Morgunblaðið - 19.01.2008, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 43
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Stofuspjall Gunn-
laugs A. Jónssonar guðfræðiprófess-
ors verður 21. janúar kl. 14, hann mun
fjallar um boðskap myndarinnar „Ba-
bettes gæstebud.“ Föstudagur 25.
janúar er þorrahlaðborð kl. 17.
Skemmtiatriði, happdrætti og ball.
Verð 3.700 kr. Skráning í s. 535-
2760.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Revíusöngvar – söngperlur úr
íslenskum revíum. Sýning í Iðnó 5.
febrúar kl. 14. Soffía Karlsdóttir og
Örn Árnason rifja upp revíulög frá ár-
unum 1902-1950. Skráning og uppl. í
félagsmiðstöðvunum til 25. jan.,
greiða þarf fyrir þann tíma á skrif-
stofu FEBK eða ferðanefnd.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar bjóða í heimsókn
gönguhópunum Hananú í Kópavogi
og Hæðargarði 31, í dag og er mæting
kl. 10 í Stangarhyl 4.
Félagsheimilið Gjábakki | Gönguhóp-
ur Hana-nú fer í heimsókn til Göngu-
Hrólfa í Reykjavík. Rúta fer frá Gjá-
bakka kl. 9.30 að félagsheimili eldri
borgara í RVK. við Stangarhyl og
sameinast gönguhópum. Krumma-
kaffi kl. 9. Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Dagana 6.-
10. febrúar er menningar- og listahá-
tíð eldri borgara í Breiðholti, tengist
Vetrarhátíð í Reykjavík. M.a.:
íþróttahátíð á öskudaginn í samvinnu
við FÁÍA, kynning á félagsstarfi, þjón-
ustu og samstarfsaðilum með við-
burðum, m.a. í Ráðhúsinu 9. febrúar.
Hraunbær 105 | Þorrablót eldri borg-
ara í Árbæ og Grafarholti verður í Fé-
lagsmiðstöðinni 1. febrúar. Skráning
og uppl. í félagsmiðstöðinni eða í
síma 411-2730. Síðasti dagur skrán-
ingar er 8. janúar. Verð 3.500 kr. Fé-
dagbók
Í dag er laugardagur 19. janúar, 19. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.)
Svanfríður Lárusdóttir er leið-beinandi á námskeiðinuBlandaðu þér í hópinn semhaldið verður næstkomandi
miðvikudag. Námskeiðið er haldið í
samstarfi við KMK, og fer fram í
húsakynnum Samtakanna ’78, á 4.
hæð Laugavegar 3.
„Þátttakendur læra á námskeiðinu
að „mingla“, nýta sér þá möguleika
sem gefast til að kynnast nýju fólki og
efla tengslanet sitt,“ segir Svanfríður,
sem um árabil hefur starfað sem leið-
beinandi hjá JCI. „Þau ráð sem
kennd verða gagnast jafnt í kokteil-
boðum og vinnustaðasamkvæmum, á
viðskiptaráðstefnum og -fundum, og
raunar á hverskyns mannamótum
þar sem hægt er að stofna til nýrra
kynna.“
Svanfríður segir algengt að Íslend-
ingar kunni ekki að blanda geði, og
nýti sér ekki þau tækifæri sem felast í
að byggja upp gott tengslanet: „Gott
tengslanet getur komið sér mjög vel í
starfi, og gagnast bæði kaupendum
og seljendum. Hægt er að ná hvers-
konar markmiðum með því að byggja
upp vandað tengslanet með skipu-
lögðum hætti og með því að kunna að
kynnast fólki þegar tækifæri gefst
til,“ segir Svanfríður. „Íslendingar
eru margir óframfærnir í marg-
menni, og hættir til að króa sig af úti í
horni með sínum hópi. Hver kannast
ekki við fermingarveislurnar þar sem
aðgreindir hópar ættarinnar setjast
hver í sitt horn og engin blöndun
verður. Sama gerist á faglega sviðinu,
að fólki hættir til að hreiðra um sig í
félagsskap vinnufélaganna frekar en
efna til nýrra tengsla.“
Námskeiðið er um tveir tímar á
lengd, og segir Svanfríður margt
hægt að læra á svo stuttum tíma:
„Við lærum verklega, æfum verkefni
við ímyndaðar aðstæður og höfum
umræður í hóp,“ segir hún. „Meðal
annars munu þátttakendur læra að
lesa úr líkamstáknmáli fólks, og finna
réttu manneskjuna í hverjum hópi til
að gefa sit á tal við. Einnig förum við
yfir tækni til að flokka og þekkja fólk
af nafnspjöldum sem skipst er á, og
við lærum með virkum hætti að kom-
ast yfir þann feimniþröskuld sem
hindrar okkur í að gefa okkur á tal við
ókunnuga.“
Námskeiðsgjöld eru kr. 2.500 og er
námskeiðið öllum opið. Skrá þarf
þátttöku með tölvupósti á
kmk@kmk.is.
