Morgunblaðið - 19.01.2008, Síða 32
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr. Ef útför hefur farið
fram eða grein berst ekki innan
hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi.
Minningargreinar
32 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Elínborg Jó-hannsdóttir
fæddist á Bjarna-
stöðum í Unadal 3.
september 1912.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Sauðárkróks 8.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Anna Guðrún
Þorleifsdóttir, f.
26.12. 1883, d.
18.7. 1965 og Jó-
hann Gunnarsson,
bóndi, síðast á
Krossi í Óslandshlíð, f. 20.8.
1880, d. 27.8. 1962.
Bræður Elínborgar voru Arn-
björn, f. 9.10. 1910, d. 11.1 1985
og Gunnlaugur, f. 19.4. 1914, d.
2.6. 2006. Hálfsystir þeirra sam-
feðra var Svava, f. 6.12. 1915, d.
18.1. 1990. Móðir Svövu var
Guðrún Ástvaldsdóttir. Svava
giftist Ólafi Vilhjálmssyni,
verslunarmanni á
Siglufirði, f. 25.3.
1998, d. 29.1. 1947,
börn þeirra eru
Þóra, Guðrún og
Jóhann.
Elínborg bjó
fyrstu æviár sín á
Bjarnastöðum en
flutti árið 1928
með foreldrum sín-
um og bræðrum að
Krossi í Óslands-
hlíð. Eftir andlát
föður síns 1962
fluttu systkinin til
Sauðárkróks ásamt aldraðri
móður sinni.
Þau systkinin bjuggju saman
á Freyjugötu 40 meðan þau
höfðu heilsu til. Síðustu árin
dvaldi Elínborg á Heilbrigð-
isstofnuninni á Sauðárkróki.
Útför Elínborgar verður gerð
frá Sauðárkrókskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Móðursystir okkar, Elínborg Jó-
hannsdóttir, eða Ella á Krossi eins
og við kölluðum hana, er látin og
ljúfar minningar um hana koma
upp í hugann.
Á okkar yngri árum þótti okkur
það langt ferðalag að fara frá
Siglufirði og inn að Krossi í Ós-
landshlíð til að heimsækja afa,
Önnu frænku og systkini hennar
mömmu og var tilhlökkun mikil.
Alltaf var tekið á móti okkur með
hlýju viðmóti og kræsingum. Gest-
risnin á Krossi var rómuð og höfð-
um við systurnar það fyrir reglu að
telja kökusortirnar sem aldrei
voru undir tíu, allt bakað úr ís-
lensku smjöri. Ef von var á okkur í
heimsókn seinni hluta sumars var
oft búið að tína bláber í hvömm-
unum við Kolku, sem rann neðan
við bæinn og biðu okkar þá nýtínd
bláber með rjóma. Oftast var það
Ella sem sá um veitingarnar og
var sami háttur hafður á eftir að
þau fluttu til Sauðárkróks. Mörg
börn dvöldust sumarlangt á Krossi
og vorum við systkinin þar á með-
al. Guðrún var þar í þrjú sumur og
Jóhann í níu og eiga þaðan góðar
minningar.
Á Sauðárkróki bjuggu systkinin
saman á Freyjugötunni og eftir að
Arnbjörn lést árið 1985 bjuggu þau
Ella og Gunnlaugur þar meðan
heilsan leyfði fram á tíræðisaldur.
Þau voru sjálfum sér nóg með
flesta hluti og fylgdust vel með því
sem var að gerast í þjóðfélaginu.
Ella vildi fá fréttir af börnum okk-
ar systkinanna og barnabörnum og
fylgdist vel með velferð þeirra.
Hún hafði unun af fallegum hlutum
og vildi hafa þá á heimili sínu.
Gestrisnin var svo ofarlega í huga
hennar að þegar við heimsóttum
hana á sjúkrahúsið fannst henni
sjálfsagt að við fengjum einhverjar
veitingar og henni varð að ósk
sinni hjá skilningsríku starfsfólki
þar og færum við því þakkir fyrir.
Nú hefur Ella á Krossi fengið
hvíldina eftir langa ævi og við
kveðjum hana með söknuði og
þökk fyrir það sem hún var okkur.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson.)
Þóra, Guðrún og Jóhann.
