Morgunblaðið - 19.01.2008, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.01.2008, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÞRÍR fyrrverandi fíkniefnalög- reglumenn í New York hafa höfðað mál á hendur Universal Pictures kvikmyndaris- anum vegna ásakana sem koma fram á hendur þeim í stórmyndinni American Gangster. Þre- menningarnir fara fram á sam- anlagt 55 millj- ónir dollara í skaðabætur, en það nemur rúmlega 3,5 milljörðum íslenskra króna. Ástæðan er sú að í myndinni eru þeir allir gerðir að miklum skúrk- um, en American Gangster er sann- söguleg mynd sem fjallar um fíkni- efnabaróninn Frank Lucas. Þegar lögreglunni í New York tókst að hafa hendur í hári Lucas hóf hann að hjálpa lögreglunni, og samkvæmt myndinni kom hann upp um mikinn fjölda spilltra lögreglumanna sem höfðu unnið náið með honum og öðrum glæpamönnum í borginni. Í lok myndarinnar kemur fram að með hjálp Lucas hafi tekist að sak- fella þriðjung allra fíkniefna- lögreglumanna í New York, en því mótmæla þeir Louis Diaz, Gregory Korniloff og Jack Toal harðlega. Lögmaður þeirra félaga heldur því fram að engir lögreglumenn hafi verið sakfelldir í kjölfar upplýsinga frá Lucas. Í yfirlýsingu frá verj- endum Universal Pictures kemur hins vegar fram að fyrirtækið standi við það sem fram kemur í myndinni. Vilja ekki bara bætur „Með þessari yfirlýsingu svertir verjandinn mannorð fjölda heið- arlegra og hugrakkra opinberra starfsmanna, og kemur óorði á þá á meðal milljóna íbúa borgarinnar,“ segir meðal annars í yfirlýsingu frá lögmanni þremenninganna. Þeir höfða málið í nafni u.þ.b. 400 fíkniefnalögreglumanna sem störf- uðu í New York á árunum 1973 til 1985. Auk skaðabótanna fara þeir fram á að dreifingu myndarinnar verði hætt, eða að texta sem birtist í lok hennar verði breytt. Þá vilja þeir að allur ágóði af myndinni renni í styrktarsjóð bandarískra fíkniefnalögreglumanna. Leikstjóri American Gangster er Ridley Scott, en með aðalhlutverkin fara þeir Denzel Washington og Russell Crowe. Myndin sló í gegn beggja vegna Atlantsála nú í haust. American Gangster ósönn? Fyrrum lögreglu- menn höfða mál Denzel Washington sem Frank Lucas. FRANSKA kvikmyndin Á bout de souffle eftir Jean-Luc Godard verður sýnd í í Bæj- arbíói, Strandgötu 6 í Hafn- arfirði, kl. 16 í dag. Um er að ræða lykilmynd í sögu frönsku nýbylgjunnar, en það er Kvik- myndasafn Íslands sem stend- ur að sýningu hennar. Myndin, sem er frá 1960, segir frá smá- krimmanum Michel (Jean-Paul Belmondo) sem er á flótta und- an vörðum laganna eftir að hafa stolið bíl og drep- ið lögregluþjón. Hann felur sig hjá hinni fögru Patriciu, en lögreglan hættir ekki leitinni. Myndin er með enskum texta, miðaverð er 500 krónur og miðasala verður opnuð um 15.30. Kvikmyndir Jean-Luc Godard í Hafnarfirði Úr Á bout de souffle. BORGARBÓKASAFNIÐ, í samstarfi við ÍTR, stendur fyr- ir ljóðaslammi á Vetrarhátíð 2008. Ljóðaslamm felst í flutn- ingi frumsamins ljóðs eða ljóða þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóða- slamms, heldur er áherslan á ljóðaflutning sem sviðslist og miðað við að flytjandi eða flytj- endur fari með ljóðið samhliða tónlist, myndlist eða leiklist. Hvort sem er einstaklingur eða hópur getur flutt ljóðið. Skráningarfrestur er til 20. jan- úar, en sjálf keppnin fer fram 7. febrúar. Frekari upplýsingar má finna á www.borgarbokasafn.is. Ljóðlist Skráðu þig í ljóðaslamm 2008! Úlfhildur Dagsdóttir LISTAMAÐURINN Erró mun árita bókina Erró í tíma- röð – líf hans og list í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan 11 í dag. Með hverri seldri bók fylgir áritað og númerað grafíkverk sem hægt er að fella inn í bókina. Um tvenns konar grafíkverk er að ræða en einungis 100 eintök eru til af hvorri mynd. Í för með Erró er höfundur bók- arinnar, Danielle Kvaran listfræðingur, sem bú- sett er í Noregi, og mun hún einnig árita bókina. Erró og Danielle munu einnig árita bókina og gefa áðurnefnd grafíkverk á Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi klukkan 14. Myndlist Erró áritar á tveimur stöðum Erró Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is SÖNGSTJÖRNURNAR Bergþór Pálsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir koma nú aftur fram á nýárstónleik- um Tríós Reykjavíkur eftir nokkurt hlé. „Það eru þrjú ár síðan þau Beggi og Diddú hafa verið með okk- ur. Við höfum verið með aðra frá- bæra söngvara, en þau eru komin aftur og það finnst okkur mjög gam- an,“ segir Guðný Guðmundsdóttir sem skipar Tríó Reykjavíkur ásamt þeim Peter Máte píanóleikara og Gunnari Kvaran sellóleikara. Tríóið hefur síðustu ár staðið fyrir nýárs- tónleikum þar sem klassísk