Morgunblaðið - 19.01.2008, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 39
MESSUR/KIRKJUSTARF
AKRANESKIRKJA | Messa kl. 14.
ÁRBÆJARKIRKJA | Tónlistarguðsþjónusta
kl. 11. Kirkjukórinn leiðir almennan safn-
aðarsöng. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu,
sr. Sigrún Óskarsdóttir predikar og þjónar
fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama
tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Kirkju-
kaffiveitingar.
ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í um-
sjón Hildar Bjargar og Elíasar. Messa kl.
14. Séra María Ágústsdóttir héraðsprestur
þjónar fyrir altari og predikar. Kór Áskirkju
syngur, organisti Magnús Ragnarsson.
Kaffisopi í boði sóknarnefndar að messu
lokinni.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11.
Sunnudagaskóli á sama tíma. Prestur Bára
Friðriksdóttir, tónlistastjóri Helga Þórdís
Guðmundsdóttir. Kaffi á eftir og ávextir fyrir
börnin.
BORGARNESKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11.30. Messa kl. 14. Guðsþjónusta á
Dvalarheimili aldraðra kl. 15.30. Sókn-
arprestur
BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalarnesi |
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristín Þór-
unn Tómasdóttir og Rannveig Ásgeirsdóttir
annast stundina. Gunnar Kristjánsson
sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Gísli Jónasson, kór Breiðholtskirkju
syngur, organisti Julian Isaacs. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í umsjá Nínu Bjarg-
ar, Lindu Rósar og Jóhanns Axels. Kaffi-
sopi eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Fjölskyldusamvera með söng og fræðslu.
Foreldrar hvattir til þátttöku með börn-
unum. Ungmennahljómsveit spilar undir
stjórn Renötu Ivan. Guðsþjónusta kl. 14.
Kór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Re-
nötu Ivan. Molasopi eftir messu. Pálmi
Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson, organisti
Kjartan Sigurjónsson, kór Digraneskirkju,
A-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu. Léttar veitingar að messu lokinni.
www digraneskirkja.is.
DÓMKIRKJAN | Æðruleysismessa kl. 20.
Sr. Hjálmar Jónsson predikar, sr. Anna Sig-
ríður Pálsdóttir og sr. Þorvaldur Víðisson
þjóna einnig. Bræðrabandið og Anna Sig-
ríður Helgadóttir sjá um tónlistina.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Anna Sig-
ríður Pálsdóttir predikar, dómkórinn syngur,
organisti er Marteinn Friðriksson. Barna-
starf á kirkjuloftinu. Biskup Íslands vígir tvo
djákna kl. 14. Vígð verða Aðalheiður Jó-
hannsdóttir, kölluð til djáknaþjónustu í Lög-
mannshlíðarsókn í Eyjafjarðarprófasts-
dæmi, og Ármann Gunnarsson, kallaður til
djáknaþjónustu í Garðasókn, Kjalarness-
prófastsdæmi.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunndagaskóli kl.
11. Messa kl. 14. Organisti Torvald Gjerde.
Kyrrðarstund 21. jan. kl. 18.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson, fé-
lagar úr kór Fella- og Hólakirkju leiða al-
mennan safnaðarsöng undir stjórn Guð-
nýjar Einarsdóttur organista. Meðhjálpari
og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Umsjón hafa Edda, Örn og Erna.
Kvöldguðsþjónusta, altarisganga kl. 20.
Fríkirkjukórinn syngur undir stjórn Arnar
Arnarsonar.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl.
11. Kennsla, söngur o.fl. Almenn sam-
koma kl. 14. Margrét S. Björnsdóttir pre-
dikar, lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir. Á
eftir er kaffi og samfélag og verslun kirkj-
unnar opin.
FRÍKIRKJAN, Reykjavík | Messa og barna-
starf kl. 14. Fermingarbörn taka virkan þátt
í messunni, barn verður borið til skírnar. Sr.
Ása Björk þjónar og predikar, altarisganga.
Vöfflukaffi í safnaðarheimili eftir messuna.
Barnastarfið hefst í kirkjunni og flyst síðan í
safnaðarheimilið.
GLERÁRKIRKJA | Barnastarf og messa kl.
