Morgunblaðið - 19.01.2008, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 35
MINNINGAR
✝ Sigrid Østerby,Dunhaga 15,
Reykjavík, fæddist í
bænum Hee á Jót-
landi 6. febrúar
1937. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
12. janúar síðastlið-
inn. Sigrid var dótt-
ir hjónanna Ólafar
Hallfríðar Sæ-
mundsdóttur, hús-
freyju á Selfossi, f.
1.4. 1906, d. 19.2.
1995, og Herman
Østerby Christen-
sen mjólkurfræðings á Selfossi, f.
10.3. 1907, d. 1.8. 1987. Systkini
Sigrid eru a) Ásbjörn, prentari í
Svíþjóð, f. 15.9. 1939, b) Leif, rak-
ari á Selfossi, f. 18.8. 1942, maki
Svandís Jónsdóttir ljósmóðir og c)
Eva hjúkrunarfræðingur, f. 5.1.
1948, maki Einar Oddsson læknir.
Sigrid giftist 12. ágúst 1960
Konráði Sigurðssyni lækni, f. 13.6.
1931, d. 15.7. 2003, en þau skildu
1972. Börn þeirra eru: a) Atli, líf-
fræðingur, f. 11.10. 1959, maki
Anne Berit Valnes, kennari. Börn
þeirra eru Björk f. 9.6. 1995, Lilja,
f. 14.12. 1996, Hákon, f. 26.4. 1998,
Tryggvi, f. 18.7. 2000 og Gauti, f.
á Jótlandi fram til 9 ára aldurs en
flutti þá með þeim að Selfossi þar
sem Herman faðir hennar starfaði
sem mjólkurfræðingur. Sigrid
stundaði nám við Menntaskólann á
Akureyri en lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum að Laug-
arvatni 1957 og lagði síðan stund á
nám í Myndlista- og handíðaskól-
anum. Hún lauk kennaraprófi
1966 og BA-prófi í dönsku frá Há-
skóla Íslands 1987. Síðar nam hún
uppeldis- og kennslufræði og lista-
sögu við Háskóla Íslands. Hún
lauk námi sem listmeðferðarfræð-
ingur frá Institut for Kunstterapi í
Noregi og Danmörku 2003 og
stundaði listmeðferð til æviloka.
Sigrid starfaði síðustu áratugina
sem framhaldsskólakennari, síð-
ast við Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja. Jafnframt lagði hún
stund á myndlist og hélt fjölda
einkasýninga og samsýninga hér á
landi og erlendis. Sigrid var ötul
baráttukona fyrir kvenréttindum
og tók virkan þátt í menningar-
samskiptum við fjölmargar þjóðir.
Hún starfaði sem sjálfboðaliði fyr-
ir Vin, athvarf fyrir fólk með geð-
raskanir, lagði hvers kyns menn-
ingar- og mannúðarmálum lið og
ferðaðist víða um heim. Sigrid
lagði alla tíð sérstaka rækt við
hinar dönsku rætur sínar.
Útför Sigrid fer fram frá Nes-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
8.1. 2002. Fyrir átti
Anne Berit börnin
Cecilie, f. 4.6. 1982
og Fredrik, f. 13.2.
1988. b) Sif, lögfræð-
ingur, f. 4.12. 1960,
maki Ólafur Valsson
dýralæknir. Dóttir
Sifjar og Þórðar
Hjartarsonar er
Helga, f. 18.7. 1997.
Fyrir átti Ólafur
börnin Baldvin, f.
12.3. 1985, Sigríður,
f. 5.11. 1992 og Rós-
hildur, f. 23.3. 1994.
c) Huld flugfreyja og
BA í frönsku, f. 5.8. 1963, maki
Sigurður Tómas Magnússon, lög-
fræðingur. Börn þeirra eru Sig-
rún Hlín, f. 20.3. 1988, Margrét
Sif, f. 3.2. 1994, og Magnús Kon-
ráð, f. 22.6. 1998. d) Ari, læknir f.