Elínborg Jóhannsdóttir
✝ Árni Guð-mundsson
fæddist í Ámunda-
koti í Fljótshlíð 2.
febrúar 1932. Hann
lést á heimili sínu,
Múlakoti í Fljóts-
hlíð, 11. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Guðmundur Guð-
mundsson bóndi í
Ámundakoti og síð-
ar Múlakoti í
Fljótshlíð, f. 28.
júní 1900, d. 9. feb.
1972 og Guðrún Halldóra Niku-
lásdóttir húsfreyja, f. 26. júní
1901, d. 9. nóv. 1981. Systkini
Árna eru Nikulás, f. 1929, búsett-
ur á Hvolsvelli, kona hans Sigrún
Jóhannsdóttir, f. 1930, börn
þeirra eru þrjú, Guðmundur, f.
1961; Jóhann, f. 1965, og Mar-
1957, en lauk atvinnuprófi ásamt
blindflugsréttindum 1964 og
flugkennaraprófi nokkru síðar.
Flug og flugvélar áttu hug
hans og hjarta sem gleggst mátti
sjá á því að hann réðst í það stór-
virki að útbúa flugvöll við erf-
iðar aðstæður á malaraurum
neðan við heimatúnin í Múlakoti.
Að því loknu byggði hann svo
flugskýli. Árið 1968 kom hann al-
kominn til foreldra sinna sem þá
voru orðin heilsulítil og eftir frá-
fall föður síns 1972 bjó hann og
hélt heimili með móður sinni til
dánardægurs hennar 1981. Bjó
síðan einn í Múlakoti til æviloka.
Árið 2001 eignuðust flug-
áhugamenn Múlakotsjörðina og
var hann mikill þátttakandi með
þeim í þeirri miklu uppbyggingu
sem þar hefur átt sér stað und-
anfarin misseri. Einnig sá hann
um umhirðu trjáasafns Skóg-
ræktar ríkisins sem er á jörðinni.
Útför Árna fer fram frá Hlíð-
arendakirkju í Fljótshlíð í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
grét Halldóra, f.
1971. Þórir, f. 1936,
d. 2004, bjó í
Reykjavík. Ingi-
björg, f. 1941, búsett
á Selfossi, maður
hennar Sigurður
Símon Sigurðsson, f.
1935, dóttir þeirra
Guðrún Halldóra, f.
1964.
Árni fluttist með
fjölskyldu sinni að
Múlakoti um 10 ára
aldur og bjó þar alla
tíð síðan. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Héraðsskól-
anum á Laugarvatni 1950. Frá
1954 til 1968 vann Árni yfir ver-
tíðir hjá Hraðfrystihúsi Þorkötlu-
staða í Grindavík. Hann tók
einkaflugmannspróf 1954 og var
flugskírteini hans númer 316,
bóklegt atvinnupróf tók hann
Ég vil með nokkrum orðum minn-
ast Adda frænda míns. Árni Guð-
mundsson flugmaður í Múlakoti,
móðurbróðir minn, hefur alltaf verið
fastur punktur í tilveru minni. Þegar
ég var lítil, á sjöunda áratug síðustu
aldar, bjó hann í Múlakoti þar sem
hann hjálpaði foreldrum sínum,
ömmu og afa, með bústörfin og þegar
afi dó 1972 voru bara amma og Addi
eftir í sveitinni.
Addi hafði lært flug á sjötta ára-
tugnum og tók bæði atvinnuflugpróf
og flugkennarapróf. Ég hef oft velt
því fyrir mér hversu ólíkt líf hans
hefði orðið ef hann hefði t.d. orðið
flugstjóri í millilandaflugi, sest að í
Reykjavík og eignast fjölskyldu? En
örlögin höguðu því þannig að hann
varð um kyrrt í Múlakoti og sinnti
fluginu meðfram búskap. Reyndar
var flugið honum þvílík ástríða að
hann gerði flugbraut á Markarfljót-
saurunum, reisti þar flugskýli og átti
þar flugvélar. Það var ekkert slor að
fá að fara í útsýnisflug á röndóttu tví-
þekjunni, TF-KAN, sem ég held að sé
fallegasta flugvél á Íslandi.
