Morgunblaðið - 19.01.2008, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Guðríður Bjarn-ey Ágústsdóttir
fæddist á Selfossi
26. desember 1961.
Hún lést 5. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Dagbjört Sigurð-
ardóttir, f. 3. sept-
ember 1924, d. 26.
ágúst 2005 og Ágúst
Guðbrandsson, f. 1.
ágúst 1921, d. 13.
nóvember 2005.
Systkini hennar eru
1) Guðbrandur Stígur, f. 24.3.
1960, maki Brynhildur Arthúrs-
dóttir, f. 9.5. 1969, börn a) Ingunn
Ýr, sambýlismaður Hannes Þ. Sig-
urðsson, b) María Björt, c) Dag-
björt, d) Kristín Hrefna, e) Gyrðir
Hrafn og f) Kormákur Ari. 2) Sig-
Kristján Eldjárn Þóroddsson. 5)
Ragnheiður Drífa, f. 3.1. 1948,
maki Logi Hjartarson, f. 19.9. 1962,
börn a) Dagbjört Lára, maki David
Charles Kempf og b) Björgvin
Daði, sambýliskona Helena Ketils-
dóttir. 6) Kristín, f. 18.2. 1949, börn
a) Sigurður Dagur, sambýliskona
Sigríður Sif Magnúsdóttir, b) Karl
Áki, sambýliskona Berglind Ragn-
arsdóttir, c) Snorri, maki Fjóla
Kristinsdóttir og d) Gauti. 7) Jason,
f. 22.8. 1954, maki Hrönn Stur-
laugsdóttir, f. 18.12. 1957, börn a)
Steinþór, b) Sonja, sambýlismaður
Sigurður Eggert Haraldsson og c)
Sara, sambýlismaður Garðar Guð-
jónsson. Dóttir Guðríðar Bjarn-
eyjar og Hosni Ómars Hassan er
Valborg Sonya, f. 4. nóvember
1993. Þau slitu samvistum.
Guðríður Bjarney ólst upp á
Stokkseyri til 17 aldurs. Eftir það
bjó hún lengst af í Reykjavík og
vann þar við verslunar- og þjón-
ustustörf meðan heilsa leyfði.
Guðríður Bjarney verður jarð-
sungin frá Stokkseyrarkirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
ríður Inga, f. 26.12.
1961, börn a) Kristín
Elísabet, b) Ágúst
Georg og c) Kolbrún
Tanya. 3) Dagrún
Mjöll, f. 16.6. 1965,
maki Aron Hauksson,
f. 5.2. 1967, börn: a)
Ágúst Aron, b) Birta
Hlíf, maki Joshua
David Epstein, c)
Andri Dagur, unnusta
Arndís Hrund Bjarna-
dóttir, d) Diljá Mjöll
og e) Aron Breki. 4)
Hólmfríður Hlíf, f. 7.10. 1946, maki
Einar Páll Bjarnason, f. 7.7. 1944,
börn a) Steinþór, maki Áslaug Dís
Ásgeirsdóttir, b) Guðjón Eggert, d.
16.12. 1983, c) Hólmfríður, sam-
býlismaður Magnús Ragnar Magn-
ússon og d) Silja Hrund, maki
Guðríður Bjarney er látin, 46 ára
að aldri, hvar endar þetta! Ég á við að
hún var í rauninni að byrja lífið. Hún
var hjá okkur Drífu 3. janúar í veislu
og þar ræddum við um framtíðina og
hún sá hana nokkuð skýrt og greini-
legt að hún var að vinna í sínum mál-
um. Hún var svo sannarlega ekki á
förum héðan.
Þegar við Drífa byrjuðum saman
var Gudda sú fyrsta sem ég kynntist
úr hennar fjölskyldu því hún gerði
sér ferð í Mávahlíðina að skoða grip-
inn. Hún kom mér vel fyrir sjónir,
ákveðin og skemmtileg og tókst með
okkur góð vinátta sem varði alla ævi.
Hún fékk mig iðulega lánaðan hjá
systur sinni til að fara á böll og alltaf
var henni treyst fyrir mér. Hún var
góður danspartner og krafturinn í
henni! Ætli hún hafi logið þessu með
mjaðmagallann? Hún var með með-
fæddan mjaðmagalla sem háði henni
alla ævi en aldrei á dansgólfinu. Þeg-
ar hún var í stuði þá einhvern veginn
tók hún allt yfir og allir stóðu og sátu
eins og hún vildi, þvílíkur sjarmi sem
stúlkan hafði!