tónlist í léttari kantinum er í fyrirrúmi. „Það kemur alltaf upp góð stemning og við finnum upp á allskonar sprelli líka. Við gerum ýmislegt fleira en að spila og syngja,“ segir Guðný sem vill ekki spilla ánægjunni fyrir tón- leikagestum með því að gefa meira upp. Tvennir tónleikar verða haldnir, á sunnudagskvöld og mánudagskvöld. Báðir fara fram í Hafnarborg og hefjast klukkan átta. Klassík í ársbyrjun Hefð er að skapast fyrir því að fagna nýju ári og hækkandi sól með klassískum tónleikum og þess vegna hefur verið mikið úrval af þeim und- anfarið. „Við sem stöndum fyrir þessum tónleikum reynum að rekast ekki á hvert annað og dreifa þessu svolítið svo að fólk komist á alla við- burði sem það hefur áhuga á,“ segir Guðný. Í lagavali verður lögð áhersla á létta og skemmtilega tónlist. „Það er þessi stemning sem fólk hefur gam- an af á þessum árstíma. Þetta verða tónleikar til þess að virkilega njóta, hvort sem fólk telur sig hafa vit á tónlist eða ekki og bæði fyrir unga og aldna. Við gerum svo alltaf eitt- hvað skemmtilegt í leiðinni og reyn- um að koma fólki svolítið á óvart.“ Verk eftir Strauss, Lehár, Kálm- án og síðast en ekki síst Mozart eru meðal þess sem boðið verður uppá. „Mozart er náttúrulega helsta Vín- artónskáldið og það verða þarna til dæmis smá sýnishorn úr Töfraflaut- unni. Beggi og Diddú verða líka með lög úr bandarískum söngleikjum eins og Porgy og Bess og ég ætla að spila sígaunaljóðið fræga eftir Pablo de Sarasate.“ Guðný segir mikla grósku í klass- ískri tónlist þessa dagana og ungt og vel menntað tónlistarfólk vera að gera nýja og spennandi hluti. „Það eru svo margir nýir sprotar að koma upp og ný form og ný sköpun að verða til þar sem klassísk tónlist blandast inn. Hinsvegar stendur þessi gamla tónlist alltaf fyrir sínu og stendur á gömlum merg, Bach og Mozart eru ómissandi hluti af menn- ingunni rétt eins og Laxness og Kjarval.“ Í léttari kantinum Tvennir nýárstón- leikar Tríós Reykja- víkur fara fram í Hafnarborg Árvakur/Golli Tríó Reykjavíkur Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Peter Maté píanóleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari flytja létta klassíska tónlist í byrjun hvers árs. Í ár njóta þau liðfylgis Bergþórs Pálssonar og Diddúar. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „ÞETTA er eiginlega aldarspegill,“ segir Daði Guðbjörnsson listmálari, en í dag klukkan 15 opnar hann sýn- inguna Dans elementanna í Lista- safni Reykjanesbæjar í Duushúsum. „Ég segi aldarspegill, því þetta er í raun yfirlit yfir það sem ég hef ver- ið að mála það sem af er öldinni,“ segir hann og brosir. Salur Lista- safnins í Duushúsum er með stærstu sýningarsölum landsins og Daði segir hann henta sér vel, því hann sýni nú mest stór verk, fleka sem eru margir um eða yfir tveir metrar á kant, þeir taki sig vel út í salnum. Og hann er spenntur fyrir sýningunni, þótt hann hafi fyrir nokkrum árum íhugað að hætta að standa í svona sýningastússi, þar sem hann var orðinn þreyttur á því. „Flest þessi verk hafa verið lengi á vinnustofunni og ég hef verið að taka þau fram og vinna í þau aftur og aftur. Myndirnar eru því talsvert massaðar, ég hef legið yfir þeim. Fyrir tveimur og hálfu ári byrjaði ég að stunda sahaja-jóga, fór þá að taka til í sálarlífinu og hef verið að huga að andlegum hlutum. Hvernig lífið og sálarlífið virka. Þegar maður er leitandi þá koma ýmis tákn inn í verkin, eiginlega ósjálfrátt. Ætli það sé ekki áberandi á sýningunni. Ég hengi mig samt ekki í þá heimspeki heldur byggi á eigin reynslu. Nota til að mynda litla fugla sem tákn- mynd sakleysis. Það eru margar vís- anir úr ólíkum áttum á sýningunni.“ Sem dæmi um verkin nefnir hann Ljóð á ís, mynd af gralinum helga, sem fyrirhugað er að leita að á Kili, en Daði færir upp í jökul. Segist hafa sína kenningu um hann þar. „Ég veit meira um þetta en þeir sem ætla að grafa eftir honum,“ segir Daði og skellir uppúr. „Í verkinu Vistaskipti er djöfullinn svo öðru megin og guðinn hinumegin. Og eld- ur á milli.“ Svarar ekki lífsgátunni Daði segist alls ekki reyna að svara lífsgátunni í þessum verkum heldur beri þær frekar merki um leitina. „Aðalmálið er að mála mynd- ir sem standa fyrir sínu. Þegar mað- ur er kominn á þennan aldur er maður að vinna sömu hluti upp aft- ur, velta þeim betur fyrir sér, og taka svo eitthvað nýtt inn með.“ Aldarspegill málarans Árvakur/Ómar Yfirlega „Flest þessi verk hafa verið lengi á vinnustofunni og ég hef verið að taka þau fram og vinna í þau aftur og aftur,“ segir Daði Guðbjörnsson. Daði Guðbjörnsson sýnir úrval síðustu ára í Reykjanesbæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.