Menntun | Námskeið um hvernig á að blanda geði og efla tengslanet
Blandaðu þér í hópinn
Svanfríður
Lárusdóttir
fæddist í
Reykjavík 1963.
Hún á að baki
víðtæka mennt-
un á sviði ræðu-
og sölumennsku
og hefur starfað
sem söluþjálfari
og leiðbeinandi, m.a. á vegum JCI
þar sem hún hefur alþjóðleg leið-
beinendaréttindi. Svanfríður hefur
starfað við sölu og ráðgjöf, og er nú
prentráðgjafi hjá Háskólaprenti.
Sambýliskona Svanfríðar er Guð-
björg Ottósdóttir félagsráðgjafi og
eiga þær tvö börn.
Tónlist
Norræna húsið | Íslenski saxófónkvartett-
inn flytur rússneska og franska tónlist kl.
15.15. Íslenska saxófónkvartettinn skipa
Vigdís Klara Aradóttir á sópransaxófón,
Sigurður Flosason á altsaxófón, Peter
Tompkins á tenórsaxófón og Guido Bäu-
mer á barítónsaxófón.
Organ | Tónleikar verða í tilefni þess að 19.
janúar hefði Janis Joplin orðið 65 ára.
Söngvarar eru: Andrea Gylfadóttir, Daníel
Ágúst, Didda, Diva de la Rosa (Sometime),
Elíza, Jenni í Brainpolice, Kenya, Lay Low,
Lísa Páls, Ragnheiður Gröndal og leyni-
gestir.
Myndlist
Norræna húsið | Ljósmyndasýning Re-
bekku Guðleifsdóttur „Af jörðu ertu kom-
in“ verður opnuð kl. 16, í kjallara hússins og
stendur til 10. febrúar.
Leiklist
Möguleikhúsið | Hugleikur frumsýnir Út-
sýni sem er dramatískt leikrit með léttu
ívafi eftir Júlíu Hannam. Leikstjórar eru
Rúnar Lund og Silja Björk Huldudóttir.
Verkið er í tveimur þáttum, og fjallar um
þanþol sannrar vináttu, traustið sem ríkir
milli einstaklinga í hjónabandi, öfundsýki
og sjálfsvirðingu.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breið-
firðingabúð, sunnudaginn 20. janúar kl. 14.
Fyrsti dagur í þriggja daga keppni. Nánari
uppl. á heimasíðu Breiðfirðingafélagsins:
www.bf.is
Fyrirlestrar og fundir
Framsókn í Reykjavík | Opið hús á Hverf-
isgötu 33, kl. 11-12.30. Valgerður Sverr-
isdóttir varaformaður Framsóknarflokks-
ins ræðir um málefni líðandi stundar og
þingstörfin. Stjórn SUF verður með kaffi-
veitingar.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Mjöll Snæsdóttir flytur fyrirlestur 22. jan-
úar á Landnámssýningunni Reykjavík 871
±2 í Aðalstræti 16. Fyrirlesturinn nefnist
Hvernig var lífið í Aðalstræti á landnáms-
öld? og fjallar um það sem fornleifarann-
sóknir í Kvosinni hafa leitt í ljós.
