Morgunblaðið - 11.12.2007, Síða 49

Morgunblaðið - 11.12.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 49 / AKUREYRI/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK / SELFOSSI BEE MOVIE m/ensku tali kl. 6 - 8 LEYFÐ BÝFLUGNAMYNDIN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ BEOWULF kl. 10 B.i. 12 ára SIDNEY WHITE kl. 8 - 10 LEYFÐ BÝFLUGNAMYNDIN m/ísl. tali kl. 8 LEYFÐ DAN IN REAL LIFE kl. 8 LEYFÐ BEOWULF kl. 10 B.i. 12 ára EASTERN PROMISES kl. 10:10 B.i. 16 ára SÝND Í KEFLAVÍK FRÁ LEIKSTJÓRANUM DAVID CRONEBERG SÝND Á SELFOSSI eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ eeee - T.S.K., 24 STUNDIR eeee - L.I.B., TOPP5.IS SÝND Á SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA NÝ ÍSLENSK ÆVINTÝRAMYND EFTIR ARA KRISTINSSON SEM GERÐI M.A. STIKKFRÍ. KALLI ER SENDUR Á AFSKEKKTAN SVEITABÆ TIL AÐ EYÐA JÓLUNUM MEÐ PABBA SÍNUM ÞAR SEM HANN VILLIST, LENDIR Í SNJÓBYL OG HITTIR FYRIR BÆÐI ÍSBJÖRN OG DULARFULLAR VERUR OFL! JÓLAMYNDIN 2007 „BEOWULF ER EINFALDLEGA GULLFALLEG...“ ENTERTAINMENT WEEKLY SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI 2 VIKUR Á TOPPNUM Á ÍSLANDI SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI Leiðinlegu skóla stelpurnar - sæta stelpan og 7 lúðar! Amanda Bynes úr She‘s The Man er komin aftur í bráðskemmtilegri mynd „RIDLEY SCOTT LEIKSTÝRIR RUSSELL CROWE OG DENZEL WASHINGTON Í BESTU MYND ÞESSA ÁRS!“ Ó.E. eeee „American gangster er vönduð og tilþrifamikil“ - S.V., MBL eeee ,,Virkilega vönduð glæpamynd í anda þeirra sígildu.” - LIB, TOPP5.IS „Óskarsakademían mun standa á öndinni... toppmynd í alla staði.“ Dóri DNA - DV SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS BÝFLUGNAMYNDIN m/ísl. tali kl. 8 LEYFÐ HITMAN kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára BEOWULF kl. 10 B.i. 12 ára BÝFLUGNAMYNDIN m/ísl. tali kl. 6D LEYFÐ DIGITAL BEE MOVIE m/ensku tali kl. 8D - 10:10D LEYFÐ DIGITAL BEOWULF kl. 5:303D - 10:303D B.i. 12 ára 3D-DIGITAL AMERICAN GANGSTER kl. 6 - 9 B.i. 16 ára 8.12.2007 1 28 32 37 38 6 0 9 3 3 8 1 9 6 6 36 5.12.2007 8 17 19 26 30 32 1228 39 Í DUGGHOLUFÓLKINU, nýjustu barna- og fjölskyldumynd Ara Kristinssonar (Stikkfrí), er fléttað saman gamalli munnmælasögu af mannskaða vestur á fjörðum og til- vistarvanda Kalla (Bergþór), tólf ára stráks í Reykjavík. Kalli elst upp hjá einstæðri móður og virðist fátt skorta. A.m.k. er hann vel búinn há- tæknilega séð, hann á t.d. gemsa, ferðageislaspilara og fartölvu af nýj- ustu gerð. Hann kann tökin á tól- unum og beitir þeim af útsjón- arsemi, ekki síst til að klekkja á skólasystkinum sínum. Hrekkirnir kosta pilt tímabund- inn brottrekstur yfir jólin og mamman, sem er á kafi í há- skólanámi, sér enga lausn skárri en að senda Kalla sinn vestur á firði þar sem faðir hans er í sambúð. Kalla líst bölvanlega á hugmyndina, ekki síst vegna skorts á ruslfæði og hennar Ellenar (Þórdís Hulda), heimasætunnar á bænum sem er á svipuðu reki og hann. „Hún er norn,“ segir Kalli, og eitt- hvað er stelpan að kukla með anda- glas og þykist