Morgunblaðið - 19.01.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 33
✝ Bergþóra Stef-ánsdóttir fædd-
ist á Mýrum í Skrið-
dal 12. september
1921. Hún lést 10.
janúar síðastliðinn.
Hún var dóttir Stef-
áns Þórarinssonar,
bónda á Mýrum, f.
8. september 1871,
d. 17. janúar 1951,
og þriðju konu hans
Ingifinnu Jóns-
dóttur, f. 7. 1895, d.
10. október 1929.
Fyrsta kona Stefáns
var Sesselja Bjarnadóttir. Hún
lést eftir stutta sambúð. Önnur
kona hans var Jónína Salný
Einarsdóttir, f. 4 maí 1877, d. 14.
september 1917, er hún eignaðist
10. barnið. Börn Jónínu og Stef-
áns voru; Einþór, Einar, Þór-
arinn, Zophonías, Magnús, Metú-
salem, Pálína, Sveinn, Ingibjörg
og Jón. Aðeins Sveinn, f. 1913, er
eftirlifandi af eldri systkinunum.
Alsystkini Bergþóru eru þau
Garðar, f. 1923, Svavar, f. 1926,
Jón Björgvin, f. 1927 og Jónína S.,
f. 1928, öll á lífi.
Bergþóra giftist Jóni Einari
Hrólfssyni frá Hallbjarnarstöðum
29. apríl 1942. Börn þeirra eru; 1)
stúlka, f. 1. janúar 1942, d. 23.
febrúar 1942. 2) Þorgerður, f. 9.
mars 1944, gift Sveinlaugi Björns-
syni. Þeirra synir: Jón, maki Guð-
rún Pétursdóttir. Björn, maki
Kolbrún E. Pétursdóttir. Unnar
Bergur, maki Zanda Krúze og
Arnar. Barnabörn Þorgerðar og
1956, í sambúð með Hugrúnu
Sveinsdóttur. Þeirra börn eru
Bergþóra, í sambúð með Trausta
D. Karlssyni, Sveinn Vilberg, í
sambúð með Kolbrúnu E. Rík-
harðsdóttur, Kristín Ingibjörg og
Guðrún Birta. Barnabörn þeirra
eru þrjú. 8) Hrólfur Árni, f .23.
apríl 1960, í sambúð með Ástríði
V. Gunnarsdóttur. Þeirra börn
Jarþrúður Hólmdís, í sambúð með
Ægi K. Sævarssyni, Helga Sjöfn
og Jón Einar. Hrólfur og Ástríður
eiga eitt barnabarn.
Bergþóra var alin upp á Mýrum
og tók við heimilinu þar um 15
ára aldurinn. Jón og Bergþóra
hófu búskap 1941. Þau bjuggu
fyrstu tvö árin í Reynihaga, síðan
á Hallbjarnarstöðum frá 1943-45.
Þá keyptu þau Hauga og bjuggu
þar, þar til Jón lést 5. nóvember
árið 1990. Eftir fráfall Jóns var
Bergþóra áfram á Haugum í
skjóli Stefáns sonar síns og Hug-
rúnar konu hans, til ársins 1995
að hún flutti í eigin íbúð á Laga-
rási 2 á Egilsstöðum. Heimilið að
Haugum var oft mannmargt, líkt
og æskuheimili hennar. Þar átti
heimili Hrólfur tengdafaðir Berg-
þóru eftir að hann hætti búskap.
Þar voru öll sumur sumarbörn, og
skipti hana ekki máli þó nokkur
bættust við þann hóp sem fyrir
var.
Eftir að hún flutti í Egilsstaði
eignaðist hún fjölda af nýjum
kunningjum og vinum sem hún
kynntist á vettvangi starfs aldr-
aðra. Þar tók hún þátt í handa-
vinnu, leikfimi og fleiru og fór í
ferðalög innanlands og utan á
meðan heilsa og þrek leyfðu.
Útför Bergþóru verður gerð
frá Egilsstaðakirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Jarðsett verður í Þingmúla-
kirkjugarði í Skriðdal.
