Morgunblaðið - 19.01.2008, Page 29

Morgunblaðið - 19.01.2008, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 29 árið 1815,“ skrifaði Charles Krauthammer í Time. Síðasti sigur Fischers var dýru verði keyptur. Með því að tefla aftur eftir 20 ára hlé var honum gefið að sök að hafa virt að vettugi viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna. Hand- tökuskipanin var gefin út í Bandaríkjunum í kjölfarið en kom þó ekki í veg fyrir að hann fengi nýja vegabréfsáritun árið 1997. Í júlí 2004 var hann hinsvegar handtekinn á Narita- flugvellinum í Tókýó á leið til Manila. Veiðiferð í Gljúfurá Nokkrum dögum eftir að Fischer kom til lands- ins fór ég með Sæmundi Pálssyni upp á sama hótelherbergi og hann hafði þegar „einvígi ald- arinnar“ fór fram. Það var ekki erfitt að hitta mann í fyrsta sinn sem hafði verið þáttur í lífi manns um áratuga skeið. Bobby var afar ánægður fyrstu daga og mánuði dvalarinnar á Íslandi. Undir lok ágúst 2005 fórum við í veiði í Gljúfurá ég, Jóhann Sigurðarson, Viggó Hilm- arsson og Bobby. Þessi ferð byrjaði ekki vel því Bobby hafði allt á hornum sér vegna viðskipta sinna við svissneska bankann UBS. Eins og rakið hefur verið annars staðar hafði bankinn sagt upp viðskiptum sínum við hann að öllum líkindum vegna þrýstings frá Bandaríkjunum. Bankinn hafði leyst upp eigur hans og sent á reikning í Landsbankann. Mér varð á að spyrja spurningar sem var sennilega fremur illa orðuð og fékk yfir mig þvílíka reiðilestrargusu að ég taldi öruggast að hafa mig lítt í frammi. En þegar við komum í veiðikofann var Bobby búinn að taka gleði sína aftur. Hann fór síðan út í á að veiða með Viggó og eftir fimm mínútur var hann búinn að landa sex punda hrygnu. Þegar ég spurði hann hvort hann ætlaði ekki að veiða meira sagði hann: „Nei, ég er búinn að veiða minn lax, þessi dugar.“ Um kvöldið tók Jóhann fram gítarinn og þá kom á daginn að Bobby kunni meira og minna alla dægurlagatextana. Hann söng hástöfum og við hinir líka og hver með sínu nefi. Þegar Green, green grass of home var tekið útskýrði Bobby fyrir okkur text- ann sem inniheldur harmleik sem hafði ein- hverja samsvörun við hans eigið líf. Sú stund er einhver sterkasta minning sem ég á um hann. Hrifnæmi hans yfir fyrirbærum eins og norður- ljósunum kom sterkt fram þetta kvöld. Þegar við snerum aftur og Bobby kom heim í búð sína við Klapparstíg rétti hann Miyako laxinn hróð- ugur á svip. Þreifingar um einvígi Eftir að Fischer kom hingað til lands vandi hann komur sínar í bókaverslun Braga við Hverfisgötuna. Hann hlustað mikið á fréttatíma BBC og hafði mikinn áhuga á efni sagn- fræðilegs eðlis. Hann fór oft í kvikmyndahúsin en sjaldan á öldurhús. Hann var ágætur í snó- ker og keppti eitt sinn við frægan íslenskan snókermeistara og vann af honum tvo ramma. Hann var mikill áhugamaður um tónlist, eink- um þó soul- og blues-tónlist. Jackie Wilson var í sérstöku uppáhaldi hjá honum. Hann hitti hina þekktu söngkonu Pattie Smith þegar hún kom til landsins haustið 2005. Þau ræddu um tónlist í u.