OA-samtökin | Allir boðnir velkomnir sem
vilja losna undan matarfíkn. Engin þátt-
tökugjöld. Nánari upplýsingar um fund-
artíma á www.oa.is
Frístundir og námskeið
www.ljosmyndari.is | Þriggja daga ljós-
myndanámskeið 11., 13. og 14. feb. kl. 18-22.
Myndavélin, myndatökur, myndbygging,
heimastúdíó myndataka, tölvumálin og
Photoshop. Námskeiðsgjald 18.900 kr.
Leiðbeinandi Pálmi Guðmundsson, s: 898-
3911. Skráning á www.ljosmyndari.is
lagsmiðstöðin í samvinnu við Árbæj-
arþrek býður eldri borgurum í Árbæ
og Grafarholti upp á ókeypis 10 tíma
námskeið í líkamsrækt í Árbæjarþreki
sem hefst 22. jan. Ókeypis 10 tíma
námskeið í stafgöngu frá Fé-
lagsmiðstöðinni tvisvar í viku og
hefst 22. janúar. Skráning og uppl.
um námskeiðin er í Félagsmiðstöð-
inni, sími 411-2730.
Hæðargarður 31 | Gönguferð laug-
ardagsmorgna kl. 10. Einnig er gengið
alla virka daga kl. 9. Ókeypis tölvu-
leiðbeiningarnar á miðvikud. og
fimmtud. kl. 13.15-15. Nemendur úr
Breiðagerðisskóla aðstoða ásamt
Svavari og Líneyju. Uppl. 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ-
landsskóla, Víðigrund kl. 9.30. Upp-
lýsingar í símum 564-1490 og 554-
5330.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Messa kl. 11. Sr.
Svavar A. Jónsson. Félagar úr
messuhópi aðstoða og félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja, organisti
Lára Bryndís Eggertsdóttir. Sunnu-
dagaskólinn hefst að nýju kl. 11 í Safn-
aðarheimilinu. Súpa og brauð á vægu
verði eftir messuna.
GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna, gengur yfir lóð Hvíta hússins í Washington í gær.
Eitt stórt skref fyrir mig …
Reuters
FRÉTTIR
AÐALSKOÐUN hf. hefur tekið í notkun fullkomna skoðunarstöð fyrir öku-
tæki. Nýja stöðin, sem jafnframt er sú sjötta sem félagið hefur yfir að ráða
á landinu, er staðsett í Skeifunni 5 í Reykjavík.
Í fréttatilkynningu kemur fram að í nýju stöðinni verði tvær afkasta-
miklar skoðunarbrautir fyrir fólks- og sendibíla auk brautar fyrir sértæk-
ar skoðanir. Brautirnar ráða við allt frá litlum fólksbílum upp í millistærð-
ir bíla og jeppa.
Öll hönnun stöðvarinnar miðar að því að skoðunin gangi greiðlega fyrir
sig og aðstaða viðskiptavina sé sem best. Ekið er í gegnum húsnæðið til að
auðvelda aðkomu og flæði bíla í gegnum stöðina.
Borðaklipping Bergur Helgason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar, Krist-
ján Möller samgönguráðherra og Jafet S. Ólafsson, stjórnarformaður Að-
alskoðunar, við opnun nýju stöðvarinnar í Skeifunni 5.
Aðalskoðun opnar nýja
skoðunarstöð í Skeifunni
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun sem stjórn
Blaðamannafélags Íslands sam-
þykkti á fundi sínum:
„Frelsi til að tala og rita það sem
mönnum býr í brjósti telst til dýr-
mætustu mannréttinda. Skoðana-
frelsi, upplýsingafrelsi, málfrelsi og
frelsi til að miðla hugmyndum eru
forsendur til að nútíma lýðræðis-
þjóðfélag fái þrifist. Án tjáningar-
frelsis er engin leið að tryggja að
annarra mannréttinda sé gætt. Því
er tjáningarfrelsi forsenda þess að
almennt lýðfrelsi ríki.