14.9. 1968, maki Þóra Guðmunds-
dóttir hjúkrunarfræðingur. Börn
þeirra Sif, f. 13.4. 2003 og Arnar,
f. 27.1. 2005. Fyrir átti Þóra dæt-
urnar Helenu, f. 20.6. 1995, og
Agnesi, f. 23.7. 1997. e) Andri
læknir, f. 16.9. 1971. Sigrid átti
fyrir hjónaband dótturina Björt
Nordquist, f. 6.1. 1957, d. 2.8.
sama ár.
Sigrid bjó með foreldrum sínum
Við fráfall elskulegrar vinkonu
hrannast upp kærar minningar frá
ánægjulegum samverustundum á
ferðalögum, heimsóknum, listasýn-
ingum og fleiri tilefnum. Var alltaf
jafngaman að hittast, því að Sigrid
var víðlesin, skemmtileg og mikil
listakona. Mér er efst í huga sú vin-
átta sem hún rækti svo vel með nær-
veru sinni. Fyrir allt þetta þakka ég.
Við áttum sameiginlegan gullmol-
ann okkar – ömmubarnið hana
Helgu. Sigrid var natin og kærleiks-
rík amma og voru þær mjög sam-
rýndar. Þetta er erfiður tími fyrir
Helgu en mun hún síðar minnast
margra góðra stunda með ömmu
sinni með þakklæti.
Ég sendi börnum og systkinum
Sigridar og fjölskyldum þeirra inni-
legar samúðarkveðjur.
Hér við skiljumst
og hittast munum
á feginsdegi fira;
drottinn minn
gefi dauðum ró,
hinum líkn, er lifa.
(Úr Sólarljóðum.)
Helga Þórðardóttir.
Það er október og árið er 1953.
Norður á Akureyri er saman kom-
inn hópur ungmenna sem er að setj-
ast í 3ja bekk menntaskólans.
Margir eru langt að komnir og
þekkja engan. Þar á meðal erum við
Sigrid.
Það æxlast síðan þannig að við
verðum herbergisfélagar á heima-
vistinni og hún verður vinkona mín
fyrir lífstíð; glaðsinna, traust og
hreinskiptin og svo dæmalaust
skemmtilegur bóhem. Minningarnar
frá menntaskólaárunum eru margar
og ljóslifandi.
Til dæmis þessi: Bekkjarsystir
okkar með danska nafnið bjargar
okkur iðulega frá þeirri ævarandi
skömm að elskulegur dönskukenn-
ari okkar, Jón Árni, gangi út og sjá-
ist ekki framar í þessum bekk. Þeg-
ar við, hvert eftir annað, erum búin
að lesa og bera dönskuna skilmerki-
lega fram samkvæmt kórréttri staf-
setningunni setur Jón Árni sig í
hvíldarstellingu og segir: „Æi, Sig-
rid mín, vilt þú nú ekki lesa?“ Mikið
skildi ég hann vel seinna á ævinni.
Svo komu sumrin og við unnum
báðar í Kaupfélaginu á Selfossi og
þar kynntist ég fjölskyldu hennar. Á
þeim bænum þótti nú ekki tiltöku-
mál að bæta við rúmi og mat í maga
unglingsstúlku og umbera hana á
versta aldri. Fyrir það verð ég æv-
inlega þakklát.
Lífið fór ekki alltaf mjúkum hönd-
um um hana Sigrid fremur en svo
marga aðra.
Sumarið eftir stúdentspróf missti
hún Björt litlu dóttur sína, sem hún
hafði eignast þegar við vorum í 6.
bekk. En þegar áföllin riðu yfir
komu eiginleikar hennar ekki hvað
síst í ljós; æðruleysi, kjarkur og
dugnaður. En ég veit að hún taldi
sig hamingjukonu. Hún eignaðist
mannvænleg börn og barnabörn.