11. Sr. Arnaldur Bárðarson þjónar, org-
anisti er Hjörtur Steinbergsson. Félagar úr
Kór Glerárkirkju leiða söng. Kvöldguðsþjón-
usta með léttri tónlist kl. 20.30. Ragga,
Snorri og Kristján leiða söng. Bæn og lof-
gjörð. Kaffi í safnaðarsal.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. For-
eldrum og fermingarbörnum úr Húsaskóla
og Rimaskóla sérstaklega boðið. Prestar
eru sr. Bjarni Þór Bjarnason og sr. Vigfús
Þór Árnason. Kór Grafarvogskirkju syngur,
organisti Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Eftir
messu verður fjallað um fermingardaginn
og atriði er lúta að fermingunni. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur og
Rúna. Undirleikari Stefán Birkisson.
GRAFARVOGSKIRKJA - Borgarholtsskóli |
Sunnudagaskóli kl. 11 í Borgaholtsskóla.
Séra Lena Rós Matthíasdóttir. Umsjón
Gunnar og Dagný, undirleikari Guðlaugur
Viktorsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í
umsjá Lellu, Lilju Irenu o.fl. Messa kl. 11.
Altarisganga, samskot í líknarsjóð. Messu-
hópur þjónar, kirkjukór Grensáskirkju leiðir
söng, organisti Árni Arinbjarnarson, prestur
sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Molasopi
eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Guðmundur Þorsteinsson
messar, organisti Kjartan Ólafsson. Félag
fyrrum þjónandi presta.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa í Hásöl-
um kl. 11. Altarisganga. Prestur sr. Gunn-
þór Þ. Ingason, kantor Guðmundur Sigurðs-
son, Barbörukórinn í Hafnarfirði syngur.
Sunnudagaskólar í Strandbergi og Hvaleyr-
arskóla á sama tíma.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson predikar
og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirs-
syni, fermingarbörn aðstoða. Drengjakór
Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir
stjórn Friðriks S. Kristinssonar, organisti
Björn Steinar Sólbergsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Barnaguðsþjónusta og
messa kl. 11. Umsjón barnaguðsþj. Erla
Guðrún og Páll Ágúst. Prestur Tómas
Sveinsson, organisti Douglas A. Brotchie.
Léttar veitingar eftir messu.
HJALLAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sigfús
Kristjánsson þjónar, félagar úr kór kirkj-
unnar syngja og leiða safnaðarsöng, org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudaga-
skóli kl. 13. Bæna- og kyrrðarstund á
þriðjudag kl. 18. www.hjallakirkja.is.
HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Sam-
koma kl. 17. Kapteinarnir Ester og Wouter
Gooswilligen tala og syngja. Lofgjörð og
söngur.
HJÁLPRÆÐISHERINN, Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón Ragnheiður Jóna Ár-
mannsdóttir og Trond Are Schelander.
Heimilasamband fyrir konur á mánudag kl.
15. Opið hús daglega kl. 16-17.30 nema
mánudaga.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Ás | Guðsþjónusta
kl. 15.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta og
barnastarf kl. 11.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Brauðs-
brotning kl. 11. Ræðumaður Helgi Guðna-
son. Bible studies at 12.30 in the main
hall. Almenn samkoma. kl. 16.30. Ræðu-
maður Vörður Leví Traustason, Gospelkór
Fíladelfíu leiðir söng. Aldursskipt barna-
kirkja, börn 1-13 ára. Bein útsending á
Lindinni FM 102,9 eða á www.filadelfia.is.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og á
laugardag kl. 18.
Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru í Reyðarf. |
Messa kl. 11.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30
og virka daga kl. 18.30.
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30
og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl.
18. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
er messa á latínu kl. 8.10. Laugardaga er
barnamessa kl. 14 að trúfræðslu lokinni.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mán-
uði kl. 16.
Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í
mánuði kl. 16.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl.
11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga er
messa á ensku kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðvikudaga
kl. 20.
KFUM og KFUK | Lofgjörðarvaka kl. 20 á
Holtavegi 28. Sr. Ragnar Gunnarsson flytur
hugleiðingu.
KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Sunnu-
dagskóli í safnaðarheimilinu kl. 13. Um-
sjón hafa Lilja Dögg Bjarnadóttir og María
Rut Baldursdóttir.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur er sr. Auður Inga Einarsdóttir, org-
anisti Lenka Mátéová, kór Kópavogskirkju
syngur.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landspít-
ala í Fossvogi á 4. hæð kl. 10.30, sr. Gunn-
ar Rúnar Matthíasson, organisti Helgi
Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson,
organisti Jón Stefánsson, félagar í Kór
Langholtskirkju syngja. Barnastarfið hefst í
kirkjunni en síðan fara börnin í safn-
aðarheimilið. Kaffi eftir messuna. Tón-
leikar Kammerkórsins ásamt djass-
hljómsveit eru kl. 20.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Kór Laugarnes-
kirkju syngur undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar organista, sr. Bjarni Karlsson
þjónar ásamt Sigurbirni Þorkelssyni með-
hjálpara og hópi sjálfboðaliða. Messukaffi
Gunnhildar Einarsdóttur kirkjuvarðar bíður
svo allra að guðsþjónustu lokinni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Kvöldguðsþjónusta
kl. 20. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir
söng, organisti Jónas Þórir, einleikari á
fiðlu Hjörleifur Valsson, prestur Ragnheiður
Jónsdóttir. Sunnudagaskóli í kirkjunni kl.
13 í umsjón Hreiðars og Jónasar.
MÖÐRUVALLAKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Öll börn fædd 2002 eru
sérstaklega boðin velkomin og fá þau af-
henta bókina Kata og Óli fara í kirkju. Al-
mennur söngur fyrir alla fjölskylduna. Sókn-
arprestur.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Kór Neskirkju syngur, organisti Steingrímur
Þórhallsson, sr. Sigurður Árni Þórðarson
predikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í
kirkju en fara síðan til sinna starfa. Ungling-
ar úr NEDÓ sjá um sölu á súpu og brauði
og verða með kökubasar til styrktar ferða-
sjóði sínum.
NJARÐVÍKURKIRKJA, Innri-Njarðvík |
Sunnudagskóli kl. 11. Umsjón hafa Brynja
Vigdís Þorsteinsdóttir, Dagmar Kunakova
og Jenný Þórkatla Magnúsdóttir. Aðalsafn-
aðarfundur Innri-Njarðvíkursóknar verður
haldinn 27. janúar nk. að lokinni messu
sem hefst kl. 11.Venjuleg aðalfundarstörf.
SALT, kristið samfélag | Háaleitisbraut 58-
60, 3. hæð. Samkoma kl. 17. Haraldur Jó-
hannsson talar um sjálfsaga. Lofgjörð og
fyrirbæn. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Feðginin
Vilhjálmur E. Eggertsson og Hanna Vil-
hjálmsdóttir, sem á að fermast í vor, lesa
ritningarlestra. Barnasamkoma kl. 11.15.
Léttur hádegisverður á eftir. Guðsþjónustur
á Ljósheimum og á sjúkrahúsi kl. 14.30 og
15.15.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Söngur, saga. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Val-
geir Ástráðsson predikar, Kór Seljakirkju
syngur, organisti Bjartur Logi Guðnason.
Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ást-
ráðsson predikar, Þorvaldur Halldórsson
leiðir tónlistina ásamt kirkjukórnum.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11.
Kammerkór kirkjunnar leiðir tónlistarflutn-
ing undir stjórn Friðriks Vignis Stef-
ánssonar organista. Sunnudagaskólinn er
á sama tíma. Prestur er Hans Markús Haf-
steinsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Nemendur á söngnámskeiði í Skálholti
syngja í messunni. Sóknarprestur.
SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal | Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti er Kitty Kovács,
kirkjukórar Skeiðflatar- og Víkurkirkna
syngja. Fermingarbörn og foreldrar hvött til
að mæta. Sóknarprestur.
STÆRRA-Árskógskirkja | Guðsþjónusta kl.
14.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Stund fyrir börn á öllum
aldri. Guðsþjónusta kl. 13. Kór Víð-
istaðasóknar syngur létta söngva undir
stjórn Úlriks Ólasonar.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar leiðir söng
undir stjórn Gunnhildar Höllu Bald-
ursdóttur. Meðhjálpari Gyða Minný Sigfús-
dóttir. Sunnudagskóli kl. 11. Umsjón hafa
Hanna Vilhjálmsdóttir og María Rut Bald-
ursdóttir.
Árvakur/Þorkell Þorkelsson
Kotstrandarkirkja
Orð dagsins:
Verkamenn í víngarði.
