Morgunblaðið - 19.01.2008, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MUN ódýrara er fyrir sjúkling, sem reglulega þarf
lyfjaskammt, að fá þriggja mánaða skammt en t.d.
til eins mánaðar. Ástæðan er að greiðslukerfið virk-
ar þannig að þak er á kostnaði sjúklingsins. Sem
dæmi má nefna lyf sem kostar 10.000 krónur. Sjúk-
lingur greiðir t.d. 3.000 krónur fyrir mánaðar-
skammt, miðað við að sú tala sé þakið. Á þremur
mánuðum greiðir hann kostnaðinn þannig þrisvar,
alls 9.000 krónur. Ef sjúklingurinn hins vegar fær
þriggja mánaða skammt í einu kostar lyfið 30.000
krónur í heildina, þakið er hið sama og kostnaður
sjúklingsins því eingöngu 3.000 kr.
Í frétt í Morgunblaðinu í gær kom fram að apó-
tekin hentu á tilteknu tíu mánaða tímabili fimm
tonnum af vannýttum lyfjum. „Það eru margar
ástæður fyrir því að lyfjum er hent,“ segir Rann-
veig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar. Regl-
ur eru um að ónotuðum lyfjum eigi að skila til apó-
tekanna en Rannveig segir ljóst að fólk hendi
jafnframt lyfjum sjálft og engin leið sé að gera sér
grein fyrir hversu miklu magni er hent þannig.
Birgðastýring getur verið ástæða þess að lyfjum
er hent og að sjúklingar taki ekki lyfin sín, sem m.a.
kemur til af því að sjúklingum finnist lyfið ekki
verka sem skyldi, það hafi óæskileg áhrif og jafnvel
að fólk hafi ekki nægar upplýsingar til að vita
hvernig taka á lyfið rétt. „Síðan getur vel verið að
fólk hafi fengið þriggja mánaða skammt af því að
leyft er að ávísa til þriggja mánaða í senn og svo
komi í ljós að sjúklingur þoli ekki lyfið. Þá hættir
hann náttúrlega að taka það,“ segir Rannveig.
Þessu til viðbótar nefnir hún stóra skammta.
Eina leið til úrbóta í þessum efnum segir Rann-
veig vera að afgreiða minna magn í einu. „Það er að
segja að skammta lyfin þannig að sjúklingur geti
t.d. farið viku- eða mánaðarlega og fengið skammt-
inn, þá fái hann nákvæmlega það sem hann eigi að
taka. Slík skömmtun myndi líka hjálpa til við að lyf
séu tekin rétt, af því að það er merkt hvernig á að
taka þau og auðveldara að fylgjast með því þannig.“
Rannveig segir þó að aldrei verði alveg hægt að
koma í veg fyrir að lyfjum verði hent, þar sem lyf
fyrnast og alltaf verður eitthvað um að ávísað sé
lyfjum sem fólk síðan þoli ekki.
Nýtt kerfi í gagnið 1. maí?
Nefnd er að störfum, undir forystu Péturs H.
Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokks. Hlutverk
hennar er að endurskoða greiðsluþátttöku almenn-
ings í heilbrigðiskerfinu. Vonast er til að nýtt kerfi
varðandi lyfjakostnað komist í gagnið 1. maí. „Nú er
umræðan um að breyta greiðslukerfinu þannig að
það verði ekki hvetjandi að afgreiða meira en
minna,“ segir Rannveig.
Mikilvægt er að rétt sé staðið að förgun lyfja, um
getur verið að ræða eiturefni sem geta komið sér
illa fyrir náttúruna. „Æskilegast er að fólk fari með
vannýtt lyf í apótekin, þannig að þeim sé fargað á
réttan hátt. Í sumum tilvikum eru þetta einfaldlega
eiturefni, t.d. má segja það um krabbameinslyf, þau
eru hættuleg og ekki æskilegt að þau séu í nátt-
úrunni. Mjög óæskilegt er að fleygja sýklalyfjum í
klósettið, þá er mögulega verið að ala upp bakteríur
sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og það er alls
ekki sniðugt að hormónalyfin fari út í náttúruna,
svona sem dæmi,“ bendir Rannveig á.
Þriggja mánaða skammtur
mun ódýrari en eins mánaðar
Morgunblaðið/Friðrik
Lyf Apótekin sjá um förgun vannýttra lyfja.
Mikilvægt að rétt sé staðið að förgun lyfja þar sem í þeim geta verið eiturefni
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
TOYOTA-skákmót eldri borgara fór fram í gær og
tóku alls 26 manns þátt í mótinu. Magnús Kristinsson,
eigandi Toyota-umboðsins, lék fyrsta leik mótsins í
skák Haraldar Axels Sveinbjörnssonar og Björns Þor-
steinssonar, sem vann allar 9 skákir sínar og stóð uppi
sem sigurvegari mótsins.