Þegar ég var lítil leit ég upp til
Adda frænda og þótti hann mikill
heimsmaður. Hann fór á þeim árum
oftar til Reykjavíkur en margur og
alltaf kom eitthvað óvenju spennandi
úr jólapökkunum frá honum. Þó hann
byggi í nokkurri einangrun í sveitinni
var hann alltaf í góðum tengslum við
umheiminn, skrifaðist á við erlenda
flugmenn, keypti blöð og tímarit frá
útlöndum og svo var auðvitað flug-
völlurinn vinsæll viðkomustaður flug-
manna.
Addi var rólyndur og þolinmóður
við okkur frændsystkinin þegar við
vorum í sveitinni á sumrin og leyfði
okkur að taka þátt í öllum störfum,
hvort sem það var girðingavinna eða
að takast á við baggana í heyskapnum
og ekki var minna spennandi þegar
hann hjálpaði okkur í pappírsskutlu-
gerð og við þreyttum kappflug eftir
ganginum eða milli trjánna.
Addi var áhugamaður um ljós-
myndun, framkallaði sjálfur og átti
mikið undratæki sem var Polaroid-
myndavél sem voru sjaldséðar á sjö-
unda áratugnum. Það var mikill gald-
ur þegar hann stakk inn á sig mynda-
plötunni og dró fram tilbúna mynd.
Hann átti líka ferðagrammófón og
leyfði mér stundum að hlusta á djass-
plötur með þeim Ellu og Louis.
Þó Addi hafi verið orðinn 75 ára þá
kom fráfall hans mér á óvart. Hann
hugsaði vel um heilsuna, hjólaði og
skokkaði og það er ekki hægt að segja
að hann hafi verið orðinn gamall mað-
ur. Addi frændi var kannski feiminn á
yfirborðinu en ræðinn og hress í
góðra vina hópi, áhugasamur um
þjóðmál, hjálpsamur, barngóður og
mikill dýravinur. Guð blessi minningu
hans.
Guðrún Halldóra Sigurðardóttir.
11. janúar fengum við þær fréttir
að mætur vinur okkar í nær hálfa öld,
Árni í Múlakoti, væri allur. Fréttin
kom sem þruma úr heiðskíru lofti.
Þótt Árni ætti stutt í að verða 76 ára
þá töldum við okkur eiga eftir að fá að
njóta hans lengi enn.
Árið 1960 eignaðist undirritaður
hlut í flugvél með Árna. Þetta var
Fleet Finch flugvélin TF-KAN. Árni
hafði eignast hlut í vélinni 1956 en
þegar hér var komið sögu þá var hún
óflughæf. Fleetinum var komið í flug-
hæft ástand og flaug vélin aftur í
október 1961. Sameiginlegur áhugi
okkar Árna á flugi tengdi okkur föst-
um böndum og áhuginn entist Árna
ævina á enda.
Þótt Árni lyki öllum sínum flug-
prófum með sóma, þá varð atvinnu-
flug ekki ævistarf hans. Ýmislegt kom
þar til. Erfitt var að fá slíka vinnu á
þeim tímum og foreldrar Árna voru
orðin roskin. Umhyggja Árna fyrir
þeim varð til þess að hann fór alfarið
heim í Múlakot til að sinna búi með
foreldrum sínum. Ýmis færi gáfust þó
til að sinna fluginu og þótti Árni
einkar laginn við að draga svifflugur á
loft og var hann oft fenginn til þess.
Þá var Árni áhugasamur um að finna
nýja lendingarstaði og lenti víða,
meðal annars í Þórsmörk.
Um 1960 ræðst Árni í það stórvirki
að útbúa flugvöll í Múlakoti. Með elju
og þrautseigju fékk hann flugvöllinn
viðurkenndan af Flugmálastjórn, en
Árni lét ekki staðar numið við að hafa
komið sér upp löglegum flugvelli. Í
kringum 1968 ræðst hann í annað
stórvirki, byggingu flugskýlis og var
Árni einn af þeim fyrstu til að reisa
einkaflugskýli á Íslandi. Flugvélin
okkar, Fleetinn, flutti svo í Múlakot
1969 og átti þar heima þar til vélin
missti flugfjaðrirnar í ágúst 1996.