Stundum tók ævintýrakonan
völdin. Hver okkar hefði farið til
Kúbu að sinna sykuruppskeru nema
hún? Á seinni árum gat hún talsvert
sinnt listsköpun sinni, málverkum
sínum. Hún sótti innblástur norður
á Finnmörk þaðan sem við vinkonur
hennar eigum myndir eftir hana og
á grísku eyjunum hafði hún sérstakt
dálæti.
Í ársleyfi frá kennslu skrifar hún
mér frá Atla syni sínum á Rolvsöy:
„Mér líður vel með öllum ungunum
litlu hans Atla. Hér er vetur á norð-
urhjara en hlýtt í kringum mig.“
Frá Krít skrifar hún í sama leyfi:
„Það er gott að hafa líf og heilsu til
að njóta.“ Hún hafði einmitt ætlað
sér að fara til Grikklands nú síðsum-
ars með danska listahópnum sínum
þegar örlögin gripu í taumana. Sein-
asta ferð hennar var í vor þegar hún
fór að leita róta sinna í Danmörku
með Evu systur sinni. Ég veit að
þessi ferð og samveran við Evu var
henni mikils virði.
Seinasta minning mín um Sigrid
er frá nýliðinni Þorláksmessu. Við
Kolfinna sitjum hjá henni heima hjá
Huld og Sigurði þar sem hefur verið
búið þannig um hana að henni líður
eins og best verður á kosið eins og
komið er. Þarna er líka Atli og fjöl-
skylda hans. Við drekkum kaffi, er-
um bara kátar, spjöllum eins og allt-
af. Sigrid segir: „Nú tökum við upp
bestu vínflöskuna.“ Þetta er þrátt
fyrir allt yndisleg og ógleymanleg
stund. Við kveðjumst og sjáumst
ekki aftur.
Við Friðrik biðjum minni góðu
vinkonu allrar blessunar og sendum
fjölskyldu hennar innilegar samúð-
arkveðjur.
Alexía M. Gunnarsdóttir.
Kær vinkona og bekkjarsystir er
fallin frá. Það gerðist alltof fljótt því
hún átti svo margt eftir ógert í lífinu
og listinni.
Haustið 1953 mættu unglingar
hvaðanæva af landinu til Akureyrar
til að hefja nám í 3. bekk MA. Fæst
okkar þekktust og ekki laust við að
bæði kvíði og eftirvænting gerðu
vart við sig. Í þessum hópi var Sig-
rid, stórglæsileg stúlka frá Selfossi.
Eftir því sem kynnin urðu nánari
kom í ljós að Sigrid var einstaklega
skemmtilegur félagi og við eigum
margar ógleymanlegar minningar
frá þessum glaðværu unglingsárum.
Örlögin höguðu því svo að Sigrid
yfirgaf Akureyri eftir þrjá vetur í
MA og varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni. Hún var
eftir sem áður alltaf órjúfanlegur
hluti af okkar hópi og tók virkan
þátt í félagslífi og gleðistundum.
Skömmu áður en halda skyldi norð-
ur sl. sumar til að fagna 50 ára stúd-
entsafmæli afboðaði Sigrid þátttöku
sína og var hennar sárt saknað. Hún
var að hefja aðra og erfiðari ferð og
baráttu við vágestinn sem lagði
hana að velli.
Sigrid var mörgum góðum kost-
um búin. Hún var hetja í okkar aug-
um, kjarkmikill dugnaðarforkur og
lét engan bilbug á sér finna þó að á
móti blési. Í mörg ár einbeitti hún
sér að eigin barnahópi, en síðan
starfaði hún lengi sem kennari, bæði
í grunn- og framhaldsskóla. Það var
þó ljóst að hugur hennar stefndi í að
mennta sig frekar á myndlistarsviði
enda hafði hún mikla listræna hæfi-
leika og hafði stundað myndlistar-
nám áður fyrr heima og erlendis. Í
listiðkun og listkennslu fann hún
sinn farveg og margir nutu góðs af.
