Morgunblaðið - 19.01.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 41
Bókhald
Bókhaldsþjónusta
Öll almenn bókhaldsþjónusta fyrir
einstaklinga og fyrirtæki í rekstri.
Mikil reynsla - fljót afgreiðsla -
vönduð vinnubrögð. Arnarsetur ehf.
Uppl. í síma 899-8185.
Viðskipti
Notaðu skynsemina og skoðaðu
möguleikann
Viltu vera með í að byggja upp öflugt
fyrirtæki með peningum sem þú ert
hvort sem er að nota til að byggja
fyrirtæki annarra? Skoðaðu þá
http://www.Netis.is
Jeppar
Ford F150 Lariat, 11/2005
Hvítur, ekinn 33 þús., nýkominn úr
þjónustueftirliti, ný dekk, þjónustu-
bók, hlaðinn aukabúnaði, 3250 þús.
Uppl. í s. 664 1043.
Hansahillur
Óska eftir hansahillum. Tilbúin að
borga sanngjarnt verð.
Hrund s. 846-2160.
Húsgögn
Óska eftir
Byggingavörur
HALOGEN LJÓSKASTARAR,
mikið úrval.
KASTARAR Á GRIND MEÐ
SNÚRU OG PERU,
150W: 1,095 kr.,
500W: 1,370 kr.,
1000W: 2,299 kr.
VERKFÆRALAGERINN ehf.,
Skeifunni 8.
Sími 588 6090. vl@simnet.is
Óska eftir
að kaupa VW-rúgbrauð með
innréttingu til niðurrifs eða bara
innréttingu. Uppl. í síma 865 0635.
Smáauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
verður haldinn í Sunnusal Hótels Sögu laugar-
daginn 26. janúar 2008 kl. 13.15
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ræða formanns Sjálfstæðis-
flokksins og forsætisráðherra,
Geirs H. Haarde.
Stjórnin.
Vörður - Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík
Kennsla
Skálholtsskóli
Heilsudagar
Helgina 25. - 27. janúar verða
heilsudagar með kyrrðarívafi
í Skálholtsskóla.
Fjölbreytt dagskrá í höndum hjartalæknis,
hjúkrunarfræðings, sjúkraþjálfara og
guðfræðings. Allir hjartanlega velkomnir!
Skráning og nánari upplýsingar
í síma 486 8870 eða með netfanginu
rektor@skalholt.is
Þeir sem vilja geta mætt á fimmtudags-
kvöldið!
Kristilegt félag heilbrigðisstétta
Skálholtsskóli
www.skalholt.is
Félagslíf
Akurinn, kristið félag,
Núpalind 1, Kópavogi.
Almenn samkoma sunnu-
daginn 20. janúar kl. 14.00.
Anne Marie og Harald Rein-
holdtsen frá Hjálpræðishernum
taka þátt í samkomunni.
Allir hjartanlega velkomnir.
20.1. Gönguskíðaferð í Bláfjöll
Brottför frá BSÍ kl. 09:30. Vega-
lengd tæpir 20 km. Fararstj.
Marrit Meintema. V. 3000/2600 kr.
25. - 27.1. Þorrablót
Nesbúð - Fosshótel.
V. 17300/19300 kr. uppb.rúm og
16100/18100 kr. svefnp. Farið á
eigin bílum. Fararstjórar Fríða
Hjálmarsdóttir og Sylvía Hrönn
Kristjánsdóttir.
Sjá nánar á www.utivist.is
Skráningar í ferðir á skrif-
stofu Útivistar í síma 562
1000 eða utivist@utivist.is
Sjá nánar á www.utivist.is
Raðauglýsingar 569 1100
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
frá kr. 29.900
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Vikuferð frá 49.990 - flug og gisting
Heimsferðir bjóða beint morgunflug til Salzburgar í vetur og þar með
tryggjum við þér aðgang að bestu skíðasvæðum Austurríkis, s.s.
Flachau, Lungau og Zell am See. Bjóðum nú frábært sértilboð á allra
síðustu sætunum í janúar. Bjóðum 7 nátta ferð 26. janúar. Í boði er
sértilboð á Hotel Speiereck í Lungau og á hinu glæsilega Hotel Unter-
berghof í Flachau. Tryggðu þér flugsæti og gistingu á besta verðinu og
taktu þátt í skíðaveislu Heimsferða í Austurríki næsta vetur. Mjög
takmarkaður framboð á þessum frábæru kjörum!
