Morgunblaðið - 11.12.2007, Side 37

Morgunblaðið - 11.12.2007, Side 37
Hann var alveg frábær þegar gamla eldhúsið var rifið þar gaf hann köll- unum ekkert eftir og alveg sleppti sér í niðurrifinu. Ég sé hann fyrir mér á ættar- mótinu þar sem hann kom og vildi fá köku eldrauður í kinnum eftir alla útiveruna, svo var hann alveg ynd- islegur í Fljótshlíðinni þegar hann var að spila á hristuna og allir sungu með. Hann var algjör bílakall eins og pabbi hans og gat alveg gleymt sér í bílaleik. Það verður sorglegt að sjá Örnu Sóleyju koma hlaupandi inn og hann kemur ekki á eftir henni, hún var svo dugleg að passa hann. En Krist- inn Veigar lifir í minningunni og við höldum henni á lofti. En við sem þekktum Kidda litla vitum að nú er hann skemmtilegasti engillinn hjá Guði og þar er hann við hlið hans. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur sendum við Óskari, Vilborgu og fjölskyldu. Önnu, Bigga og fjölskyldu. Guð geymi ykkur. Ólafur og Helga. Elsku Kristinn Veigar, við eigum öll eftir að sakna þín því þú varst gæinn okkar allra. Ég bið að heilsa honum afa okkar og mundu að við myndum gera miklu meira fyrir þig ef við gætum, þú verður að muna eftir okkur öll- um. Ég vildi að þú hefðir verið áfram hjá okkur öllum og við gætum séð þitt fallega sæta andlit og tekið myndir og rennt okkur á klakanum og búið til snjókall ef það væri vetur, tínt blóm ef það væri sumar, skafið saman laufblöð ef það væri haust, verið kalt saman ef það væri vor og ég gæti málað þig ljón aftur og margt fleira. Ég get skrifað mjög mikið í viðbót en eins og ég skrifaði fyrir ofan. Við munum sakna þín. Þín frænka Ellen Hrund. Litli frændi minn er dáinn aðeins 4 ára gamall, hann var tekinn frá okkur á sviplegan hátt í hörmulegu slysi. Þegar hann var að koma í heim- sókn á Stöðvarfjörð var mjög spenn- andi að vita hvað hann myndi gera í það og það skiptið. Þegar hann kom í fermingu hjá Jónsa fyrir ári voru allir í veislunni sendir út að læsa bíl- unum sínum því stráksi var bílasjúk- ur og fór inn í alla bíla og reyndi allt til að koma þeim af stað. Í eitt skipt- ið sem Óskar kom með fjölskylduna austur lögðu þau systkin Kiddi og Arna af stað heiman frá Hönnu Veigu, heim til mín og reyndi Kiddi að komast inn í alla bíla á leiðinni, svo heppilega vildi til að þeir voru allir læstir. Margar eru minningarnar þó að árin hafi ekki orðið mörg hjá elsku litla drengnum okkar. Elsku Óskar, Vilborg, Anna, Biggi, Tanja, Oddur, Ingi, Viktoría, Agnes, Arnór, Arna, Hulda amma, Dagga amma, Kiddi afi og aðrir að- standendur, megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Elsku Kiddi, guð geymi þig og varðveiti. Þín frænka Rósmarý. Litli vinur lífið kallar, leiðir okkar skilja í dag. Góðar vættir vaki allar, verndi og blessi æ þinn hag. (Höf. ók.) Elsku Kiddi, vinur okkar, núna erum við að horfa á myndina þína, hjá kertinu og hvítu blómunum. Við ætlum alltaf að hafa myndina hjá okkur líka þegar þú verður fimm ára. Núna vitum við að þú ert á himn- um hjá englunum, hún Erla sagði okkur að þér liði vel núna og að við mættum alveg gráta ef við viljum. Við söknum þín, kæri Kiddi. Saknaðarkveðjur, nemendur í Vesturbergi. Elsku besti Kiddi minn, elsku karlinn minn. Rétt að verða tveggja ára komstu í Vesturberg og varðst strax mjög sterkur og áberandi per- sónuleiki innan barnahópsins. Þú stalst líka hjartanu úr okkur kenn- urunum strax og þú komst, pínulítill, kraftalegur kútur með lærin í skón- um og sjálfstæður eins og fimm ára. Það var alltaf gaman hjá þér, þú gast allt mögulegt, þú varst óhrædd- ur og þorðir öllu. Alltaf hlaupandi, klifrandi, hoppandi af gleði, vinnu- samur og röskur. Nú skil ég betur af hverju þú flýttir þér, þú þurftir að klára svo mikið á þínum stutta tíma. Þú hefur svo sannarlega sett þitt mark á leik- skólann og þín verður sárt