- uð er fyrirmynd íslenskra kvenna, dugnaðarforkur til hugar og handa, ein af sterku konunum í lífi mínu, með hjarta úr gulli. Mér er minn- isstætt úr barnæskunni þegar fjöl- skylda mín, Bjarni frændi og Anney kona hans fórum vestur í fyrsta skipti eftir að þeir bræður fluttu suð- ur. Ferðin byrjaði á BSÍ og farið með rútu frá Vestfjarðaleið um Dali í Bjarkalund, og yfir Þorskafjarðar- heiði að Ísafjarðardjúpi, þaðan sem Fagranesið flutti okkur til Ísafjarð- ar. Á Ísafirði dvöldum við hjá Mundu frænku og Hemma Jakobs í nokkra daga og síðan var farið norð- ur í Aðalvík með mb. Valdísi frá Ísa- firði. Látrin iðuðu af lífi, því að það var verið að leggja veg upp fjallið til að byggja ratsjárstöð þar. Steina og Kristbjörn voru þarna að störfum og bjuggu á Látrum með sína fjöl- skyldu, Friðþór og Guðmund, sem þá var kornabarn. Einnig voru þarna í vist hjá Steinu nokkrar telp- ur að sunnan. Fyrstu tvo dagana var búið í tjaldi uppi á brekkunni en þá kom rok og rigning, tjöldin fóru að leka, svo að við ferðalangarnir vor- um drifnir upp í kampinn í boði þeirra heiðurshjóna og vorum þar í vellystingum það sem eftir var ferð- ar. Farið var út á Ystabæ og tóft- irnar af gamla bænum skoðaðar, bátsferð í Miðvík og á Sæból með Kristbirni, en eftir viku var komið að heimferð. Í kampinum var stutt- bylgjutalstöð og Kristbjörn kallaði upp strandferðaskipið Esju, sem sigldi innundir Nasa klukkan fimm að morgni, sótti okkur og tvær af telpunum, sem voru í vist hjá Steinu. Við vorum ferjuð í landgöngupramma út í Esju, dótið híft á dekk, en fólkið klifraði um borð í kaðalstiga. Allir fengu síð- an klefa um borð í Esjunni og síðan sigldum við með henni til Reykjavík- ur með viðkomu í öllum helstu bæj- um á Vestfjörðum. Þessi stutta saga sýnir dugnað og elju Steinunnar Maríu Guðmundsdóttur og velvild og hjartahlýju þessara heiðurs- hjóna. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum.) Innilegar samúðarkveður til allra eftirlifenda, lifið heil. Jón Páll Þorbergsson og Sigurbjörg Lárusdóttir. Elsku Steina mín, mig langar að setja niður nokkur orð nú þegar komið er að kveðjustund. Ég man fyrst eftir mér með þér að baka í eld- húsinu á Engjaveginum, þá ekki margra ára í pössun hjá þér og Kristbirni, þú áttir líka alla tíð heimalagað bakkelsi og Ingvar son- ur minn hefur talað um hvað það væri alltaf gott með kaffinu hjá ykk- ur. Það voru líka margar góðar stundirnar þegar ég var hjá ykkur í Grunnavík og mikið ævintýri fyrir mig að fá að vera hjá ykkur þar. Ég man sérstaklega þegar gengið var einn daginn á Bjarnanúp, það var lika mikill gestagangur og oft marg- ir í fæði hjá þér. Ég man eftir að hafa farið með þér í kaupfélagið á Ísafirði þú varst að kaupa matar- birgðir til að taka með í Grunnavík við fórum á bakvið þar sem matnum var pakkað. Ég skildi ekkert í hvern- ig þú vissir upp á hár hvað átti að hafa mikið með og hafði aldrei séð svona mikil innkaup. Þegar ég kom svo til ykkar í haust í íbúðina í Hafnarfirði þá voruð þið bæði hjónin á fullu í eldhúsinu að baka snúða og brauð til eiga nóg með kaffinu fyrir gesti. Það var eftirminnilegt. Elsku Kristbjörn, Friðþór, Gummi, Dóri og fjölskyldur. Við vottum ykkur innilega samúð. Sigurður, Herdís og Ingvar. Gengin er góð og mikilhæf kona, hún Steinunn kona Kristbjarnar frænda, þau voru 55 ár í farsælu hjónabandi. Steina bjó sig vel undir ævistarfið með skólagöngu og nám- skeiðum hér heima og erlendis. Hún útskrifaðist ung sem hússtjórnar- kennari og starfaði lengi í þeirri grein og líka í gagnfræðaskóla, nem- endur sem lærðu matreiðslu hjá henni eru úrvals