Sveinlaugs eru fjög-
ur. 3) Ingifinna, f. 26.
mars 1945, gift
Arnóri Benedikts-
syni. Þeirra börn
eru; Benedikt,
kvæntur Guðrúnu
Agnarsdóttur. Berg-
þóra Hlín, gift Finni
Magnússyni. Elín
Sigríður og Jón,
kvæntur Kristjönu
Jónsdóttur. Barna-
börn Ingifinnu og
Arnórs eru níu. 4)
Haukur, f. 24. apríl
1947, var kvæntur Önnu Gunn-
laugsdóttur. Þeirra börn: Berg-
hildur Fanney, gift Elísi Mássyni.
Viðar Gunnlaugur, í sambúð með
Kolbrúnu N. Magnúsdóttur. Sig-
rún Jóna, í sambúð með Orra
Guðjónssyni og Bjarki Freyr.
Barnabörn Hauks og Önnu eru
fjögur. Haukur er nú í sambúð
með Ragnhildi Þórhallsdóttur. 5)
Sigrún, f. 5. júlí 1949, gift Vigni
Þorsteinssyni. Synir þeirra eru
Jón Fjölnir, kvæntur Fanneyju
Ingadóttur, Þorsteinn Ingi, Gunn-
laugur Trausti, kvæntur Trine
Vignisson, og Stefán Þór, í sam-
búð með Jónu Eysteinsdóttur.
Barnabörn Sigrúnar og Vignis
eru tíu. 6) Jóna Björg, f. 16. nóv-
ember 1953, gift Snorra Tómas-
syni. Þeirra börn eru Eyrún
María, í sambúð með Þórði Þór-
arinssyni, Gréta Rún, gift Arturo
Santoni, Heiðdís Þóra og Íris
Dóra. Barnabörn Jónu og Snorra
eru tvö. 7) Stefán, f. 11. apríl
Það var í júlí árið 1976. Leiðin
hafði legið yfir Breiðdalsheiðina í
áttina að bænum Haugum í Skriðdal.
Eyrún, stjúpdóttir mín, var sofandi í
aftursætinu enda höfðum við farið
langan veg þann daginn og komin
nótt. Það var þá sem ég sá tengda-
móður mína fyrst. Þarna tók hún á
móti okkur á bæjarhlaðinu með sínu
einstaklega hlýja brosi sem mér
fannst einkenna hana alla tíð. Þegar
barnið vaknaði hljóp það í fang
ömmu sinnar og urðu miklir fagn-
aðarfundir. Það leyndi sér ekki að
þar fór barnelsk kona og komst ég
fljótt að því að hún hafði mjög góða
nærveru. Hvert einasta sumar síðan
hafa leiðir okkar Jónu legið þangað
austur en nú verður breyting á því,
engin Bergþóra verður til staðar
sem tekur á móti okkur brosandi.
Ættmóðirin er horfin á braut.
Samskipti okkar Beddu, eins og
tengdamóðir mín var ævinlega köll-
uð, voru með miklum ágætum alla tíð
og ég bar mikla virðingu fyrir henni.
Umræðusvið okkar gat verið mjög
breitt. Hún fylgdist vel með mönn-
um og málefnum og hafði áhuga á
ótrúlegustu hlutum enda var hún
mjög greind kona. Hún gat verið
spaugsöm og þá leyndi kímnin sér
ekki. Bedda var mjög hreinskilin og
sagði alltaf meiningu sína. Þennan
eiginleika í fari hennar kunni ég af-
skaplega vel að meta. Nýtin var hún
á alla hluti og hvers konar sóun var
henni fjarri skapi enda hafði hún
annast stórt heimili og þurft að nota
vel það sem hún hafði á milli hand-
anna.
Á sumrin var oft mikið mannlíf á
Haugum enda afkomendur margir
og stórar ættir standa að þeim báð-
um, henni og eiginmanni hennar,
Jóni Hrólfssyni, sem féll frá í nóv-
ember árið 1990. Um helgar voru oft
margir bílar á hlaðinu og fólk sem
átti leið hjá bænum ímyndaði sér að
stórveisla væri í gangi þó það væri
bara venjulegur sunnudagur. Já, það
var oft mikið um að vera í sveitinni,
heyskapur í fullum gangi, fólk að
koma og fara, synir hennar að gera
við vélar, fólk að biðja um veiðileyfi
eða ferðamenn að fá upplýsingar.