Skíðaveisla
í Austurríki
26. janúar
Kr. 49.990
Flug og gisting í viku. Netverð á mann,
m.v. gistingu í tvíbýli á gististað án nafns í
Zell am See / Schuttdorf (sjá skilmála
stökktu tilboðs) með morgunverði í 7
nætur. Sértilboð 26. janúar.
Kr. 69.990
7 nátta ferð með hálfu fæði
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Skihotel Speiereck í Lungau með hálfu fæði
í 7 nætur. Sértilboð 26. janúar.
Kr. 94.590
Frábært **** hótel með hálfu fæði
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Hotel Unterberghof í Flachau með hálfu
fæði í viku, sértilboð 26. janúar.
Kr. 29.900
Flugsæti með sköttum. Sértilboð 26. janúar.
Bridsfélag Kópavogs
Það komu fleiri á spilakvöld hjá
BK en þau mörk sem íslenzka lands-
liðið skoraði á móti Svíum, en það
kom samt í veg fyrir að Barómeter-
inn gæti hafist. Hann hefst næsta
fimmtudag með stórsókn og frábær-
um varnarleik.
Spilaður var Howell og var röð
efstu para:
Ragnar Björnss. - Sigurður Sigurjónss. 125
Bernódus Kristinss. - Birgir Steingrss. 117
Hallgr. Hallgrímss. - Hjálmar Pálss. 117
Þórður Jörundss. - Jörundur Þórðars. 115
Það vakti sérstaka athygli að for-
seti BSÍ mætti til leiks, en hann var
óheppinn með makker!
Upplýs. um Barómeterinn fást hjá
Lofti í s. 897 0881
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 15. janúar var spilað
á 15 borðum.
Meðalskor var 312. Úrslit urðu
þessi í N/S
Helgi Sigurðsson – Jón Sigvaldason 407
Sveinn Snorrason – Gústav Nilsson 387
Albert Þorsteinss. – Bjarnar Ingimarss. 359
Alfreð Kristjánss. – Hörður Pálsson 329
A/V
Birgir Ísleifsson – Örn Einarsson 390
Kristján Þorlákss. – Jón Sævaldss. 374
Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 373
Þorvaldur Þorgrímss. – Hera Guðjónsd. 357
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, fimmtud. 10.01.
Spilað var á 9 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Jóhannes Guðmannss. - Unnar Guðmss. 286
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 244
Júlíus Guðmss. - Rafn Kristjánss. 239
Árangur A-V
Oddur Jónsson - Óli Gíslason 262
Auðunn Guðmss. - Björn Árnason 262
Einar Einarsson - Oddur Halldórss. 227
Tvímenningskeppni fimmtud.
17.01.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig og árangur N-S.
Jón Hallgrímss. - Helgi Hallgrímss. 278
Jóhannes Guðmannss. - Unnar Guðmss. 240
Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 238
Árangur A-V
Hólmfríður Árnad. - Stefán Finnbogas. 255
Auðunn Guðmundsson - Björn Árnas. 255
Þröstur Sveinsson - Bjarni Ásmunds 254
Gullsmárinn
Úrslit 17.1. 12 borð – Meðalskor
168
Norður/Suður:
Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal187,5
Leifur Jóhanness.– Guðm. Magnúss. 186,4
Karl Gunnarss. – Gunnar Sigurbjörns. 185,6
Haukur Guðbjartss. – Jón Jóhanness 184,9
A/V
Elís Kristjánss. Páll Ólason 222,4
Bragi Bjarnason – Haukur Guðmss. 204,3
Heiður Gestsd. – Dóra Friðleifsdóttir 194
Aðalh. Torfad. – Ragnar Ásmundss. 181,2
Tímamót hjá Bridsfélagi Hreyf-
ils
Það var spilað síðara kvöldið í tví-
menningskeppni hjá félaginu sl.
mánudagskvöld og lokastaðan varð
þessi:
Daníel Halldórss. - Ágúst Benediktss. 257
Birgir Sigurðarson - Sigurður Ólafss. 246
Eiður Gunnlaugss. - Jón Egilsson 239
Björn Stefánss - Árni Kristjánss. 226
Hæstu skor kvöldsins fengu Rún-
ar Gunnarsson og Ísak Örn Sigurðs-
son eða 142 og Birgir Sigurðarson og
Sigurður Ólafsson 137.