(Matt. 20)
Messa í
Grafarvogskirkju
Messa kl. 11. Prestar eru séra
Bjarni Þór Bjarnason og séra Vig-
fús Þór Árnason, Kór Grafarvogs-
kirkju syngur, organisti Aðalheiður
Þorsteinsdóttir. Í messunni er
fermingarbörnum boðið að ganga
til altaris í fylgd með foreldrum sín-
um. Fundur með foreldrum ferm-
ingarbarna í Húsa- og Rimaskóla að
lokinni messu, þar sem fjallað er
um fermingardaginn og atriði er
lúta að fermingunni. Sunnudaga-
skóli á sama tíma kl. 11 í Graf-
arvogskirkju og í Borgarholtsskóla.
Listaverk helgað
í Vídalínskirkju
Messa kl. 11. Þar verður helgað
verk eftir listamanninn Magnús
Kjartansson sem sett hefur verið
upp fyrir ofan altarið og mun verða
í kirkjuskipinu út föstuna. Þetta
listaverk er annað í röð fjögurra
listaverka sem verða sett upp í Ví-
dalínskirkju á einu ári. Það er nýj-
ung í safnaðarstarfi á Íslandi að
hafa breytilega altaristöflu eftir ís-
lenska listamenn. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir mun predika út frá
verkinu en myndin sýnir gamla
konu í hljóðri bæn.
Í upphafi messunnar verður þeim
börnum sem verða fimm ára á árinu
afhent bókin Kata og Óli fara í
kirkju og síðan er þeim boðið yfir í
safnaðarheimili kirkjunnar til að
taka þátt í sunnudagaskóla Vídal-
ínskirkju undir stjórn æskulýðsfull-
trúa safnaðarins.
Þennan sama dag mun æskulýðs-
fulltrúi Garðasóknar, Ármann Há-
kon Gunnarsson, verða vígður til
djáknaþjónustu við söfnuðinn til að
sinna áfram æskulýðs- og forvarna-
starfi. Vígslan fer fram í Dómkirkj-
unni kl. 14 og eru allir velkomnir.
Æðruleysismessa í
Dómkirkjunni
Æðruleysismessa verður kl. 20.
Bræðrabandið verður á sínum stað,
Birgir og Hörður Bragasynir ásamt
þeim Hjörleifi Valssyni og Önnu
Sigríði Helgadóttur en þau hafa
lengst af flutt tónlistina og leitt al-
mennan söng. Prestar verða sr.
Anna Sigríður Pálsdóttir, sr. Þor-
valdur Víðisson og Bryndís Val-
bjarnardóttir, guðfræðingur.
Í febrúar verða 10 ár síðan æðru-
leysismessurnar hófust í Dómkirkj-
unni. Þær hafa t.a.m. fengið hljóm-
grunn hjá mörgum sem ganga 12
spora slóð AA-samtakanna og hafa
mótast af því fólki sem saman kem-
ur. Einkenni þeirra er einlægni og
almenn þátttaka kirkjugesta.
Vöfflukaffi í Frí-
kirkjunni Reykjavík
Messa og barnastarf kl.14. Ferm-
inarbörn vorsins taka virkan þátt í
messunni með lestrum, móttöku og
fleiru, barn verður borið til skírnar.
Sr Ása Björk þjónar fyrir altari og
prédikar. Gengið verður til altaris.
Barnastarfið hefst í kirkjunni og
síðan fara börnin með Nöndu Maríu
upp í safnaðarheimili. Boðið verður
upp á vöfflukaffi í safnaðarheim-
ilinu eftir messuna.
Rímnasöngur á
samveru eldri borgara
í Laugarneskirkju
Á samveru eldri borgara sem hald-
in verður 24. janúar kl. 14 mun
kvæðamaðurinn Steindór Andersen
kynna íslenskan rímnakveðskap og
flytja fornar stemmur. Er það til-
efni fyrir allt eldra fólk í Laug-
arneshverfi til að njóta fróðleiks og
skemmtunar. Sr. Bjarni Karlsson
sóknarprestur stýrir samverunni
en þjónustuhópur kirkjunnar og
kirkjuvörður eiga veg og vanda að
öllum viðurgjörningi.
Árvakur/Ómar
Dómkirkjan í Reykjavík.