þ.b. tvær klukkustundir. Hann virtist því miður vera orðinn afhuga skáklistinni en margvíslegar þreifingar áttu sér stað um einvígi í því sem kallað hefur verið Fischer random eða Chess 960. Fischer kom fram með nýja skáklukku fyrir einvígi sitt við Spasskí árið 1992. Klukkan hefur bókstaflega slegið í gegn en hann vann að endurbótum á henni og hönnuðir frá Seiko komu hingað til lands til skrafs og ráðgerða en engir samningar náðust um framleiðslu. Fischer missti móður sína og systur fyrir meira en tíu árum. Hann var dulur um sína einkahagi og lítið fyrir að flíka tilfinningum sín- um. Hann sagði yfirleitt skoðun sína umbúða- laust hvort sem mönnum líkaði betur eða verr. Stundum fór hann offari í yfirlýsingum sínum en hafa ber í huga að það kom yfirleitt þegar brotið hafði verið á rétti hans. Hann mat mikils þá tryggð sem vinkona hans Miyako Watai sýndi honum en hún fór langa leið á hverjum degi til að heimsækja hann í fangelsið fyrir utan Tókýó. Garðar Sverrisson og fjölskylda hans voru Bobby mikill stuðningur í erfiðum veik- indum hans undir það síðasta. Ég er á þeirri skoðun að þrátt fyrir allt geti menn verið stoltir af því að hafa lagt í þann leiðangur að ná Bobby Fischer úr fangelsi í Japan. „Glæpur“ hans var sá að hafa teflt aftur eftir 20 ára hlé. Þegar hann kom hingað til lands hafði hann verið landflótta í 12 ár. Hann fann skjól á Íslandi og var yfirleitt ánægður hér enda að mestu leyti í friði fyrir fjölmiðlum. gar tóku upp á arma sína tina fyrir flesta aðra en sjálfan sig Félagar Bobby Fischer í hófi í Reykjavík með Helga Ólafssyni stórmeistara árið 2005. sl á hann. r gæddur sviði og tala hans á afburða- Einstein. nn ekki – hver væri svaraði: ógvær en segði ekki er.“ gerði erf- rðamanna kki maður ið,“ sagði dasaður forseti Alþjóðaskáksam- bandsins, Hollendingurinn Max Euwe, þegar heimsmeistaraeinvígið var sett í Reykjavík að hinum óút- reiknanlega Fischer fjarstöddum 1972. Heillandi eða óþolandi Og það sem aðdáendunum fannst heillandi við hann fannst öðrum ein- faldlega óþolandi. Hann krafðist óbilandi hollustu af vinum sínum, gerði endalaust kröfur á hendur keppinautum sínum, gerði alls kyns kröfur um aðbúnað á skákmótum og skipti jafnvel um skoðun jafnflótt og tekist hafði að uppfylla óskir hans. Liðsmenn Skáksambands Íslands þurftu að taka á honum stóra sínum á mótinu 1972 og lagt var kapp á að mismuna ekki keppinautunum. Ef annar fékk glæsivagn varð hinn að fá annan jafn flottan. Þegar Sæ- mundur Pálsson varð aðstoðarmað- ur Fischers lagði einhver til að Magnús, eineggja tvíburabróður Sæmundar, yrði fenginn til að gegna sama hlutverki fyrir Spasskí. „Þá getum við sagt að við leysum öll vandamál, jafnréttið sé fullkomið!“ sagði einn stjórnarmanna sam- bandsins í þröngum hópi. anna í lifanda lífi Ljósmynd/ Kristinn Ben kí tefldu í Laugardalshöll. Þar lauk nær þriggja áratuga einokun Sovétmanna. Árvakur/Golli Íslendingur Bobby Fischer fær afhent ríkisfangsbréf sitt í Reykjavík. Með honum eru Sæmundur Pálsson og Miyoko Watai. yndinni narsson. ur/Sverrir eik þar sem söguhetjan virtist í daglegu lífi vera eins og persóna en andstæðingunum, þrátt fyrir yfirburðina við skákborðið Garrí Kasparov, fyrrverandiheimsmeistari í skák, seg-ist í samtali við Morg-unblaðið harma mjög frá- fall Bobbys Fischers sem hafi verið afburðamaður og markað djúp og byltingarkennd spor í sögu skáklist- arinnar. „Hann var vissulega mjög um- deildur maður en framlag hans til skáklistarinnar var einstakt, það er það sem við minnumst núna. Þegar ég var ungur strákur að tefla á átt- unda áratugnum fylgdist ég eins og margir aðrir með sigrum Bobbys Fischers. Ég man enn hrifninguna sem við fundum fyrir þegar hann sigraði árið 1972 í Reykjavík. Og að- dragandinn, hvernig hann bók- staflega rúllaði upp frábærum mönnum eins og Taímanov, Larsen, Petrosjan og loks Spasskí, þetta var ótrúlegt. Þegar maður er átta eða níu ára og skákstjarnan í borginni sinni vill maður helst verða eins og sá besti í heimi. “ Kasparov segir Fischer hafa verið fyrirmynd heillar kynslóðar skák- manna, hann segist sjálfur hafa gleypt í sig bók kappans, My 60 Memorable Games. „Fischer var einstakt fyrirbæri í þeim skilningi að enginn gat komist hjá því að dá hann.