Alltaf var hægt að leita til Beddu,
hún var alltaf jafn úrræðagóð, hafði
augun vel opin og var fús að leysa
vandamál annarra. Ég hafði t.d.
gaman að því þegar synir hennar
komu til hennar og spurðu hvar þeir
hefðu lagt frá sér verkfærin eða um
aðra hluti sem þeir þurftu að nota og
það stóð ekki á svari. Hún gat yf-
irleitt alltaf bent þeim á staðinn.
Fyrir tólf árum flutti Bedda til
Egilsstaða þar sem hún undi hag sín-
um afar vel, laus frá amstrinu sem
fylgdi bústörfunum. Þar var alltaf
opið hús fyrir vini og ættingja eða
sveitunga. Þó svo að niðjar hennar
séu orðnir yfir sextíu þá fylgdist hún
ætíð vel með þeim öllum.
Á jóladag áttum við okkar síðasta
samtal í síma. Hún var löngu búin að
ákveða að halda jól heima hjá sér
þrátt fyrir margra vikna legu á spít-
ala og það tókst. Það var þessi sami
hlýi tónn í röddinni og hugur í henni
þar sem hún var í íbúð sinni í Laga-
rási. Hún var samt tilbúin að taka því
sem verða vildi með stakri ró.
Að lokum vil ég þakka Beddu
minni fyrir allar þær mörgu góðu
stundir sem ég og fjölskylda mín
höfum átt með henni. Blessuð sé
minning hennar.
Snorri Tómasson.
Hinn 10. janúar fengum við frétt-
irnar, elsku amma okkar hafði fengið
hvíldina um nóttina. Við frænkurnar
töluðum lengi saman þennan morg-
un og rifjuðum upp margar minn-
ingar um þessa góðu konu, en flestar
okkar minningar úr barnæsku eru
að einhverju leyti tengdar ömmu.
Við urðum þeirra forréttinda aðnjót-
andi að fá að alast upp í nánu sam-
bandi við ömmu og afa á Haugum.
Þegar við vorum börn var amma far-
in að minnka útivinnuna og mjög oft
vorum við bara þrjár saman. Amma
hafði ótrúlega mikla þolinmæði
gagnvart okkur. Sjálfsagt hafa
minningarnar dofnað í tímans rás en
mikið er gaman að rifja þennan tíma
upp. Við munum t.d. eftir að við
fengum að klæða okkur upp í forláta
peysuföt sem hún átti og hlóðum á
okkur skartgripunum hennar. Eitt
skiptið þegar við vorum búnar að
gera okkur fínar með allskyns skarti
stungum við af út og upp í tjörn. Í
leiknum gerðist það að Bergþóra
missti hring sem amma átti, í tjörn-
ina. Við þorðum ekki fyrir nokkra
muni að segja ömmu frá þessu en
þegar hún fór að leita að hringnum
gáfumst við upp. Hún skammaði
okkur ekki en bað okkur vinsamleg-
ast að fara ekki oftar með skartgrip-
ina sína út. Þannig var hún alltaf
sanngjörn þó svo að hún væri ekki
algjörlega sátt við það sem við gerð-
um. Við fengum oft að leika okkur á
háaloftinu og róta í gömlum fötum
sem okkur fannst miklar gersemar.
Komum við oft til ömmu uppstrílað-
ar eftir þessa leiki og háaloftið í rúst.
Við fengum nú yfirleitt tiltal en alltaf
var auðsótt að fá að fara aftur upp.
Hjónarúmið þeirra ömmu og afa
skipaði stóran sess í okkar barn-
æsku, en það var eina rúmið í húsinu
sem aldrei náði að kólna. Þar fóru
fram hinir ýmsu leikir og í minning-
unni finnst okkur heilu og hálfu dag-
arnir hafa liðið í þessu herbergi. Við
munum aldrei eftir öðru en að armar
ömmu hafi staðið okkur opnir. Berg-
þóra man t.d. að hún skreið oft upp í
til ömmu og afa á nóttunni og alltaf
var tekið vel á móti henni.