kokkar, þeir sem ég hef kynnst. Eftir að ég flutti aftur heim í Hnífsdal 1982 var mikið lán að kynn- ast Steinu betur, en þá hafði hún byrjað á undan mér að grúska í ætt- fræði. Það kom sér vel fyrir mig því hún veitti mér ómetanlega fræðslu og var óspör á hjálpargögn og upp- örvun. Mér fannst kennarinn njóta sín vel í þessari aukavinnu því að á þessum tíma var hún í bókanefnd Vestra fyrir Grunnvíkingabók sem kom út 1992. Þar naut hún sín vel meðal ættingja og vina úr sveitinni sinni. Að leiðarlokum vil ég þakka vin- áttu þeirra hjóna við foreldra Anítu og Finnboga í Hnífsdal. Kæri Kristbjörn og fjölskylda ásamt vinum og vandamönnum sem voru með í síðustu ferð Steinu, ég bið Guð að blessa ykkur í óvæntri sorg og leiða síðan inn í fögnuð jólanna. Kær kveðja, Guðjón Finndal Finnbogason. Áhrifakonan í lífi mínu er látin. Hún sem var svo aldurslaus að mað- ur áttaði sig ekki á því að hún væri komin á þann aldur að hennar tími væri búinn. Dánarfregnin kom mér á óvart og sárt að hafa ekki getað þakkað henni fyrir allt sem hún var mér og kvatt hana. Það geri ég hér. Steina frænka var hluti af fjölskyldu minni, við erum systkinabörn og ald- ursmunurinn gerði það að verkum að ég leit upp til hennar á margan hátt. Afar kært var á milli hennar og móður minnar, Maríu, og reyndust þær hvor annarri alla tíð mjög vel Fyrsta minning mín er frá því að ég var fjögurra ára. Steina frænka kom heim til mín með nýfæddan soninn Friðþór og um hann var búið til að byrja með í kommóðuskúffu. Seinna minnist ég skemmtilegra heimsókna til hennar og Kristbjarn- ar er þau bjuggu í Keflavík. Þá var öldin önnur, þetta var heilmikil rútu- ferð og vanalega gist í nokkra daga. Þegar ég var 10 ára dvaldist ég sumarlangt hjá þeim norður í Að- alvík, þar sem Kristbjörn vann á vegum bandaríska hersins. Dvölin þar var ævintýri líkust, gestagangur mikill og marga munna að metta. Steina var í essinu sínu alla daga því aldrei var hún glaðari en þegar heimilið hennar var fullt af gestum. Steina var á undan sinni samtíð. Hún fór að vestan ung kona, suður í húsmæðraskóla og í framhaldsnám til Danmerkur. Hún var listamaður í matargerð og veisluhaldi, afbragðs- kennari og skemmtileg. Þegar ég flyt til Ísafjarðar ung að árum dvaldist ég fyrst hjá þeim hjónunum og þar fékk ég tilsögn í heimilishaldi sem reyndist mér vel. Samhentari hjónum hef ég aldrei kynnst, Kristbjörn gekk í hvaða verk sem var á heimilinu og þótti ekkert tiltökumál. Gestum og gang- andi vel tekið og gestrisnin í háveg- um höfð. Þar var skipst á skoðunum og landsins gagn og nauðsynjar ræddar, en léttleikinn ávallt í fyr- irrúmi. Eftir að ég stofna heimili og börnin fæðast átti ég mér annað heimili hjá þeim. Þau reyndust fjöl- skyldunni einstaklega vel og hjá þeim áttum við ómældar ánægju- stundir, hvort sem var á Engjaveg- inum eða norður í Grunnavík. Þau munaði aldrei um að bæta við í mat eða næturgistingu, alltaf nóg pláss. Það atvikaðist þannig að við flutt- um öll suður á sama ári, mér og mín- um til mikillar ánægju. Steina menntaði sig enn meir í kennslurétt- indum þrátt fyrir aldur. Það vakti aðdáun mína á henni enn meir. Það má segja að hún hafi haldið áfram að blómstra fram á síðustu ár, alltaf keik og brosandi. Þau hjónin voru partur af fjölskyldumynstrinu, og tryggðin órjúfanleg. Við minnumst öll fagnaðarstunda þar sem við nut- um samvista, ekki síst á 100 ára minningardegi mömmu. Við undir- búninginn gafst mér það dýrmæta tækifæri að hlusta á frásögn þeirra Kristbjarnar af lífshlaupi foreldra minna, sem ég annars hefði ekki vit- að um. Steinu frænku flyt ég hjartans þakkir fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og fjölskyldu mína. Ekki síst vil ég þakka henni allan þann innblást- ur sem hún gaf mér í gegnum lífið. Elsku Kristbjörn, Friðþór, Guð- mundur, Halldór og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur. María Maríusdóttir. ✝ Jón Pálmi Karls-son fæddist í Reykjavík 16. mars 1944. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnu- daginn 2. desember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Karl Finnbogason, verkamaður í Reykjavík og Kópa- vogi, f. 19. sept- ember 1917, d. 21. janúar 1997, og Svanfríður Guðjóns- dóttir, húsmóðir í Reykjavík, f. 5. nóvember 1921, d. 23. október 2000. Jón átti tvö alsystkini, þau Elísabetu Karlsdóttur Mroczek, sem búsett er í Alaska í Bandaríkj- unum, f. 21. maí 1940, og Steinar Karlsson, f. 26. janúar 1942, d. 10. september 1989, og eina hálfsystur, Sól- rúnu Laufeyju Karlsdóttur, f. 22. maí 1962. Jón ólst upp í Reykjavík og stund- aði þar vinnu til 16 ára aldurs. Þá flutt- ist hann sem vinnu- maður til systk- inanna Sigurjóns Hallsteinssonar og Jónu Hallsteindóttur í Skorholti í Leirár- og Melahreppi. Þar bjó hann til ársins 1990 er hann flutti til Akraness. Bjó hann þar til dauðadags, lengst af á Heið- arbraut 37. Útför Jóns Pálma verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Við vorum minntir óþægilega á hverfulleik lífsins þegar okkur bárust tíðindin um andlát Jónsa. Hvernig mátti vera að hann hefði kvatt þennan heim svona skyndilega? Hann sem var ávallt svo hress og áhugasamur. Hann átti eftir að gera svo margt. Til að mynda að smíða úr járninu sem hann hafði svo mikla unun af að með- höndla. Slípa það til og skera það nið- ur til hins margvíslegasta brúks. Hvað með hljóðfærið sem hann var svo stoltur af og var að útbúa og sam- anstóð af mislöngum járnstöngum sem hann hengdi upp og sló á, þannig að úr fengust hinir ýmsu tónar? Vissulega einfalt en um leið lýsandi fyrir hinn látna. Við leiðarlok sést heildarmyndin. Heildarmynd sem einkenndist af ein- faldleik og æðruleysi. Jónsi kvartaði aldrei undan neinu. Hann skipti aldrei skapi og aldrei sagði Jónsi styggð- aryrði um nokkurn mann. Hann tók því sem að höndum bar í það og það skiptið. Þannig einkenndu heiðarleiki og nægjusemi hann. Hann hafði gam- an af að spá í mannlífið og kunni að meta þætti í fari fólks sem margir taka ekki eftir og spá ekki í. Hann var trúaður og ef ekki lá fyrir augljóst svar við einhverju vandamáli eða ráð- gátu var viðkvæðið oftar en ekki „Þetta er bara það sem góður Guð vill“. Vissulega lífssýn sem margir mættu tileinka sér. Það má segja að hann hafi auðgað mannlífið með nær- veru sinni. Þótt kallið kæmi skyndi- lega þá kvaddi hann þennan heim sáttur við Guð og menn. Þótt ekki komi fleiri tónar úr slag- verkshljóðfærinu hans, sem hann átti eftir að fullkomna, þá lifir minningin um góðan dreng áfram. Takk fyrir alla samveruna og hjálpina Jónsi minn. Þínir vinir, Einar Gunnar og Guðni Kristinn. Sem sumardrengur í Skorholti vor- ið 1961 hitti ég fyrst Jón Pálma, Jónsa eins og við síðar kölluðum hann, sem þá um veturinn hafði komið í Skorholt sem vinnumaður, alls óskyldur eða tengdur afasystkinum mínum sem þar bjuggu og stunduðu búskap. Hann hafði þá greinilega lent í ýms- um raunum og erfiðleikum og var óör- uggur og feiminn. Á þessum tíma átti hann enga vini eða kunningja sem hann vildi halda sambandi við. Í Skor- holti naut hann mikillar umhyggju og góðvildar systkinanna sem tóku hann til sín. Þar öðlaðist hann fyrst festu í líf sitt, þroskaðist, náði öryggi, losnaði við