saknað af öllum þínum vinum hér í Vestur- bergi og við munum geyma minn- inguna um einstakan dreng sem hafði áhrif á okkur öll. Elsku Anna, Biggi, Óskar, Vilborg og aðrir aðstandendur, okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd starfsfólks í Vestur- bergi, Brynja Aðalbergsdóttir leikskólastjóri. Elsku litli vinur, ekki hefðum við getað ímyndað okkur að mömmur okkar sætu nú og skrifuðu minning- argrein fyrir okkur um þig, elsku Kiddi vinur okkar. Síðasta sumar varst þú allt í öllu í götunni okkar, kíkjandi fyrir allar aldir inn um bréfalúgurnar hjá okk- ar, kallandi inn hvort við vildum ekki leika, mættur snemma um helgar, alltaf langhressastur. Lífskraftur þinn var einstakur, eins einstakur og þú varst, þú hjólaðir hér um allt að- eins þriggja ára án hjálpardekkja á meðan að við vorum langt á eftir þér eins og smábörn á hjólum með hjálp- ardekkjum eða ennþá á þríhjólum. Við lékum í Spidermanleikjum og hlupum hér um allt í skylmingar- leikjum meiripart sumarsins, það var svo gaman og verður ekki eins án þín. Við fjórir vorum lítil vinagrúppa aðeins um fjögurra ára gamlir og skiptumst á að spyrja eftir hvor öðr- um og í rauninni var ekki hægt að hafa neinn okkar út undan, því vor- um ein heild. Þannig að oft vorum við fjórir inni hjá einhverjum okkar, foreldrum okkar til mikillar gleði. Þú gerðir þig oft heimakominn hjá okkur og varst stundum mættur heim til okkar án þess að nokkur væri heima og fórst þá bara að leika og fékkst þér að borða og beiðst eft- ir okkur. Elsku Kiddi, við söknum þín og skiljum ekki alveg, vegna ungs ald- urs okkar, af hverju þú ert farinn til Guðs og við getum ekki séð þig aftur hlaupandi hér í götunni og það sé enginn Kiddi kallandi inn um bréfa- lúguna okkar. Foreldrar okkar reyna að útskýra þetta fyrir okkur og segja okkur að þú sért nú hjá Guði og sért hjá okkur í anda og ef við horfum upp í stjörnurnar getum við fundið fallegustu stjörnuna á himninum og það sért þú, svo þannig getum við allavega talað við þig. Foreldrar okkar munu segja okk- ur skemmtilegar sögur af þér og við- halda minningu þinni því þrátt fyrir ungan aldur skilur þú eftir svo mikið af minningum um þig, svo ótrúlegur varst þú, elsku Kiddi. Elsku fjölskylda, megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tím- um og færa ykkur styrk í sorginni, Kiddi var einstakur og mun aldrei gleymast. Þínir vinir úr Birkiteig Víkingur (Villingur, eins og þú kallaðir hann), Sigurður Orri (Siggi sæti), Birkir og fjölskyldur þeirra. Elsku Kiddi, félagi okkar af Vest- urbergi, er dáinn. Við áttum erfitt þegar mamma sagði okkur að þú hefðir orðið fyrir bíl og værir mikið slasaður á spítalanum. Alls kyns spurningar spruttu upp og við vor- um ofsalega sorgmædd. Þegar við kveiktum á kerti um kvöldið og fór- um með faðirvorið grétum við öll og hugsuðum fallega til þín. Þú þessi kraftmikli strákur með skemmtilega hláturinn sem við lékum svo oft við. Við fórum á jólaballið og þar var kyrrðarstund með henni Erlu úr kirkjunni og útskýrði hún þetta fyrir öllum og báðum við öll fallega fyrir þér. Mamma sagði okkur á laugar- dagskvöldið að þú værir dáinn. Þetta var svo sorglegt að hugsa til þess að fá aldrei aftur að leika við þig og sjá þig aldrei aftur. En hún útskýrði að nú liði þér vel og værir á góðum stað. Englarnir væru að passa þig og þú gætir líka verið með okkur og fylgst með okkur krökkunum að leika. Elsku Kiddi. Það var skrýtið að koma á Vesturberg á mánudaginn og þú ekki mættur galvaskur. Þar var bara mynd af þér og logandi fal- legt kerti. Þú svo brosandi á mynd- inni með þinn grallarasvip. Kveðjum við þig nú Kiddi okkar og takk fyrir samfylgdina elsku vin- ur okkar. Við vitum að englarnir og allir á himnum eiga eftir að elska þig. Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gjörðu svo vel og geymdu mig, Guð, í skjóli þínu. (Höf. ók.) Við systkinin og mamma okkar sendum foreldrum, systkinum og öllum ástvinum innilegar samúðar- kveðjur á þessum erfiðu tímum. Ægir Þór Viðarsson, Antonía Mist Viðarsdóttir, Anna Helga Gylfadóttir. En hvað sem öðru líður, þá hegðið yður eins og samboðið er fagnaðarerindinu um Krist. Hvort sem ég kem og heimsæki yð- ur eða ég er fjarverandi, skal ég fá að heyra um yður, að þér standið stöðugir í einum anda og berjist saman með einni sál fyrir trúnni á fagnaðarerindið og látið í engu skelfast af mótstöðumönnunum. Fyrir þá er það merki frá Guði um glötun þeirra, en um hjálpræði yðar. Því að yður er veitt sú náð fyrir Krists sakir, ekki ein- ungis að trúa á hann, heldur og að þola þjáningar hans vegna. Nú eigið þér í sömu baráttu sem þér sáuð mig heyja og heyrið enn um mig. (Bréf Páls til Filippímanna 1:27-30) Yndislegur fjögurra ára drengur er sviptur lífi sínu. Eftir standa nán- ustu ættingjar í djúpri sorg. Spurt er; er hægt að réttlæta slíkan verkn- að, er þetta sanngjarnt eða eðlilegt? Þó að hjá okkur vakni þessar spurn- ingar erum við ekki í stakk búin til þess að veita við þeim svör. Á slíkum stundum leitar hugurinn til trúar- innar og ritninganna. Þar er vísast styrkinn að finna, skýringarnar og vonandi kraft og æðruleysi til að sætta sig við orðinn hlut. Ættingjar og vinir – samstaða og bræðraþel eru þau smyrsl sem lengst draga úr þeim sársauka sem sálin verður fyr- ir á slíkum stundum. En aldrei hverfur minningin um unga dreng- inn sem átti allt lífið fyrir sér, tæki- færin, afrekin, gleðina og einnig sorgina. Elskulegu foreldrar – Anna og Óskar. Góður guð gefi ykkur allan þann styrk og æðruleysi sem þurfa má til að umbera sonarmissinn. Við vottum ykkur, börnum ykkar, for- eldrum ykkar og öðrum aðstandend- um okkar dýpstu samúð. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt (Matthías Jochumsson.) Halldóra Sigríður Jónsdóttir og Björn Úlfljótsson. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 37 Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÁSTRÁÐUR VALDIMARSSON, Hraunsholtsvegi 2, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Garðakirkju fimmtudaginn 13. desember kl. 13.00. Kristjana Margrét Guðmundsdóttir, Guðrún Ástráðsdóttir, Már Þorvaldsson, Hjördís Ástráðsdóttir, Peter Tompkins, Brynja Ástráðsdóttir, Pétur Bjarnason og afabörn. ✝ Faðir minn, sambýlismaður, bróðir og frændi, HANNES JÓNSSON er látinn. Útförin hefur farið fram. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Halla, Alma Þorláksdóttir, Hafdís Jónsdóttir, Margrét Hjálmarsdóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRIGITTE ÁGÚSTSSON, Lindasíðu 2, Akureyri, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 13. desember kl.13.30. Friðrik Halldórsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Pétur Halldórsson, Þórunn Steingrímsdóttir, Eygló Halldórsdóttir, Tryggvi Gunnarsson, Kári Halldórsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát okkar elskulegu móður og ömmu, JÓNU SOFFÍU TÓMASDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Droplaugarstöðum. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Haraldsdóttir. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR ÓLAFSSON til heimilis að Sóltúni, áður Kjalarlandi 9, Reykjavík, er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EIRÍKUR GUÐMUNDSSON, Heiðarbraut 11, Garði, lést laugardaginn 8. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Aðalheiður Jónsdóttir, Guðmundur Friðbjörn Eiríksson, Brynja Guðmundsdóttir, Gísli Rúnar Eiríksson, Jóhanna Óladóttir, Kjartan Mar Eiríksson, Helga Eiríksdóttir, Katrín María Eiríksdóttir, Björgvin Arnar Björgvinsson, Svanhildur Eiríksdóttir, Kristján Jóhannsson, Jón Björgvin Hauksson, Ulla Kronqvist og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.