ná sambandi við lát- inn föður sinn og sjá drauga sem hún tengir við „Dugguholufólkið“, átján manna hóp sem var að koma af skemmtun í næsta byggðarlagi fyrir langa löngu, en varð úti í samnefndri gjótu á heiðinni ofan við bæinn. Sambýliskona föður Kalla er kominn á steypinn og það er blússað með þau á sjúkrahúsið í næsta firði. Kalli og Ellen verða ein eftir á bænum og viti menn, draugur gerir vart við sig og börnin lenda í harla óvæntum ævintýrum. Ari leikur sér að andstæðum úr fortíð og samtíð, yfirnáttúrulegum fyrirbærum og raunveruleika (þema sem hefur tröllriðið erlendu barna- og fjölskyldumyndefni), hann stefnir hátæknibúnaðinum hans Kalla gegn andaglasi Ellenar, sveitinni gegn borgarsamfélaginu, og malbikinu og öryggi þess gegn válegum veðrum og samgöngukerfi dreifbýlisins þar sem til verða varasamar vegleysur við minnstu veðrabrigði. Hugmyndin er góð, að etja saman hjátrú og hindurvitnum, draugum og miðlum annars vegar og hins vegar vantrúa æsku sem elst upp við Nokia, Samsung og Sony – forneskj- unni og fartölvukynslóðinni, höms- um og hamborgurum. Meginógn- irnar sem steðja að börnunum eru ekki síður forvitnilegar andhverfur, annars vegar framliðnir svipir, hins vegar mjög svo veraldlegur ísbjörn sem berst með hafísnum að landi. Því miður fangar Dugguholufólkið ekki nógu vel hugarheim eldri áhorf- enda, en virkar betur á þá yngstu, sem hún er vissulega ætluð. Það blasir engu að síður við að betur hefði mátt vinna og markvissar úr áhugaverðu hráefninu, en sjálfsagt hefur framleiðandinn haft takmark- að fé á milli handanna til að útfæra brellurnar með umtalsverðari ár- angri. Myndin er jú ætluð sam- tímabörnum eins og Kalla, sem kunna oftast mun betur á tæknina en foreldrarnir og eru vön einhverju betra en óglöggri og lítið ógnvekj- andi innkomu bjarndýrsins, nálægð þess hlýtur að eiga að vera mun skelfilegri, svo tekið sé dæmi. Þá er það draugurinn, svo ljóm- andi góð og þjóðleg flétta í nútíma- barnamynd sem hefði mátt lukkast betur. Strákurinn í draugshlutverk- inu er lítið „móra“-legur, meinleys- isgrey sem minnir meira á einn gutt- ann úr bekknum hans Kalla en vofu aftan úr forneskjunni. Það hefur sannarlega ekki verið ætlunin að hræða líftóruna úr krakkaskinn- unum, en draugsi er hvorki fugl né fiskur fyrir flesta aldurshópa. Betur hefur tekist til við að skop- ast að tæknikunnáttu unglinganna í samanburði við þá eldri og í vali á ungu leikurunum, sem mest mæðir á. Bergþór stendur sig vel og Þórdís á góða spretti þótt hún bregðist stundum afkáralega við, en það þarf ekki að vera hennar sök. Eldri leik- ararnir gera það sem ætlast er til af þeim í góðum barnamyndum – að vera til staðar í bakgrunninum. Kvikmyndatakan er aðal mynd- arinnar og þegar vélinni er beint að ógnandi fjallshlíðinni með sínum vo- veiflegu hamraborgum, hlöðnum dulúð þjóðsagnanna í grárri skamm- degismuggunni, fáum við nasasjón af fjári magnaðri mynd fyrir full- orðna, en Dugguholufólkið bætir úr brýnni þörf fyrir barnaefni. Andaglasið og gemsinn KVIKMYNDIR Sambíóin, Háskólabíó Leikstjóri: Ari Kristinsson. Handrit: Ari Kristinsson. Kvikmyndataka: Kjell Vass- dal. Tónlist: Öistein Boassen. Klipping: Elísabet Ronaldsdóttir. Aðalleikendur: Bergþór Þorvaldsson, Þórdís Hulda Árna- dóttir, Árni Beinteinn Árnason, Margrét Vilhjálmsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir, Margrét Ákadóttir, Erlendur Eiríksson, Steinn Ármann Magnússon o.fl. 95 mín- útur. Taka kvikmyndagerð. Ísland. 