hlédrægnina og fór að njóta sín sem sjálfstæður einstaklingur. Til vinnu gat hann verið duglegur þegar því var að skipta en hafði þó mesta unun af því að spjalla í róleg- heitum um heima og geima. Reyndar vildi hann frekar spjalla en vinna. Hann var áhugasamur um allar vélar og tæki og undi sér vel við skepnuhald og gegningar í sveitinni meðan þess naut við. Mikla ánægju hafði hann alltaf af vinnunni í sláturhúsinu við Laxá á haustin, innan um allt fólkið sem þar var. Jónsi hafði áhuga á hvers konar viðgerðum og smíðum og hafði gaman af alls konar járn- og stálsmíði síðustu ár, sem hann gat dundað sér við heima. Ýmiss konar smíðatækja aflaði hann sér í þessu skyni og hráefnið fékk hann hjá vel- viljuðum kunningjum í smiðjum og á verkstæðum á Akranesi. Til Jónsa komu ýmsir sem í erf- iðleikum áttu. Hann þekkti það af eig- in raun frá fyrri tíð og sýndi oft gjaf- mildi og rausnarskap af sínum litlu efnum. Þó að Jónsi byggi einn og vildi sjálfur hafa þann háttinn á var hann ekki einfari í merkingu þess orðs. Hann naut þess þvert á móti að vera innan um fólk og hafa regluleg og góð samskipti við þá sem honum líkaði. Hann þekkti því marga, átti marga kunningja en ekki mjög marga góða vini. Jónsi hafði unun af því að tala um gömlu sveitina sína, störfin þar, sveitabæina og þá sem þar bjuggu eða höfðu búið. Hann talaði aldrei illa um nokkurn mann. Um sumt vildi hann hins vegar ekki tala. Hann reyndi að leiða hjá sér allt tal um erf- iðleika og vandamál. Ef vakið var máls á slíku, að ekki sé minnst á hóg- værar og kurteislegar umvandanir vegna einhvers sem betur hefði mátt fara, þá skipti hann yfirleitt skyndi- lega og oft með afar skemmtilegum hætti um umræðuefni. Með því tókst honum undantekningarlaust að slá mann út af laginu. Gat hann við þau tækifæri verið einstaklega orðhepp- inn. Eftir að Jónsi fluttist út á Akraness naut hann aðstoðar heimilishjálpar og fjölskyldusviðs Akraneskaupstaðar. Sú þjónusta var honum í raun ómiss- andi, eins og svo mörgum öðrum í svipaðri aðstöðu. Með henni tókst honum að halda sínu sjálfstæði, sem hann mat svo mikils, og sinni stöðu sem frjáls einstaklingur, næstum óháður öðrum. Fyrir þá þjónustu alla ber á þessari stundu að þakka. Að leiðarlokum þökkum við Guð- rún konan mín Jónsa samfylgdina og margra áratuga góðan vinskap. Blessuð sé minning hans. Jón Sveinsson. Meira: mbl.is/minningar Mér er til efs að ég hafi nokkru sinni vitað hvað Jónsi hét fullu nafni, þá er ég þekkti hann. Enda skipti það stráklinginn mig, sem nýkominn var á ókunnar slóðir í sveitavist að sumri til, litlu máli. Né skipti það mig máli að ég heyrði að sumum þætti hann sér- kennilegur í útliti og jafnvel háttum. Það gat ég aldrei komið auga á og skildi ekki hvað fólk var tilbúið að tjá sig án þess að þekkja hann. Það sem skipti mig máli og það sem ég sá var að Jónsi var ljúflingur og var mér aldrei nema góður þau þrjú sumur sem ég dvaldi í sveit í Skorholti, þar sem hann var vinnumaður. Ég fann hins vegar til samkenndar með hon- um, því oft fannst mér hann standa einn gegn því sem ég sá sem óréttlæti heimsins. Hann tók lífinu hins vegar með jafnaðargeði og alltaf var stutt í vinsamleg orð. Því leit ég á hann sem vin minn þó ég væri ekki nema tíu ára og hann kominn í fullorðinna manna tölu fyrir mér. Hann leyfði mér meira að segja að prófa að reykja pípustert- inn sinn úti í fjárhúsum. Ég kveð því þennan vin minn nú og óska honum góðrar ferðar á slóðir þar sem mann- kostir hans fá að njóta sín til fulls. Páll H. Hannesson. Jón Pálmi Karlsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.