Undanfarið hafa fallið dómar sem
þrengja mjög að tjáningarfrelsi og
byggja á mjög þröngri túlkun dóm-
stóla á því sem getur kallast eðlileg
umræða í lýðræðisþjóðfélagi. Í þess-
um dómum birtist mjög neikvæð sýn
á tjáningarfrelsi og þeim sjónarmið-
um sem að baki því liggja.
Blaðamannafélag Íslands varar
við þessari þróun og brýnir dómstóla
landsins að kynna sér alþjóðlega
dómaframkvæmd á því sviði. Einnig
er sérsök ástæða til þess að hvetja
dómendur til að rifja upp dóm Mann-
réttindadómstóls Evrópu í máli Þor-
geirs Þorgeirsonar rithöfundar frá
árinu 1992 (47/1991/299/370). Þar
vekur Mannréttindadómstólinn at-
hygli á því að tjáningarfrelsi „... er
ein helsta grundvallarstoð lýðræðis-
þjóðfélags; ... nær það ekki einungis
til „vitneskju“ eða „hugmynda“ sem
tekið er við með velþóknun eða tald-
ar eru meinlausar eða litlu skipta,
heldur einnig til þeirra sem valda
sárindum, hneykslun eða ólgu. Það
tjáningarfrelsi sem 10. greinin
verndar er háð nokkrum undantekn-
ingum, sem þó ber að skýra þröngt,
og sýna verður fram á nauðsyn tak-
markana með sannfærandi hætti.“
Í dóminum yfir Þorgeiri vék dóm-
stóllinn einnig að hlutverki fjölmiðla
með eftirfarandi orðum: „Það er
ekki einungis hlutverk þeirra að
miðla slíkri vitneskju og hugmynd-
um; almenningur á einnig rétt á að
taka við þeim. Að öðrum kosti gætu
blöðin ekki rækt hið ómissandi hlut-
verk sitt sem „varðhundar almenn-
ings“.
Blaðamannafélag Íslands telur
nauðsynlegt að vekja athygli á þess-
ari niðurstöðu Mannréttindadóm-
stólsins og hvetur dómstóla landsins
til að kynna sér hana til hlítar áður
en þeir draga allt bit og líf úr þeirri
umræðu sem hverri þjóð er nauð-
synlegt að eiga.“
Ályktun til varnar
tjáningarfrelsi
ALÞJÓÐASAMTÖKIN Equality
Now hafa veitt 9 grasrótarsamtök-
um viðurkenningu fyrir framúrskar-
andi starf í baráttunni gegn mansali.
Samtökin fengu hver um sig 10.000
dollara til starfseminnar og var tals-
konum þeirra jafnframt boðið til
Nepal í desember til þess að leggja á
ráðin um framtíðarsamstarf á al-
þjóðavettvangi. Stígamót eru önnur
tvennra samtaka í Evrópu sem
hlotnaðist þessi heiður. Hin samtök-
in eru frá Lettlandi, Kambódíu, Ind-
landi, Filippseyjum, Bandaríkjun-
um, Nepal og Perú.
Í fréttatilkynningu kemur fram að
Equality Now beiti sér gegn ofbeldi
og hvers kyns órétti gagnvart kon-
um og stelpum hvar sem er í heim-
inum. Sérstaklega beita samtökin
þrýstingi til þess að binda enda á
nauðganir, ofbeldi í parasambönd-
um, mansal, limlestingar á kynfær-
um kvenna og kynjamisrétti, og efla
rétt kvenna til þess að stjórna eigin
barneignum og pólitíska þátttöku
þeirra. Samtökin njóta mikillar virð-
ingar í jafnréttisgeiranum og ein af
áberandi liðskonum þeirra er leik-
konan Meryl Streep.
„Baráttan gegn mansali verður
aðeins háð með alþjóðlegu samstarfi.
Viðurkenning Equality Now er mikil
hvatning fyrir starfsemi Stígamóta
og mun brýna starfskonur til þess að
leggja sig allar fram í baráttunni
gegn vændi og mansali,“ segir í frétt
frá Stígamótum.
Stígamót hljóta alþjóð-
lega viðurkenningu