Amma varðveitti alltaf barnið í
sjálfri sér og oftar en ekki var hún
sjálf þátttakandi í okkar leikjum.
Uppáhaldsleikurinn hennar ömmu
var þó hárgreiðsluleikurinn, en
henni fannst fátt betra en að hlaða
okkur í kringum sig og láta okkur
vatnsgreiða sér. Á tyllidögum feng-
um við svo að setja í hana rúllur.
Þessu muna flest börn sem ein-
hverntíma hafa verið á Haugum eft-
ir.
Eftir að við urðum fullorðnar hafa
minningarnar breyst en amma
breyttist kannski ekki svo mikið. Það
var alltaf jafn gott að koma í Lagar-
ásinn og fá kaffibolla og spjalla um
daginn og veginn. Hún var mikill
húmoristi og alltaf stutt í hláturinn.
Amma var þó ekki hrædd við að
segja sínar skoðanir og fengum við
að heyra ef henni mislíkaði eitthvað í
okkar fari, en bætti við að það væri
nú bara hennar skoðun.
Við munum vera duglegar að
segja börnunum okkar sögur af
henni ömmu og halda þannig minn-
ingu einstakrar konu á lofti.
Elsku amma, við þökkum þér fyrir
allar góðu stundirnar og væntum-
þykjuna sem þú sýndir okkur alla
tíð. Leyndarmálin okkar eru vel
geymd.
Þínar ömmustelpur,
Bergþóra Sefánsdóttir.
Sigrún Jóna Hauksdóttir.
Til allrar hamingju er heimurinn
fullur af stórkostlegum manneskjum
sem snerta við öðrum og hafa áhrif á
líf annarra. Amma var svo sannar-
lega slík manneskja fyrir mig og
marga fleiri. Hún var þessi mann-
eskja því hún var réttsýn, hlý og
sönn, hún stóð með sannfæringu
sinni, var hreinskiptin og heiðarleg.
Tengsl mín og ömmu hófust snemma
í mínu lífi. Líklega má segja að þau
hafi einkennst af tengslum sem ung-
barn myndar við sína nánustu
umönnunaraðila því afi og amma
voru lykilpersónur í mínu lífi lengi
framan af. Í sveitinni hjá þeim átti ég
öruggt skjól og mínar bestu stundir
sem barn – enda leitar hugurinn
ætíð í Skriðdalinn þegar þörf krefur
að ná hugarró og næra sálina. Þess
konar grunnur fyrir lífið er ómetan-
legur, það er eitthvað sem maður
skilur betur og betur eftir því sem
tíminn líður. Við barnabörnin sem
eyddum þar dýrmætum tíma saman
við leik og sveitastörf gátum ætíð
treyst á stuðning afa og ömmu, alveg
sama á hverju bjátaði. Amma hafði
hlýjan faðm, var snögg að greina að-
stæður og leysti farsællega úr mál-
um. Hreinskilni hennar var stórkost-
leg, í senn óvægin en blönduð kímni
og hlýju svo ekki var annað hægt en
að taka henni vel. Það var ekkert
sem hét að móðgast eða reiðast enda
stóð aldrei til hjá ömmu að kalla
fram þannig viðbrögð. Hún sagði
hlutina eins og þeir voru og lá ekki á
skoðunum sínum. Ég held að ég hafi
fyrst og fremst lært af ömmu minni
að það eru allir jafnir. Þannig tók
hún á móti fólki sem átti leið um bæj-
arhlaðið á Haugum. Ég man eftir al-
þingismönnum og ferðafólki, ætt-
ingjum, sveitungum og vinum,
sveitungum ættingja eða vinum
sveitunga – allir fengu sömu hlýju
móttökurnar. Amma var sönn
sveitakona af sinni kynslóð í þeirri
merkingu að hún átti alltaf til nokkra
botna og annað góðgæti í frystinum
svo upp á hvern dag var slegið upp
veislu í kaffitímanum og nóg til fyrir
alla sem rákust inn. Þrátt fyrir það
held ég að hún hafi einnig átt sínar
hugsjónir og væntingar um aðra
stöðu kvenna. Þó að ég fyndi aldrei
fyrir neinni pressu gaf ýmislegt til
kynna að hún hafi ætlað mér að
ganga menntaveginn og öðlast ann-
ars konar frama en henni stóð til
boða. Líklega óttaðist hún að þess
konar framtíðarsýn gæti ekki ræst
þegar ég varð tiltölulega ung móðir.