En líf Guddu var ekki dans á rós-
um, síður en svo. Síðustu árin voru
henni ábyggilega gríðarlega erfið. En
hún æðraðist aldrei, hún var ótrúlega
sterk þegar á reyndi. Bæði var hún
tvíburi þannig að þær Inga höfðu allt-
af styrk hvor af annarri og svo eign-
aðist hún dóttur 1993 sem reyndist
henni sannur sólargeisli, og eins voru
börn Ingu henni gleðigjafar.
Auðvitað vildi ég hafa verið henni
jafn hjálpsamur og hún var okkur
Drífu en við gerðum hvað við gátum
og lokuðum engum dyrum og erum
þakklát fyrir það. Hjálpsemi hennar
meðan heilsan leyfði var slík að þar
var við tröll en ekki mann að eiga. Nú
ber að horfa fram á veginn og búa
Valborgu, Ingu og börnum hennar og
okkur öllum gott líf!
Ó, faðir, gjör mig lítið ljós
um lífs míns stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefur villst af leið.
Ó, faðir, gjör mig sigursálm,
eitt signað trúarlag,
sem afli blæs í brotinn hálm
og breytir nótt í dag.
(Matthías Jochumsson.)
Far í friði elsku, Gudda mín. Ég
trúi því að þú hafir náð vopnum þín-
um og sért í góðra vina hópi.
Þinn
Logi.
Elsku Gudda, mig langar til að
minnast þín með nokkrum orðum.
Ég man svo vel eftir því þegar ég
fékk að koma til þín í sveitina að
Syðri-Gróf og dvelja hjá þér í dálít-
inn tíma. Það var mjög skemmtilegur
tími þar sem ég fékk að kynnast öllu
því sem fram fer í sveitinni. Einnig
bauðstu mér oft að koma og gista hjá
þér í Reykjavík sem var alltaf
skemmtilegt. Manstu þegar við vor-
um að keyra út pizzurnar? Við hlóg-
um og fífluðumst svo mikið. Þú varst
alltaf hress og kát og hafðir háan,
smitandi hlátur og fór ekkert á milli
mála þegar þú varst annars vegar.
Ég man ekki eftir þér öðruvísi en
með bók við höndina. Ísfólksbækurn-
ar voru þinn „fjársjóður“ og minna
mig alltaf á þig. Þú lánaðir mér þær
meðan ég vann í Árnesi í Þorlákshöfn
veturinn eftir að ég kláraði stúdents-
prófið og styttu þær mér svo sann-
arlega stundirnar. Ég kláraði þær
ekki allar en ég ætla að gera það einn
daginn.
Ég vildi að lífið hefði farið á annan
veg hjá þér en ég held fast í þessar
góðu og skemmtilegu minningar um
þig. Ég vona að þú hafir það gott
núna og að þér líði vel.
Þín frænka,
Hólmfríður.
Elsku Gudda, þegar ég var yngri
varstu uppáhaldsfrænkan mín og í
raun sú eina sem ég almennilega um-
gekkst af ættingjum. Það var ávallt
líf, fjör og fólk í kringum þig. Þú
varst með þína sérstöku takta eða
stæla sem voru svo skemmtilegir og
enginn gat leikið eftir þér. Þú hafðir
þinn háttinn á að segja sum orð með
spes áherslu. Þau sem voru t.d. með
okkur í ferðinni til Portúgals muna
hvernig þú sagðir Lisboa. Ég man
eftir þér keðjureykjandi í eldhús-
króknum með kókglasið ekki langt
undan og símann. Að skipuleggja
eitthvað hringjandi út um allt, þú
varst svo mikil félagsvera og alltaf að
útrétta. Þú hafðir gáfurnar og vissir
hvernig söng.
Í minningunni eru ofarlega í huga
allir bíltúrarnir sem við tvær áttum
saman þegar við fórum út á land. Þá
var keypt mikið nammi í bílalúgu áð-
ur en haldið var af stað til Ólafsvíkur,
Galtalækjar eða hvert svo sem ferð-
inni var heitið. Þegar þú skemmtir
þér þá þokkalega skemmtir þú þér
best, eins og í brúðkaupi nýlega, þá
dansaðir þú eins og það væri enginn
morgundagur. Enda kom í ljós að
það voru ekkert svo margir morg-
undagar sem þú áttir eftir. Ég get
ímyndað mér að þú hafir verið sárk-
valin eftir danskvöldið. Þú varst
harðdugleg þrátt fyrir veikindin, lést
þig hafa það og aldrei heyrði ég kvart
í þér. Þú tókst skurk hvort sem það
var í tiltekt, sörubakstri eða í vinnu.