Árni var afar fróður maður og vel
lesinn. Oft var hringt í Árna til að fá
skorið úr ýmsum málum, oft tengdum
flugi. Þá átti hann í bréfaskriftum út
um allan heim og var félagi í mörgum
fagklúbbum erlendis.
Um aldamótin var komið að kafla-
skiptum í lífi Árna. Búskapnum var
eiginlega sjálfhætt og ekki að vita
hvað við tæki. Árni var þá enn með
brennandi áhuga á flugi og svo var jú
flugvöllurinn hans og flugskýlið í
Múlakoti. Sameiginlegur vinur okkar
Árna, Ágúst Karlsson, tók sig þá til
og safnaði saman hópi flugáhuga-
manna til að kaupa jörðina og koma
þar upp sælureit fyrir flugáhugafólk.
Þetta var mikið átak, en með þraut-
seigju tókst Ágústi að sannfæra menn
um ágæti þessa verkefnis. Árni var
efins í fyrstu, en verkefnið var freist-
andi, svo hann sannfærðist líka. Mikið
verkferli fór í gang og var frístunda-
byggð flugáhugamanna skipulögð á
jörðinni og eru fyrstu húsin þegar ris-
in og önnur munu rísa áður en langt
um líður. Það var komið upp vatns-
veitu og var Árni ötull liðsmaður í því
starfi eins og öllu öðru sem að verk-
efninu laut. Síðustu árin hefur því
verið mikið um að vera hjá Árna og
það var auðséð að hann naut þess vel.
Við þökkum Árna fyrir einstaklega
góð kynni og hans mun mikið og sárt
verða saknað í Múlakoti á komandi
árum.
Erling Jóhannesson.
Alfhild Nielsen.
Árni, flugmaður í Múlakoti, er
greypt í hugskot mitt frá því ég fór að
fikta við að læra flug upp úr 1970.
Bóndinn austur í Fljótshlíð sem
átti tvíþekjuna og dró svifflugur á loft.
Af þessum manni heyrði ég fljótt og
langaði að hitta er ég fór að fljúga
einn míns liðs. Nú eru liðin rúm 35 ár,
og alltaf kom Árni labbandi, í róleg-
heitum, niður á flugvöll í Múlakoti
þegar ég lenti þar á hinum ýmsu flug-
vélum sem áttu það sammerkt að
vera með nefhjólið að aftan. En föstu-
daginn 11. janúar sl. kom Árni ekki til
að hitta mig, þótt hann ætti vissulega
von á mér í þetta sinn. Það hlaut eitt-
hvað að vera að!
Árni í Múlakoti var hlédrægur mað-
ur en skemmtilegur og ræðinn þegar
maður kynntist honum, fróður með af-
brigðum um flugvélar og flugmál.
Hann hélt skrár yfir ýmsar flugvéla-
gerðir sem honum þóttu áhugaverðar,
hérlendis og erlendis, vissi hvar flestar
þessara flugvéla voru, ef þær voru á
skrá og átti í bréfaskriftum við ýmsa
flugvélaeigendur víða um lönd. Hann
átti og mikið safn mynda af íslenskum
flugvélum.
Þegar ég var á sínum tíma ritstjóri
tímaritsins „Flug“ eða um 1976-79 bað
ég Árna um viðtal til að birta í blaðinu.
Jú, hann samþykkti það en baðst und-
an að vera kallaður „bóndi“ hann stæði
varla undir því heiti. Ég held að Árni
hafi orðið hugfanginn af „fluginu“
strax á unglingsárum og gleypt í sig
allt er viðkom flugi og flugvélum. Síðar
eftir að Árni tók flugpróf, eignaðist
hann Fleet Finc-flugvélina TF-KAN
um 1956 og fór þá fljótlega að útbúa
flugbraut og byggja sér flugskýli í
Múlakoti. Þar átti Fleetinn húsaskjól í
rúm 45 ár og hefur það eflaust bjargað
þeirri vél frá því að verða sett í uppfyll-
ingu flugbrauta í Reykjavík, eins og
varð hlutskipti margra eldri flugvéla á
Íslandi fyrir 1970.