Árvakur/Ómar
Eldri borgarar mættust við taflborðið
„ÞESSAR auglýsingar endurspegla
vel brennandi áhuga [Helga] á mál-
efnum aldraðra og ég fagna því,“
segir Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lags- og tryggingamálaráðherra en
Helgi Vilhjálmsson birti í gær
opnuauglýsingar í dagblöðum, þar
sem hann skorar á Jóhönnu að
beita sér fyrir lagabreytingum sem
geri lífeyrissjóðum kleift að fjár-
festa fyrir hluta innkomu sinnar í
húsnæði fyrir aldraða. „Hann vill að
lífeyrissjóðirnir byggi húsnæði fyrir
eldri borgara en hann verður líka
að líta á hina hlið málsins, sem er
að lífeyrissjóðirnir hafa þá skyldu
fyrst og fremst að tryggja lífeyr-
isþegum viðunandi lífeyri og þeir
verða því alltaf að hafa í huga að
hámarka ávöxtun sjóðanna,“ segir
Jóhanna. „Ef sjóðirnir eiga að koma
inn í fjármögnun á húsnæðismálum
aldraðra verða þeir að fá viðunandi
raunávöxtun á sínu fjármagni og
það má vel vera að eins og hluta-
bréfamarkaðurinn er núna sé það
skynsamleg ákvörðun að fara þá
fjárfestingarleið sem Helgi nefnir.
Vill heyra frá lífeyrissjóðunum
Ég tek líka eftir að Helgi segir að
stjórnendur sjóðanna haldi því fram
að það strandi einungis á lagasetn-
ingu. Þeir hafa ekki, að því er ég
best veit, komið þeirri skoðun sinni
á framfæri við stjórnvöld. Það væri
þá ágætt að heyra skoðun þeirra á
því. Það er rétt að finna þarf nýjar
leiðir til að hraða t.d. uppbyggingu
hjúkrunarheimila fyrir aldraða og
fækka fjölbýli. Við erum að skoða í
mínu ráðuneyti hvernig hægt er að
gera það og erum við að skoða nýj-
ar fjármögnunarleiðir í því sam-
bandi.“
Getur ver-
ið skyn-
samleg leið
Jóhanna
Sigurðardóttir
Nýjar fjármögnunar-
leiðir til skoðunar
Helgi
Vilhjálmsson
H
efurðu hitt þennan
Bobba?“ gall í einum 8 ára
snáða á skákæfingu síð-
astliðinn þriðjudag,
„Bobba Fischer?“ Ég
hugsaði með mér að þetta væri það sem
ég ætti í raun að vera að gera allan ársins
hring – það væri gagn í því, vit og gleði að
kenna og tefla skák.
„Þessi Bobbi, einn almesti snillingur
hinna 64 reita, dó 64 ára að aldri í
Reykjavík tveimur dögum síðar. Hann
lést á sextugsafmæli Davíðs Oddssonar,
sem í utanríkisráðherratíð sinni hafði um
það pólitíska forystu að Fischer væri
veitt skjól hér á Íslandi. Einvalalið ólíkra
einstaklinga hér heima hafði haldið bar-
áttunni fyrir frelsun Fischers gangandi
vikum og mánuðum saman. Embætt-
ismenn fóru á taugum í málinu, aðrir hik-
uðu eða viku sér undan, en Davíð tók af
skarið. Sæmi og Bobby féllust í faðma
eftir 33 ára aðskilnað.
Fischer var einn magnaðasti snillingur
sem skáklistin hefur átt. Innsæi hans,
skarpskyggni, frumleika, vinnusemi,
ástríðu og afburðahæfileika gat enginn
dregið í efa. Hann tefldi allar skákir til
vinnings enda var óbilandi sigurvilji hans
höfuðeinkenni. Bobby Fischer var fædd-
ur til að tefla.
Fischer var barn kalda stríðsins og leit
stoltur á það sem sitt hlutverk að
hnekkja á einokunarvaldi Sovétríkjanna
yfir skáklistinni. Á margan hátt uppfyllti
Fischer goðsögnina um ameríska draum-
inn: Einstaklingurinn sem berst einn
gegn kerfinu og yfirbugar stórveldi
skriffinnskunnar af eigin rammleik, hug-
fengi og frumleik. Hann var Öskubuska
hins vestræna skákheims í kalda stríðinu
– sá sem sigraði vélina sem öllum virtist
ósigrandi. Með afrekum sínum færði
hann skáklíf Vesturlanda og atvinnu-
mennsku á langtum hærra plan en það
hafði áður verið og lagði grunninn að nú-
tímalegri vinnubrögðum.
Það fór enda þannig að þegar Fischer
sneri baki við skákinni þá sneri hann
baki við inntaki lífs síns. Þegar listin sem
blés sál hans lífi hvarf úr lífi hins unga og
glæsilega 29 ára heimsmeistara árið 1972
hvarf Bobby Fischer inn í hugarheima
sem flestum voru huldir. Einangrun varð
hans hlutskipti.
