Morgunblaðið - 19.01.2008, Síða 24
Ég ætla að vona að Guð gefiokkur það að við þurfumaldrei að flytja héðan, þvíokkur líður svo vel í þessu
húsi. Garðurinn er mjög stór og eyk-
ur lífsgæði okkar en við erum búnir
að láta hjarta okkar og ótal handtök í
að gera hann að paradís bæði fyrir
börn og fullorðna. Við eigum frá-
bæra nágranna hér allt í kring sem
koma gjarnan í garðinn á sumrin til
okkar og setjast niður með okkur og
drekka kaffi eða njóta grillveislna,“
segir Guðbergur Garðarsson eða
Beggi, en hann býr í hundrað ára
timburhúsi í Hafnarfirði ásamt sam-
býlismanni sínum Inacio Pacas.
Alexandra Mjöll dóttir Begga á ung-
lingsaldri býr einnig hjá þeim auk
þess sem Róbert Máni átta ára sonur
hans býr þar aðra hverja viku.
Húsið var ekki ásjálegt þegar þeir
keyptu það fyrir fjórum árum, en þá
stóð það autt og enginn hafði búið þar
lengi. „Hér var gegnumkalt og allt
hrátt en við fundum samt strax að við
vildum eiga heima hérna. Við höfum
verið að dunda okkur við að gera hús-
ið upp smátt og smátt, brotið niður
veggi og opnað rými, dregið nýtt raf-
magn og fleira og gerum þetta allt
sjálfir. Við viljum láta sem flest halda
sér og gólffjalirnar eru upprunalegar
en við pússuðum þær upp af því að við
vildum hafa þær ljósar en ekki dökk-
ar. Síðan stendur til að taka eldhúsið
alveg í gegn og gjörbreyta skipulag-
inu þar.“ Húsið er á þremur hæðum
og Alexandra Mjöll býr á neðstu hæð-
inni. Á miðhæðinni sem er aðalhæðin,
eru stofa, eldhús, borðstofa og
baðherbergi. Uppi er rúmgott svefn-
herbergi og einnig kvistherbergi fyrir
yngsta soninn.
Þegar komið er inn í forstofuna
tekur næstum mannhæðarhá stytta
af konu á móti gestum. „Hún hét
Tómasína þegar hún bjó á Hótel
Borg, en þegar handleggurinn á
henni brotnaði átti að henda henni en
ég fékk að hirða hana og núna heitir
hún Lilja eftir kærri vinkonu minni,“
segir Beggi en áberandi er að strax í
forstofu sem og í allri íbúðinni logar á
ótal kertum og englar í öllum stærð-
um og gerðum eru út um allt. „Okkur
finnst það notalegt og skapa góða
stemningu. Við sönkum að okkur
gömlum hlutum, bæði hér heima og
erlendis því þeir hafa sál og anda frá
sér sögu. Við viljum að fólki líði vel
þegar það kemur til okkar.“ Litríkar
myndir prýða veggina en þær hefur
Pacas málað og margar þeirra eru af
hestum en líka fólki. Pacas er frá
Brasilíu en hefur búið á Íslandi í
fimmtán ár og er með íslenskan rík-
isborgararétt og lítur á sig sem Ís-
lending, þó hann hafi að sjálfsögðu
sterkar taugar til heimalandsins sem
þeir Beggi heimsækja reglulega
enda á hann þar tvær dætur.
Beggi er andlega þenkjandi og sér
ýmislegt sem aðrir ekki sjá. Hann
segir að óróleg ung stúlka hafi verið á
sveimi í borðstofunni fyrst eftir að
þeir fluttu inn. „Hún var bara ellefu
ára og afskaplega leitandi og svolítið
hrekkjandi til að byrja með en mjög
góð stúlka. Ég þurfti að hjálpa henni
og það tók svolítinn tíma að hreinsa
út ójafnvægið sem fylgdi henni og fá
hana til að finna rétta ljósið. Ég sé
líka stundum mann uppi á lofti sem á
það til að rölta fram og til baka á
ganginum þegar við liggjum uppi í
rúmi og horfum á sjónvarið. En hann
hættir því er ég bið hann um það.“
khk@mbl.is
Hjartað í húsinu Eldhús og borðstofa er helsti samverustaðurinn. Ævintýri Þeir hafa byggt palla, hlaðið grjóti, gert gosbrunn og plantað 1.000 jurtum í garðinn.
Erum ekki fyrir
sótthreinsaða
naumhyggju
Notalegt og persónulegt er það sem þeir leggja
áherslu á. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti
hjartahlýja sambýlismenn í Hafnarfirðinum.
Bræðurnir Guðmundur og
Einar frá Krísuvík byggðu
húsið og það heitir Nýi
bær. Þegar þeir bjuggu hér
rétt upp úr aldamótunum
1900 voru heimilismeð-
limir sjö og það hlýtur að
hafa verið þröngt.
Antik Húsgögnin eru gömul og með sögu og andrúmsloftið hlýlegt. Ótal
smáhlutir, englar og málverk setja persónulegan svip á stofuna.
Viljandi stílbrot Þeir vildu hafa
baðherbergið módern og glitrandi.
Húslegir Begga og Pacas líður vel heima hjá sér og þeir vilja að svo sé einnig um gesti þeirra. Skenkurinn á bak
við þá er sá eini sinnar tegundar hér á landi en efri partinn af skenknum nota þeir sem hillur í eldhúsinu.
lifun
24 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