Þú passaðir mig oft þegar ég var lítil
en þegar ég átti erfitt á táningsárun-
um þá tókstu mig svolítið til þín og
veittir mér skjól sem mig sárvantaði.
Þér þakka ég fyrir það, mér þykir
bara svo sárt að hafa aldrei almenni-
lega tjáð þér það þakklæti. Þú reynd-
ist móður minni vel og réttir ávallt
hjálparhönd þegar á þurfti að halda.
Á síðari árum málaðirðu þig út í horn
gagnvart sumum en aldrei varstu
nema góð í minn garð og minna. Ég
veit hvað þú elskaðir mig og ég
geymi í hjarta mínu þá sérstöku
stund sem við áttum fyrir ekki svo
löngu síðan. Mér þykir leitt að hafa
fjarlægst þig en ég mun aldrei
gleyma því góða sem þú barst elsku
Gudda mín. Hvíl í friði.
Elsku Valborg Sonya, þú hefur
þurft að reyna mikið en ég vona að
framtíðin eigi eftir að verða þér
betri. Ég samhryggist þér elsku
barn.
Elsku Inga mín, tvíburasystir þín,
sem var þér allt, nú er að sækja í
styrkinn sem ég veit að þú hefur, ég
samhryggist þér innilega.
Dagbjört Lára Sverrisdóttir.
Guðríður Bjarney
Ágústsdóttir
✝ Sveinn Krist-jánsson fæddist
að Langholtsparti í
Hraungerðishreppi
í Árn., 20. desember
1912. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu
Ási í Hveragerði 13.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðríður Sveins-
dóttir, f. á Rauða-
felli í A-Eyja-
fjallahreppi 14. maí
1872, d. 23. jan.
1967, og Kristján
Diðriksson bóndi og kennari, f. í
Króki í Hraungerðishr. 16. apríl
1861, d. 17. des. 1922. Sveinn ólst
upp frá þriggja ára aldri hjá móð-
urbróður sínum Sigurfinni Sveins-
syni og konu hans Guðrúnu Þor-
steinsdóttur að Bergsstöðum
Biskupstungum þar sem hann
eignaðist fjögur uppeldissystkini.
En þau eru: Þorsteinn sem er lát-
inn, Kristrún, Þórunn og Dórót-
hea.
Alsystkini Sveins voru: Elín, f.
1899, d. 1987, Diðrik Kristinn, f.
1900, d. 1916. Sveinbjörg, f. 1902,
d. 1990, Einar, f. 1903, d. 1984,
Gissur, f. 1904, d. 1993, Vigdís, f.
1906, d. 1994, Jón, f. 1907, d. s.á,
Jón, f. 1908, d. 1994, Sveinn, f .
1910, d. 1997, Úlfhildur, f. 1911, d.
2003, og Gísli, f. 1914, d. 1926.
Geir, og Ástrós, og b) Erla Þur-
íður. 4) Gísli Rúnar, f. 10.3. 1949,
kvæntur Sigurveigu Helgadóttur,
þau eiga tvo syni, a) Svein, sam-
býliskona Eva Jóhannesdóttur,
þau eiga dótturina Bergdísi, og b)
Helga, sambýliskona Gunnhildur
Sveinbjörnsdóttir, þau eiga dótt-
urina Sigurbjörgu. 5) Baldur Indr-
iði, f. 23.1. 1954, kvæntur Betzý
Marie Davíðson. Börn þeirra eru:
a) Davíð Ingi kvæntur Berglindi
Björk Guðnadóttur, þau eiga syn-
ina Odd Olav og Auðun Inga, b)
Hrafnhildur, í sambúð með Ragn-
ari Sigurðssyni, og c) Sólrún
María.
Sveinn gekk í farskóla sveit-
arinnar og síðar í Íþróttaskóla Sig-
urðar Greipssonar í Haukadal.
Íþróttir og andi ungmennafélag-
anna voru honum í blóð borin. Eft-
ir ýmis störf til sjós og lands festi
hann kaup á jörðinni Drumbodds-
stöðum I árið 1940. Þar bjuggu þau
Magnhildur hefðbundnum búskap
til ársins 1982, er þau brugðu búi
og fluttu í íbúðir fyrir aldraðra í
Reykholti. Sveinn var félagslyndur
að eðlisfari og studdi ávallt dyggi-
lega við ýmis framfaramál fyrir
sveit sína. Má þar nefna stofnun
Hestamannafélagsins Loga og
uppbyggingu íbúða fyrir aldraða.