2007. Dugguholufólkið  Sæbjörn Valdimarsson Duggholufólkið „Því miður fangar Dugguholufólkið ekki nógu vel hugarheim eldri áhorfenda, en virkar betur á þá yngstu, þá sem hún er vissulega ætluð,“ segir Sæbjörn Valdimarsson meðal annars í dómnum. FRUMRAUN ítalska kvikmynda- gerðarmannsins Alessandro Angel- ini í að leikstýra leikinni kvikmynd í fullri lengd sýnir að knappur stíll, áhugavert handrit, og þéttur leik- arahópur getur komið manni langt. Fabio (Giorgio Pasotti) starfar að fangelsismálum, þá aðallega í að meta endurhæfingarstig fanga. Það sem fæstir vita er að faðir hans, Sparti (Giorgio Colangeli) er dæmdur morðingi og hefur setið í fangelsi í 20 ár. Myndin hefst þegar Sparti er fluttur yfir í fangelsið sem Fabio starfar við, og Fabio átt- ar sig á því að þarna er faðirinn kominn sem fjölskyldan sleit öllu sambandi við þegar hann var barn. Tilfinningarnar sem brjótast upp á yfirborðið eru ekki auðveldar en Angelini, sem skrifaði handritið ásamt Angelo Carbone, reynir að forðast ódýrar lausnir. Hann hefur líka með sér traustan hóp til þess að skapa áhugaverða heildarmynd. Myndavél Arnaldo Catinari fylgir leikurunum náið og klipping Mas- simo Fiocchi er þétt. Stór hluti myndarinnar gerist innan veggja fangelsis, og er útlit Alessandro Marrazzo hrátt og innilokandi. Sag- an er að mestu tvíleikur Pasotti og Colangeli, en snertir þó fleiri. Sér- staklega hina frambærilegu Mic- hela Cescon í hlutverki Cristina, systur Fabio. Hér er á ferðinni prýðileg tilfinningastúdía sem er vel þess virði að sjá. Gaman væri nú að mynd eins og þessi fengi betri dreifingu í kvikmyndahúsum borgarinnar. Eftirsjá og einmanaleiki KVIKMYNDIR Regnboginn – Ítalskir dagar Leikstjóri: Alessandro Angelini. Leikarar: Giorgio Pasotti, Giorgio Colangeli, Mec- hela Cescon, Katy Saunders. Ítalía. 90 mín. 2006. Loft læviblandið L‘aria salata  Anna Sveinbjarnardóttir SÍÐASTA Söngvaskáldakvöld árs- ins verður haldið á DOMO annað kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20 og hefst í beinni útsendingu Kastljóss- ins. Sérstakur gestur kvöldsins er söngkonan Ragnheiður Gröndal. Hljómsveitin er skipuð Eyþóri Gunnarssyni hljómborðsleikara, Ómari Guðjónssyni gítarleikara, Valdimar Kolbeinssyni bassaleik- ara og Einari Scheving trommu- leikara. Söngvaskáldakvöldin eru sam- starfsverkefni FTT og FÍH. Að Söngvaskáldakvöldinu af- loknu verður Jam – Session en kl. 22 hefst dagskrá Múlans. Aðgang- ur að Söngvaskáldakvöldinu er ókeypis til kl. 21.30 en eftir það er aðgangseyrir 1.000 kr. Söngva- skáldakvöld

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.