Í fjölda ára var Bobby Fischer grát-
beðinn um að koma aftur að skákborð-
inu. Hver milljónamæringurinn á fætur
öðrum bauð honum gull og græna skóga
fyrir að tefla. Svarið var alltaf hið sama:
Nei. Svo gerðist það sem öllum kom í
opna skjöldu: Fischer sneri aftur í eitt
einasta sinn og tefldi við Spasskí árið
1992. Fyrir þessa endurkomu hefndist
Fischer grimmilega og fangelsi varð á
endanum raunin. Þeir Spasskí og Fisch-
er hittust svo aftur í leyni árið 2006, á
málþingi sem Skáksamband Íslands hélt
til heiðurs Friðriki Ólafssyni. Þar urðu
fagnaðarfundir og merkilegt að upplifa
hið einlæga vinarþel á milli þessara
gömlu andstæðinga.
Engum dylst að á síðara skeiði lífs síns
var Bobby Fischer þjökuð sál. Fischer af-
neitaði föðurlandi sínu, móður sinni, vin-
um sínum, trú sinni, köllun sinni og
ástríðu. Hann var þar sjálfum sér verstur
og úthýsti því sem stóð honum næst,
sjálfskipaður útlagi eigin hamingju.
Fischer svipar þannig til sumra annarra
jöfra mannkynssögunnar á sviði lista og
vísinda, hverra dyggasti félagi var snilli
og innblástur en hvorki hamingja né
blessun í mannlegu samfélagi, hvað þá
hugarró.
Ýmis ummæli Fischers og yfirlýsingar
í seinni tíð eru andstyggilegar og óverj-
andi og bera huga einangrunar og rang-
hugmynda vitni. En hann var um leið
ljúfur Ameríkani í fari og háttum sem
sást á götum Reykjavíkur eins og vina-
legur afi á vappi um bæinn, bankandi upp
á hjá Braga bóksala á Klapparstígnum.
Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið
2008 er nú handan við hornið og fremstu
skákmeistarar heims hvaðanæva úr
heiminum munu enn á ný flykkjast til
Reykjavíkur. Það er við hæfi að nú verði
reynt að bjóða sérstaklega til leiks eldri
heiðursmönnum á borð við Spasskí, Port-
isch, Hort og fleiri sem Fischer atti kappi
við á ferlinum. Þannig gætum við minnst
PISTILL » Það fór enda þannig að
þegar Fischer sneri baki
við skákinni þá sneri hann
baki við inntaki lífs síns.
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Bobby Fischer
skáksigra hans með eftirminnilegum
hætti.
Margir skákunnendur, fjölmargir, um
allan heim, höfðu í vonbrigðum sínum og
sorg yfir óforsvaranlegum hatursyfirlýs-
ingum, vænisýki og ranghugmyndum
Fischers á seinni árum snúið við honum
baki sem manneskju. Margir skákmeist-
arar voru í raun djúpt særðir yfir fram-
komu hans, sárir, hneykslaðir og reiðir.
Það er skiljanlegt. En þótt hatursyfir-
lýsingar Fischers verði alltaf óverjandi er
ég þakklát fyrir það að „þessi Bobbi“
skyldi boðinn velkominn til Íslands þegar
aðrir sneru við honum baki og honum var
ætlað að ljúka lífinu í fangelsi. Það er
vonandi að ástríða hans og guðs gjöf á
sviði skáklistarinnar, blómi hans, inn-
blástur og sköpun fái að lifa í minning-
unni, burtséð frá hliðunum svörtu og
sársaukafullu.
Hljóðpistlar Morgunblaðsins,
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
les pistilinn
HLJÓÐVARP mbl.is
ÞAU slæmu mistök urðu í frétt af
stöðu kjaraviðræðna í blaðinu í gær
að þar sagði ranglega að upplýs-
ingar um afstöðu Starfsgreina-
sambandsins (SGS) væru hafðar eft-
ir Sigurði Bessasyni, formanni
Eflingar. Hið rétta er að þessi hluti
fréttarinnar og tilvitnuð svör voru
byggð á samtali við Kristján Gunn-
arsson, formann Starfsgreina-
sambandsins. Mistökin stöfuðu af
því að blaðamaður fór mannavillt
þegar leitað var eftir fréttaviðtali
um stöðu samningamálanna í fyrra-
kvöld, með þessum afleiðingum. Þá
skal það leiðrétt að Flóafélögin eru
ekki aðilar að aðgerðahópi SGS og
ekki var haldinn sameiginlegur
fundur SGS og Flóafélaganna um
samningamálin í fyrradag eins og
ranglega var fullyrt í fréttinni. Eru
viðkomandi beðnir afsökunar á mis-
tökunum.
LEIÐRÉTT
Ranglega borinn
fyrir frétt
um kjaramál