Einnig var honum mjög annt um
Bræðratungukirkju. Síðustu 9 árin
dvaldi hann á Hjúkrunarheimilinu
Ási í Hveragerði.
Útför Sveins fer fram frá Skál-
holtskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Hálfsystir, samfeðra,
var Jónína, f. 1898, d.
1985.
Árið 1941 kvæntist
Sveinn Magnhildi
Indriðadóttur frá
Efsta-Dal í Laug-
ardal, f. 17. apríl
1914, d. 16.9. 1992.
Foreldrar hennar
voru Indriði Guð-
mundsson frá Kjarn-
holtum, f. 15.8. 1877,
og Theodóra Ás-
mundsdóttir frá
Efsta-Dal, f. 25.4.
1884, d. 8.2. 1967. Sveinn og Magn-
hildur eignuðust 5 börn, en þau
eru: 1) Svavar Ásmundur, f. 6.5.
1942, kvæntur Laufeyju Eiríks-
dóttur. Börn þeirra eru a) Jórunn,
gift Jóni Halldóri Gunnarssyni,
þau eiga 2 börn, Laufeyju Ósk og
Ólaf Magna, b) Anna, gift Brynjólfi
R. Hilmarssyni, og c) Dóra. d)
Sveinn, í sambúð með Vigdísi Rut
Andersen. 2) Ragnheiður, f. 13.11.
1944, giftist Geir Halldóri Gunn-
arssyni. Þau skildu. Dóttir þeirra
er Edda Heiðrún, gift Aðalsteini
Ingvasyni, þau eiga 2 syni, Aron
Kára og Arnar Daníel. 3) Guð-
ríður, f. 22.12. 1945, gift Pétri
Gauta Hermannssyni, d. 2006, dæt-
ur þeirra eru a) Hildur Sólveig,
giftist Magnúsi Orra Haraldssyni,
þau skildu, börn þeirra eru Pétur
Það fyrsta sem kemur upp í hug-
ann þegar ég hugsa um afa Svein er
söngur. Hann hafði mikla unun af
söng og ég man varla eftir að hafa hitt
hann án þess að lagið hafi verið tekið.
Meira að segja hin síðari ár þegar
hann var að mestu rúmfastur lifnaði
hann allur við og bros færðist yfir
andlitið þegar byrjað var að syngja.
Ég átti þess því miður ekki kost að
kynnast afa mjög vel á mínum upp-
vaxtarárum þar sem ég ólst upp er-
lendis en heimsóknirnar í sveitina að
Drumboddsstöðum eru mér sérstak-
lega minnisstæðar því mér fannst
sveitalífið afar framandi og frjálslegt.
Ég dáðist að vinnusemi afa og vissi
frá fyrstu tíð að þar væri afar sterkur
og fjölhæfur maður á ferð. Það styrkti
mig enn frekar í þeirri trú þegar ég
frétti að hann hefði sjálfur tekið á
móti tveimur af börnum sínum heima
á Drumboddsstöðum því amma var
eina ljósmóðirin á svæðinu og því
voru góð ráð dýr fyrir bóndann. Á
þessum árum tíðkaðist ekki að karl-
menn væru viðstaddir fæðingu barna
sinna, hvað þá að þeir tækju á móti
þeim. Hjálpsemi hans var aldrei langt
undan og var hann oft beðinn aðstoð-
ar af sveitungum sínum þegar dýrin
voru veik eða önnur vandamál komu
upp í sveitinni.
Það er mér líka minnisstætt þegar
afi og amma heimsóttu okkur til Kan-
ada árið 1982. Ég get ímyndað mér að
stórborgin hafi verið þeim jafnfram-
andi og sveitin var mér, en þau vildu
svo gjarnan upplifa þennan heim með
okkur. Afi veitti dýrunum sem hann
sá í ferðinni sérstaka athygli og það
var ljóst að sveitin fór aldrei langt úr
huga hans. Eftir að afi og amma
hættu búskap tók afi virkan þátt í að
byggja upp íbúðir fyrir aldraða í
Reykholti og hafði sérstaklega gaman
af félagsskap sveitunga sinna sem
bjuggu í Bergholti. Á þeim árum
komu listrænir hæfileikar hans enn
frekar fram þegar hann hóf að búa til
hina ýmsa muni úr hrosshári. Mig
grunar að hann hafi verið að halda í
tengslin við dýrin með þessari iðju
sinni, þá ekki síst hestana sína. Hann
spann og óf hluti sem glöddu augað og
vöktu athygli meðal gesta.