Hugur Sigrid var leitandi og hún
lagði meira upp úr andlegum þroska
en veraldlegum gæðum. Hún var
fordómalaus og frjálslynd með
sterka og ákveðna lífssýn, hafði til
að bera kímnigáfu og hlýju og öðl-
aðist vináttu margra. Sigrid miklaði
ekki hlutina fyrir sér og það er
aðdáunarvert hve áræðin hún var í
ákvörðunum sínum. Hún átti sér
sína drauma og hennar mottó var að
vinna í því að láta þá rætast og til
þess notaði hún tímann vel, ferðaðist
um nálæg og fjarlæg lönd með pens-
il í hönd og naut þess að kynnast
nýjum aðstæðum. Hún mætti síð-
ustu mánuðunum af miklu hugrekki
og æðruleysi og dreif sig í fylgd
Evu, systur sinnar, til Danmerkur
að heilsa upp á ættingja sem hún
hafði nýlega leitað uppi. Þessi ferð
var systrunum báðum til mikillar
ánægju.
Hún átti margt ógert og það er
sorglegt að hún skyldi ekki fá að
njóta lífsins lengur, því hún var
sannkallað lífsins barn og ung í anda
þó að árunum fjölgaði. Það er dýr-
mætt að hafa notið vináttu hennar
og félagsskapar fram til hins síð-
asta.
Sigrid skilur eftir sig fjársjóð í
börnum sínum og barnabörnum sem
nú sjá á bak henni alltof snemma.
Fyrir hönd bekkjarfélaganna úr MA
og maka þeirra sendum við þeim og
öðrum aðstandendum innilegar
samúðarkveðjur.
Auður Torfadóttir.
Kolfinna Bjarnadóttir.
Það var á haustmánuðum 2005
sem hún Sigrid kom inn í tilveru
okkar hér í Vin, athvarfi Rauða
krossins fyrir fólk með geðraskanir.
Hún gerðist sjálfboðaliði og sá um,
ásamt góðum hópi fólks, að hafa op-
ið fyrir gesti athvarfsins á sunnu-
dögum.
Hópur sjálfboðaliða hefur reynd-
ar séð um sunnudagsopnun í þau
bráðum fimmtán ár sem Vin hefur
verið starfandi, mikið til námsfólk í
yngri kantinum. En þvílík gæfa að
fá þessa jákvæðu og gefandi konu í
hópinn.
Sigrid hafði fengist við ýmislegt
um ævina, m.a. starfað á Kleppsspít-
ala, svo hún þekkti umhverfið vel.
Hún hafði fengist við kennslu og
listmeðferð sem svo sannarlega átti
eftir að koma öllum listunnendum
athvarfsins til góða því ekki nóg
með að Sigrid benti okkur á
skemmtilega viðburði og ætti það til
að fara með okkur á sýningar, svona
í miðri viku, heldur hélt hún utan
um myndlist í Vin sl. vor þar sem
málað var og teiknað sem aldrei
fyrr. Afraksturinn varð sýningin
„uppreisn litarins“ sem haldin var í
athvarfinu sem hluti verkefnisins
„List án landamæra“. Listviðburðir
tengdir því voru æði margir með
fjölda þátttakenda fyrri part síðasta
árs.
Farin var hópferð Vinjarfólks eitt
sinn austur í Hveragerði þar sem
listakonan hafði sett upp sýningu í
Hveragerðiskirkju. Þótti henni vænt
um það og hafði auðvitað komið því í
kring að vel var tekið á móti skar-
anum. Í fyrrasumar fóru listhneigð-
ir Vinjargestir í Neskirkju að skoða
þau verk sem Sigrid hafði sett þar
upp og seldi á sanngjörnu verði.