“ Kasparov segist oft hafa hugsað til þess hve stórkostlegt það hefði verið ef Fischer og Anatolí Karpov hefðu teflt einvígi eins og til stóð 1975. Fischer hefði hins vegar verið yfirlýsingaglaður, sett ýmis skilyrði fyrir einvíginu sem engin leið hefði verið að fullnægja, meðal annars af pólitískum ástæðum. Atburðarásin öll hefði ekki einvörðungu skaðað álit hans heldur skáklistarinnar sem slíkrar. „Það er ákaflega slæmt og hörmu- legt að hann skyldi síðustu áratug- ina vera að mestu í hálfgerðu tóma- rúmi, áður en hann loksins settist að á Íslandi. Fischer var að sjálfsögðu að mörgu leyti mjög erfiður maður og oft erfitt að átta sig á ýmsum yfirlýs- ingum hans og gerðum þegar hann sat ekki við skákborðið. En það er allt liðið og skiptir núna engu máli. Sem skákmaður var hann frumherj- inn mikli í skák atvinnumanna, framlag hans mun lifa næstu áratug- ina, eins lengi og skáklistin verður til munu menn minnast Fischers.“ Árvakur/Sverrir Garry Kasparov „Þegar maður er átta eða níu ára og skákstjarnan í borginni sinni vill maður helst verða eins og sá besti í heimi.“ „Hann var frum- herjinn mikli“ Garrí Kasparov segir að Fischer muni verða minnst meðan skáklistin lifi  9. mars 1943: Robert James Fischer fæðist í Chicago. Móðir hans var Regina Fischer, af þýsk- um gyðingaættum en faðirinn Hans-Gerhardt Fischer, þýskætt- aður lífeðlisfræðingur. Hjónin skildu þegar Bobby var tveggja ára.  Maí 1949: Eldri systir hans, Joan, kennir honum mannganginn þegar hann er sex ára. Hann verð- ur fljótlega hugfanginn af skák.  Júlí 1956: Fischer, sem er 13 ára, verður yngstur allra til að vinna unglingamót Bandaríkj- anna. 14 ára að aldri sigrar hann á meistaramóti Bandaríkjanna og gerir það sjö sinnum í viðbót næstu árin. Hann verður alþjóð- legur meistari 15 ára, sá yngsti í sögunni á þeim tíma.  September 1972: Fischer verður heimsmeistari í skák í Reykjavík þegar hann sigrar Borís Spasskí frá Sovétríkjunum. Hann missir hins vegar titilinn 1975 til Anatólís Karpovs eftir að ekki náðist sam- komulag um margvíslegar kröfur Fischers varðandi einvígi þeirra.  September 1992: Fischer teflir opinberlega í fyrsta sinn í tvo ára- tugi er hann heyr aftur einvígi við Spasskí, í þetta sinn í Sveti Stefan í þáverandi Júgóslavíu. Fischer sigrar en einvígið er brot á sam- þykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um bann við samskiptum við stjórn Slobodans Milosevic vegna mannréttindabrota hennar.  September 2001: Fischer lýsir í útvarpsviðtali á Filippseyjum fögnuði sínum yfir hryðjuverka- árásunum á Bandaríkin. Hann seg- ir að „þurrka beri Bandaríkin af yfirborði jarðar“ og segir að gyð- ingar séu „skepnur sem ljúga og stela“.  13. júlí 2003: Fischer er hand- tekinn í Japan og hótað brottvísun til Bandaríkjanna þar sem hann hefði sætt ákæru fyrir að hafa hunsað samskiptabannið gegn Milosovic. Hann er í níu mánuði í varðhaldi í Japan en þá samþykkir Alþingi að veita honum ríkisborg- ararétt á Íslandi.  17. janúar 2008: Fischer deyr í Reykjavík af völdum nýrna- sjúkdóms. Lífshlaupið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.