Þökk sé breyttum tíðaranda og sam-
félagsgerð að þetta tvennt er nú
samræmanlegt.
Elsku amma, ég þakka þér allt
sem þú gafst mér og fyrir að vera
þessi góða fyrirmynd. Ég er þess
fullviss að heill skari góðra sálna tek-
ur nú jafnvel á móti þér og þú gerðir
þegar gesti bar að garði, á þeim stað
sem liggur fyrir okkur öllum að
heimsækja, og þar er afi að sjálf-
sögðu fremstur í flokki. Minningu
þinni verður ætíð haldið á lofti.
Þín
Eyrún María Rúnarsdóttir.
Hún amma mín, Bergþóra Stef-
ánsdóttir, er nú öll.
En minningin um góða, heil-
steypta kjarnakonu lifir. Mig langar
til þess að gera orð Jóns Thoroddsen
úr bókinni Kvæði að mínum, þegar
ég minnist ömmu minnar hér:
Hún var góð kona,
guðelskandi,
hóglynd og skemmtin
í háttum öllum;
um hagnýtni og þrif,
og hússtjórn fræga,
bera börn vitni
og bragur hjúa.
Vildi hún ávallt
að af sér stæði
heill og hamingja
hverjum manni;
bónda hún unni
og börnum sínum
ástríki því,
sem öllu megnar.
Þau voru blóm í bændastétt,
sem byggðarlagið gjörðu prýða,
athafna þeirra yfir blett
ilminn af dyggðum lagði blíða.
Ó, að við sérhvern arinstein
ígildi sprytti slíkra rósa!
þá mundu fækka þjóðarmein,
sem þjaka grundu norðurljósa.
Amma var kona sem gott væri að
líkjast og vona ég að mér beri gæfa
til að flytja bæði minningar og góð
ráð sem hún gaf mér áfram til barna
minna.
En eitt sinn þurfa allir menn að
deyja og því kveð ég hana ömmu
mína með þakklæti og söknuði og
þeim orðum sem yngri dóttir mín
viðhafði brosandi er hún heyrði af
andláti langömmu sinnar: „Mamma,
nú getur hún langamma dansað aft-
ur.“
Blessuð sé minning hennar.
Berghildur Fanney
Hauksdóttir,
Hrísum, Vopnafirði.
Bergþóra
Stefánsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
REBEKKA THEODÓRSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þriðjudaginn
15. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn
24. janúar kl. 15.00.
Halldór Aðalsteinsson,
Sveinn Ingi Halldórsson, Ásgerður Jónasdóttir,
Friðrik A. Halldórsson, Hjálmfríður Bjarnadóttir,
Guðmundur J. Halldórsson, Fanney Friðriksdóttir,
Helga S. Halldórsdóttir, Ólafur Ólafsson,
Guðrún Fjóla Halldórsdóttir, Pétur Pálsson,
Tómas Halldórsson, Catherine Halldórsson,
Ester Halldórsdóttir, Magnús Örn Stefánsson,
Kolbrún S. Halldórsdóttir, Benjamín Friðriksson,
Halldór Antonsson, Vilborg Jónsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð,
áður Ránargötu 27,
Akureyri,
lést miðvikudaginn 16. janúar.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
25. janúar kl. 13.30.
María Elínborg, Herdís, Jón Grétar,
Bjarni Rafn, Áslaug Nanna og Ingvi Júlíus Ingvabörn,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.