Þetta var síðasta spilakvöld fé-
lagsins í Hreyfilshúsinu. Af því til-
efni vill Daníel Halldórsson fyrir
hönd Bridsfélagsins flytja Bifreiða-
félaginu Hreyfli bestu þakkir fyrir
afnot af þeirra glæsilega sal til
margra ára en hann stóð þeim til
boða endurgjaldslaust. Úr þessum
sal á margur bílstjórinn sem og aðrir
spilarar góðar minningar. Takk fyrir
okkur.
Næstkomandi mánudagskvöld
hefst keppni á nýjum stað þ.e. í sal
Sendibílastöðvarinnar í Sundahöfn.
Keppnin hefst kl. 19,30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi ályktun sem var sam-
þykkt á fundi miðstjórnar og samn-
inganefndar Rafiðnaðarsambandsins
hinn 18. janúar 2008:
„Á fundi miðstjórnar og samninga-
nefnda Rafiðnaðarsambandsins 18.
jan. 2008 var fjallað ítarlega um þá
stöðu sem er komin upp í yfirstand-
andi kjarasamningum. Á fundinn
mættu auk þess forsetar og fram-
kvæmdastjóri ASÍ. Áberandi var á
fundinum reiði yfir ábyrgðarleysi
framkvstj. SA með því að keyra
samningaviðræður í algjöran hnút
með óskiljanlegum inngripum og út-
úrsnúningi á tillögum stéttarfélag-
anna í fyrstu viku þessa árs.
Rafiðnaðarsambandið samþykkti á
fundi 28. nóv. síðastl. að taka þátt í
sameiginlegri aðkomu ASÍ-félaganna
að kjarasamningsgerð. Í samþykkt
Rafiðnaðarsambandsins kom m.a.
fram „Helsta ástæða þess er gríðar-
leg óvissa um efnahagslegar forsend-
ur. Það er við þessar aðstæður sem
kjarasamningar á almennum vinnu-
markaði losna um næstu áramót.
Rafiðnaðarsambandið hefur ásamt
öðrum aðildarsamtökum Alþýðusam-
bandsins þegar hafið viðræður við
samtök atvinnurekenda og lagt fram
áherslur sínar. Rafiðnaðarsambandið
telur mikilvægt að við þessar aðstæð-
ur verði gerður sáttmáli milli aðila
vinnumarkaðarins og stjórnvalda um
samræmda stefnu í kjara-, efnahags-,
atvinnu- og félagsmálum.“ Um ára-
mótin voru viðræður komnar vel af
stað og fyrir lá vilji aðila um að semja
til tveggja ára, ásamt því að búið var
að draga upp útlínur og umfang að-
komu ríkisstjórnar. En öllum að
óvörum sprengdi SA þetta í loft upp í
fyrstu viku þessa árs og fékk ríkis-
stjórnina í lið með sér. Eðlileg við-
brögð landssambandanna voru að
draga upp sínar kröfugerðir. Við
þessar aðstæður væru engar for-
sendur til þess að gera samning til
lengri tíma en eins árs og RSÍ lagði
fram ítarlegar tillögur að árssamn-
ingi. Miðvikudaginn 16. janúar kem-
ur SA enn öllum að óvörum og krefst
fjögurra ára samnings.
Miðstjórn RSÍ fordæmir ruglings-
leg vinnubrögð SA og algjört stefnu-
leysi. SA hefur með þessu hátterni
sýnt ábyrgðarleysi og fengið ríkis-
stjórnina til þess að sýna efnahags-
stjórninni sama ábyrgðarleysi. SA
hefur lítilsvirt þann vilja sem samtök
launamanna höfðu sýnt um samvinnu
í mótun efnahagsstefnu og hefur tek-
ið upp vinnubrögð sem aðilar vinnu-
markaðarins hafa ekki viðhaft frá því
þjóðarsátt var gerð.
Rafiðnaðarmenn hafna þátttöku í
sjónleik framkvæmdastjóra SA.
Honum er heimilt að helga sér sviðið
allt, en meðan sá sjónleik stendur
verða ekki gerðir kjarasamningar og
undirstöður efnahagslífsins veikjast.
SA verður að gera hreint fyrir sínum
dyrum og koma fram með einhverja
stefnu. Stefnu sem SA væri tilbúið að
standa við þó það væri ekki nema út
samningstímann.“
Reiði yfir ábyrgðarleysi SA