Innkomuna lét hún renna til líkn-
arstarfs, sem var dæmigert fyrir
hana. Fengu gestir sýningarinnar
leiðsögn listakonunnar um kirkjuna,
sem henni þótti greinilega afar vænt
um og þekkti þar greinilega hvern
krók og kima.
Ekki voru þetta einu sýningar
hennar Sigrid, sem við fengum tæki-
færi til að sjá, því hún var dugleg að
sýna myndlist sína á bæði stærri og
minni stöðum. Hafði hún mikinn
áhuga á menningu Sama og norður-
hluti Skandinavíu var henni ofarlega
í huga. Tákn og mynstur, trommur
og kraftur náttúrunnar var áberandi
í verkum hennar á mörgum þessara
sýninga.
Sumarið 2006 fór hópur fólks frá
Vin til Danmerkur á norrænt sum-
armót geðhjálparsamtaka og fylgd-
ist Sigrid vel með ferðum hópsins
með tölvupóstssamskiptum, enda
hafði hún búið í Jelling þar sem hóp-
urinn dvaldi ásamt öðrum mótsgest-
um.
Þannig var heiðurskonan Sigrid,
kom til okkar annað veifið í kaffi og
fylgdist með af ósviknum áhuga,
hvað helst væri að gerast hjá fólkinu
í Vin. Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast mannvininum Sig-
rid Österby, þó samveran hafi verið
alltof stutt. Minningin um dugnað-
arkonu, svo skapandi, gefandi og já-
kvæða í garð samferðamanna mun
lifa.
Aðstandendum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Gestir og starfsfólk Vinjar,
athvarfs Rauða krossins.
Hún Sigrid var einstakur gleði-
gjafi og hló björtum dillandi hlátri,
þéttvaxin og ljós yfirlitum, röskleg
og upplitsdjörf í fasi; glettnisglampi
í augum. Ég naut þeirrar gæfu að
ferðast með henni, hér innan lands
um fjöll og bæi, til Grænlands og
Finnlands og ekki sízt til Leníngrad
á efstu árum Brésnefs aðalritara og
þeirra kumpána. Það var mikil reisa
og öllum ógleymanleg. Síðan höfum
við vitað hvort af öðru, þótt sam-
fundir væru stopulir; og víst var
gott að hlæja með henni yfir gulli á
glasi og óloppin var hún í tali. Sigrid
var óvílin kona og kjarkmikil, vitur
og veitandi, síleitandi og sótti oft á
brattann og var jafnan glaðsinna
þótt heimurinn reyndist henni
stundum bæði hrekkvís og slægur.
Hún var sífellt með nýjan sokk á
prjónum, yfirleitt marglitan eins og
mannlífið er. Nemendum sínum og
samstarfsmönnum reyndist hún vel
í hvívetna og var einatt reiðubúin að
leggja lykkju á leið sína til að lið-
sinna fólkinu sínu; leiddist allt karp
um borgaralega smámuni í saman-
burði við lífsins list. Veröldin er
snauðari við brottför hennar. Gefi
nú guð henni gott leiði til þeirrar
Furðustrandar sem okkur er öllum
búin. Ástvinum hennar sendi ég
samúðarkveðju.
Sölvi Sveinsson.
„Þú lofar að koma.“
„Já, ég lofa.“
Þetta voru síðustu orðaskipti okk-
ar Sigridar þegar við kvöddumst á
hlaðinu á Hóli í haust.
Áður en ég efndi loforðið var
komið að annarri kveðjustund.
Það eru rúmlega 40 ár síðan við
sáumst fyrst.
Glæsileg hjón stóðu í dyrunum
hjá okkur og sögðust vera að flytja á
efstu hæðina í Hraunbæ 28. Þetta
voru fyrstu kynni okkar við Sigrid. Í
Hraunbænum áttum við margar
góðar stundir og stutt var milli
hæða. Laugarássárin liðu og Sigrid
flutti í nágrenni við okkur í Kast-
alagerði með börnin sín fimm. Þá
bjuggum við á Borgarholtsbraut og
aftur varð gatan greið á milli okkar
og vináttan okkur mikils virði.