Hin síðari ár dvaldi afi Sveinn á
Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði
og fékk þar afar góða umönnun. Þrátt
fyrir að heilsunni hafi hrakað var eitt
sem hann tapaði aldrei en það var
sönggleðin. Hún mun alltaf einkenna
afa fyrir mér og minning hans mun
ávallt lifa í söngnum. Ég trúi því að afi
hafi verið tilbúinn að kveðja þennan
heim og hefja upp raust sína á æðri
stað. Blessuð sé minning hans.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í farandaskjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu og blessaðu þá,
Sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Edda.
Hann afi kvaddi þennan heim 13.
janúar sl., saddur lífdaga. Amma dó
1992 og eftir það horfðum við á neist-
ann dofna ár frá ári. Nú getum við
glaðst með afa því hann er laus úr
glímunni við elli kerlingu.
Við systkinin á Drumb vorum svo
heppin í uppvextinum að hafa afa og
ömmu í sama húsi. Seinna þegar þau
drógu sig í hlé úr búskapnum fluttu
þau í íbúðir fyrir aldraða í Reykholti
sem var að miklu leyti þeirra hugar-
fóstur.
Íbúðin var nálægt skólanum og við
kíktum oft á þau í hléum og vorum
pottþétt mætt ef okkur leist ekki á
matinn í skólamötuneytinu.
Hestar voru afa hjartfólgnir, þeir
voru vinir og vinnufélagar. Hann
kynnti okkur fyrir hestunum og setti
okkur á bak mjög ung. Afi reiddi mig
oft fyrir framan sig og fékk ég þá að
vera með í smalamennsku og reiðtúr-
um. Það skapaðist samt fljótt vanda-
mál, ég stækkaði svo fljótt að ég
skyggði á útsýnið. Þá sat ég bara öf-
ugt aftan við hnakkinn. Afi blístraði
til að stoppa hestana í ákveðinni tón-
tegund og hrekkjalómurinn hann afi
var ekkert alltaf að segja fólki frá því
þegar að hann lánaði hestana sína.
Mörgum brá því í brún þegar hann
setti okkur krakkana á bak hesti sem
það sjálft réð ekki neitt við en hlýddu
okkur eins og ekkert væri.
Afi keyrði alltaf mjög sportlega, lét
heyrast vel í bílnum og stundum þeg-
ar þurfti að stoppa bremsaði hann og
blístraði á bílinn svona til öryggis.
Afi og amma voru bæði trúrækin.
Afi var meðhjálpari svo þau fóru alltaf
þegar messað var í sókninni, nokkuð
sama hvernig viðraði. Við krakkarnir
fórum oft með enda kirkjukaffið
hennar Sigríðar í Tungu ekkert slor.
Mér er það algerleg óskiljanlegt
hvernig hann komst alltaf með okkur
til kirkju á Saab 90 þegar mjólkurbíll-
inn og pósturinn áttu í mesta basli
með að komast á milli.
Afi stundaði netveiði í Hvítá. Hann
tók okkur krakkana með sér og
kenndi okkur að bera virðingu fyrir
þessu vatnsfalli. Það gilda strangar
reglur um hvenær má leggja netin og
einhvern tímann freistaðist afi til að
láta netin liggja einum degi of lengi.
Lögreglan mætti á svæðið og amma
gaf þeim pönnukökur og kaffi. Fyrir
dómi bar afi við aldri, sagðist aldrei
muna númer hvað þessir dagar væru
og hvað þá hvað þeir hétu. Dómarinn
sýndi þessu skilning og bað hann að
lofa sér að gera þetta aldrei aftur.
Afi byrjaði hvern morgun á því að
hlusta á sjö fréttirnar gera morgun-
leikfimina og fara út í fjós. Stundum
labbaði maður niður stigann og skreið
upp í rúm hjá ömmu og kúrði. Hún
kenndi okkur spil og spjallaði, og svo
þegar afi kom úr fjósinu fékk maður
súrt slátur og hafragraut (sem ég
borðaði bara hjá afa). Afi söng mikið,
það var oftast hægt að vita hvar hann
var, maður gekk bara á hljóðið. Afi og
amma voru samstiga í sínum búskap
en ekkert endilega alltaf sammála
hvort öðru. Þau voru vinir og ráðgjaf-
ar sem hvöttu til dáða. „Já, já, þú get-
ur alveg orðið geimfari en fyrst þarftu
að læra að lesa.“
Það verður aldrei hægt að full-
þakka fyrir allt sem þau gerðu. En
vonandi hefur andi þeirra skilað sér
til næstu kynslóða.
Anna Svavarsdóttir.
Sveinn Kristjánsson
Fleiri minningargreinar um Svein
Kristjánsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.