Árni vildi kynnast flugvélategund-
um, reyna þeirra flugeiginleika og kar-
akter. Hann skipti um flugvél eins og
margir skipta um bíl. Hann átti, auk
Fleetsins, Citabria 7AC, Jodel
DR-221, Stinson Voyager, Piper Clip-
per, og nú síðast Jodel DR-250.
Eina fallega helgi sumarið 1982 átt-
um við félagarnir Ragnar J. Ragnars-
son og fjölskyldur mjög skemmtilega
útilegu helgi í Múlakoti með Árna, og
Jodelum-, Fleet- og Citabria-flugvél-
um og skiptumst á að prufufljúga hver
hjá öðrum. Þarna lék Árni á als oddi.
Trúlega var þetta upphaf Múlakots-
fjölskylduflugkomanna sem síðan hafa
verið árvissar í Múlakoti.
Fyrir nokkrum árum seldi Árni jörð
sína „flugáhugafólki“ sem hefur verið
að byggja sér sumarhús í nágrenni við
flugvöllinn. Þarna held ég að Árni hafi
verið mjög sáttur við sitt framlag, og
að geta verið áfram á jörðinni sem
hann unni og hafði aldrei yfirgefið, en
vildi vera nærri fluginu, sem átti svo
stóran hlut í lífi hans allt frá bernsku.
Ég vil í lokin þakka Árna í Múlakoti
skemmtilegar samverustundir og
fræðandi umræður um flugvélar og
eiginleika þeirra undanfarin 35 ár.
Með flugkveðju.
Jón Karl Snorrason.
Látinn er Árni Guðmundsson í
Múlakoti í Fljótshlíð, tæplega 76 ára
gamall.
Árni starfaði um árabil og fram á
síðasta dag fyrir Skógrækt ríkisins í
Múlakoti í Fljótshlíð. Í Múlakoti er
að finna eitt af eldri og merkilegri
trjásöfnum á Íslandi og er það
sprottið upp úr gömlu gróðrarstöð-
inni í Múlakoti sem stofnuð var 1935.
Ólst Árni upp á staðnum, bjó þar alla
tíð og bar miklar tilfinningar til hans.
Sýndi Árni það í verki því fáir aðrir
hefðu haldið trjásafninu jafn fallegu
og snyrtilegu og hann. Árni var fróð-
ur um sögu skógarins í Múlakoti og
var gaman að rifja upp með honum
sögur af starfseminni fyrr á árum.
Fróðlegt var að heyra frásagnir af
þeim tíma er Hekluaska lagðist yfir
trjásafnið í 1947 gosinu, sem og þeim
aðbúnaði sem fyrstu starfsmenn
Skógræktarinnar á Suðurlandi
bjuggu við á staðnum. Það gustaði
ekki af Árna heldur fór hann hljóð-
lega um og gerði ekki mikið úr sínum
verkum þó hann skilaði meira verki
en margur annar. Samstarfsfólk
hans hjá Skógrækt ríkisins vill hér
með þakka Árna fyrir góð kynni.
Starfsfólk Skógræktar
ríkisins á Tumastöðum.
Kveðja frá Svif-
flugfélagi Íslands
Árni í Múlakoti var flugmaður af
lífi og sál. Hann var dulur og það tók
tíma að kynnast honum. Hann var
dráttarflugmaður okkar svifflug-
manna Íslandsmót eftir Íslandsmót.
Á morgnana vakti hann okkur í tjöld-
unum á Helluflugvelli er hann kom
frá Múlakoti á flottu tvíþekjunni
sinni, Fleet Finch árg 1942. Það var
ljúft að vakna við taktfasta og skell-
andi hljóðið í stjörnuhreyflinum.
Árni var listaflugmaður og sérstök
upplifun var fyrir okkur svifflug-
menn að vera dregnir í loftið á tví-
þekjunni hans Árna.
Árni var með flugvöll í túngarð-
inum sem við flugmenn notuðum
óspart enda einn vinalegasti flugvöll-
ur landsins.
Það verður öðruvísi að lenda á
Múlakoti og eiga ekki lengur von á að
Árni komi og heilsi og spjalli um flug
og flugvélar.
Við félagar í Svifflugfélagi Íslands
þökkum Árna í Múlakoti samfylgd-
ina og vottum aðstandendum öllum
dýpstu samúð okkar.
Kristján Sveinbjörnsson.
Árni Guðmundsson