Það var lærdómsríkt fyrir okkur
að kynnast Sigrid og hinum sterka
persónuleika hennar. Sigrid vandaði
mál sitt og hugsaði sig vel um áður
en hún talaði og það þýddi ekkert að
segja „af því bara“, hún bað um nán-
ari skýringar á hverri skoðun og
helst rökstuðning fyrir málinu.
Þetta var okkur góður skóli og gerði
hverja stund með Sigrid innihalds-
ríka og eftirminnilega. Merking
orðanna „að veltast um af hlátri“
varð ljós þegar ógleymanlegur hlát-
ur Páls og Sigridar fyllti húsið.
Stundirnar sem við áttum saman
eru mikils virði þegar minningarnar
eru einar eftir.
„Já, ég lofa“ að heimsækja þig í
huganum, þakka þér allt og gleyma
þér aldrei.
Atli, Sif, Huld, Ari og Andri, ég
votta ykkur og fjölskyldum ykkar
innilega samúð.
Edda Magnúsdóttir.
Látin er, eftir skammvinna bar-
áttu við illvígan sjúkdóm, kær les-
hringssystir, Sigrid Østerby. Í nær
tvo áratugi höfum við 12-13 konur
hist mánaðarlega til að lesa og ræða
bókmenntir. Upphafið var þing nor-
rænna móðurmálskennara í Hels-
inki sumarið 1987. Þar hittust Ingi-
björg, Sigrid, Sigrún og Unnur
María og áttu innihaldsríka daga á
þinginu auk helgarferðar til St. Pét-
ursborgar þar sem þær sáu bæði
sýningu hjá Kirov-ballettinum og
hrífandi listasöfn. Upp úr þeim
kynnum spratt leshringur sem
stækkaði fljótt og valdi Biblíuna
sem fyrsta viðfangsefni. Fundir
voru ýmist í heimahúsum eða í sum-
arhúsum úti á landi. Oft var Sigrid
gestgjafi í þessum hópferðum út í
guðsgræna náttúruna, s.s. í Varma-
hlíð, listamannahúsi í Hveragerði og
í rómantísku sumarhúsi við úthafsn-
ið suður í Höfnum. Ekki létum við
fannkyngi hindra för að vetrinum og
tókum þá stundum gönguskíðin með
í indælu orlofshúsin austan heiða.
Þar héldum við líka nokkrum sinn-
um okkar eigin þorrablót með söng
og gleði.
Sigrid var góðum gáfum gædd,
dugleg og kjarkmikil. Á fullorðins-
árum fór hún í Háskóla Íslands og
lauk þaðan BA-prófi. Eftir það varð
hún framhaldsskólakennari í mörg
ár og síðar lauk hún námi erlendis í
listmeðferð (art therapy). Málara-
vinnustofu hafði hún í kjallaranum
heima hjá sér og hélt sýningar víða
um land, síðast í Grafíklistasafninu í
fyrra og fékk hún lof fyrir verk sín
þar. Sigrid var hreinskiptin og nær-
verugóð kona. Hún var vel lesin og
bar glöggt skyn á bókmenntir. Góð-
ar minningar er gott að eiga um fé-
lagslynda, káta og skemmtilega vin-
konu.
Við sendum ástvinum hennar
innilegar samúðarkveðjur. Hlýhug-
ur fylgir vinkonu okkar áfram veg-
inn. Blessuð sé minning hennar.
Björg, Elín, Guðrún,
Helga, Herdís, Hjördís,
Ingibjörg, Ingunn Þóra,
Ingunn S., Margrét, Sig-
rún og Unnur María, les-
hringssystur.
Sigrid Østerby