Morgunblaðið - 19.01.2008, Side 25
Árvakur/G.Rúnar
Magnús Ólafsson fráSveinsstöðum skrifar: „Jón
Bjarnason þingmaður var gestur
hjá okkur á Lionsfundi. Hann sagði
m.a. að hann saknaði Halldórs
Blöndal úr þinginu, því hann hefði
oft gaukað að sér vísu. Ég held ég
sendi honum þessar með þökk fyrir
komuna. Jón á íbúð á Blönduósi og
er hér með lögheimili. Eitt af hans
baráttumálum er að endurbæta
gömlu kvennaskólabygginguna og
finna húsunum verðugt hlutverk.
Svona má nær því nota sömu orðin
bæði til að hæla og hallmæla.“ Og
vísurnar eru svohljóðandi:
Ég held að fáir kappann kjósi
sem kroppar vinstri græna haga.
Svo býr hann lítt á Blönduósi
bara sést þar fáa daga.
Ég held að margir kappann kjósi
Kvennaskólann vill hann laga.
Svo býr hann líka á Blönduósi
og berst á þingi flesta daga.
Ingólfur Ómar Ármannsson
yrkir um deilur gagnrýnanda og
Borgarleikhússins:
Greip þá ókyrrð huga hans
hófst nú mikil þræta
gagnrýni þessa góða manns
Guðjón vildi ei mæta.
Pétur Stefánsson komst varla út
af bílaplaninu í gærmorgun fyrir
fannfergi:
Öll er byggðin einangruð,
ofankomu er síst að linna.
Heyrðu mig nú góði Guð;
Geturðu látið snjóa minna?
Í lok dags orti hann:
Almættið ég eigi skil,
ekki svarar það bænum mínum,
ennþá gerir svo blindan byl
að borgin öll er horfin sýnum.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af Guði og
ofankomu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 25
frábær verð um veröldina
- bókaðu í dag!
Kairó
Dubai
Bankok
Manila
!"
#!$ % á www.klmiceland.is
"
" &&'
" &
#
$
(
&
!
$
klmiceland.is
frá ISK 68.900
frá ISK 85.400
frá ISK 101.500
frá ISK 110.700
á því kæruleysi þeirra,
að láta hundana ganga
lausa.
Láti lögreglan eða
forráðamenn sveitarfé-
laga það hins vegar
átölulaust að fólk sleppi
hundum sínum lausum
er ekki við góðu að bú-
ast. Göngubrautirnar á
höfuðborgarsvæðinu
voru ekki settar upp
sérstaklega fyrir
hundaeigendur, sem
eru nú óðum að leggja
þær undir sig með
hundum, sem ganga
lausir.
Hundaeigendur geta
komið í veg fyrir aðgerðir lögreglu.
Þeir eru áreiðanlega með samtök sín
í milli enda eru til samtök um allt
milli himins og jarðar á Íslandi. Væri
ekki ráð að hundaeigendur sjálfir
tækju þetta upp til umræðu í sínum
hópi og hvettu félaga sína til þess að
brjóta ekki settar reglur?
Það er skemmtilegra fyrir hunda-
eigendur en að lögreglan verði knúin
til aðgerða. Hundar geta verið
skemmtileg dýr og auðvelt er að
skilja að eigendur þeirra vilji að þeir
geti notið sín frjálsir úti í náttúrunni.
En þá verða þeir að velja sér rétt
svæði til þess.
Frjáls samtök fólks, sem á sam-
eiginlegra hagsmuna að gæta eru
líklegri til að skila árangri á jákvæð-
um nótum en þvingunaraðgerðir
lögreglu. Hér með eru hundaeig-
endur hvattir til að leysa málið.
Fyrir nokkrum vik-um hafði Víkverji
orð á því, að of algengt
væri, að hundaeig-
endur væru með hunda
sína lausa á gönguferð-
um um höfuðborg-
arsvæðið, þrátt fyrir
skýrar reglur um að
slíkt væri bannað.
Á undanförnum vik-
um hefur Víkverji
fylgzt betur með ferð-
um hundaeigenda og
hunda þeirra en áður.
Sú óformlega og óvís-
indalega könnun hefur
leitt í ljós, að sennilega
lætur um helmingur
hundaeigenda hunda sína ganga
lausa, öðrum vegfarendum ýmist til
skemmtunar eða ama.
Það er ekki að ástæðulausu, að
reglur hafa verið settar um, að fólk
verði að hafa hunda sína í bandi.
Sumt fólk er hrætt við hunda, ekki
sízt þeir, sem hafa orðið fyrir hunds-
biti. Í annan stað er ljóst, að hundar
geta verið hættulegir eins og dæmin
sanna. Eftir að hundahald breiddist
út á ný eru nokkur dæmi um, að
hundar hafi ráðizt á fólk.
Í ljósi þess að stór hópur hunda-
eigenda hefur bann við því að
hundar gangi lausir á almannafæri
að engu er óhjákvæmilegt að lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu skeri
upp herör gegn hundum, sem ganga
lausir. Það er bersýnilega eina leiðin
til þess, að hundaeigendur fari að
lögum og reglum, að hart verði tekið
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
alltaf á laugardögumLESBÓK MORGUNBLAÐSINS